Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Qupperneq 2
28 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1991. ÐOar DV Kynningarakstur: Pontiac Grand Prix LE sedan: Handa manninum með hatt- inn - eða stráknum að trylla á Eftir fyrstu kílómetrana undir stýri á Pontiac Grand Prix (frambor- ið „gran prí“ því þetta er víst franska) kom yðar einlægum í hug að loksins hefði bandarískur bíla- framleiðendi látið einhvem amerísk- an bíladraum lönd og leið og snúið sér að því að búa til fjölhæfan bíl og skemmtilegan sem sameinaði í ein- um bíl ýmsa góða kosti amerískra bíla, evrópskra bíla og japanskra. Þessi tilfmning styrktist heldur en veiktist eftir því sem á leið reynslu- aksturinn og bíllinn var betur skoð- aður. Ekki verður betur séð en að hann sé traustlega smíðaður, og það hefur oft verið aðalsmerki amerískra bíla. Hann er ákaflega líflegur og skemmtilegur í akstri og virkar stinnur og gegnheill. Það hefur löng- um verið aðalsmerki bestu Evrópu- bíla. Hann er vel búinn aö flestu leyti í staðalgerð sinni - og það er ein- kenni Japananna. Hvers vegna svona áþekkur Volvo 960? Að útliti er Pontiac Grand Prix tals- vert sportlegur bíll, af hefðbundnum fjögurra hurða fólksbíl að vera. Hann er frískur í öllum venjulegum akstri, einkum á lægri hraðasviðum. Vélin er skráð 141 hestöfl og bíllinn er framhjóladrifinn. Það er því hvorki útliti um að kenna, né skráðu vélar- afli, né því hvaða hjól knýja bílinn sporum, að hvað eftir annað meöan ég hafði þennan bíl undir höndum datt mér Volvo 960 í hug - bíll með allt annarri hönnun ytra sem innra, miklu aflmeiri vél og drifi á aftur- hjólum. Bíll sem kostar verði eins miðlungsbíls meira. Satt að segja gafst ég upp við að átta mig á þessari tilfmningu. Lét mér nægja að hvorir tveggja þessara bíla eru ágætir bílar, enda er hkingin milli þeirra miklu fremur tilfmn- ingalegs eðhs en hönnunarlegs. Vel búinn bíll Pontiac Grand Prix LE Sedan er hlaðinn ahs konar búnaði sem í ýms- um öðrum bílum er aukabúnaður. Hann er með skriðstilli (krúskont- róli), rafstihingum á ökumannssæti, ljósum í hurðum sem lýsa við innstig og útstig, svokallaðri „custom“ inn- réttingu, rafknúinni loftnetsstöng og auðvitað því sem nú þykir orðið sjálf- sagt, svo sem rafknúnum rúðum og þess háttar. Þó er samlæsingin með amerískum hætti, fyrst bílstjóra- hurðin og svo takki innan á henni fyrir hinar hurðirnar. Þetta er var- úðarráðstöfun sem ekki er nauðsyn- leg nema í Ameríku, en menn nenna sjálfsagt ekki að vera að fikta í því aö laga þetta fyrir bílana sem fara til útflutnings. Hitt þótti mér stílbrot i þetta fínum bíl og vel búnum, að úti- spegilinn bílstjóramegin var hand- stiUtur innan frá (olræt, þaö er létt verk og löðurmannlegt), en verra þótti mér að ég fann engin ráð til að stiUa útispegiUnn hægra megin önn- ur en fara út og pota í hann. Mælaborðið - og þá er ég að tala um aUan klumpinn inn af framrúð- unni, hurða á miUi, þetta sem á ensku er kaUað „dashboard" en ekki hefur verið fundið viðhhtandi orð fyrir - minnir dálítið á frænku pont- unnar, Chevrolet Corsica, en er samt ríkmannlegra og meira í drossíustíl. Eins og á Corsicunni er það aUbreitt prómenað sem hallar bratt niður að krappri sveigju inn undir sig og í þessari sveigju eru lofttúður sem komu sér vel í sumarsvækjunni á Suðurlandi. Inn í hana kemur líka læsingin á hanskahólfinu, sem er tölulæsing eins og á stresstösku, og hólfið sjálft er ekki stórt. í staðinn er prýðUega rúmgott hólf miUi fram- sætanna og gildir um leið sem arm- hvíla, en því hólfl er ekki læst. Auðskilinn skriðstillir Mælakassinn sjálfur fram af mæla- borðinu er vel mælum búinn og auðláesUegur. Þegar dimmir og lýs- ingin á mælunum fer að sjást kemur í ljós að hún er rauðgul og þægUeg eins og á BMW. Mælakassanum er svo haganlega fyrir komið að það skiptir ekki verulegu máU hvernig maður hallar stýrinu. Það sést samt á nauðsynlegustu mæla án þess að maður þurfl að skæla sig allan til. Utanhallt á jöðrum mælakassans eru helstu rófar í seiUngarfjarlægð löngutangar frá stýrishjólinu, sem sjálft er læðurklætt og þægUega gilt í hendi, nema hvað stefnuljósarof- innn, ljósaskiptirinn og skriðstillir- inn eru aUir í stUkrofa vinstra megin á stýrisleggnum. SkriðstiUirinn er, vel að merkja, ákaflega þægUegur í umgengni og virkar eins og gefin eru fyrirheit um á stjórntækinu sjálfu án þess að þriggja daga námskeið þurfi tíl, eins og sumir framleiðendur virðast helst vUja hafa þennan bún- að. — Sætin eru mjög þægUeg og áklæðiö Stýrishjólið er leöurklætt og þægilega svert. Sitt hvorum megin við það sér á helstu rofa bílsins í fingurseilingu frá hjólinu, en neðarlega á myndinni vinstra megin sér á stillingarnar fyrir loftræstinguna. Framendinn er rennilegur og grillið er i rauninni undir stuðaranum. Kápan milli Ijósanna, milli stuðara og vélarloks, er úr fjaðrandi gerviefni, sem dregur úr líkum á skemmdum af grjótkasti. Snotur hönnun, mjúkar Itnur og rennilegar, einkenna þennan bíl. Einhver framleiðandi hefði samt nýtt sér grunn- pallinn betur og haft framhjólin framar í þessu plani. Hentar allri fjölskyldunni í akstri er þessi bíU býsna fjölhæf- ur. Maðurinn með hattinn gæti ekið honum eins og honum hentar án á þeim sérlega skemmtilegt. Þó bíll- inn sé ekki tröllslega stór í málunum er hann ágætlega rúmgóður innan í. Þó þrengist nokkuð aftur í þegar þrír fullorðnir eru komnir þar sam- síða. Eh tveir láta fara mjög vel um sig og þurfa að vera búklangir all- nokkuð ef lofthæð á ekki að duga þeim. Á milh þeirra kemur armhvíla niður úr sætisbakinu og í botni hol- unnar fyrir hana er lúga aftur í skott, ef maður skyldi þurfa að hafa eitthvað langt með sér, eins og kúst og skrúbb, til að mynda. Eða skíði, ef menn eru að hugsa um að sóa tím- anum þannig. Skottið er annars prýðflega rúm- gott. Lokið ópnast allvel upp, en það er ljóður á annars góðu skotti að það opnast ekki sérlega vel niður og klaufin ofan á miUi afturljósanna er fremur grunn, þannig að aUhátt þarf að lyfta tfl að koma dóti upp í skott- ið. Varadekk og tUheyrandi er undir skottgólfinu. Hurðirnar eru þykkar og efnismiklar. Enda gera Bandaríkjamenn strangar öryggiskröfur, t.a.m. um styrktarbita í hurðum, sem Evrópuþjóðir gera ekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.