Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1991, Blaðsíða 3
24
MÁNUDAGUR 25. MARS 1991.
Ferðir
Nítjánda holan er vinsæl
- segir Derek Wallace frá frlandi
Flestum kemur á óvart hve írland er grænt og gróöurmikiö.
„íslendingar ættu að finna margt
við sitt hæfi á írlandi. Náttúrufegurð
er mikil enda írland þekkt sem eyjan
græna. Golfvellir eru margir og
fremur ódýrir, golf er ekki yfirstétt-
aríþrótt á írlandi. Menn geta átt von
á tólf ára strákum eða fullorðnum
konum sveiflandi kylfum um allan
völl. Golfkennsla er einnig góð og því
geta ferðamenn leikið golf í fríinu
sínu þó þeir hafi litla reynslu. Og
golf dagsins endar ekki ósjaldan í 19.
hoiunni," sagði írinn Derek Wallace
í samtali viö DV á dögunum. Hann
brosti í kampinn þegar hann ræddi
19. holuna og hafði gaman af þegar
blaðamaður spurði hvernig þessi
nítjánda hola kæmi golfinu viö.
„Nítjánda holan er pöbbinn," sagðir
Derek og bætti við að glas (eða glös)
af írskum bjór eða írsku viskíi væri
góður endir á degi úti á golfvelli.
Heimilislegir pöbbar
Pöbbarnir á írlandi eru einstakir í
sinni röð, sagði Derek. Fólkið safnast
saman, segir sögur og er virkilega
eins og heima hjá sér. íslendingar
finna sig líklega strax í þessu írska
andrúmslofti sem ekki er ósvipað
hinu íslenska. Ekki spillir fyrir að
írar eru mikhr söngmenn eins og
íslendingar þekkja af heimsóknum
The Dubliners hingað til lands.
Höfuðborg írlands er einmitt Dub-
lin sem hljómsveitin er kennd við.
„Dublin fagnaði þúsund ára afmæli
síjiu fyrir tveimur árum og af því
tilefni var borgin tekin í gegn. Hún
er nú ákaflega hrein og borgarbúar
eru ákaflega stoltir af henni. Verslun
er mikil í Dubhn en það vita íslend-
ingar sem þangaö hafa komið í versl-
unarferðir. Verðlag er mjög hagstætt
og úrvalið mikið,“ sagði Derek.
Græntog
gróðurmikið
Derek var spurður um hvaö kæmi
ferðamönnum mest á óvart varðandi
írland og hann svaraöi að bragði.
„Flestum kemur á óvart hvað írland
er gróðursælt og grænt. Viðmót og
v.ðhorf íra kemur líka mörgum á
óvart. írar eru ákaflega blátt áfram
og L'olegir. Þeir æsa sig lítt yfir smá-
munum og láta hverjum degi nægja
sína þjáningu." írar kalla erlenda
ferðamenn „gesti“ en ekki „túrista“.
Vorið kemur snemma
Það vorar snemma á írlandi og
vorið stendur til maíloka. Á suðvest-
urströndinni vaxa pálmar og þar eru
ótrúlegir skrúðgarðar. Sumarið er
frekar hlýtt og síðustu sumur hafa
verið sérstaklega góð.
Áfangastaöur íslendinganna sem
Derek sér um er Cork á suðurströnd-
inni. „í nálægð Cork eru kastalar,
dómkirkjur, fomminjar og góðar
verslanir. Nálægt sumarhúsabyggð-
inni er hin heimsfræga Waterford-
kristalsverksmiðja. Fjölmargir golf-
vellir eru á svæðinu og veiðivötn sem
eru virkilega spennandi," sagði De-
rek.
Gisting í köstulum
írland er fyrst og fremst land-
búnaðarland en ferðaþjónusta er
næststærsta atvinnugreinin. Eyjan
er mun minni en ísland og því er
mögulegt aö aka um hana alla á
nokkmm dögum. „Ég vil þó ekki
mæla með svoleiðis ferðalagi," sagði
Derek. „Ferðamenn eiga að taka líf-
inu með ró líkt og írarnir gera sjálf-
ir. Gistimöguleikarnir eru allt frá
bændagistingu til glæsiherbergja í
köstulum. Einn skemmtilegasti
ferðamátinn er ökuferð um landið
og blanda þessum tveimur gisti-
möguleikum saman eftir því sem
hver vih.“
Veiði og skólar
Á írlandi er íjöldi áa og vatna sem
gefa fisk. Silungur og sjóbirtingur
Derek Wallace segir írska bjórinn
þann besta í heimi.
eru eftirsóttustu tegundirnar en
fiöldi annarra tegunda gefur sig.
Einnig er stangveiði í sjó í boði en
Derek taldi slíkt ekki höfða mikið til
fiskimannaþjóðarinnar hér á Fróni.
Einnig er hægt að komast að í veiði-
skólum ýmsum sem kenna tæknina.
„írar er ákaflega forvitnir og tala
mikið. íslendingar á ferð á írlandi
geta allt eins átt von á spumingum
um uppruna sinn. Þegar hinn for-
vitni fær svarið ísland verður hann
enn forvitnari og spyr enn frekar.
Fljótlega verða menn í hörkusam-
ræðum sem enda líklega með söng
og tralli á pöbbnum yfir besta bjór í
heimi," sagði Derek Wallace frá ír-
landi.
Ferðagetraun DV og Flugleiða:
Má bjóða þér til
Amsterdam?
„Ég trúi þessu ekki. Ertu aö grín-
ast?“ sagði Sessefia Stefánsdóttir,
Birkihhð í V-Húnavatnssýslu, þeg-
ar henni var tílkynnt að hún ætti
ferð fyrir tvo til Amsterdam í boði
DV og Flugleiða. Reyndar var hún
svo tortryggin aö hún hringdi til
blaðsins til að vera alveg viss um
að hún væri hinn heppni þátttak-
andi. Heppni hennar er mikil því
innsendir seðlar í ferðagetraun DV
og Flugleiða skiptu þúsundum.
Sesselja gat engan veginn sagt tii
um hvenær hún færi enda er ferðin
opin. Hún taldi rétt aö bera þetta
undir annað heimilisfólk og nota
síðan páskana til að hugsa sig um.
„Ég hef ekki einu sinni ákveðið
hvenær ég tek sumarfriið mitt,“
sagöi Sessefia en hún vinnur á sam-
býlinu að Gauksmýri. Sesselja er
gift og á fiögur börn en þrjú þeirra
eru uppkominn. Ferðin sem hún
fær er fyrir tvo meö fiögurrra daga
hótelgistingu. Hins vegar er flug-
miðinn ekki dagbundinn og hún
getur því haft Hollandsferðina legri
ef vill.
DV þakkar þeim fiölmörgu sem
tóku þátt í getrauninni. Það másvo
benda á aö í gangi er áskriftarget-
raun DV og í boði eru sex ferða-
vinningar en hinn fyrsti verður
dreginn út 19. april. Enn er því
tækifæri til aö hreppa ferðavinning
í sumar.
Sonja Sigurðardóttir dregur hér út nafnið í Ferðagetraun DV og Flugleiða.
MÁNUDAGUR 25. MARS 1991.
33
dv Ferdir
Útivist:
Spennandi
páskaferðir
Ferðafélagið Útivist stendur fyrir
spennandi göngu/skíðaferðum um
páskana þar sem fólk getur valið um
fiórar ferðir.
Fyrsta ferðin, Landmannalaugar-
Básar, stendur yfir frá 28. mars til
1. apríl. Hefst gangan viö Sigöldu.
Þaðan verður gengið í Laugar og gist
þar. Ef skilyrði verða góð verður hins
vegar gengið samdægurs í Hrafnt-
innusker. Hér er um að ræða frekar
erfiða skíðagöngu fyrir vant fólk.
Gist verður í skálum. Ferðinni lýkur
í Básum. Fararstjóri verður Reynir
Sigurðsson.
Þá er það skíðagangan Þingvellir-
Skjaldbreiður-Geysir, 30. mars til 1.
apríl. Liggur leiðin frá Þingvöllum
upp á Hlöðuvelli og niður Haukadal.
Gist verður í tjöldum. Nánar tiltekið
verður gengið sem leiö liggur á Hoff-
mannsflöt, gegnum Goöaskarð, með-
fram Lágafelli og á Eyfirðingaveg.
Eftir honum verður gengið að
gangnamannaskálanum við Kerl-
ingu þar sem slegið verður upp fiöld-
um. A öðrum degi verður gengið frá
Kerhngu að Hlöðufelli. Ef veður leyf-
ir er hugmyndin að fara yfir hátind
Skjaldbreiðar. Þriðja daginn verður
gengiö frá Hlöðufelli og beint í Hellis-
skarð, yfir Úthlíðarhiaun, meðfram
Bjarnarfelh og að Geysi. Fararstjóri
verður Óli Þór Hilmarsson.
28. mars til 1. arpíl veröur farið um
Snæfehsnes og á Snæfehsjökul.
Verður gengið á Snæfellsjökul og
mælt með gönguskíðum í þá ferð þó
það sé ekki skhyröi fyrir þátttöku.
Verður boðið upp á strandgöngur og
fleira skemmtilegt. Gist verður að
Lýsuhóh en þar er sundlaug. Farar-
stjór verður Ásta Þorleifsdóttir.
Loks er það ferðin Þórsmörk-
Básar, 30. mars th 1. aprh. Færðin
inn í Þórsmörk mun vera eins og aö
sumarlagi og öll skhyrði th göngu-
ferða eins og best verður á kosið. Á
kvöldin er hugmyndin að slappa af í
góðum hópi í þægilegum húsakynn-
um Útivistarskálanna í Básum. Far-
arstjóri verður Ingibjörg Ásgeirs-
dóttir.
Úrval-Útsýn og Hress:
Heilsurækt
í sólinni
Úrval-Útsýn og líkamsræktarstöð-
in Hress hafa ákveðið að bjóða upp
á hópferðar til Costa del Sol á Spáni
undir kjörorðinu „Hress lífsstíll“.
Hugmyndin er að sameina sólarfrí
og heilbrigöan lífssth.
Hópurinn mun búa á íbúðahótehnu
Benal Beach þar sem mjög fullkomin
aðstaða er th heilsuræktar, sunds og
annarra hohustuiðkana. Þegar
kvölda tekur mun hópurinn halda
saman við ýmsa afþreyingu.
í samræmi við kjörorð ferðarinnar
verður lögð áhersla á holla hreyfingu
auk þess sem ráðleggingar verða
gefnar um mataræði. Boðið verður
upp á leikfimi og líkamsrækt auk
þess sem skokkhópar verða starf-
andi. Anna Haraldsóttir iþróttakenn-
ari mun leiða þessa starfsemi.
Golfarar fá tækifæri th að hreyfa
sig á golfvöllum Costa del Sol og í lok
dvalarinnar verður haldið golfmót
með verðlaunum. Væntanlegum
þátttakendum er boöið upp á undir-
búningsnámskeið hjá líkamsræktar-
stöðinni Hress.
Samvinnuferðir-Landsýn:
Hópferðir á
hestasýningu
Sammvinnuferðir-Landsýn standa
fyrir tveimur hópferðum á hina
margfrægu hestamennskusýningu
Equitana í Essen en hún er sú
stærsta sinnar tegundar í heiminum.
Útlit er fyrir að íslenski hesturinn
verði enn meir í sviðsljósinu en fyrr
og útlit fyrir hreint ævintýri fyrir
hestamenn. Um er að ræða 7 eða 12
nætur á verði frá 59.700 og 72.800
krónur.
FERÐAMARKAÐUR
FÉLAGS ÍSLENSKRA FERÐASKRIFSTOFA
FERÐASKRIFSTOFA
STÚDENTA
HRINGBRAUT. SÍMI 615656
ftVINTYRfiFERÐIR
fiSÍfi, fiFRÍKa
S-fiMERÍKfi
Leiguflugið okkar opnar þér
ótal ferðamöguleika
London Kaupmannahöfn
frákr.14.700. frá kr. 15.800
(Val um 1, 2 eða 3 vikur)
FLUGFERDIR
SGLRRFLUG
Vesturgata 12, sími 620066 og 15331
Akstur og sigling
leð hópferðabifreið okkartil Evrópu. Sérlega þægilegurferða-
máti, sama bifreið allan tímann, gisting á góðum hótelum/íbúð-
um, íslensk leiðsögn.
24 daga ferð, 5.-28. júní:
ísland, Danmörk, Þýskaland, Skotland, Hjaltlandseyjar, Færeyjar
- Island. Kr. 145.300.
17 daga ferð, 14.-30. ágúst:
ísland, Danmörk, Þýskaland, Noregur, Færeyjar, island. Kr.
94.800.
Verð miðað við gistingu í 2 m. herbergjum og 4 m. klefa í ferjum.
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar hf.
Borgartúni 34, sími 83222
BASEL
Flug
og
bíll
Verð frá kr. 24.510.
Samvinnulerliir-Laiiilsýii
Reykjavik: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 1010 • Innanlandsferðir S. 91 • 6910 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 • Telex 2241
Hótel Söflu við Hagatorg • S. 91 • 62 22 77 • Slmbréf 91 • 62 39 80 Akureyrl: Skipagötu 14 • S. % - 27 200 • Simbréf 96 - 2 75 88 • Telex 2195
SÉRGREIN SÖGU
FLUG OG BÍLL
UM BANDARÍKIN
HJÁ OKKUR FÆRÐ ÞÚ MARGAR SPENNANDI
FERDATILLÖGUR MEÐ BÍLALEIGUBÍL UM BANDA-
RÍKIN.
VIÐ ÚTVEGUM FLUG, BÍL OG GISTINGU Á FYRIR-
FRAM ÁKVEÐNUM STÖÐUM EÐA EFTIR ÓSKUM
HVERS OG EINS.
HRINGDU OG FÁÐU BÆKLINGINN OKKAR SENDAN,
ÞAR FINNUR ÞÚ ALLAR UPPLÝSINGAR UM ÞESSAR
SPENNANDI FERDIR.
Ferðaskrifstofan
- þjónusta alla lelð
Suðurgötu 7, s. 624040.
‘ Einfaldlega
betra
greiðslukort
DANMORK HEILLAR
Flug og bill leikandi létt. Láttu drauminn um gott
frí rætast. Sértilboð í brottför 23. júlí. Verð frá kr.
19.900
á mann miðað við 4 I bíl I A-flokki í
1 viku, 2 fullorðnir og 2 börn
652266
652266
I
VORIÐ A
BENIDORM
EINS OG GOTT SUMAR Á ÍSLANDI
Ódýrasta vorferðin 9. apríl í 23 daga.
Gisting á LEVANTE CLUB, besta íbúð-
arhótelinu.
Fáein sæti laus
umiiisilni
Austurstræti 17, sími 62 22 00
Umboösmenn um allt land
I
i
umDoosmenn um allt land ^
^5iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii5iiiiiiiiiiiiiiiii55
Þú ert á heimaslóð í „París norðursins",
Kaupmannahöfn, borg sem tekur þér
opnum örmum. Með daglegum áætlunar-
ferðum til Kaupmannahafnar gera Flug-
leiðir þér kleift að eiga góðar stundir
allan ársins hring í borginni við sundið.
FLUGLEIDIR
Þjón u sta a11 a I eið
Kaupmannahöfii
Flugleiðir eru með daglegar áætlunarferðir til
London. Njóttu þess að vera th. Komdu
með okkur til heimsborgarinnar sem hefur
allt að bjóða — til London.
FLUGLEIDIR
Þjónusta alla leið
London
Einfaldlega
betra
greiðslukort