Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1991, Qupperneq 4
20
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991.
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991.
21
Messur
Allrahcilagramessa
Arbæjarkirkja: Gllðsþjónusta _kl 11.
Bamastarf á sama tima. Kirkjubíllinn fer
uin Arbæinn fyrir og eftir gurtsþjon-
ustuna. Miöyikudagur: Fyrirbænaguðs-
þjónusta i Árbæjarkirkju kl. 16.30. Sr.
Guðntundur Þorsteinsson.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjubíllinn ekur.
Kafflsala safnaðarfélags Ásprestakalls
eftir messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Fimmtudagur: Bibliulestur í safnaðar-
heimilinu kl. 20.30 og kvöldbænir í kirkj-
unni að honum loknunt.
Breiðlioltskirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Messa kl. 14. Altarisganga. Organ-
isti Þorvaldur Björnsson. Að messu lok-
inni verður kafTisala og hlutaveíta Kven-
félag Breiðholts til fjáröflunar fyrir eld-
hús safnaðarheimilisins. Bænaguðs-
þjónsta með altarisgöngu þriðjudag kl.
18.30. Sr. Gísli Jónasson
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11. Arna.
Gunnar og Pálmi. Guðsþjónusta kl. 14.
Allraheilagramessa. Látirma minnst.
Einsöngur Reynir Guðsteinsson. Organ-
isti Guðni Þ. Guömundsson. Pálmi Matt-
lúasson. Basar kvenfélagsins efth- guðs-
þjónustuna.
Digranesprestakall: Barnasamkoma í
safnaðarheimihnu við Bjarnhólastig kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Prestsvígsla kl. 10.30. Bisk-
up íslands. herra Ólafur Skulason. vígir
cand. theol. Jón Hagbarð Knútsson til
Raufarhafnarprestakalls í Þingeyjarpróf-
astsdæmi. \'igsluvottar sr. Arngrimur
Jónsson. sem lýsir vigslu. dr. Sigurbjörn
Eínarsson prófessor. sr. Ragnheiður Erla
Bjamadóttir og sr. Hjalti Guðmundsson.
Altarisþjónustu annast sr. Hjalti Guð-
mundsson dómkirkjuprestur. Kl. 11.
Bamastarf i safnaðarheimilinu. Bára EI-
íasdóttir. Siðdegismessa kl. 17. AOraheil-
agramessa. Tónlag dagsins sungiö. Sr.
Hjalti Guðmundsson. Miðvikudagur kl.
12.05: Hádegisbænir í kirkjunni. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir. Mið-
rikudagur kl. 13.30-16.30: Samvera aldr-
aðra í safnaðarheimihnu. Tekiö í spil.
Kaifiborð. söngur. spjall og helgistund.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Magnús Björnsson.
Eyrarbakkakirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 10.30. Messa kl. 14. Kaffi eftir messuna.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Barnastarf á sama tíma. Prestur Sr.
Hreinn Hjartarson. Organisti Guðný M.
Magnúsdóttir. F\Tirbænir í Fella- og
Hólakirkju mánudag kl! 18. Prestarnir.
Frikirkjan í Hafnarfirði: Barnasam-
koma kl. 11. Guösþjónusta kl. 14. Nem
endur úr Tónskóla Hafnarfjarðar flrija
tónhst. Kaffisala kvenfélagsins verður í
Góðtemplarahúsinu frá kl. 15. Einar Evj-
ólfsson.
Grafarvogssókn: Barnaguðsþjónusta kl.
11 í Félagsmiöstöðinni Fjörgyn. Umsjón:
Valgerður, Katrin og Hans Þormar.
Skólabílhnn leggur af stað frá Hamra-
hverfi kl. 10.30 og fer venjulega skólaleið.
Kl. 14. Allraheilagramessa. Sigrún Gisla-
dóttir hjúkrunarfræðingur, sem starfar
að málefnum aldraðra á vegum Reykja-
víkurprófastsdæma, predikar. Safnaöar-
félagiö býður eldri borgurum upp á kaffi
og veitingar eftir messu. Vigfús Þór
Ámason.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11. 6
ára börn og eldri og foreldrar þeirra uppi.
Yngri bömin niðri. Messa kl. 14. Prestur
sr. Gylfi Jónsson. Organisti Árni Arin-
bjamarson. Fyrirbænir eftir messu og
molasopi. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl.
12.00. Orgelleikur í 10 mínútur. Fyrir-
bænir, altarisganga og léttur hádegis-
verður. Þriðjudagur kl. 14.00: Biblíulest-
ur og kirkjukaffi. Allir velkomnir. Prest-
arnir.
Grindavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl.
11. Börn úr Ytri- og Innri-Njarðvíkur-
kirkju koma í heimsókn. Messa kl. 14.
Altarisganga. Minnst látinna. Organisti
Siguróli Geirsson. Kór kirkjunnar syng-
ur. Sóknarnefnd.
Hallgrimskirkja: Fræðslusamvera kl. 10.
Messa og bamasamkoma kl. 11. Sr. Öm
Bárður Jónsson predikar. Inga Rós Ing-
ólfsdóttir leikur á selló. Minningar- og
þakkarguðsþjónusta kl. 17. Inga Rós Ing-
ólfsdóttir leikur á selló. Sr. Karl Sigur-
bjömsson, sr. Ragnar Fjalar Lámsson.
Þriöjudagur: Fjrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Háteigskirkja: Morgunmessa kl. 10. Sr.
Tómas Sveinsson. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Kirkjubíhinn fer frá Suðurhlíðum um
Hlíðamar fyrir barnaguðsþjónustuna.
Hámessa kl. 14. Sr. Amgrímur Jónsson.
Kvöldbænir og fyrirbænir em í kirkjunni
á miðvikudögum kl. 18.
Hjallasókn: Messusalur Hjallasóknar
Digranesskóla. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Kristján Einar Þorvarðarson.
Hraungerðiskirkja: Barnaguðsþjónusta
fyrir skólaböm í Þingborgarskóla nk.
mánudag kl. 14. Sr. Kristinn Ágúst Frið-
fnmsson.
Innri-Njarðvikurkirkja: Börn Úr sunnu-
dagaskólanum em boðin í heimsókn til
Grindavikur. Farið af stað með rútu kl.
10.30. Mætið stundvíslega.
Kársnesprestakall: Fjölskylduguðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11. Léttir
söngvar. Litli kór Kársnesskóla syngur
ásamt kirkjukómum og börnum úr
bamastarfi. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Keflavíkurkirkja: Allraheilagramessa -
kirkjudagur aldraðra. Kl. 11.00. Sunnu-
dagaskólinn. Munið skólabílinn. Kl. 14.00
Messa. Litanía Bjama Þorsteinssonar
sungin. Hlíf Káradóttir syngur einsöng.
Ella Magg sýnir í Gallerí List:
Hvað verður um villidýrið?
Elín Magtuísdótfir. eða Ella Magg.
heldur nú sýningu í Gallerí List og
lýkur sýningunni næstkomandi
sunnudag. 3. nóvember.
Ella Magg nam myndlist í tvo vetur
við Myndlista- og handíðaskólann í
Reykjavík. forskólaárið. og einn vet-
ur i nýlistadeildinni. en í millitíðinni
fór hún til Enschede í Hollandi í lista-
akademíuna AKI. Eftir það stundaöi
Ella gjörninga um nokkurt skeið og
vann með götuleikhúsinu Svörtu og
sykurlausu. Árið 1984 fór hún aftur
til Hollands í Gerrit Rietveldt Aka-
demiuna í Amsterdam og lagði þar
stund á leikbiiningagerð og sviðsetn-
ingu. Þaðan útskrifaðist hún vorið
1987 með Diploma sem málari.
Ella Magg hefur verið búsett hér á
landi síðan og stundað myndlist.
Aðal inntak þessarar 6. einkasýning-
ar hennar er spurningin hvað verður
um villidýrið sem í okkur býr, slepp-
um við þvi lausu í Ástarleikjum? Er
konan, Famme Fatal, forboöin ávöxt-
ur eða þaö eftirsóknarverðasta af
öllu? Ella hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum hér heima og erlendis.
Efnisnotkun á sýningunni er blönd-
uö tækni, olía á striga, akríl á striga
og pappír og vatnslitir á pappír.
Háskólabíó:
Grænlenskt rokk
íslenskir tónleikagestir fá tækifæri
til að hlusta á eina fremstu rokk-
hljómsveit Grænlands, Ole Krist-
iansen Band, í Háskólabíói á morg-
un, laugardaginn 2. nóvember,
klukkan 21 og á Akureyri sunnudag-
inn 3. nóvember.
Ole Kristiansen er 26 ára, fæddur
í Aasiaat á Norður-Grænlandi. Tón-
list hefur átt hug hans allan frá barn-
æsku og hann hefur tileinkað sér
nýjustu tækni í hljóðritun og annast
sjálfur eigin upptökur. Fyrsti geisla-
diskur hans kom út árið 1989 og ber
nafniö Isimiit Iikkamut (Frá auga til
veggs). Bæði tónlist og textar Ole
Kristiansen höfða mjög til Græn-
lendinga enda hefur diskurinn selst
í 8000 eintökum á Grænlandi sem
50.000 manns byggja. Tónlistarmynd-
bandið Zoo Inuilla (Dýragarður fyrir
fólk) hefur einnig átt sinn þátt í vin-
sældum Ole. Það hefur verið sýnt um
gjörvöll Bandaríkin í sjónvarpsstöð-
um, í Kanada og á Norðurlöndunum,
Spáni, Þýskalandi og Ástralíu.
Hljómsveitin tók þátt í Hróaskeldu-
hátíöinni í fyrra. Nýlega komst nýr
diskur Ole í efsta sæti á grænlenska
Grænlenski rokkarinn Ole Kristiansen heldur tonleika í Háskólabíói á morg- vinsældalistanum og á tveimur mán-
un, laugardaginn 2. nóvember, og þá fá íslendingar að kynnast græn- uðum seldist geisladiskurinn í 6000
lensku rokki eins og það gerist best. eintökum.
Dósla sýnir á Blönduósi
Magnús Ólafsson, DV, Blönduósi:
Hjördís Bergsdóttir, Dósla, er nú
með málverkasýningu í Héraðsbóka-
safni A-Húnavatnssýslu á Blönduósi.
Á sýningunni eru 14 verk og eru þau
öll til sölu. Þetta er íjórða einkasýn-
ing Dóslu en hún hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum.
Dósla er kennari á Blönduósi og
hefur búið þar á þriöja ár. „Mér
finnst mjög gott að vinna hér að mín-
um verkum og segja má að ég hafi
byrjað fyrir alvöru að mála eftir að
ég kom hingað,“ sagði hún í samtali
við DV. „Það skerpir vitundina að
koma í alveg nýtt umhverfi þar sem
maður þekkir engan. Hér hef ég gott
næði og get verið ein með sjálfri
mér. Það er það sem ég þarf til að
geta málað."
Verk Dóslu eru fígúratíf. í verkun-
um er mikið fjallað um fólk og hún
spáir mikið í mannleg samskipti. Til
dæmis heitir ein myndin Tveggja
manna eintal en þar er hún að velta
fyrir sér hvernig fólk talar saman,
án þess þó að tala saman.
Meðal þess sem verður gert á skátadeginum i Reykjavik á morgun er að grilla og verður vegleg grillveisla haldin
i Hljómskálagarðinum.
Skátar dansa í
miðbænum
Sú hefð hefur skapast undanfarin.
ár að skátar í Reykjavík koma saman
og skemmta sér ærlega eina dag-
stund á haustin. Hefur þessi dagur
verið nefndur skátadagurinn í
Reykjavík.
Að þessu sinni verður dagurinn
haldinn á morgun, laugardaginn 2.
nóvember, og hefst hann með setn-
ingu á Lækjartorgi klukkan 11.30.
Klukkan 12 hefst póstaleikur sem er
fólginn í því að skátaflokkarriir glíma
við fjölbreytt verkefni sem dreift
verður um miðborgina. Skyndihjálp,
tjöldun, trönubyggingar, athyglis-
leikur og dans er meðal þess sem
skátarnir munu fást við í póstaleikn-
um.
Grillveisla í Hljómskálagarðinum
hefst klukkan 15 og þar munu skátar
vafalaust taka hraustlega til matar
síns eftir lýjandi póstleikinn.
Klukkan 16 munu skátar svo fjöl-
menna í Laugardalshöllina til að
taka þátt í hápunkti átaks um vináttu
’91 en þar mun fara fram fjölbreytt
og skemmtileg dagskrá. Sjá nánar
um hana á forsíðu þessa blaðs.
Gerðuberg:
Grafíkmyndir Siguröar Guðmundssonar
Verkið „Mynd“, skúlptúr eftir Sig-
urð Guðmundsson, er nýuppsett á
Torginu í Gerðubergi og einnig er
sýning þar á grafíkmyndum eftir Sig-
urð Guðmundsson. Þá er fjöldi ann-
arra myndverka í eigu Reykjavíkur-
borgar þar til sýningar. í Gerðubergi
stendur einnig yfír sýningin Gagn
og gaman og eru þar verk eftir börn
og eru verkin unnin í listsmiðjunni
Gagn og gaman.
Edda Erlendsdóttir
á EPTA-tónleikum
Edda Erlendsdóttir píanóleikari
heldur aðra píanótónleika vetrarins
á vegum EPTA (Evrópusambands
píanókennara) í Kirkjuhvoki,
Garðabæ, á morgun, laugardaginn
2. nóvember, klukkan 17.
Þessir tónleikar eru útgáfutónleik-
ar í tilefni útgáfu geisladisks með
leik Eddu, sem er að koma út. Á
geisladisknum leikur Edda eingöngu
píanóverk eftir C.P.E. Bach, en þetta
er fyrsti diskurinn með verkum eftir
þennan höfund, leikin á nútima
píanó. Á fyrri hluta tónleikanna leik-
ur Edda tvær sónötur og fantasíu
eftir Bach, en á þeim síðari tuttugu
valska op. 9a og sónötu í a-moll op.
posth. 164 eftir Schubert.
Edda Erlendsdóttir, sem fæddist í
Reykjavík, lauk námi sínu við Tón-
listarskólann í Reykjavík með ein-
leikarapróf fárið 1973, en aðalkenn-
ari hennar þar var Árni Kristjáns-
son. Ári áður hafði hún lokið píanó-
kennaraprófi. Edda hlaut styrk til
náms við Tónlistarháskólann í Paris
og lauk þaðan prófi 1978. Aðalkenn-
ari hennar var Pierre Sancan, en auk
hans hefur Edda notið leiðsagnar
Marie Francoise Bucquet. Edda hef-
ur haldið Ijölmarga tónleika og tekið
þátt í tónlistarhátíðum á íslandi,
Frakklandi og ílestum Evrópulönd-
um. Hún hefur farið tónleikaferðir
til Sovétríkjanna og Bandaríkjanna.
Þá hefur Edda leikið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands, leikið íjölda upp-
taka fyrir hljóðvarp og sjónvarp og
leikiö inn á hljómplötu verk eftir
Schubert, Schönberg og Alan Berg.
Edda hefur verið virkur þátttakandi
í kammertónlist og átti frumkvæði
að kammertónleikum á Kirkjubæjar-
klaustri síðastliðið sumar. Árið 1990
var Edda kosin fulltrúi fyrir Yehudi
Menuhin stofnunina í París þar sem
hún er búsett. Hún kennir við Tónlist-
arháskólann í Lyon.
Edda Erlendsdóttir píanóleikari heldur tónleika í Kirkjuhvoli, Garóabæ, á
morgun, laugardag, klukkan 17.
Katrín H. Ágústsdóttir í Hafnarborg:
íslensk náttúra
Katrín H. Ágústsdóttir opnar á
morgun, laugardaginn 2. nóvember,
klukkan 14 málverkasýningu í Hafn-
arborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar.
Á sýningunni verða 40 olíumálverk
og er myndefnið sótt í íslenska nátt-
úru.
Sýningin verður opin frá klukkan
12-18 alla daga vikunnar nema
þriðjudaga fram til 17. nóvember.
í Kaffistofu Hafnarborgar sýna þær
Bryndís Björgvinsdóttir, ína Sóley
Ragnarsdóttir og Rannveig Jónsdótt-
ir. Sýningin verður opin frá klukkan
11-19 til mánaðamóta, en frá og með
deginum í dag, 1. nóvember, breytist
opnunartími Hafnarborgar og verð-
ur þá opið í kaífistofu frá klukkan
11-18. Sýning stendur til 10. nóvem-
ber.
Safnaðarfélag Ásprestakalls
verður með kaffisölu í safnaðarheimilinu
að lokinni messu sem hefst kl. 14 sunnu-
daginn 3. nóvember. Allir velkomnir.
Átthagafélag Strandamanna
í Reykjavík
heldur dansleik laugardaginn 2. nóvemb-
er í Domus Medica. Hljómsveitin Vanir
menn leikur fyrir dansi. Húsið opnað kl.
22.
Kvikmyndasýningar fyrir börn
í Norræna húsinu
Sunnudaginn 3. nóvember kl. 14 hefjast
aftur kvikmyndasýningar fyrir börn og
unglinga í fundarsal Norræna hússins.
Hér er um að ræða kvikmyndir frá Norð-
urlöndunum og eru þær sýndar ótextað-
ar. Byrjað verður á að sýna tvær myndir
frá Danmörku. Sú fyrri heitir „Guldhjert-
' et“ og er frá 1981 og seinni myndin heitir
„Guld og gronne skove" og er gerð 1990.
Aðgangur aö kvikmyndasýningunum er
ókeypis og öllum heimill.
Breiðfirðingafélagið
Félagsvist verður nk. sunnudag kl. 14.30
í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir vel-
komnir.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur um grænlenska
samtímatónlist
Sunnudaginn 3. nóvember kl. 16 heldur
Karsten Sommer fyrirlestur um græn-
lenska samtímatónlist í fundarsal Nor-
ræna hússins. Hann nefnir fyrirlesturinn
„Om nyere musikudvikling í Gronland".
KarSten Sommer er fæddur í Danmörku
og hefur starfað sem fréttamaður en auk
þess hefur hann fylgst náiö með þróun
grænlenskrar tónlistar sl. 15 ár. Hann
stofnaði ásamt fleiri plötuútgáfufyrir-
tækið ULO árið 1976 og hefur verið
fremstur á því sviði á Grænlandi. Sl. 5
ár hefur hann búiö og starfað í Sisimut.
Sýriingar
Art-Hún
Stangarhyl7
Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk,
grafík og myndir, unnar í kol, pastel og
olíu, 1 sýningarsal sínum að Stangarhyl
7. Opið virka daga kl. 12-18. Aðrir tímar
eftir samkomulagi.
Árbæjarsafn
Opiö eftir samkomulagi. Upplýsingar í
sima 84412.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd
26 verk. Mörg verkanna, sem bæði eru
unnin í oliu og með vatnslitum, eru frá
árunum 1905-1930 og eru þau einkum frá
Suðurlandi. Safnið er opið daglega nema
mánudaga kl. 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Sigtúni
Þar stendur yfir sýning sem ber yfir-
skriftina Bókmenntirnar í list Ásmundar
Sveinssonar. Jafnframt hefur verið tekin
í notkun ný viðbygging við Ásmundar-
safn. Safnið er opið frá kl. 10-16 alla daga.
Fold, listmunasala
Austurstræti 3,
Nú stendur yfir kynning á verkum Kjart-
ans Guðjónssonar. Á kynningunni eru
liðlega tuttugu myndir. Einnig hanga
uppi oliu-, vatnslita-, pastel- og grafík-
myndir eftir þekkta íslenska listamenn.
Fold er opið á laugardag kl. 10-18 og
sunnudag kl. 14-18.
Látinna minnst. Kór kirkjunnar syngur.
Organisti Einar Örn Einarsson. Kirkju-
kaffi aldraðra eftir messu. Sr. Lárus Hall-
dórsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Kl. 11. Óskastund barnanna.
Söngur, sögur, fræðsla. Sr. Flóki Krist-
insson og Jón Stefánsson organisti sjá
um stundina. Guðsþjónusta kl. 14. Organ-
isti Jón Stefánsson. Prestur sr. Flóki
Kristinsson. Kór Langholtskirkju flytur
kantötu nr. 131 eftir J.S. Bach, „Úr djúp-
inu hrópa ég, Guð, til þín“. Einsöngvarar
eru: Harpa Harðardóttir, Þóra Einars-
dóttir, Björk Jónsdóttir, Þorgeir Andrés-
son og Ragnar Davíðsson. Kammersveit
Langholtskirkju leikur, konsertmeistari
Júlíana Elín Kjartansdóttir. Molasopi að
guðsþjónustu lokinni. Kl. 17 verða tón-
leikar þar sem kantatan verður endur-
tekin, ásamt kanötu nr. 21 „Ich hatte viel
Bekúnunemis". Þessi tónlistarflutningur
er á vegum minningarsjóðs Guðlaugar
Bjargar Pálsdóttir.
Laugarneskirkja: Messa kl. 11. Bama-
starf á sama tíma. Sr. Sigrún Óskarsdótt-
ir messar. Drengjakór Laugarneskirkju
syngur. Konur úr mæðramorgnum bjóða
upp á heitar vöffiur og kaffi eftir guðs-
þjónustuna. Messa kl. 14. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson. Fullskipaður kór Laugar-
neskirkju syngur Sanctus, In Paradisum
eftir Gabriel Fauré. Eftir messu verða
kaffiveitingar í safnaðarheimilinu og
stutt dagskrá. Ath.: Rúta fer frá Hátúni
10 kl. 13.30 og frá Dalbraut 18-20 kl. 13.45.
Hægt er að hringja í kirkjuna milli kl.
11 og 12, ef fólk þarf akstur til og frá
kirkju, í síma 679422. Fimmtudagur:
Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í
safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.
Neskirkja:Barnasamkoma kl. 11. Sr.
Frank M. Halldórsson. Messa kl. 14. Org-
el- og kórstjóm Reynir Jónasson. Sr.
Frank M. Halldórsson. Munið kirkjubíl-
inn. Miðvikudagur: Bænamessa kl. 18.20.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Molasopi eftir guðsþjón-
ustuna. Guðsþjórtusta í Seljahlíð laugar-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Barnakórinn syngur und-
ir stjóm Sesselju Guðmuridsdóttur. Org-
anisti Þóra Guðmundsdóttir. Prestur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir. Miðviku-
dagur: Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, alt-
arisganga, fyrirbænir. Léttur hádegis-
verður í safnaðarheimilinu. Samkoma
kl. 20.30. Sönghópurinn „Án skilyrða"
undir stjóm Þorvalds Halldórssonar.
Bobby Arrington syngur. Sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir predikar.
Villingaholtskirkja: Guðsþjónusta kl. 14.
Fermingarböm aðstoða við guðsþjón-
ustuna. Barnaguðsþjónusta eftir al-
mennu guðsþjónustuna. Barnaguðsþjón-
usta fyrir skólaböm í Villingaholtsskóla
nk. þriðjudag kl. 11. Bamaguðsþjónusta
leikskólabarna í Villingaholtsskóla nk.
þriðjudag kl. 15.30. Sr. Kristinn Ágúst
Friðfinnsson.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Börnum úr
sunnudagaskólanum era boðið i heim-
sókn til Grindavíkur. Farið af stað með
rútu kl. 10.20. Mætið stundvíslega.
Tilkyimiiigar
Jólabasar Sólvangs
verður haldinn laugardaginn 2. nóvemb-
er kl. 14 í anddyri Sólvangs í Hafnar-
firði. Fallegar jólagjafir og margt fleira.
Allt handunnar vörar.
Basar á Hrafnistu í Reykja-
vík og Hafnarfirói
Á Hrafnistu í Reykjavlk og Hafnarfirði
er nú unnið af fullum krafti við undir-
búning á sölu handavinnu. Hér er um að
ræða árlega fjáröflun vistfólks. Hver vist-
maður fær andvirði þeirra muna sem
hann hefur unnið og seldir verða fyrir
efniskostnaði. Þarna er um að ræða hvers
konar handavinnu, trévörar, handmál-
aðar silkislæður og fleira. Basarinn verð-
ur opinn frá kl. 13.30-17 laugardaginn 2.
nóvember og kl. 10-15 mánudaginn 4.
nóvember á Hrafnistu Reykjavík og
Hafnarfirði.
Borgfirðingafélagið í
Reykjavík
verður með kaffisölu og skyndihapp-
drætti í Sóknarsalnupi, Skipholti 50a,
sunnudaginn 3. nóvember. Húsið opnaö
kl. 14.30.
Alþjóðlegi dansdagurinn
Sunnudaginn 3. nóvember verður „al-
þjóölegi dansdagurinn" og ætlar starfs-
fólk og nemendur Dagný Bjarkar dans-
kennara að halda daginn hátiðlegan og
era allir velkomnir. Hátíðin fer fram að
Smiðjuvegi 1 í Kópavogi. Dagskrá dagsins
verður sem hér segir: Kl. 14 danstími
ætlaður 4-6 ára bömum, kl. 15 danstími
ætlaður öllu ungu fólki sem æfir sam-
kvæmisdansa, kl. 16 danstími í djassi,
funki og hip-hop, kl. 17 danstími fullorð-
inna, samkvæmis- og gömlu dansarnir.
Eins og áður sagði era allir velkomnir
hvort sem era nemendur skólans eða
gestir.
Foreldrar og börn í
dagsins önn
Bemskan - íslandsdeild OMEP, Alþjóða-
samtaka um uppeldi ungra barna, gengst
fyrir málþingi í Háskólabíói (sal 4) laug-
ardaginn 2. nóvember kl. 13. Heiti mál-
þingsins er: Foreldrar og börn í dagsins
önn. - .álþingið á sérstakt erindi til for-
eldra og allra sem áhuga hafa á uppeldi
barna. Fjallað verður um böm og bama-
uppeldi frá ýmsum sjónarhomum. Mál-
þingið er öllum opið. Þinggjald kr. 600.
Félagið hefur gefið út í bókaformi fyrir-
lestra frá síðasta málþingi og verður bók:
in tíl sölu á málþinginu.
Kolaportið stækkar
um helgina
Kolaportið stækkar nú um helgina og
verða þá sölubásamir samtals 300 tals-
ins, eða 150 hvorn dag, laugardag og
sunnudag. Ástæðan fyrir þessari skipu-
lagsbreytingu er tvíþætt, að mæta auk-
inni eftirspum eftir söluplássi og að auka
vöruúrvaUð og er gert ráð fyrir aö þetta
skipulag verði reynt til jóla. Frægt var á
sínum tíma þegar 30 myndlistarmenn
tóku sig til og myndskreyttu veggi Kola-
portsins en nú hafa tveir myndlistar-
menn bæst í hópinn því nú í vikunni
hafa þau Freydis Kristjánsdóttir og Hall-
dór Baldursson verið að vinna 40 fm
veggmynd í nýrri kaffistofu Kolaportsins
og á það verk öragglega eftir að ylja gest-
um Kolaportsins um helgina. Kolaportið
er opið kl. 10-16 á laugardögum og kl.
11-17 á sunnudögum.
Rósasýning í Blómavali
Laugardaginn 2. nóvember opnar
Blómaval íslenska rósasýningu sem mun
standa um helgina. Rósabændur munu
sýna blómann úr framleiðslu sinni, vera
til viðtals og veita upplýsingar um blóm
blómanna. Flestar koma rósimar frá
Hveragerði, Mosfellsbæ og uppsveitum
Ámessýslu. Þessir staðir hafa um árabil
veriö í fararbroddi íslenskrar rósaræktar
og verða fulltrúar þeirra að sjálfsögðu á
staðnum. Gestir múnu kjósa fegursta
rósaafbrigðið og hlýtur það sæmdarheit-
ið „Rós ársins 1991“. Sýningin verður í
Blómavali, Sigtúni 40, og verður opin frá
kl. 9-22 á laugardag og sunnudag.
Djass á Fógetanum
Sunnudaginn 3. nóvember ætlar djass-
hljómsveitin „Istanbul djass“ að leika
tónlist frá Ijórða, fimmta og sjötta ára-
tugnum á veitingahúsinu Fógetanum.
Liðsmenn hljómsveitarinnar era: Krist-
ján Guðmundsson, píanó, Páll Pálsson,
bassi, og Steingrímur Guðmundsson,
trommur. Tónlistarflutningurinn hefst
k. 22 og aðgangur er ókeypis.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð,
Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
Basarinn verður að Hallveigarstöðum
við Túngötu nk. sunnudag, 3. nóvember,
kl. 14. Mikið úrval af fallegum og nytsöm-
um munum að ógleymdum lukkupokum.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur basar í Tónabæ sunnudaginn 3.
nóvember kl. 13.30. Á boðstólum verða
kökur, handavinna, ullarvörur og fleira.
Heitt kaffi og rjómavöfflur. Tekið verður
á móti munum og kökum milli kl. 10 og
12 á sunnudagsmorgun í Tónabæ.
Kvenfélagið Hringurinn
heldur sinn árlega handavinnu- og köku-
basar á morgun, sunnudaginn 3. nóvemb-
er, kl. 14 í Fóstbræðraheimilinu við Lang-
holtsveg. Margir fallegir munir til jóla-
gjafa og góðar kökur. Ennfremur verða
til sölu ný, mjög falleg jólakort félagsins.
Allur ágóði rennur til barnaspítala
Hringsins.
Félag eldri borgara,
Kópavogi
Spilaö verður og dansað í kvöld, 1. nóv-
ember, að Auðbrekku 25 kl. 20.30. Húsið
öllum opið. Lok 3ja kvölda keppninnar.
Ný umferðarljós
Laugardaginn 2. nóvember kl. 14 verður
kveikt á nýjum umferðarljósum á mótum
Laugavegar og Höfðatúns. Hin nýju um-
ferðarljós verða samstillt við umferðar-
ljós á mótum Hverfisgötu og Rauðarár-
stígs. Til að minna vegfarendur á hin
væntanlegu umferðarljós verða þau látin
blikka gulu ljósi í nokkra daga áður en
þau verða tekin í notkun.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Fannborg 4 kl. 10. Nú hefur göngu-
klúbburinn kvatt sumarið og gengur inn
í veturinn. Nýlagað molakaffi og almælt
tíðindi í Fannborg 4.
Kvikmyndsýning MÍR
„Sonurinn", sovésk kvikmynd frá árinu
1955, verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg
10, nk. sunnudag 3. nóv. kl. 16. í mynd-
inni segir frá ungum manni og fjölskyldu
hans á fyrstu erfiðleikaárum eftir styxj-
öldina. Leikstjóri er Júrí Ozerov sem er
í hópi kunnustu kvikmyndagerðar-
manna Sovétríkjanna. Hann hóf nám í
kvikmyndagerö að stríðinu loknu og
„Sonurinn" var fjórða kvikmyndin sem
hann leikstýrði. Kunnastur er Ozerov
fyrir myndir sem fjalla um síðustu
heimsstyijöld, einkum myndaflokkinn
„Frelsunina" sem spannar atburði allt
frá orrastunni miklu viö Kúrsk til lokaá-
takanna um Berlinarborg vorið 1945.
Aðgangur að kvikmyndasýningum MÍR
er ókeypis og öllum heimill.
NÚ EINNIG I
SUÐURVERI
OPNUM 4. NÓVEMBER
ALLA DAGA VIKUNNAR FRÁ MORGNITIL KVÖLDS
NORÐURBRÚN2
og SUÐURVERI