Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1991, Qupperneq 1
Fimm listakonur
sýna í Stúdíó Höfða
Fimm listakonur, þær Anna
María Harðardóttir, María Más-
dóttir, Ragna Eyjólí'sdóttir, Ragn-
heiður Helga Jónsdóttir og Soffía
Sigurðardóttir, efna til samsýning-
ar í Stúdíó Höfða í tilefni opnunar
á vinnustofu þeirra að Borgartúni
19. Sýningin verður opnuð á morg-
un, laugardaginn 2. nóvember, og
á henni er að finna verk unnin með
olíu, akrýl, pastel og vatnslitum og
verk unnin í gler.
Anna María Harðardóttir sýnir
olíu og akrýlmálverk á striga. Þetta
er fyrsta sýning Önnu Maríu, en
hún er nýkomin tii landsins eftir
MA nám og starfar sem art therap-
isti á Barnadeild Landspítalans.
María Másdóttir sýnir myndir
unnar með olíu og pastel á pappír.
Hún hefur haldið eina einkasýn-
ingu og er þetta fimmta samsýning-
in sem hún tekur þátt í. Anna Mar-
ía hefur BFA gráðu frá Illinois í
Bandaríkjunum.
Ragna Eyjólfsdóttir sýnir akrýl-
myndir á striga. Hún hefur haldið
eina einkasýningu og þetta er
fjórða samsýning hennar, en Ragna
hefur BFA gráðu frá Illinois,
Bandaríkjunum.
Ragnheiður Helga Jónsdóttir
sýnir akrýl- og vatnslitamyndir á
pappír og striga. Þetta er fyrsta
sýning Ragnheiðar en undanfarin
ár hefur hún starfað við listskreyt-
ingar.
Soffía Sigurðardóttir sýnir akrýl-
myndir á striga og glermuni. Þetta
er önnur samsýning Soffíu en hún
stundaði nám í Illinois og Minne-
sota, Bandaríkjunum.
Sýningin, sem er opin frá klukk-
an 14-19, stendur til 10. nóvember.
Listakonurnar fimm, Anna María, Maria, Ragna, Ragnheiður Helga og
Soffía, opna á morgun, laugardag, sýningu í Stúdió Höfða í tilefni opnun-
ar vinnustofu þeirra að Borgartúni 19. DV-mynd Hanna
Laugardalshöllin:
Vináttuhátíð '91
Aðstandendur verkefnisins Vin-
átta ’91 efna til vináttuhátíðar í Laug-
ardalshöll á morgun, laugardaginn
2. nóvember, klukkan 15-19.
Hugmyndin er að halda skemmtun
fyrir alla aldurshópa og er dagskráin
skipulögð með tilliti til þess. Þeir
skemmtikraftar sem koma fram eru
Bubbi Morthens, Júpiters, Kuran
Swing, Ole Kristiansen Band frá
Grænlandi, Sororicide, Fjörkarlar,
Strandamannakórinn, Neistar,
Götuleikhúsið Auðhumla, dansarar
frá Kramhúsinu, Lúðrasveit verka-
lýðsins, Jón Rúnar Arason og fleiri.
Kynnir á hátíðinni verður Edda
Björgvinsdóttir.
Dagskráin hefst á því að Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík og Flugbjörg-
unarsveitin í Reykjavík sýna tæki
sín og búnað fyrir utan Laugardals-
höllina og þyrla Landhelgisgæslunn-
ar kemur á staðinn og sýnt verður
sig úr þyrlunni. Þá munu Lögreglan
í Reykjavík og Bifhjólasamtök lýð-
veldisins, Sniglarnir, verða á staðn-
um.
Aðgangur að hátíðinni er ókeypis.
Byrjað var að vinna að verkefninu
Vinátta ’91 síðastliðið haust að frum-
kvæði íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur og Unglingadeildar Fé-
lagsmálastofnunar Reykjavíkur. Til-
gangurinn er að auka tengsl, sam-
skipti og samvinnu félaga, samtaka,
stofnana og einstakhnga með sam-
eiginlegum verkefnum og uppákom-
um og að koma af stað umræðum
um vináttu og aðra jákvæða hluti í
samskiptum manna í stað þess að
dvelja stöðugt við skuggahliðar eins
og ofheldi eða vímuefnanotkun.
Verkefnið hefur verið kynnt skól-
um, dagvistarstofnunum, félagsmið-
stöðvum og öðrum sem gætu nýtt það
til forvarna og félögum og samtökum
í einstökum bæjarhverfum og byggð-
arlögum. Undirtektir hafa alls staðar
verið góöar og ahmargir aðilar eru
þegar farnir að vinna að verkefninu.
Verndari Vináttu ’91 er forseti ís-
lands, Vigdís Finnbogadóttir.
Á Kjarvalsstöðum verða þrjár sýningar opnaðar á morgun, laugardag. Ein þeirra er með verkum Gunnars Arnar
myndlistarmanns, önnur með Ijóðum Jóns úr Vör og sú þriðja með verkum eftir ívar Valgarðsson myndhöggvara.
Á myndinni er Gunnar Örn með eitt verka sinna.
DV-mynd Brynjar Gauti
Það verða þrjár sýningar opnaðar
á Kjarvalsstöðum á morgun, laugar-
dag.
í austurforsal verður opnuð klukk-
an 17 sýning á ljóöum eftir Jón úr
Vör sem er einn af brautryðjendum
íslenskrar nútímaljóðlistar og á að
baki langan og virkan skáldskapar-
feril. Hann mótaði sér snemma sér-
stæöan, persónulegan ljóðstíl, hljóð-
látan, hógværan og áhrifaríkan í
senn. Ljóðabók hans, Þorpið, sem út
kom 1946, er tímamótaverk í ís-
lenskri Ijóðagerð og fyrsta íslenska
ljóðahókin sem geymir eingöngu
óbundin Ijóð. Ljóðabækur Jóns úr
Vör eru orðnar 12 að tölu.
Ljóðasýningar Kjarvalsstaða, sem
Kjarvalsstaðir:
unnar eru í samvinnu við Ríkisút-
varpið - rás 1, eru ný leið til að vekja
athygli almennings á stöðu ljóðsins
í dag, ennfremur sem hér skapast
nýir möguleikar fyrir skáldin í rými
sem í gegnum tíðina hefur verið helg-
að myndlistinni.
í austursal opnar Gunnar Örn sýn-
ingu. Gunnar Öm er fæddur 1946 og
hann er sjálfmenntaður myndlistar-
maður. Fyrstu einkasýningu sína
hélt hann 1970 í Unuhúsi. Síöan þá
hefur hann haldið 23 einkasýningar,
þar af tvær í Kaupmannahöfn og
tvær í New York. Hann hefur tekið
þátt í samsýningum víða um heim.
Gunnar Örn var fulltrúi íslands á
Feneyja-tvíæringnum 1988. Verk eft-
ir hann eru í eigu ýmissa safna, með-
al annars Listasafns íslands, Gugg-
enheim safnsins í New York, Saubu-
safnsins í Tokyo og Moderna Museet
í Stokkhólmi
Þá verður klukkan 16 opnuð sýning
á nýjum verkum eftir ívar Valgarðs-
son myndhöggvara. Að þessu sinni
býður listamaðurinn upp á installati-
on-sýningu - sem sett er saman úr
byggingarefni: hvítri málningu,
málningardósum, heflaðri furu,
krossvið, hnoðkítti, gangstéttarhell-
um og einangrunarplasti. Þessu efni
er á engan hátt umbreytt heldur er
því raðað upp samkvæmt ákvörðun
listamannsins.
MS-félag íslands:
Kórahátíð í Háskólabíói
Kórahátíð MS-félags íslands verður haldin á morgun, laugardag, i Há-
skólabíói klukkan 15 og er til styrktar húsbyggingarsjóði MS-félagsins.
MS-félag íslands stendur fyrir
mikilli kórahátíð í Háskólabíói á
morgun, laugardaginn 2. nóvemb-
er, klukkan 15.00.
MS-félagið heldur þessa hátíð til
að safna í húsbyggingarsjóð en fé-
lagið fékk nýlega úthlutað lóð. í
félaginu eru milli 500 og 600 manns
en um 200 manns eru með sjúk-
dóminn MS.
Þáð verða sex kórar sem koma
fram, tveir skólakórar, tveir karla-
kórar og tveir blandaðir kórar.
Skólakór Kársness kemur fram
undir stjórn Þórunnar Björnsdótt-
ur, Kór Öldutúnsskóla undir stjórn
Egils Friðleifssonar, Dómkórinn
sem Marteinn H. Friðriksson
stjómar, Kór Langholtskirkju und-
ir stjórn Jóns Stefánssonar, Karla-
kórinn Fóstbræður sem Ámi Harð-
arson stjómar og Karlakór Reykja-
víkur undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar. Kynnir á hátíðinni
verður Baldvin Halldórsson.
Miðar em seldir í Hljóðfæra-
verslun Poul Bernburg, Tónastöð-
inni, Óðinsgötu 7, og í Háskólabíói
og kostar aðgöngumiðinn 2000
krónur. Allur ágóðinn rennur í
húsbyggingarsjóð MS-félags ís-
lands.