Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1991, Blaðsíða 32
44
MÁNUDAGUK 30. SEPTEMBER 1991.
Menning
Tónleikar Hafliða
í gærkvöldi vori haldnir tónleikar í Listasafni ís-
lands þar sem flutt voru verk eftir Hafliða Hallgríms-
son. Flytjendur voru Pétur Jónasson gítarleikari, Kol-
beinn Bjarnason flautuleikari, Gunnar Kvaran selló-
leiari, Helga Ingólfsdóttir semballeikari og Guðný
Guðmundsdóttir auk Blásarakvintetts Reykjavíkur.
Eins og sjá má af þessari upptainingu voru hijóð-
færaleikararnir ekki af lakari endanum enda var flutn-
ingur tónlistarinnar með miklum ágætum og ljóst að
mikil alúð hafði verið lögð í æfingar og undirbúning.
Það sama má segja um annan undirbúning tónleik-
anna eins og gerð efnisskrárinnar sem leit mjög fall-
ega út. Tónskáldið hélt ræðu í upphafi tónleikanna og
aftur eftir hlé og mæltist vel og skörulega. Gat hann
þess að út væri komin bók eftir sig með teikningum
og væri hún til sölu á hóflegu verði þarna á tónleikun-
um. Þá útskýrði hann tónverkin og lýsti hvemig bæri
að skilja þau. Þá fylgdi í efnisskránni röð fyrirsagna
um hvert verk svo ekkert færi milli mála um skilning-
inn. Útlistanir og nafngiftir af þessu tagi orka tvímæl-
is af þeirri ástæðu að tónlist er óhlutkennd list og flest-
ir tónlistarunnendur telja sig óbundna af hvers konar
fyrirmælum um þær ímyndanir sem þeir gera sér um
verk. Efasemdir um þörflna fyrir skýringargreinar
eiga sérlega rétt á sér þegar rætt er um tónlist Hafliða
því að hún hefur það einkenni að vera einkar aðgengi-
leg og er þar fátt sem ekki liggur í augum uppi. Við
þessar aðstæður laumast sú hugsun að mönnum að
verið sé að bæta upp með ræðuhöldum það sem á
Tórúist
Finnur Torfi Stefánsson
vantar til að verkin standi undir sér.
Slíkt er aö sönnu óþarfi um verk Hafliða. Þau eru
yflrleitt vandvirknislega gerð og margir staðir eru þar
fallegir. Þá liggja þau yfirleitt vel viö hljóöfærunum
og bera þess merki að höfundur er sjálfur snjall hljóð-
færaleikari. Helsti ljóður á verkunum er hve mikið
ber á endurtekningum á óbreyttu efni í striklotu eins
og gengið sé út frá því að hlustandinn heyri ekki í
fyrsta sinn og þurfi því sð segja sama hlutinn aftur.
En þetta er algengur galli og fyrirgefmn af mörgum.
Á svipaðan hátt og menn fengu á tilflnninguna að
verkin á þessum tónleikum væru ofkynnt var ekki
laust við að svipað væri uppi á teningnum um höfund-
inn sjálfan. í efnisskránni er birt bréf einhvers skosks
blaðamanns til tónskáldsins þar sem mikiö lof er á
það borið fyrir mannkosti af ýmsu tagi og skortir þar
lítt hástemmdar yfirlýsingar. Á íslandi hefur oflof af
þessu tagi löngum verið talið mönnum til háðungar
og ærumeiðingar og eru ófá málaferh sem af slíku
hafa hlotist. Sem betur fer er bréfið á ensku og þarf
ekki að takast alvarlega.
GERUM GÖT Á EYRU
ERUM NÝBÚIN AÐ FÁ NEFLOKKA
HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG
STOFNUÐ 1918
SÍMI 13010
Matreiðslumenn
Almennur félagsfundur verður haldinn að Óðinsgötu
7 þriðjudaginn 1. október nk. kl. 15.
Fundarefni: Kjaramál og fleira.
Stjórnin
Andlát
Magnús Tómasson, Tryggvagötu 7,
lést þann 27. september á Ljósheim-
um.
Ásdís Sigrún Guðmundsdóttir lést í
Borgarspítalanum 28. september.
Stefán Aðalbjörnsson lést að heimili
sínu, Vorsabæ 7, þann 26. september.
Jónas B. Guðmundsson, Hvanneyr-
arbraut 44, Siglufirði, lést í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri þann
27. september.
Úlfljótur B. Gíslason andaðist í Borg-
arspítalanum 28. september.
Halldóra Jóhannesdóttir frá Mosfelli,
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ, lést 27.
september.
Jarðarfarir
Guðný ÞorbjörgKlemensdóttir, Hofi,
Álftanesi, verður jarðsungin frá
Bessastaðakirkju þriðjudaginn 1.
október kl. 13.30.
Óskar Jónsson, Vogatungu 47, Kópa-
vogi, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 1. október
kl. 15.
Myndgáta
©/wz
■evþói^----A,
Myndgátan hér að ofan
lýsir orðasambandi.
Lausngátunr. 141:
Viðurkennir
Fréttir
Ætlar að
halda kvðta-
' f
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur fariö fram fjóröi
útdráttur húsbréfa í 1. flokki
1989 og fyrsti útdráttur
húsbréfa í 1. fiokki 1990.
Koma þessi bréf til
innlausnar 15. nóvember
1991.
Öll númerin verða birt í
næsta Lögbirtingablaði og
upplýsingar liggja frammi í
Húsnæöisstofnun ríkisins,
á Húsnæðisskrifstofunni á
Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum.
cSo HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REVKJAVIK • SÍMI 91-696900
uppboðið
- segirHilmarÁ.Hilmarsson framkvæmdastjóri
Stefán Sigurjónsson pípulagninga-
maður, Eiríksgötu 11, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 2. október kl. 15.
Jónína Þ. Björnsdóttir, Blöndubyggð
2, Blönduósi, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 1. októ-
ber kl. 13.30.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Félag eldri borgara heldur spilavist í Risinu
í dag kl. 14. Bridge og fijáls spilamennska.
JC Nes
JC Nes heldur kynningaríund á starfsemi
félagsins mánudaginn 30. september kl.
20.30 að Austurströnd 3, Seltjamamesi.
Fundurinn er öllum opinn.
Kvenfélag Hreyfils
Kvenfélag Hreyfils heldur fund þriðjudag-
inn 1. október kl. 20 í Hreyfilshúsinu. Fönd-
ursýning.
Kvenfélag Háteigssóknar
Kvenfélag Háteigssóknar heldur sinn fyrsta
fund á vetrinum þriðjudaginn 1 okt. kl. 20.30
á lofti kirkjunnar. Kynning á snyrtivörum
og kaffiveitingar.
„Meðan lög banna ekki uppboð á
kvóta fæ ég ekki séð að slíkt sé ólög-
legt. Ég vissi það fyrirfram að þetta
yrði flókið en mun engu að síður
halda mínu striki. Málið er að núna„
fara margir ekki eftir reglunum en
Kvótamarkaðurinn er einmitt til að
gera mönnum þetta auðveldara,"
segir Hilmar Á. Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Kvótamarkaðarins.
Sjávarútvegsráðuneytið telur upp-
boðsmarkað á kvóta ekki samrýmast
þeim reglum sem gilda um flutning
aflamarks milli skipa. í frétt frá ráðu-
neytinu segir að kvótinn sé bundinn
Samstaða um óháð Island
Stofiifundur í Suðurlandskjördæmi verður
haldinn í kvöld, mánudag 30. september, á
Hótel Selfossi. Á fundinum verða flutt ávörp
og stutt fræðsluerindi og kosið í stjóm kjör-
dæmafélagsins.
við skip og og framsal á honum sé í
mörgum tilfellum háð samþykki op-
inberra aðila og veðhafa. Þá ráðist
efnisleg heimild til framsals oft af
högum þess sem framselt er til.
Hilmar visar þessari túlkun ráðu-
neytisins á bug og ætlar að halda
kvótauppboð. Upphaflega stóð til að
halda fyrsta uppboðið í dag en því
hefur nú verið frqstað til 14. október.
í vikunni ætlar Hilmar fara á fund
Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs-
ráðherra ásamt lögfræðingi sínum,
og skýra honum frá starfsemi mark-
aðarins. -kaa
Safnaðarstarf
Grensáskirkja: Aðalfundur Grensás-
kirkju mánudag kl. 18.
Hallgrímskirkj a: Fundur í Æsktllýðsfé-
laginu Örk mánudagskvöld kl. 20.
Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjudag kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Langholtskirkja: Kvenfélag Langholts-
sóknar heldur 1. fund vetrarins þriðjud.
1. hktóber nk. kl. 20.30 í safnaðarheimil-
inu. Dagskrá. Venjuleg fundarstörf. Ein-
söngur Þóra Einarsdóttir. Kaffiveitingar
í umsjá stjómarkvenna. Helgistimd í
kirkju.
Neskirkja: Mömmumorgunn þriðjudag
kl. 10-12. Kaffi og spjall.
LEGSTEINAR
#
Granít s/f
Helluhrauni 14 220, sími 652707
Opið 9-18. Laugardaga 10-15.