Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1991, Síða 1
3C
iiiiÍMM
Nýlistasafnið:
Rúrí og Hannu Siren sýna
- listaverk sem ekki hafa verið sýnd áður
Finnski listamaðurinn Hannu Siren og íslenska listakonan Rúrí opna sýningar á verkum sínum í Nýlistasafninu á
morgun, laugardaginn 7. desember. Á sýningunum eru verk sem ekki hafa verið sýnd áður.
DV-myndir Brynjar Gauti
Listamennirnir Rúrí og Hannu Sir-
en opna á morgun, laugardaginn 7.
desember klukkan 16, sýningar á
verkum sínum í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b.
Hannu og Rúrí sýndu fyrst saman
á Experimental Environment-sýn-
ingunni á Korpúlfsstöðum 1980 en
hafa síðan þá bæði skipulagt og tekið
þátt í mörgum umhverfis- og útilista-
sýningum erlendis, til dæmis Flyv-
ende Beton í Kaupmannahöfn 1984,
Big Scale 85 í Malmö 1985 og Con-
crete í Helsinki 1986.
Hannu Siren er fæddur í Finnlandi
1953. Hann stundaði hstnám við Aca-
demia di Belle Arte í Flórens og tók
þátt í sinni fyrstu samsýningu 1969.
Hannu á verk á ýmsum söfnum, til
dæmis Atenum í Helsinki, Listasafni
Sara Hilden í Tampere, Ríkislista-
safni Finnlands og borgarlistasöfn-
um Helsinki, Kuopio, Lahti ogTamp-
ere, sem og einkasöfnum.
Hannu Siren hefur hlotið fjölda
viðurkenninga og margsinnis unnið
til verðlauna fyrir verk sín í Finn-
landi. Einnig var gert Evrópufrí-
merki af verki hans, Stopa, árið 1987.
Hannu er yfirkennari í skúlptúr
við listaakademíuna í Helsinki en
hann hefur undanfamar vikur dval-
ið hér á landi sem gestakennari við
Myndlista- og handíðaskóla íslands.
Verkin, sem hann sýnir nú í Nýlista-
safninu, eru unnin sérstaklega fyrir
þessa sýningu og hefur listamaður-
inn notið aðstoöar fyrirtækjanna BM
Vallá og Glerborgar við útfærslu
þeirra.
Hannu sýnir í boði Nýlistasafnsins
og mun sendiherra Finnlands, Ha-
kon Branders, opna sýninguna.
Rúri hefur tekið þátt í um 70 sam-
sýningum víða um heim síðan 1974,
en þetta er fimmtánda einkasýning
hennar.
Verk eftir Rúrí eru á ýmsum söfn-
um, til dæmis Listasafni íslands,
Nýiistasafninu, Sonja Henies-Niels
Onstads Kunstsenter í Noregi og
Museum of Modem Art í New York,
ennfremur í einkasöfnum í Evrópu.
Rúrí hafa verið veittar viðurkenn-
ingar fyrir verk sín í Bandaríkjun-
um, Þýskalandi og Svíþjóð. Verk
hennar á sýningunni, sem ber yflr-
skriftina Mjöt, era unnin að mestu
leyti á hðandi ári og hafa ekki verið
sýnd áður.
Sýningin í Nýhstasafninu stendur
th 22. desember og er opin alla daga
frá klukkan 14-18.
Púlsinn:
Bandaríski básúnuleikarinn
Frank Lacy spilar
Það verður mikið um að vera á
Púlsinum í kvöld og annað kvöðld
en bæði kvöldin byrja með tónleikum
hins frábæra bandaríska básúnu-
leikara, Franks Lacy, og hljómsveit-
ar Tómasar R. Einarssonar og heíjast
tónleikamir stundvíslega klukkan
21.30 og standa til 24, en þá taka Vin-
ir Dóra og gestir við og leika th 3.
Frank Lacy er íslenskum djass-
unnendum að góðu kunnur en hann
kom th íslands í mars síðasthðnum
og hljóðritaði geisladiskinn íslands-
fór með hijómsveit Tómasar R. Ein-
arssonar. Þótt Frank Lacy hafi auk
þess að spha á básúnu bæði sungið
og leikið á flygilhom á Íslandsíor, er
básúnan hans höfuöhljóðfæri og í
gagnrýnendakosningu DownBeat í
ágúst síðastliðnum var hann kosinn
annar efnhegasti básúnuleikari
djassheimsins.
Hljómsveit Tómasar skipa auk
hans þeir Sigurður Flosason saxó-
fónleikari, Kjartan Valdemarsson
píanóleikari og Einar V. Scheving'
trommuleikari, en Tómas leikur á
kontrabassa.
Upp úr miðnætti taka svo Vinir
Dóra og gestir við og upphefst þá
mögnuö blússtemmning sem ríkt
hefur undanfarnar helgar á Púlsin-
um, krydduð með velvöldum
Stones-lögum. Von er á góðum gest-
um á sviðið, en það er ætlun Dóra
aö reyna að fá Frank Lacy th að
syngja og leika að minnsta kosti einn
blús með Vin'um Dóra.
Vini Dóra þessa helgi skipa, auk
Dóra, Andrea Gylfadóttir, Ásgeir
Óskarsson, Guðmundur Pétursson
og Tómas Tómasson.
Fuhtrúi fjölmiðlablúsara þessa
helgi verður Svanhhdur Þorsteins-
dóttir frá útvarpsstöðinni FM en fuh-
trúi Stjörnunnar skoraði á FM sem
síðan ætlar að skora á Aðalstöðina.
Á sunnudagskvöldið heldur svo
Geiri Sæm og Tunghð útgáfutónleika
á Púlsinum. Geiri er nýbúinn að
senda frá sér plötuna Jörö. Hljóm-
sveitina Tunglið skipa Bjami Bragi
Kjartansson bassaleikari, Sigm-ður
Gröndal gítarleikari, Sigfús Óttars-
son trommuleikari, Einar Rúnarsson
á hljómborð og Halli Gulh á slagverk.
Básúnuleikarinn Frank Lacy.
Hljómsveitin ÞÓRGÍSL verður með tónleika í Norræna húsinu á sunnudag
og þá verður einnig Ijóðalestur.
Listasafn íslands:
Á rauðum
hjólbörum
í Ljstasafhi íslands verður á
sunnudaginn klukkan 15.30 flutt
dagskrá meö ljóöaþýöingum Árna
Ibsen og Sverris Hólmarssonar á
verkum Ezra Pound, Wihiam Car-
los Wilhams og T.S. ElhoL
Dagskráin ber heitið Á rauðum
hjólbörum um Eyðhandið og er
samvinnuverkefni nokkurra að-
ila. Lesarar á dagskránni verða
Viðar Eggertsson, Ámi Ibsen og
Amór Benónýsson. Reynir Jón-
asson leikur tónlist.
Sem iyrr segir hefst dagskráin
klukkan 15.30 en miðasala verður
á sama stað og verður opnuð
klukkan 13.30.
Norræna húsið:
Tónleikarog
ljóðalestur
Það verða haldnir tónleikar í Nor-
ræna húsinu á sunnudaginn klukk-
an 21 og einnig verður ljóðalestur.
Hljómsveitin ÞÓRGÍSL flytur lög
af nýrri hljómplötu Gísla Helgason-
ar, Heimur handa þér, sem er nýlega
komin út. Þórir Baldursson útsetti
öh lögin en flest era þau eftir Gísla.
í hljómsveitinni era'Gísh Helgason
sem leikur á blokkflautur, Þórir
Baldursson á hljómborð, Herdís
Hahvarðsdóttir á bassa, Pétur Grét-
arsson á trommur og Tryggvi
Hubner á gítar.
Þá munu þau Friðrik Guðni Þór-
leifsson og Steinunn Jóhannesdóttir
leikkona lesa upp úr nýrri ljóðabók
Friðriks Guðna en hún heitir Kór
stundaglasanna. Það er fimmta ljóða-
bók höfundar en hann er einna
þekktastur fyrir afskipti sín af tón-
hst.
Kráarýni:
Krámeð
stóruK
- sjábls. 18
Styrktar-
tónleikar
fyrirFinn
Eydal
norðan og
sunnan
heiða
-■ sjábls. 19
Aðventu-
tónleikar í
Hallgríms-
kirkju
- sjábls. 20
Messur:
Annar
sunnu-
dagurí
aðventu
- sjábls. 21
Leik-
brúðuland
frumsýnir
nýtt leikrit
- sjábls. 21
Gönguferð
a Keili
- sjábls.23
Umfjollun
umkvik-
1 • r
mynair 1
1 r r i r
biohusmn
- sjábls.23