Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1991, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1991, Page 4
4 .ififij 8SHM8TR3R Ofi H'jnACfUVfÁA MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1991. Fréttir i>v Separovic óskar eftir viöurkenmngu á sjálfstæði Króatíu frá íslendingum: Þetta óþverrastríð er ekki innanríkismál - ekki tryggt aö aörir fylgi okkur, segir Jón Baldvin Dr. Zvonimir Separovic utanríkisráðherra átti (und með Davíð Oddssyni og Jóni Baldvini Hannibalssyni í Ráðherrabústaðnum á laugardag. DV-mynd Hanna „Ég er kominn hingað til lands til þess að biðja ísland fyrst ríkja í heim- inum að viðurkenna sjálfstæði Króa- tíu. Það myndi ótvírætt hjálpa okkur á alþjóðavettvangi. Júgóslavía er andvana ríki og í raun stjórnað af hernum. Þetta óþverrastríð er því ekki innanríkismál Júgóslavíu og verður ekki leyst sem slíkt,“ sagði dr. Zvonimir Separovic, utanríkis- ráðherra Króatíu, á blaöamanna- fundi í Reykjavík á laugardaginn. Zvonimir kom hingað til lands á laugardagsmorgun og átti fund með Jóni Baldvini Hannibalssyni utan- ríkisráðherra og Davíð Oddssyni for- sætisráðherra. Um var að ræða vinnufund í boði íslenska utanríkis- ráðuneytisins. Engar ákvarðanir voru teknar varðandi sjálfstæðisvið- urkenningu á þessum fundi. Til tals kom að Jón Baldvin færi til Júgóslav- íu á næstunni í boði Króata til að kynna sér stöðu mála þar. Boð þetta er nú til athugunar í utanríkisráðu- neytinu. Á undanfórnum vikum hafa þeir Jón Baldvin og dr. Zvonimir ræðst við símleiðis og fundað í New York. Segist Zvonimir vera Jóni Baldvini mjög þakklátur fyrir þann stuðning og þá samúð sem hann hafi látið í ljós í sambandi við sjálfstæðisbaráttu þjóðar sinnar. Að sögn Jóns Baldvins er í grund- vallaratriðum ekkert sem hindrar það að ísland eða önnur ríki viður- Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Kári Arnór Kárason frá Húsavík var kjörinn formaður Alþýðusam- bands Norðurlands en þingi samtak- anna lauk á Illugastöðum í Fnjóska- dal á laugardag. Þóra Hjaltadóttir, sem gegnt hefur formennsku um 10 ára skeið, gaf ekki kost á sér til end- urkjörs. kenni sjálfstæði Króatíu og Slóveníu. Virða beri sjálfsákvörðunarrétt þjóða. Að undangenginni þjóðarat- kvæöagreiðslu síðastliðið vor hafi þessar þjóðir ákveðið að lýsa yfir sjálfstæði. Ljóst sé því að Júgóslavía sé liðiö undir lok sem ríkjasamband og fráleitt að hægt verði að halda því saman með hernaðarvaldi. Jón Baldvin segir þó ekki sjálfgeflð aö á þessari stundu sé viðurkenning á sjálfstæði Króatíu vænlegasta leið- in til að binda enda á það blóðbað sem þar hefur átt sér stað. Þannig sé það ekki tryggt þótt Ísland stígi þetta skref að önnur ríki geri slíkt hið sama. Hann segir það sína skoðun að eölilegast sé að grannríkin, til dæmis Austurríki, taki fyrstu skrefin í þessa átt. Fyrst veröi þó að leyfa Evrópubandalaginu að reyna til þrautar friðarfrumkvæði sitt. „Við viljum ekki gera neitt sem spillir fyrir friðsamlegri pólitískri lausn með ótímabæru frumkvæöi," sagöi Jón Baldvin eftir fund sinn með dr. Zvonimir. -kaa Kjaramál settu svip sinn á þingið og bar umræða um þau þess merki að gerð nýrra kjarasamninga stend- ur fyrir dyrum. Mikil óánægja er innan raða fiskvinnslufólks á Norð- urlandi sem hefur stofnað sín eigin samtök. Samtökin hyggjast leggja fram kröfugerð í komandi samning- um. Slökkviliðið í Reykjavik var kall- að út að Grundarstíg um kvöld- matarleytið á taugardag þar sem eldur togaði i plaströrum i kjali- ara gamta Verslunarskólans. Ágætlega gekk að slökkva eid- inn þrátt fyrir að reykurinn væri mjög míkiti. Ekki tiggur -fyrir hverjar skemmdirnar eru og eldsupptök eru ókunn. RLR hefur málið til meðferðar. DV-mynd S Biskupstungnabraut: Fimmslösuð- ustibílveltu - bílstjórinn dottaöi Bílvelta varð á Biskupstungna- braut við Ingólfsfjall aðfaranótt sunnudags. Bílstjórinn og íjórir farþegar voru aUir fluttir á sjúkrahúsið á Selfossi en þrír fengu fljótlega að fara heim. Orsakir slyssins eru taldar vera þær aö ökumaðurinn sofnaöi undir stýri meö fyrrgreindum afleiðingum. Bíllinn er talinn gjörónýtur. -GRS Hrossið drapst samstundis Gylfi Krisjánsson, DV, Aknreyri: Bifreið var ekið á hross á móts við Brunnhól í Glæsibæjar- hreppi, skammt norðan Akur- eyrar, aðfaranótt laugardags. Hrossið drapst samstundis við áreksturinn. Bifreiöin skemmd- ist það mikið að flytja varð hana i burtu með kranabífreið. Hvorki ökumann né fárþega hans sakaði. Lögreglan á Akureyri: Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri: Mjög annasamt var hjá lögregl- unni á Akureyri um helgina, sér- staklega aðfaranótt laugardags. Segja menn, sem starfað hafa í lög- reglunni þar í mörg ár, að þeir muni ekki aðra eins annanótt. Varðstjóri lögreglunnar sagöi að mikil ölvun hefði verið í bænum, bæði á skemmtistöðum og einnig i miðbænum. Menn hafi verið illír og erflðir viöureignar en engin al- varleg slys uröu í þessum átökum. Eítthvað var um að menn til- kynntu að ráðist hefði verið á þá en í gær átti eftir að reyna á hvort þeim málum yrði fylgt eftir með formlegum kærum. Tvö minni háttar innbrot voru framin. Maður vartekinn réttinda- laus við akstur og í Furulundi var bifreið ekiö á hús. Ökumaðurinn ók síðan burt en skildi eftir sig gler- brot og fleira úr bifreið sinni sem talið er að muni leiða til þess að ökutækið fmnist. Fiskvinnslufólk á Norðurlandi: Leggur fram sér kröf u- gerð í næstu samningum í dag mælir Dagfari íslenskir heildsalar hafa hafiö nýja sjálfstæöisbráttu. Þeir ætla að bjarga landinu undan oki nýrra Noregskonunga sem hér eru að sölsa undir sig völdin og vinnuna í krafti Gamla sáttmála. Heildsal- arnir vilja kaupa Ríkisskip. Nú spyr einhver hvernig heild- salar geti bjargaö sjálfstæði íslands með því að kaupa skipafélag af rík- inu? Hvað kemur það sjálfstæðinu við hvort Ríkisskip er rekið af rík- inu eða heildsölum? Jú, skýringin er sú, að ríkið vill selja og Eimskip vill kaupa. Og það er ekki ríkiö sem er hættulegt íslenska fullveldinu heldur forstjórar og eigendur Eim- skipafélagsins. Það eru þeir sem eru að sölsa undir sig völdin. Tals- menn stórkaupmanna fullyrða að Eimskip hafi „slíkt tak á allri at- vinnustarfsemi í landinu að annað eins hafi ekki þekkst frá því aö Noregskonungar ríktu hér á landi í krafti Gamla sáttmála". Þarna hafa menn það svart á hvítu. Það er ekki Evrópubanda- lagið og Ameríkanarnir sem eru grafa undan sjálfstæðinu. Það eru ekki neinir vondir útlendingar, sem liggja í leyni og vilja eignast landið. Það er Eimskipafélag ís- lands, óskabarn þjóðarinnar, sem Nýir Noregskongar nú er að ná slíku heljartaki á þjóð- inni og fullveldinu og atvinnulífmu að jafnvel heilsalar hrökkva við. Og hafa þó ekki alltaf verið í fram- varðarsveitinni þegar sjálfstæðið er annars vegar. Lengi voru heild- salar uppnefndir sem afætur á þjóðfélaginu, svindlarar og aurapúkar, sem svifust einskis til að græða og seldu jafnvel ömmur sínar ef því var að skipta. En þeir eru löngu hættir að hafa áhuga á að græða og öðrum slíkum veraldlegum málum. Sem er líka eins gott, því Fjölnismenn eru fallnir frá og Heimastjórnarflokk- urinn er liðinn undir lok og alla- ballar eru hættir við að hamast gegn varnarliöinu og Nató, sem lengi voru þó helstu óvinir íslenska lýöveldisins. Heildsalar hafa nú tekið við merkinu þar sem það féll með Gamla sáttmála á sautjándu öldinni og var ekki vonum fyrr að baráttan væri endurvakin. Noregskonungar eru að vísu löngu hættir að ásælast ísland, enda landið ekki til skiptanna þeg- ar sjálft óskabarniö hefur snúiö sér viö í gröfmni og ætlar að taka við þar sem Noregskonungar skildu við. Noregskonungar komu þó hreint til dyranna og létu íslend- inga skrifa undir afsalið með grát- stafinn í kverkunum. Enginn hefur heyrst gefa frá sér gráthljóð þótt Eimskipafélagið hrifsaði til sín völdin en kannske er það vegna þess að enginn hefur tekið eftir því. Það var í rauninni ekki fyrr en ríkið vildi losa sig við Ríkisskip sem heildsalarnir upplýstu um þau hroðalegu launráð óskabarnsins að svíkja landið. Enginn vissi til þess fyrr en nú að sjálfstæði íslands stæði og félli með Ríkisskip en eftir á að hyggja er þaö vel skiljanlegt að ríkissjóður hafi tekið á sig milljaröa kostnað á ári hveiju til aö viðhalda þessu skipafyrirtæki sínu, ef fullveldið er undir því komið. Nú ætla íslenskir heildsalar að leggja á sig að borga þennan milljarð upp á eigin spýtur heldur en að leyfa Eimskip að gera það. Máliö snýst nefnilega um þaö að koma í veg fyrir að öll helstu undirstöðuatvinnufyrirtæki lands- manna eru rekin með tapi og allt eru það máttarstólpar þjóðfélags- ins og hornsteinar lýðveldisins og eftir því sem Eimskip eignast fleiri töp og fleiri vonlaus fyrirtæki tryggja þeir sig í sessi sem menn- irnir sem eiga landið. Það getur enginn átt þetta land nema þeir sem tapa mest. Þeir eru stærstir og þeir eru áhrifamestir og þeir eru máttarstólparnir og nýmóðins Noregskonungar. Eimskip á ekki að komast upp með þetta og það fer vel á því að heildsalar rísi upp og berjist gegn þessu ógurlega ofur- valdi óskabarnsins. Það er búið að gera nógu margt slæmt af sér þótt ekki bætist það líka við að annast skipaflutninga sem snúast um full- veldið. Eimskip á ekki að skipta sér af flutningum sem aörir geta séð um. Ef heildsalamir eignast Ríkis- skip er sjálfstæðinu borgið. Ef Eim- skip kaupir Ríkisskip er eins gott að flytja stjómarráðið niður í Hafn- arstræti. Fullveldið veltur á því hver verður nýr eigandi að Ríkis- skip. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.