Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Side 3
LÁÍTGARbÁfJUR1 iH:-ÁtMs^’ í W.J 25- MINI . . , BUT THERE'S A VITAL LIKE ANY OTHER 1T b HERE. The car thtt rur.s rjie of 100 miies per galion, aJ The car that runs on water IT LOOKS DIFFERENCE Daíltt^ttlat! ( VUt(tf/r/m'// THE CAR THAT KIJNS ON WATEK AN •«•»»•* r>M<Ur tf. Breski blaðamaðurinn Michael Kemp hjá Daily Mail fann út að hægt væri að nota vatn i stað bensíns þann 19. ágúst árið 1977 og aftur nú 14 árum seinna. í báðum tilfellum var fyrirsögnin sú sama: „The car that runs on water“ eða bíllinn sem gengur fyrir vatni. 100 mílur á einu galloni af vatni og getur gert bensín óþarft.“ „Sérfræðingar á Englandi segja þetta ómögulegt og ég hef verið væg- ast sagt vantrúaður á leynilegar til- raunir með slíkan bíl á eyjunni Gu- ernsey. En í gær ók ég slikum vatns- knúnum bíl, venjulegum Leyland Mini, og sá með eigin augum að þetta er hægt. Ég ók bílnum í venjulegri umferð á Guernsey á allt að 35 mílna hraða.“ Svona skrifaði Kemp um „vatnsbíl- inn“ árið 1977. Bíllinn sem hann reyndi á dögunum, Ford Fiesta, not- aði líkt og Mini-bíllinn vetni sem framleitt er með því að „kljúfa" vatn í frumeindir sínar, vetni og súrefni, með rafgreiningu. Líkt og um upp- fmningu Billings var vélin í Mini- bílnum árið 1977 verk einfara í upp- finningaheiminum, 74 ára Nýsjá- lendings að nafni Archie Blue. Blue hafði áður en hann kom fram með „vatnsbílinn" orðið þekktur af öðrum uppfinningum og það á raun- ar einnig viö um Billings sem segist eiga heiðurinn af tölvudisklingnum, eða tvíhliða „íloppydisknum" sem allir þekkja í dag. Mismunandi aðferðir Það er einn verulegur munur á lausn Biue frá 1977 og vélinni í bíl Biliings?í dag. . í Mim-bílnum var venjuleg bílvél sem hafði veríð breytt svo hún gæti notað vetni og vetnið var framleitt þegar bíllinn var í gangi. Nýi bíllinn hins vegar er knúinn af rafmótor og þar fer vetnisframleiöslan fram á nóttinni. Vetnið er síðan „geymt“ í dufti og aftur breytt í rafmagn þegar bíllinn er notaður. Bresku dagblöðin hafa fjallað mik- ið um þessa nýju lausn á orkuvand- anum og ýmislegt verið sagt sem ekki á skylt við raunveruleikann. Að sögn Daily Telegraph átti að vera hægt að hefja framleiðslu á fyrstu bílunum fyrir árslok og Today sagði að við gætum brátt flogið á vit sólar- innar á flugvélum sem búið væri að breyta lítillega. Ef marka má hvað varð um bílinn frá 1977 þá eru allar siíkar fregnir heldur fljótfærnislegar. Vinir og nágrannar Archie Biue á Guernsey sem flárfestu í uppfmn- ingu hans árið 1977, flestir um 2.000 pund hver, voru svo sannfærðir um ágæti hennar að þeir höfnuðu millj- ónatilboði frá Saudi Arabíu um kaup á einkaleyfinu. En þetta fólk, sem flest var af eldri kynslóðinni og „flú- ið“ hafði til Guernsey til að sleppa við skatta, sat eftir með sárt ennið. Þegar Blue var boðið til Bandaríkj- anna til að sýna uppfinningu sína var vetnisaflgjafanum stolið á flugvellin- um í Chicago. Hann fannst aldrei aftur og allar tilraunir til að smíða nýjan mistókust. Blue sneri aftir til Nýja-Sjálands og þeir sem lagt höfðu honum til fé misstu sjónar á honum. Sumir þeirra töpuðu um einni og hálfri milljón á öllu saman og vildu gjarnan sjá pen- ingana sína aftur. Tilurð nýja bílsins varð hljóðlátari. Hann var smíðaður í neðanjarðar- hvelfinu í Kansas og fjármagn'aður að mestu af Billings sjálfum. Á dögunum lét breska blaðið Sunday Times ýmsum sérfræðingum i té upplýsingar Billings um smíði bílsins og hvernig hann vinnur. Þeir lýstu vantrú sinni á því að þetta gæti gengið upp. Biliings segir þá eiiv faldlega vera afbrýðissama. Svona er kenningin, en virkar hún? (eða annar aflgjafi) Raforka „Græni draumurinn“: Vetni framleitt úr vatni með rafgreiningu og geymt. Þegar ekið er þá er vetninu blandað við súrefni til að fá aftur rafmagn. Portúgal: VW og Ford fá styrk til að byggja verksmiðju fyrir fjölnotabíla - þrátt fyrir hávær mótmæli Matra í Frakklandi Brussel: Efnahagsnefnd Evropu- bandalagsins samþykkti á dögunum áætlun yfirvalda í Portúgal um að styrka samstarf Ford Motor Co og Volkswagen AG um smíði fjölnota- bíla (van-bíla) í nýrri verksmiðju í Portúgal. Þessi styrkur er áætlaður um 97 mUljai ðar escudos eða um 37 milljarðar íslenskra króna. Með því að EB leyfði þessa styrk- veitingu kailaði hún fram hávær mótmæli frá Matra í Frakklandi en fjölnotabíll þeirra, sem seldur er undir merkjum Renault, er leiðandi á markaði slíkra bíla í löndum Evr- ópubandalagsins. Nú þegar hefur Espace þurft aö mæta harðri samkeppni á markaðn- um, bæði frá Chrysler og eins jap- önsku framleiðendunum. Samkvæmt því sem heyrst hefur frá samþykkt efnahagsnefndarinnar þá telur nefndin að styrkveiting port- úgalskra yfirvalda skapi VW og Ford ekki forgang umfram aðra framleið- endur og það síst vegna þess að þessi nýja verksmiðja á að rísa í vanþróuð- um héruðum Suður-Portúgal. Ein meginástæðan til mótmæla matra er að þeir voru þvingaðir til þess á síðasta ári að endurgreiða frönskum stjórnvöldum styrk að upphæð 60 milljaröar króna vegna þess að hann var talinn ganga í ber- högg við reglur bandalagsins í þess- um efnum. Matra heldur því fram að styrkurinn til VW og Ford skapi þeim óréttláta samkeppnisaðstöðu gagnvart Espace. Fyrirhuguð verksmiðja VW og Ford í Setubal á að framleiða 190.000 bíla á ári og fyrirhugað er að fram- leiðslan hefjist á árinu 1994. Reiknað er með því að þessi nýja verksmiðja skapi 5.000 ný störf við verksmiðjuna sjálfa og önnur 7.000 óþein störf i tengslum við hana. Ein meginástæða til þess að Evr- ópubandalagið féllst á þessa styrk- veitingu er sú að af hálfu þeirra er reiknað með mikilh aukningu í sölu slíkra bíla í löndum bandalagsins á næstu árum. í löndum bandalagsins voru fram- leiddir um 29.000 fjölnotabílar á ár- inu 1986 og 69.000 á árinu 1989. At- huganir sjálfstæðra markaðsfyrir- tækja reikna með mikilli aukningu í söiu shkra bíla á næstu árum og reiknað með aht að hálfri milljón slíkra bíla á ári þegar kemur fram að aldamótunum. Því telur Evrópu- bandalagið einsýnt að pláss sé fyrir fleiri framleiðendur á þessum mark- aði. Styrkurinn frá portúgalska ríkinu verður í því formi að 500 milljónir escudos verða veittar í þeinan styrk en um 47 milljónir escudos verði veittar í formi skattaafsláttar í fimm ár. Mikiil hluti þessara fjármuna kemur úr sameiginlegum sjóðum Evrópubandalagsins sem komið var á fót til að styrkja afskekkt héruð. Samkvæmt reglum Evrópubanda- lagsins má veita í shka styrki allt að 75% fyrirhugaðrar fiárfestingar vegna afskekktra og vanþróaðra hér- aða en í tilfelli VW og Ford nemur styrkurinn aðeins um 33 af hundraði heildarfiárfestingarinnar. Þá er það álit þeirra að við þessa leyfisveitingu sé ekki verið að horfa til skammtímasjónarmiða heldur verði þessi uppbygging til þess að skapa þessu landsvæði fótfestu sem iðnaðarsvæði og einnig að hjálpa Portúgal fil þess að auka hlut sinn í bílasmiði og verksmiðjum tengdum bílaiðnaðinum. Bflar Ford Fiesta sem knúinn er nýrri „vél“ sem gengur fyrir vatni. Meðal þess sem þeir samþykkja ekki er sú staðhæfmg Billings að þetta sé fyrsti bíllinn sem hafi „vetn- israfhlöðu" eða með öðrum orðum geti geymt vetnið á þann hátt sem Billings lýsir. General Motors hafi smíðað slíkan tilraunabíl á árunum upp úr 1960. Þeir vildu jafnframt frekari sannanir á stærð uppfinning- arinnar, þyngd, afli og nýtingu elds- neytisins. Sumir telja að Billings hafi gert of mikið úr hlutunum. „Ef þetta skilar bara helmingi þess sem hann hefur haldið fram, þá er þetta stórt skerf fram á við,“ segir prófessor John Appieby við A&M háskólann í Texas sem er taiinn er einn besti vísindamaður á sviði vetn- is í heiminum í dag. Hvað úr þessari vél verður kemur ekki í ljós strax. „Ef það sem ég held fram reynist ekki rétt þá eru einka- leyfin harla lítis virði“ segir Bilhngs, „en það er meira virði að hafa einka- leyfin í hendi mér í augnablikinu en að einhver trúi mér.“ Breski blaðamaðurinn Kemp er bjartsýnn á framtíð vísindanna. „Ég hef í hið minnsta séö uppfinningarn- ar og Daily Mail hefur orðið til þess að segja heiminum hvað um er að vera. Bíðið bara eftir því sem kemur næst, ég á eina eða tvær eftir í er- minni.“ Við hér uppi á íslandi höfum fylgst vel með þeim möguleika að nota vetni í stað annarra hefðþundinna aflgjafa. íslenskir vísindamenn hafa bent á þessa möguleika og þá stað- reynd að viö eigum þæði næga raf- orku og vatn til hagkvæmrar fram- leiðslu á vetni. Vandamálið hefur verið að flytja það á milli landa á hagkvæman hátt og eins að geyma það í bílunum á hagkvæman hátt. Ef þessi nýja aðferð Bhhngs til að vinna vetni til nota í bíl reynist hag- kvæm þá hafa vissulega opnast nýjar leiðir í notkun vetnis í stað annarra aflgjafa en það leiðir framtíðin í ijós. Byggt á Sunday Tlmes KARAT HF. Vara hlutir i flestar geröir bifreiða frá Evrópu og Japan á72timunn Reykjavik, Kleppsmyrarvegi 8 Simi: 91 -68 71 35 + 985-23811 Fax: 91 -68 7133 Alladagavikunqf 14:00-18:00 GL0BUSBILAR Lágmúla 5, sími 91-681555 jfea'ailí Ford Bronco II ’88 Eddie Bauer, með öllu, góður bíll, ekinn 45.000. Verð 1.600.000. Ford Escort 1.3 Savoy '88, ek. 39.000. V. 700.000. BMW 320i 2D Mpk '87, ek. 31.000, sóllúga, álfelgur. Verð 1.250.000 stgr. Bronco XLT sjálfsk., rauð- BX 16 TRS, Ijósblár, ’87, ek. - ur/hvítur, toppbíll. 52.000. Ford Sierra GL ’88. Verð 780.000. Toyota LandCruiser II ’88. Verð 1.650.000. Lada Sport ’88. Verð 450.000. Peugeot 309 GR 1600 ’89. Verð 810.000. CITROÉN @ SAAB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.