Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 1991.
29
iuna í leiknum gegn Keflvíkingum í risa-
íga. DV-mynd GS
gegn ÍBK, 83-76
í síöari hálfleik en sást lítið í þeim fyrri.
ísak Tómasson komst einnig vel frá sínu.
Njarðvíkingar virðast hafa visst tak á
Keflvíkingum og það voru flestir sem
bjuggust við sigri Keflvíkinga svona fyr-
irfram. Nokkrir lykilmenn Keflvíkinga
náðu sér alls ekki á strik í leiknum. Jon-
athan Bow var góður í síðari hálfleik en
lenti fljótlega í villuvandræðum og Jón
Kr. átti ágætan leik í fyrri hálfleik.
„Þessi leikur var örugglega spennandi
fyrir áhorfendur en ég er mjög ánægður
með mína menn þrátt fyrir lítiö skor.
Það er alltaf gaman að vinna Keflvíkinga
og ekki síst fyrir það að verða fyrstir í
vetur til að leggja þá að velli. Samt held
ég að þeir hafi á aö skipa besta hðinu í
deildinni í dag,“ sagði Friðrik Ingi Rún-
arsson, þjáifari Njarðvíkinga, eftir leik-
inn.
Iþróttir
Vika i stað 30 daga
togibjörg í&mksdóttir, DV, Homafirði;
Eggert Magnússon var í
gær endurkjörinn for-
maður Knattspyrnu-
san\bands íslands á
þingi þess sem haldið var á Höfn í
Homaflrði um helgina. Stjóm sam-
bandsins var öll endurkjörin en
Guðmundur Bjamason úr Nes-
kaupstað vék úr stjórn að eigin ósk
og tók Albert Eymundsson sæti
hans.
Þrír nýir hlutu kosningu i vara-
stjórn, þeir Ásgeir Ármannsson,
Guömundur Haraldsson og Eggert
Steingrimsson. Um 100 þingfulltrú-
ar sátu þingið á Höfn þar af niu
konur og hafa þær aldrei veriö
fleiri og einmitt nú.
Þingið þótti rólegt og friösamt.
Reynir G. Karlsson, íþróttafulltrúi
ríkisins, var heiðursgestur þings-
ins en þingforsetar vora Albert
Eymundsson frá Höfn og Baldur
Maríusson úr Reykjavík.
FjárhagsSleg staða KSÍ er mjög
góð um þessar mundir en á síðasta
ári var tæplega 17 milljón króna
hagnaöur af rekstri sambandsins.
Auglýsingasamningar KSÍ og
samningar við innlendar og erlend-
ar sjónvarpsstöðvar voru talsvert
til umræðu. Þar kom fram í máli
manna að samningar við innlendar
sjónvarpsstöðvar gæfu ekki mikla
peninga. Á þinginu var samþykkt
reglugerð ura auglýsingasamn-
inga.
Gerbreyting varóandi
féiagaskíptl leikmanna
Tillaga kom frá Fram að félaga-
skipti leikmanna, sem hingað til
hafa tekið einn mánuö, tækju fram-
vegis eina viku. Var þessi tillaga
samþykkt einróma með sraávægi-
legum breytingura.
Leikmannasamningar urðu til-
efni til mikillar umræðna. Páll
Bragason frá Stjörnunni átaldi
Fram fyrir að hafa hafið viðræður
við tvo leikmenn Stjörnunnar án
þess aö ræða fyrst við stjórn Stjörn-
unnar eins og kveðið er á um í þess-
um samningum. Páll taldi þetta
vera siðleysi. Halldór B. Jónsson,
formaður knattspyrnudeildar
Fram, kom í ræðustól og játaöi á
sig ásakanir frá Páli og lofaði að
önnur vinnubrögð yrðu viöhöfð í
framtiöinni.
Mikiðrættum
kvennaknattspyrnu
Tillögur um breytingu á kvenna-
knattspyrnu fengu talsveröan tíma
og höfðu ýmsir þingftdltrúar á orði
að þetta væri hálfgert kvennaþing.
Á þinginu var saraþykkt að leyfa
konum að leika á skóm með gras-
tökkum. Ennfremur að koraa á fót
meistarakeppni kvenna og yrði
fyrsta keppnin haldin á alþjóðlega
kvennadeginum 19. júní næsta
sumar og síðan ár hvert á þessum
degi.
Margrét Bragadóttir var fyrsta
konan sern kjörin var til að starfa
í starfsnefhd þingsins.
Full búð af
hagnýtumhlutum
til jólagjafa
Byggingavöruverslunin
DRÖFN
Strandgötu 75 - Sími 50393 - Hafnarfirði
Opið mánudaga tii föstudaga ki. 7.30-18.00 og laugardaga 10-16
VIÐ BJÓÐUM ÞÉR GÓÐAN DAGINN OG ÞJÓNUM ÞER FRÁ KL. 7.30 Á MORGNANA
af Hygæa innanhúss-
málningu í desember
£3 Hýtt tölvustýrt lita-
blöndunarkerfi
Yfir 10.000 litatónar
§■■Qljástig frá 5-90 - fyrir járn, tré og stein