Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991. 21 Nýlistasafnið: Málaðir tréskúlptúrar -------‘<0------------- FÍM-salurinn: Skíma Um síðustu helgi opnaði Helga Magnúsdóttir málverkasýningu í FÍM-salnum. Þetta er fyrsta einka- | sýning Helgu en hún hefur áður tek- ið þátt í tveimur samsýningum. Verkin, sem hún sýnir, eru öll unnin í olíu á striga og hún nefnir sýning- una Skímu. Helga er fædd í Borgarfirði og býr í Reykjavík. Hún stundaði nám við Myndlistarskóla Reykjavíkur 1984- 1985 og við MHÍ á árunum 1985-1989 og brautskráðist úr málaradeild. Sýning Helgu verður opin daglega frá kl. 14-18 til 5. maí. 1. Helga Magnúsdóttir við eitt verka sinna. Um síðustu helgi birtist þessi mynd með frétt af sýningu Toril Malmo Sveinsson í Hveragerði og mynd af Toril í frétt um Helgu. Báð- ar eru beðnar velvirðingar á mis- tökunum sem leiðréttast hér með. Helga Magnúsdóttir. Guðjón Ketilsson myndlistarmað- ur opnar sýningu í efri sölum Ný- listasafnsins á laugardaginn. Á sýn- ingunni eru um tuttugu málaðir tré- skúlptúrar, unnir á síðustu þremur árum. Guðjón útskrifaðist frá Myndlista- Sænska kvikmyndin um Emil í Kattholti verður sýnd í fundarsal Norræna hússins á sunnudag kl. 15.00. Myndin er gerð eftir sögu Astrid Lindgren og var sýnd í Reykjavík fyrir nokkrum árum við • miklar vinsældir. Föður Emils leikur Allan Edwall á eftirminnilegan hátt og handíðaskóla Islands árið 1978 og Nova Scotia College of Art áriö 1980. Hann hefur haldið sjö einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á ís- landi, Kanada, Finnlandi, Svíþjóð og Sviss. og hver man ekki eftir hrópum hans á prakkarann Emil þegar stráksi hefur framið enn eitt skammarstrik- ið. Myndin er með sænsku tali og ótextuð. Kvikmyndin er sýnd í tengslum við listahátíð æskunnar og er aðgangur ókeypis. Norræna húsið: Emil í Kattholti Félag íslenskra listdansara: > Dansinn til fólksins Hátíöahöld vegna hins alþjóðlega dansdags verða haldin á vegum Fé- lags íslenskra listdansara laugardag- inn 27. apríl. Hugmyndin er að dans- inn komi til fólksins, þar af leiðandi munu danssýningar fara fram í verslunarmiðstöðvum og listasöfn- um víða um borgina á þessum degi. Þetta er í þriðja skipti sem Félag ís- lenskra listdansara stendur fyrir hátíðahöldum í tilefni dar\sdagsins og er dagurinn haldinn hátíðlegur víða um heim í tengslum við Inter- national Theatre Institute. í þetta skipti er dansdagurinn í sömu viku og listahátíð barnanna og mun dagskrá dansdagsins að ein- hveiju leyti íléttast saman við þá hátíð. Danssýningar vegna dans- dagsins á laugardag munu fara fram í Kringlunni kl. 12.00, Eiðistorgi og Hótel Borg kl. 14.00 og Listasafni ís- lands kl. 15.00. Gallerí 8 Austurstræti 8 Þar stendur yfir sýning á miklu úrvali listaverka eftir um 60 listamenn: mynd- list, leirlist, gler, graflk, skartgripir og fleira. Ný listaverk í hverri viku. Einnig verk eldri málara. Opið frá kl. 10-18 alla daga nema mánudaga kl. 14-18. J. Hinriksson Maritime Museum Súðarvogi 4 Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opiö frá kl. 13-17 þriöjudaga, miöviku- daga, fimmtudaga, fóstudaga og laugar- daga. Keramikhúsið, gallerí v/Faxafen Sýning á leikaramyndum eftir Halldór Pétursson. Opið alla daga kl. 13-18 nema laugardaga W. 13-17. List inn, gallerí - innrömmun Síðumúla 32 Uppsetningar eftir þekkta íslenska mál- ara: olía, vatnslitir, pastel og graflk. Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18. Katel Laugavegi 20b (Klapparstigsmegin) Til sölu eru verk eftir innlenda og er- lenda listamenn, málverk, graflk og leir- munir. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Laugardaginn 27. apríl verður opnuö í vestursal Kjarvalsstaða yfirlitssýning á verkum eftir Yoko Ono. í austursal verð- ur opnuð sýning á verkum eftir Fluxus- listamenn. Sýningamar standa til 2. júní. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 10-20 og er veitingabúðin opin á sama tíma. Listasafn Einars Jónssonar Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-17. Listasafn ASÍ, Sýningin „Ljóðabók bamanna" stendur yflr í Listafni ASÍ. Sýningin er opin kl. 14-19 daglega og stendur til sunnudagsins 5. maí. Skólar geta pantað tíma fyrir hópa. Listasafn Háskóla íslands í Odda Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýj um verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Aðgangur aö safninu er ókeypis. Listasafn íslands Fríkirkjuvegi 7 Um þessar mundir stendur yflr sýning á verkum í eigu safnsins. í sölum 1, 2 og 4 em sýnd verk eftir íslenska listamenn og í sal 3 em sýnd graflkverk. Listasafn- ið er opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18 og er aðgangur ókeypis. Veitinga- stofa safnsins er opin á sama tíma. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi er nú til sýnis úrval af andlitsmyndum Sigur- jóns frá tímabilinu 1927-1980. Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og þriðjudaga kl. 20-22. Kafiistofa safns- ins er opin á sama tíma. . Norræna húsið v/Hringbraut Jón Reykdal sýnir málverk í sýningarsöl- um Norræna hússins. Sýningin stendur til 28. apríl. í anddyri stendur yflr sýning sem nefnist Bækur og bókahönnun og er í umsjón Félags bókaútgefanda. í bóka- safni stendur yflr sýning á verlaunabók- um úr norrænu bókbandskeppninni. Sex íslendingar tóku þátt í keppninni og unnu til fimm verðlauna. Nýlistasafnið Yatnsstíg 3b Á morgun opnar Guðjón Ketilsson sýn- ingu í efri sölum Nýlistasafnsins. Á sýn- ingunni em um tuttugu málaðir tré- skúlptúrar, unnir á síðustu þremur árum. Sjóminjasafn íslands Vesturgötu 8 Hafnarfirði, simi 52502 Opiö laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11 Opið á sunnudögmi og þriðjudögum kl. 15-18. Aögangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar Hverfisgötu Þar em til sýnis og sölu postulínslág- myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið- vikudaga, flmmtudaga og fóstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafnið Safnið er opiö aila daga nema mánudaga kl. 11-16. Minjasafnið á Akureyri Aðalstræti 58, sími 24162 Opið sunnudaga kl. 14-16. Sýning á Hótel Lind Hótel Lind tók fyrir nokkm upp þá ný- breytni að sýna verk ungra myndlistar- manna í veitingasal hótelsins, Lindinni. Nú hefur verið sett upp sýning á mynd- verkum Sjafnar Eggertsdóttur. Daglegur sýningartimi er meðan veitingasalur Lindarinnar er opinn, frá kl. 7.30-22. Ríkey sýnir í Eden Rikey Ingimundardóttir sýnir verk sín í Eden. Þetta er 17. einkasýning Ríkeyjar. Sýndar em nýjar, brenndar myndir, lág- myndir úr postulíni, málverk og fleira. Ríkey útskrifaðist úr MHÍ1983 og er með vinnustofu og gallerí að Hverfisgötu 59, Reykjavík. Frá 1. maí til 1. septemb- er verður skrifstofa RKÍ að Rauðarárstíg frá kl. 8.00 til 16.00. opm Rauði kross Islands LLIR A SKIÐI í SUMAR Skráning er hafin á námskeiðin í Kerlingarfjöllum. Brottför Tegund námskelSs Dagafjoldi Grunngjald breytilegt eftir aldri þátttakenda Júní 23. UNGLIN6A 5 18.500 27. UNGLINGA 5 18.500 Júlí 1. UNGLINGA 5 18.500 7. FJÖLSKYLDU 5-6 12.000-23.850 14. FJÖLSKYLDU 5-6 12.000-23.850 21. FJÖLSKYLDU 5-6 12.000 - 23.850 28. ALMENNT 5-6 12.000 - 23.850 Ágúst S. FJÖLSKYLDU 5 12.000-20.100 11. UNGLINGA 5 18.500 18. UNGLINGA 5 18.500 22. ALMENNT 4 9.000-15.100 25. ALMENNT 4 9.000-15.100 GRUNNGJALD felur í sér fæði og húsnæði í Skíðaskólanum, ferðir milli skála og skíðalands, afnot af skíðalyftum og aðgang að kvöldvökum, svo og skíðakennslu fyrir 15 ára og yngri. KENNSLUGJALD FYRIR16 ÁRA OG ELDRl er kr. 2.000 fyrir 3 daga, kr. 3.000 fyrir 4 daga, kr. 4.000 fyrir 5 daga og kr. 4.750 fyrir 6 daga. HELGARNÁMSKEIÐ verða um allar helgar á tímabilinu 5. júlí til 18. ágúst og standa flest 3-4 daga, frá fimmtudegi eða föstudegi (að vali) til sunnudags - um verslunarmanna- helgina þó fram á mánudag (4-5 daga). FARGJALD REYKJAVÍK - KERLINGARFJÖLL - REYKJAVÍK er kr. 3.800 fyrir 12 ára og eldri, kr. 2.850 fyrir 8-11 ára og kr. 1.900 fyrir 4-7 ára. Nánari upplýsingar og bókanir hjá nýja söluaðiianum okkar: FERÐASKRIFSTOFA ÍSLANDS SKÓGARHLÍÐ 18 - SÍMI 91-25855 % «

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.