Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991
33
Hlaupagarpar
Allir hlaupararnir viröast í fljótu bragði vera alveg eins. Einn þeirra er þó örlítiö frábrugðinn! Hvaöa hlaupari er þaö?
Sendið svariö til: Barna-DV.
Elsku amma!
Viö vonum að þetta veröi birt. Viö erum hérna tvær systur
og eigum við mikið vandamál aö stríöa. Þannig er aö
mamma og pabbi skildu fyrir hálfu ári og mamma fékk sér
nýjan mann.
Eitt kvöldiö þegar mamma var aö vinna fram eftir bankaði
hann á herbergið okkar (viö erum með sama herbergiö syst-
urnar), gekk inn sallarólegur og lokaði hurðinni. Hann sett-
ist á rúmiö hjá annarri okkar og síöan byrjaöi hann að káfa
á henni. Hin ætlaði að reyna aö hlaupa út, en þá hafði hann
læst. Þaö angaði vínlykt af honum, en okkur tókst aö koma
honum út úr herberginu og læstum aö okkur. Hann hótaði
öllu illu ef viö segðum frá.
Síðan alltaf þegar mamma vinnur fram eftir reynir hann aö
komast inn til okkar en viö höfum alltaf læst. Síðan mamma
byrjaöi meö þessum karli er hún alltaf full um helgar.
Elsku amma, hvaö getum viö gert? Ekki segja aö viö eigum
að tala við mömmu, því þaö gengur ekki. Viltu vera svo góö
að hjálpa okkur? Viö þökkum fyrir gott blaö.
R og J
Kæru systur!
Auðvitaö tel ég best aö þiö talið um þetta við mömmu ykkar. Þið eigið að gera það, því
þaö er líklegt aö mamma ykkar hafi ekki hugmynd um hátterni mannsins í ykkar garö.
Þiö skuluð líka segja manninum aö þiö ætlið ekki aö þegja yfir þessu. Þiö skuluð líka
segja honum að hann ætti að vita hvaöa refsingu hann á í vændum hætti hann ekki að
leita á ykkur. Einnig vil ég benda ykkur á að snúa ykkur til þeirra í Rauðakrosshúsinu.
Það er við Tjarnargötu 35 og síminn þar er 622260. Þar vinnur sérþjálfaö fólk sem hjálpar
og aðstoðar unglinga í svipaðri aöstöðu og þið eruð. Ekki hika heldur hringið strax áður
en eitthvað hörmulegt kemur fyrir.
Bestu kveðjur með von um skjóta hjálp.
Ykkar amma
Brotnu rúðumar
Bjössi þarf að setja nokkrar nýjar rúður í þetta háhýsi!
Hvað þarf Bjössi margar nýjar rúður?
Sendið svarið til: Barna-DV.
Áslaug María Rafnsdóttir, Selbraut 18 á Seltjarnar-
nesi, teiknaði þessa telpumynd!
Hvað heitir telpan?
Sendið svarið til: Barna-DV.
Safnarar
Ég safna myndum og plakötum með Scorpions, New
Kids on the Block, Brian Adams og Madonnu. Einnig
safna ég bréfsefnum. í staðinn get ég látið límmiða,
glansmyndir og spil.
Hermina K. Lárusdóttir,
Stekkjarholti 13, 355 Ólafsvík.
Reikningsþraut
Ég safna barmmerkjum, límmiðum og merktum penn-
um. Get látið eitthvað í staðinn sem okkur semur um.
Þráinn Ó. Jónsson,
Kambahrauni 33, 810 Hveragerði.
Hvaða tölur þarf að setja inn í reikn-
ingsdæmið til að allar útkomur verði
réttar?
Sendið lausnina til: Barna-DV.