Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ1991, 37 Bflar Svipmyndir frá bílkrossi: Keppenda- hópurinn tvöfaldaðist - frá fyrstu keppninni Hér koma bílarnir, sem kepptu i opna flokknum, jeppagrindur sem við þekkjum betur úr torfærukeppnum, á fullri siglingu. Það fór eins og við spáðum eftir fyrstu keppnina í rallíkrossi á nýju brautinni í Kapelluhrauni sunnan Hafnarfjarðar fyrr í sumar að fleiri keppendur kæmu í þá næstu. Keppendahópurinn tvöfaldaðist og voru 53 bílar skráðir til keppni um síðustu helgi en eftir því sem við best vitum mættu 49 til leiks. Með þessum mikla fjölda keppenda varð keppnin of viðamikii og greinilegt að næst verður að halda harða undan- keppni þannig að það verði þeir bestu sem berjist til sigurs í lokakeppni og áhorfendur fái skemmtilega og stanslausa keppni. Þeir félagar í rallíkrossklúbbnum voru búnir að endurbæta aðstöðuna enn frekar frá fyrstu keppninni þannig að áhorfendur njóta keppn- innar betur en áður. Enn er þó eftir að styrkja vegriðin í kröppustu beygjunum því stálbitarnir, sem reknir voru niður í hraunið, standast ekki átökin þegar bílarnir skella á þeim í mestu látunum. Það þarf greinilega að steypa veggi á þessum stöðum til að tryggja öryggi áhorf- endanna. Öryggið var að vísu leyst í þessari keppni í einni beygjunni með stórum aftanívagni frá stuðningsað- ila keppninnar í þetta skiptið, drátt- arbílafyrirtæki GG, en hann skyggði dálítið á malbiksbeygjuna í staðinn. Mikið var um pústra og veltur í keppninni á sunnudaginn og þar á meðal varð Ámi Kópsson, sem sýnt hafði mikil tilþrif í fyrstu keppninni, að láta í minni pokann fyrir dekkja- varnargarðinum sem sendi Heima- sætuna á hvolf eftir óblíð faðmlög. Fleiri keppendur sneru sínum bílum upp í loft en gátu þó margir ekið af stað aftur eftir að hafa verið settir hjólin og þá með miklum olíureyk frá vélinni. Enginn meiddist í þessum pústrum og veltum og þar er að þakka góðum öryggisbúnaði sem öll- um er skylt að hafa. Greint var frá úrslitum í keppninni á íþróttasíðu á mánudaginn svo við látum okkur nægja að birta hér nokkrar svipmyndir til viðbótar úr keppninni. -JR Miklu máli skipti að ná forskoti strax í upphafi fyrsta hrings og því var oft hart barist í fyrstu beygjunni. Porsche-bíllinn hennar Kristinar var kominn á mjórri dekk að aftan og náði mikiu forskoti á keppinautana í upphafi en krafturinn er of mikill þann- ig að hún missti bilinn út af í beygjum og varð að láta sér lynda þriðja sætið. Þessi gamla bjalla hraktist út af brautinni og hafnaði í dekkjavörn- inni. Þar sat hún það sem eftir var af keppninni en var loks dregin burt. . . . . . en strax eftir keppnina var byrj- að að „byggja og bæta“ og sjálfsagt sést voffinn gaivaskur í næstu keppni. Myndir DV Bilar JR Árni Kópsson var svo óheppinn að krækja Heimasætunni í dekkjavörnina við innri brún brautarinnar og hér sést hvar hann fer í loftköstum í rykkófi rétt fyrir framan Pepsígrindina. Góður öryggisbúnaður sá til þess að Árni sat ómeiddur i sæti sínu og brautarverðir hlaupa honum til aðstoðar. En Heimasætan varð að sitja af sér frekari keppni eftir óhappið. mmm Á sama stað og Árni velti valt þessi Lada eftir faðmlög við Mözdu og hér huga brautarverðirnir að ökumann- inum sem hangir á hvolfi í öryggis- beltunum inni í bílnum og veifar til merkis um það að allt sé i lagi. Hér skríður ökumaðurinn ómeiddur út og síöan var beðið færis að snúa bilnum á hjólin aftur. 11 Jiiffl tajjgÉg ... og hér ekur hann af stað aftur í miklu reykjarkófi vegna þess að ol- ían hafði stigið vélinni til höfuðs á meðan hjólin sneru upp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.