Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Side 1
.ieer ijui .er HUOAníiAOUAJ Vantar mein og betri umferðar- upplýsingar íútvarpi Stór hluti af útvarpsneyslu lands- manna fer fram þegar feröast er um á milli staða í bílnum, að minnsta kosti á það við um undirritaðan. Engin ein rásin er þar í aðalhlut- verki þótt vissulega sé ein kannski ofar en önnur einn daginn en allt önnur þann næsta. Ef „umferðarneyslan" er tekin ein og sér þá eru það upplýsingar um umferðina sjálía sem er eflaust dýr- mætust fyrir ökumennina þótt tón- listin sé yílrleitt af því góða. Því mið- ur fyrir okkur þá er engin fóst regla hvænær eða hvernig þessum upplýs- ingum er komið á framfæri. Oðru hvoru koma kærkomnar upplýs- ingar um það að nú sé verið að mal- bika þessa og þessa götuna og því sé rétt fyrir ökumenn að beina öku- tækjum sínum aðra leið til að losna við tafir af völdum framkvæmdanna. Sú útvarpsstöðvanna sem fyrst kemur þessum upplýsingum í fastar skorður nær eflaust góðri hlustun meðal ökumanna og þar með stærri sneið af þröngum auglýsingamark- aði. í því mikla bílalandi og landi „auto- banans", Þýskalandi, eru í hveiju sambandsríkjanna reknar útvarps- stöðvar sem segja frá ástandi vega og umferðarhnútum á föstum tímum innan um tónlistina. Ekki getur und- irritaður státað af mikilli kunnáttu í þýskri tungu en samt hafa þessar upplýsingar flýtt för um þetta ágæta land þegar leiðin hefur legið þar um vegna þess hve-þessar upplýsingar eru gagnmerkar og alltaf á föstum tíma. Á sumum tónlistarrásunum fer mikill tími í alls konar snakk á milli laganna og mikið er tönnlast á veðr- inu um allt land en miklu minna um vegina og umferðina. En svo kemur verslunarmannahelgin og þá er eins og allir plötusnúðar og dagskrar- gerðarmenn uppgötvi bílinn og um- ferðina og reyni að sturta ofan í okk- ur heilmiklum fróðleik um umferð- ina á örfáum sólarhringum. Það er nú svo að góða veðrið und- anfarna daga hefur orsakað „versl- unarmannastemmningu" á vegun- um jafnt virku dagana sem um helg- arnar og þá hefur lítið farið fyrir umferðarmálunum í útvarpsrásun- um. Nú nýlega tilkynnti Ríkisútvarpiö að það hefði látiö gera kort af landinu þar sem fram kemur hvar hvaða út- sendingartiðni útvarpsins heyrist. Flestir vilja hlusta á útsondingar út- varps á FM-tíöni í bílnum en þær heyrast um takmörkuð svæði og ekki átta sig allir á því hvaða tíðni heyrist best hvar. Þetta nýja upplýsingakort útvarpsins er eflaust hið mesta þarfaþing en þetta mætti líka leysa á enn betri hátt vegfarendum til enn meiri þæginda. Vegagerð ríkisins hefur sett upp meðfram þjóðvegum landsins lítil og látlaus skilti með vegnúmeri við- komandi vegar. Á stólpunum, sem bera uppi þessi skilti, væri vel pláss fyrir annað neðar sem gæfi upp út- sendingartíðni útvarþsins í þessum landshluta. Það er eflaust til of mik- ils ætlast að þessi skilti gæfu okkur upplýsingar um allar útvarpssend- ingar sem heyrast á viðkomandi svæði en alla vega mætti setja tíðni „útvarps allra landsmanna" á skilt- in. Skilti sem þessi sjást víða í Evr- ópu og þykja sjálfsögð upplýsinga- miðlun til ökumanna. Væri gaman aö Ríkisútvarpið, sem brátt fær nýj- an útvarpsstjóra, héldi upp á tíma- mótin með því að „auglýsa" sig á þennan einfalda en jafnframt hag- nýta hátt, þótt ekki væri nema á ein- hverju tilteknu svæði. -JR Kynningarakstur: Pontiac Grand Prix LE - sjá bls. 28-29 Svipmyndir frá bílkrossi - sjábls. 37 SUMIR ERU EINFALDLEGA BETRIEN AÐRIR MMC Colt GLX 1989, 1500, sjðlfsk., 3 dyra, grænn, eklnn 35.000. Verð 770.000. MMC Lancer GLX hlaðbak- ur, 1990, 1500, sjélfsk., 5 dyra, rauður, eklnn 13.000. Verð 920.000 s(gr. TTTE5 MMC Lancer QLX Buper 1989, 1500, 5 gira, 4 dyra, bieikur, ekinn 18.000. Verð 870.000. VW Gðlf CL 1991 ('90), 1600, S gíra, 3 dyra, blár, ekinn 7.000. Verð 850,000 *1gr. . . . notuðu bílarnir hjá Bílaþingi eru til marks um það OPIÐ í DAG, LAUGARDAG, KL. 10-14 mm BHAfí Hekluhúsinu, Laugavegi 174 MMC Galant GLS 1989, 2000, 5 gfra, 4 dyra, blár, ekinn 13.000. Verð 1.150.000. Toyofa Coroila Tourlng 4wd 1989, 1600, S gíra, 5 dyra, grænn, eklnn 35.000. Verö 1.150.000. Audi 80$ 1988, 1800, sjáifsk., 4 dyra, rauður, ek- Inn 62.000. Verð 1.260.000. Toyota Corolla litfback XL 1988, 1300, sjðltek., 5 dyra, rauður, eklnn 30.000. Verð 830.000. Mazda 626 GLX 1987, 2000, sjálfsk., 4 dyra, grðr, ekinn 30.000. Verð 750.000. Range Rover 1985, 3500, 5 gfra, 5 dyra, hvlfur, eklrm 82.000. Verð 1.550.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.