Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1991, Blaðsíða 32
■ ■■ ■ : . ■ ■ . ■ . " ' .: ■ ■ '. ■■' .
U1 F R ETTAS KOTIÐ
Onsaasaöss* 62 • 25 • 25
° — Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið. í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
~t = í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
~vl = Rítstjórn - Auglýsingar - Áskríft - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991.
Banna hvalvciðar áfram
- sjávarútvegsráðherrar hvalveiðiþjóðanna sitja ekki fundinn
yóst þykir nú aö ársfundur Al-
þjóða hvalveiðiráðsins muni hafna
ósk íslendinga og annarra hval-
veiðiþjóða um aö fá aö heQa tak-
markaðar hvalveiðar þrátt fyrir að
vísindanefnd ráðsins viðurkenni
að vissir stoíhar þoli lítils háttar
veiðar. Fyrir fundinum liggur sú
ósk að fá að veiða 91 langreið og
192 hrefnur á ári þar til hvalveiði-
ráðið hefur ákveðið endaniega
kvóta einstakra landa. Sá kvóti,
sem íslendingar vilja, samsvarar
um tveimur prósentum af stofn-
stærð þessara tegunda á íslenskri
veiðislóð, vestur af landinu.
Mikill undirbúningur er í gangi
vegna ársfundar Alþjóða hvaiveiði-
ráðsins sem haldinn verður á Hótel
Sögu í næstu viku. Á fundinn
mæta vel á annaö hundrað fulltrú-
ar frá þeim 36 löndum sem sæti
eiga í ráöinu. Aðalfulltrúí ísiands
á fundinum verður Guðmundur
Eiríksson þjóðréttarfræðingur en
varafulltrúi Kjartan S, Júlíusson.
Athygli vekur að Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra mun
ekki sitja fundinn eins og Halldór
Ásgrímsson hefur gert undanfarin
ár. Hann mun þó flytja ræðu við
setningu fundarins. Þá hafa norsk
yfirvöld tilkynnt að Oddran Pett-
ersen, sjávarútvegsráðherra Nor-
egs, muni heldur ekki sækja fund-
inn né aðrir háttsettir embætt-
ismenn úr ráðuneytinu. Þykir
þetta staðfesta að á ársfundinum
verði ekki gerður ágreiningur um
áframhald á hvalveiðibanni.
Samkvæmt heímildum DV eru
hátt í hundrað hvalfriðunarsinnai'
komnir til landsins vegna þessa
fundar, víða að úr heiminum. Von
mun vera á öðrum eins ijölda á
næstu dögmn. Fyrirhugaður er
fjöldi samráðsfunda í Reykjavik
hjá hvalfriðunarsinnum í tengslum
við ráðstefnuna og eftir því sem
DV fregnar hafa þeir þegar fundað
með nokkrum íslenskum stjórn-
málamönnum. Við setninguna
hyggjast hvalfriðunarsinnar
standa fyrir friðsamlegum uppá-
komum til að leggja áherslu á mál-
staðinn. Hjá lögreglunni fengust
þær upplýsingar að þar á hæ væru
ekki hafnar neinar varúðarráðstaf-
anir vegna fundarins.
-kaa
Ók á rafmagnslínu:
Kviknaði í
dekkjunum
„Það er furðulegt að menn skuli
ekki hugsa meira um rafmagnslín-
umar þegar þeir eru með svona háan
farm á bílunum. Við fóram í slóðina
hans til að athuga línumar á leiðinni
og hann virðist reyndar nokkram
sinnum hafa verið mjög nærri því
að rekast í háspennulínu og virðist
hafa rekist í nokkrar línur með lægri
spennu. Það hefur kannski bjargað
honum þá að hann var með plasbát
með plastloftneti og allt var þurrt,“
sagði Sigurður Eymundsson, raf-
veitustjóri á Egilsstöðum.
Vörubílstjórinn ætlaði að flytja
plastbát frá Eskifirði til Seyðisfjarðar
í gærmorgun. Þegar hann var kom-
inn að aðveitustöð við Eyvindará,
rétt fyrir ofan Egilsstaði, rak hann
mastur bátsins upp i raflínu með
þeim afleiðingum að straumur fór í
gegnum bát og bíl og tók maðurinn
ekki eftir neinu fyrr en kviknaði í
dekkjum bOsins einu af öðra. Honum
tókst að bjarga sér út úr bílnum án
þess að slasast sem þykir mikil mildi.
Bíll og bátur era eitthvað skemmdir.
í kjölfar slyssins fór rafmagn af
Egilsstöðum, Héraði, Seyðisfirði,
Borgarfirði og Vopnafirði. Um 45
mínútur tók að koma rafmagninu á
aftur. -J.Mar
Vísað frá Blöndu
Fjóram Júgóslövum, sem unnu hjá
júgóslavnesku verktakafyrirtæki við
Blönduvirkjun, hefur verið bannaðl
að halda áfram vinnu þar eö þeir
höfðu ekki tilskilin atvinnuleyfi. Um
er að ræða einn rafvirkja, einn
málmiðnaðarmann, verkstjóra og
svæðisstjóra. -S.dór
LOKI
Á þessum jafnréttistímum
fá stúlkurnar dáta og strák-
arnirfegurðardrottningar!
Ungfrú ísland, Svava Haraldsdóttir, og ungfrú Bandaríkin, Kelli McCarty, hittust í Hard Rock Café í Kringlunni í
gær. Bandaríski herinn hafði boðið nokkrum fegurðardrottningum til landsins og komu þær í fyrradag. Þær dvöldu
á vellinum en heimsóttu Reykjavík í gær og skoðuðu borgina. " DV-mynd Brynjar Gauti
Veðriðámorgun:
Fremur hlýtt
í veðri
Á morgun verður suðvestanátt,
víða gola eða kaldi. Dálítil rigning
eða súld um suðvestanvert- og
vestanvert landið. Þurrt og víða
léttskýjað austanlands. Fremur
hlýtt verður um allt land og hiti
á bilinu 7-15 stig.
Ingi Bjöm Albertsson:
Samþykki ekki
að hætta við
þyrlukaupin
„Þú mátt hafa það eftir mér að ég
mun aldrei samþykkja að hætt verði
við kaup á björgunarþyrlu fyrir
Landhelgisgæsluna," sagði Ingi
Björn Albertsson alþingismaður í
samtali við DV.
Ingi Björn var flutningsmaður þess
frumvarps sem samþykkt var á Al-
þingi í vor um að þyrlan skyldi keypt.
í skýrslu fjármálaráðherra, um
niðurskurð ríkisfjármála í ár, segir
að tekin verði ákvörðun um kaup á
björgunarþyrlu þegar fyrir liggi frek-
ari athugun á öllum þáttum er varða
notkun og aðstöðu fyrir flugrekstur
Landhelgisgæslunnar.
Á Alþingi var í vetur samþykkt
heimild til að taka 100 milljónir
króna inn á lánsfjárlög til kaupa á
björgunarþyrlu fyrir Landhelgis-
gæsluna. -S.dór
Ökuníðingar
teknirínótt
Það var annasamt hjá lögreglunni
í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt.
Alls voru teknir þrjátíu og fimm öku-
menn fyrir of hraðan akstur og tveir
fyrir ölvun undir stýri.
Einn var tekinn á Sæbraut á 110
km hraða, annar á Bústaðavegi á 109
km hraða og sá sem hraðast ók var
tekinn á Reykjanesbraut á 119 km
hraða. Þá var ekið á mann við ESSO-
stöðina í Skógarseli og var hann
fluttur á slysadeild. Meiðsli hans
voruþóekkitálinalvarleg. -HK
VAKTÞIÓNUSTA
Oryggisverðir um alla borg...
...allan sólarhrinainn
Vönduð og viðurkennd þjonusta
@91-29399
Allan sólarhringinn
Oryggisþjónusta
VARI síðan 1969
-----—