Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Side 5
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1991. Ramsey Assal með lengstu Lödu í heiminum - KGB 1 Bætt staða björgunarsveita í bílakaupum: Fyrsta niðurfellingin á gjöldum vegna breytinga hérlendis á björgunarsveitarbíl - nærri 300 þúsund krónum ódýrari bíll fyrir vikið Mikilvægur áfangi til hagsbóta fyr- ir björgunarsveitir í landinu náðist á dögunum þegar fyrsti bíllinn sem felld voru niður opinber gjöld af vegna breytinga á bílnum hér heima var afhentur. Glóbus hf. aíbenti í vikunni Flug- björgunarsveit V-Hún nýjan Econo- bne-bíl sem breytt var hér heima. Aðalbreytingin á bílnum er varðandi framdrif og fjaðrabúnað sem með þessu var lagaður að aðstæðum hér á landi. Áður urðu björgunarsveit- irnar að panta bílana erlendis frá og síðan að leggja í töluverðan viðbótar- kostnað til lokalagfæringa á bílnum til þess að hann þyldi landslagið okk- ar. Það var Jón Hólm hjá fyrirtækinu Stál og stansar sem framkvæmdi breytinguna á bílnum, en það verk vinnur hann undir vörumerkinu Fjallabílar. Að sögn Ella Becker, sölumanns hjá Glóbusi, vinnst tvennt með því að gera breytingarn- ar hér heima. í fyrsta lagi eru þær gerðar fullkomlega eftir óskum kaupenda og í öðru lagi er þá komin full ábyrgð bæði á bíl og breytingu hér heima. Sigurður Björnsson, formaður Flugbjörgunarsveitar V-Hún, sagði sveitina spara sér um það bil. 300 þúsund krónur með því að láta fram- kvæma breytingarnar hér, en í heild nemur niðurfelling opinberra gjalda af bíl sem þessum tæpri milljón króna, því eins og Glóbus aíhenti þeim bílinn kostar hann um 2,7 millj- ónir króna en ella hefði hann átt að kosta um 3,7 milljónir króna. -JR Hér taka Flugbjörgunarsveitarmenn úr Húnaþingi við nýja bílnum. Næstur bílnum er Gunnar Kristófersson formað- ur bíladeildar, þá Sigurður Björnsson, formaður sveitarinnar, sem tekur við lyklunum úr hendi Ella Becker, sölu- manns hjá Glóbus. Yst til hægri er Jón Hólm frá Stáli og stönsum sem gerði breytingarnar á bílnum hér heima. Suzuki Swift SPARNEYTINN O G Ó D Ý R R E K S T R I • Framdrif / sídrif (4x4) • Beinskiptur / sjálfskiptur • Eyðsla frá 4 I. á 100 km. Til afgreiðslu strax. Verð frá 688.000,- kr. $ SUZUKI SUZUKI BÍLAR HF SKEIFUNNI 17 ■ SlMI 685100 35 Bílar Lengsta Ladaí heimi? Það þurfti þrjá bíla til að smíða þennan eina sem við sjáum á mynd- inni. Þetta er trúlega lengsta Lada í heiminum. Þessi sérstæði lúxusbíll var smíðaður af Ramsey Assal í Bo- urnemouth í Suður-Englandi en þar er hann verkstæðisformaður á bíla- verkstæði. Það var ekki nóg með smíða svona sérstæðan sovéskan bíl því þegar kom að því að skrá gripinn þá fékk hann sérstætt númer. í Englandi, líkt og í Bandaríkjunum og Svíþjóð, geta menn keypt sér númeraplötur með texta eftir eigin höfði. Og hvað var betra hjá Ramsey Assal.en KGB 1? Nú er spurningin hvað verður næst? Lengdur Skódi eða kannski Trabant með skráningunni STASI5? NOTAÐIR MMC Lancer GLX Daihatsu Charade sjálfsk., árg. '88, ekinn 26 þús. km, verð 720.000. árg. '88, hvítur, ekinn 54 þús. km, verð 480.000. Suzuki Fox árg. '88 Toyota Camry árg. '87 silfurgrár, ekinn 33 þús. km, verð 750.000. ekinn 72 þús. km, blár, verð 790.000. TEGUND ÁRG. EKINN VERÐ MMC Lancer 1500 GLX 1989 75.000 840.000 Ch. Monza SL/E, sjálfsk. 1988 30.000 790.000 Toyota Corolla, 5 dyra, sjálfsk. 1988 30.000 750.000 Opel Kadett station 1988 29.000 875.000 Citroén AX 14E 1988 59.000 480.000 MMC Pajero, stuttur, bensín 1988 67.000 1.480.000 Subaru 1800 GL station 1987 81.000 790.000 Ford Mercury Topas 1987 64.000 680.000 Opel Corsa, 5 dyra 1986 46.000 350.000 MMC Pajero, stuttur, disil 1984 144.000 690.000 Isuzu Trooper DLX turbo dísil 1988 92.000 1.700.000 Volvo 240 GL, sjálfsk. 1987 90.000 890.000 Ch. Monza Classic 1988 30.000 790.000 GMC Jimmy m/öllu 1988 23.000 m 2.050.000 Ch. Monza SL/E, beinsk. 1987 56.000 550.000 Mazda 323 LX, 3 d. 1987 45.000 495.000 Suzuki Swift, sjálfsk., 5 d. 1985 34.000 395.000 Opel Corsa GL 1984 79.000 260.000 MMC Tredia 1983 70.000 360.000 Volvo 244 GL, sjálfsk. 1982 170.000 390.000 Volvo 244 GL, sjálfsk. 1980 133.000 270.000 Opió laugardag frá kl. 13-17 Bein lína, símar 674300 og 687300 1U íés odftg HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 og 674300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.