Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Side 3
LAUGARDAGU’R SÍJOlMJflftðlJAJ
29
Bílar
Skottið er rúmgott og vel klætt að innan, varadekkið undir þvi. Nokkuð hátt er að lyfta upp i það og Ijósin kreppa
að opinu. - Fyrir miðju á myndinni má sjá fram i bilinn i gegnum lúgu á bak við armhvíluna í miðju aftursætisbakinu.
þess að finna nokkum tíma annað
en að þetta væri þægur og hógvær
sunnudagabíll. Sonurinn á bænum
gæti hins vegar, kominn hæfilega í
hvarf, spænt rösklega og fengið tals-
verða útrás og sýnt tilþrif á pontunni
eins og hveiju öðru tryllitæki. Það
þarf til að mynda engan ökuníðing
til að láta framhjóhn heyra í sér svo
tekið sé eftir á malbikinu þegar tekið
er af staö á ljósum - aðeins að koma
dálítið valdsmannslega við bensín-
gjöfina. Kvenþjóðin á heimilinu fær
líka nokkuð út úr því að taka pont-
una til kostanna; þetta er fín drossía
en ákaflega létt, lipur og auðveld í
snúningum. Það er helst að hægt sé
að finna að beygjuþvermálinu, það
er 11,6 metrar og það finnst. En pont-
an er hljóölát, alveg sérstaklega frá
vél en einnig ágætlega frá vegi, og
dynur af loftmótstöðu er ekki telj-
andi á þeim hraða sem hægt er að
prófa á íslenskum vegum. Og þó að
sportfjöðrunin sé skemmtilega stinn
til þess að bíllinn Uggi mjög vel á
vegi, líka á malarvegi, en alls ekki
hægt að segja að Pontiac Grand Prix
LE Sedan sé hastur bíll.
Útvarpið sem fylgir kann öll fjöl-
skyldan öragglega að meta. Það er
með sjálfleitara og stöðvavali, tveim-
ur hátölurum frammi í og tveimur
aftur í og mjög góðum hljóm. Yðar
einlægur kann aftur á móti ekki að
meta lása- og lyklasmíð þeirra hjá
General Motors: tvo lykla skal mað-
ur burðast með, annan fyrir hurðir
og hinn fyrir sviss, og báðum þarf
að snúa nákvæmlega rétt - hVorugur
er einshliða. Þama mættu þeir hjá
GM líta betur í kringum sig í smiðj-
unum hjá Japönum og Evrópumönn-
um.
Góður loftræstibúnaður
Vinnukonumar slást hvor frá ann-
arri og fallast síöan í faðma ofan í
bóhð sitt niöur af framrúðunni. Þær
skarast svo mikið að hægri þurrkan
verður að fara aöeins á undan. Þegar
aðeins er tekin ein sveifla - og það
kostar aðeins eina, létta snertingu á
rofa - er eins og þær eigi svolítið
bágt með þetta, svohtilla erfiðismuna
gæti. En þegar letinginn er settur á
(val um mismunandi sláttutíðni let-
ingjans) fara vinnukonurnar ekki í
bólið á milh verka heldur doka við
neðst á rúöunni. Og þegar þarf að
nota rúðusprautuna kemur úðinn
með vinnukonunum þannig að hann
nýtist til fulls. Þetta er vel gerður
búnaður - prik fyrir hann.
Miðstöðina ætti fremur að kaha
loftræstikerfi en miðstöð. Á þeim
tíma sem ég hafði bhinn með hönd-
Pontiac Grand
Prix í tölum:
Vél: V6 3135 cc, 104/141 kW/hö
v. 4400 sn/mín., snúningsvægi
215 Nm v. 3200 sn/mín. Eyðsla
skv. Auto Revue 10-16 1 pr. 100
km; eyósla í blönduðum
reynsluakstri DV-bíla 11,5 pr.
100 km.
Fjórskipt sjólfskipting, Hydra*
Matic, Drif á framhjólum.
Læsivarðir hemlar.
Sjálfstæð fjöðrun, sportfjöðrun
með jafnvægisstöngum framun
og aftan.
Lengd-breidd-hæð: 4964-1825-
1391 mm
Þyngd: 1474 kg.
Beygjuþvermál: 11,6 m.
Verð: um 2,4 miHjónir kominn á
götuna.
Umboð: Jötunn hf.
um lærði ég engan veginn á hana til
fulls. Hún þarf að minnsta kosti sér
kennslustund, ef ekki námskeið. Þó
er hún með A/C kerfi, sem hjá sum-
um framleiðendum að minnsta kosti
stendur fyrir „Automatic Climate
Control" - sjálfvirkt loftslagskerfi
(ætti það ekld að vera S/L?) - en í
því felst að maður velur sér ein-
hveija hitastihingu og síðan sér S/L
kerfið um að halda því hitastigi. Það
hitar ef þess þarf, en kæhr (eða gerir
sitt besta til að kæla) ef þess þarf.
Og móða á rúðum hverfur eins og
dögg fyrir sólu fyrir blæstri loftræsti-
kerfisins.
Eitt angraði mig í þessum bíl og
þó er pontan ekki eini bíllinn sem
það á við um. Og það var ekki fram-
leiðandanum um að kenna, heldur
ófuhkomnum dagljósabúnaði settum
í hér heima. Hann felur það í sér að
um leið og kviknar á dagljósum fer
klukkan á næturstillingu um leið og
verður afar dauf og döpur. Við þessu
kunna íslenskir tæknimenn ákaflega
vel að sjá en er galli sem maður
mætir aftur og aftur á bílum sem eru
með misöflugri lýsingu, til að mynda
á tölrituöum (digital) klukkum sín-
um, og verður á sumum th þess að
helst er ekki hægt að nota klukkuna
í björtu. Ég veit að þetta stendur til
bóta - en það átti aldrei að þurfa að
minnast á það í fyrsta lagi.
Þegar aht er saman lagt er næsta
öruggt að Pontiac Grand Prix LE
Sedan er íjölhæfur bíll til ýmissa
nota, heimilisnota eða öðruvísi. Þeir
sem elska ameríska bha ættu ekki
að láta hjá hða aö kynna sér þennan
bíl, og hinir sem halda að amerískir
bíla séu bara einhverjir bensíngleyp-
andi flekar gerðu margt vitlausara
en að skoða þennan netta og hpra
Ameríkugæðing. S.H.H.
/
Renault Clio
söluhæsti
franski bíllinn
Bíll ársins í Evrópu 1991, Re-
nault Clio, er að gera það gott.
Hann var söluhæsti franski bíllinn
í Evrópu fyrstu fimm mánuði árs-
ins og þriðju söluhæsti smábílhnn
í Evrópu. Á ársafmæli Cho í júní
síðastliðnum var búið að framleiða
500 þúsund Chobíla.
Vegur Renault fer víða vaxandi
um þessar mundir. Þannig er Cho
nú kominn í annað sæti yfir sölu-
hæstu innflutta bíla í Þýskalandi.
Og hver æth sé nú í fyrsta sæti?
Jú, stóri bróðir, Renault 19. Ná-
kvæmlega það sama er uppi á ten-
ingnum með innflutta bíla á Spáni,
og á Ítalíu, þar sem bílamarkaður-
inn er ákaflega heimaríkur, er Cho
í fjórða sæti í sínum stærðarflokki.
GLOBUSBILAR
Lágmúla 5, sími 91-681555
Saab 900i, 3 d., ’88, sjálfsk., ekinn 46.000.
Verð 1.020.000 stgr.
Toyota Corotla ’88, beinsk.,
ekinn 60.000, hvítur. Verð
700.000 stgr.
Pajero, 2 d., bensin ’88,
beinsk., ekinn 48.000, hvít-
ur. Verð 990.000 stgr.
BMW 320i 2D Mpk ’87, ek.
31.000, sóllúga, álfelgur.
Verð 1.250.000 stgr.
Toyota Corolla ’88, beinsk.,
ekinn 45.000, grár. Verð
740.000 stgr.
MMC Galant, sjálfsk., ’88, með öllu. Verð 1.050.000.
Toyota Camry GLI '87, ekinn 38.000. Verð 1.080.000.
Escort 1,3 savoy '88, ekinn 39.000. Verð 700.000.
Citrœn AX 14TRS '90, ekinn 14.000. Verð 700.000.
citroénQ SAAB
Vel er pakkað ofan í vélarhúsið og varla hægt að koma miklu meira þar fyrir.
Myndir DV-bílar S.H.H.