Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1991, Side 5
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991.
13
21
Messur
Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Organleikari Violeta Smid.
Barnastarf á sama tíma. Kirkjubíll-
inn fer um Árbæinn fyrir og eftir
guðsþjónustuna. Aðventusam-
koma kl. 20.30 í Árbæjarkirkju.
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra
flytur ræðu. Kirkjukórinn og Rarik-
kórinn syngja. Tvöfaldur kvartett
syngur. Fríður Sigurðardóttir syng-
ur einsöng. Fermingarbörn lesa
aðventuspádóma. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
Breiðholtskirkja: Fleimsókn
barnastarfsins í Seljakirkju. Brottför
frá Breiðholtskirkju kl. 10.55.
Barnakórinn syngur. Messa kl. 14.
Altarisganga. Organisti Þorvaldur
Björnsson. Bænaguðsþjónusta
þriðjudag kl. 18.30. Séra Gísli Jón-
asson.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl.
11. Vináttumessa kl. 14. Barna- og
bjöllukór. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
Digranesprestakall: Barnasam-
koma I safnaðarheimilinu við Bjarn-
hólastig kl. 11. Guðsþjónusta I
Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorberg-
ur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Dóm-
kórinn syngur. Organisti Marteinn
Fl. Friðriksson. Sr. Hjalti Guð-
mundsson. Barnastarf á sama tíma
I safnaðarheimilinu. Messa kl. 17.
Sigurður Arnarson stud. theol.
predikar. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjón-
usta kl. 14. Prestur sr. Magnús
Guðjónsson. Organisti Kjartan Ól-
afsson. Félag fyrrverandi sóknar-
presta.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjart-
arson. Organisti Guðný M. Magn-
úsdóttir. Barnastarf á sama tíma.
Prestarnir.
Fríkirkjan i Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Aðventukvöld kl.
20.30. Stefán Júlíusson rithöfund-
ur flytur hugleiðingu. Kór Öldut-
únsskóla syngur. Kirkjukórinn flytur
sérhæft efni og leiðir almennan
safnaðarsöng. Einar Eyjólfsson.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykja-
vik: Guðsþjónusta kl. 14.00. Mið-
vikudaginn 11. des. kl. 7.30 morg-
unandakt. Orgelleikari Pavel Smid.
Cecil Haraldsson.
Grafarvogssókn: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 I Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn. Umsjón: Valgerður, Katrín
og Hans Þormar. Skólabíllinn legg-
ur af stað frá Hamrahverfi kl. 10.30
og fer venjulega skólaleið. Vigfús
Þór Árnason.
Grensáskirkja: Barnasamkoma
kl. 11.6 ára börn og eldri og foreldr-
ar þeirra uppi. Yngri börnin niðri.
Messa kl. 14. Prestur sr. Gylfi Jóns-
son: Organisti Árni Arinbjarnarson.
Fyrirbænir eftir messu og molasopi.
Hallgrímskirkja: Fræðslusam-
vera kl. 10.00. Sr. Bragi Skúlason.
Messa og barnasamkoma kl. 11.
Sr. Karl Sigurbjörnsson. Aðventu-
tónleikar Mótettukórs Hallgrlms-
kirkju kl. 17.
Háteigskirkja: Morgunmessa kl.
10. Sr. Arngrímur Jónsson: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn
fer frá Suðurhlíðum um Hlíðarnar
fyrir barnaguðsþjónustuna. . Há-
messa kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson.
Aðventutónleikar I kirkjunni kl.
21.00.
Hjallasókn: Messusalur Hjalla-
sóknar, Digranesskóla. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Kaffisopi að lokinni guðsþjón-
ustu. Kristján Einar Þorvarðarson.
Kapella St. Jósefsspitala,
Hafnarfirði: Messa á sunnudög-
um kl. 10.30. Rúmhelga daga er
messa kl. 18.
Kapélla St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa á sunnu-
dögum kl. 10.
Karmelklaustur: Messa á sunnu-
dögum kl. 8.30. Rúmhelga daga
er messa kl. 8.00.
Kársnesprestakall: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum sunnu-
dag kl. 11. Aðventusamkoma Kárs-
nessóknar í Kópavogskirkju kl. 17.
Kirkjukórinn og Skólakór Kársness
syngja. Ræðumaður sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson. Hjörtur Páls-
son skáld les Ijóð. Kaffisala verður
í safnaðarheimilinu Borgum að lok-
inni aðventusamkomunni. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
Kaþólska kapellan, Keflavik:
Messa kl. 16 á sunnudögum.
Séra Guðmundur Þorsteinsson í Árbæjarkirkju:
Annar sunnu-
dagur í aðventu
Margir blæbrigðaríkir tónar ein-
kenna Biblíutexta aðventunnar. AU-
ir fjalla þeir á einhvern hátt um
komu Jesú og guðsríkisins með hon-
um. Sjá konungur þinn kemur til
þín! Þessi staðhæfing heilagrar ritn-
ingar gengur eins og rauður þráður
gegnum þá alla og örlögum veldur
og úrshtum ræður um hag og heill
hversu við honum er tekið.
Aðventan er tími eftirvæntingar,
undirbúnings og iðrunar fyrir komu
Krists sem minnst er á jólum en einn-
ig fyrir komu hans við endalok tím-
anna. Við komu hans eru bundnar
vonir um heim réttlætis, friðar og
kærleika í hugum trúaðra.
Guðs orð talar til allra manna á
öllum tímum. Ljós þess fellur yfir
nakinn raunveruleik lífsins, það
veitir svör við sammannlegum
vanda, jafnt á tímum velgengni sem
vandræða.
íhugunarefni á aðventu er það
hverju Guðs orð getur fengið áorkað
í okkar samtíð og lífsaðstæðum. Jesú
Kristur kemur með vonina og trúna
inn í líf okkar og mótar viðhorf okk-
ar til verkefna og samferðamanna.
Á aðventu veitist sýn til tveggja
heima, hins ófullkomna, forgengni-
lega reynsluheims nútíðar og til ann-
ars heims framtíðar þegar óþörf
verður bænin: „verði þinn vilji svo á
jörðu sem á himni“ því vilji Guðs er
þá orðinn allt í öllu í heimunum
tveim. Á jólum féllust himinn og jörð
í faðma og við upplifum samruna
heimanna tveggja ár hvert í nokkrar
Séra Guðmundur Þorsteinsson
klukkustundir.
Guðspjallstextar annars sunnu-
dags í aðventu benda skýrt á ábyrgð
okkar og hvetja eindregið til viðbún-
aðar og undirbúnings af okkar hálfu
fyrir komu Krists. Dæmisagan um
meyjamar tíu er alvarleg áminning
um háska andvara- og fyrirhyggju-
leysis um andlegan hag. Við erum
leidd inn á svið annars heims þar
sem allt er því háð varðandi aðgang
að gleðisal guðsríkisins að menn
haldi vöku sinni, hagi lífi sínu dag
hvern sem hann væri hinn síðasti
þar sem hvorki er vitað um daginn
eða stundina þegar Kristur kemur
sem brúðguminn í dæmisögunni.
Hinir andvaralausu koma að lokuð-
um dyrum og eigi tjóar að leita lið-
sinnis annarra manna því hver og
einn skal ábyrgð bera á eigin lífi.
Enn skýrar kemur þetta fram í
guðspjalli fyrstu textaraðar sem er
ræðuefni sunnudagsins. Þar eru
heimsslit boðuð með tilheyrandi
hremmingum og hamförum áður en
ný guðsríkisveröld haslar sér völl.
Heimsslit eru nú ekki lengur neitt
óraunsætt óráðshjal á jörð þar sem
siglt er hraðbyri að eyðingu lífsskil-
yrða. Margir líta á mengun náttúr-
unnar, ofnýtingu auðlinda, dýra- og
jurtalífs af taumlausu gáleysi og
græðgi, eyðingu ósonlags og tiltækar
birgðir gjöreyðingarvopna sem
raunverulega og nálæga ógnun við
allt líf á þessum hnetti og horfa til
spádóma Biblíunnar um ógnir mikl-
ar á undan heimsslitum.
Áhersla er því lögð á að menn séu
undir þessi miklu þáttaskil búnir. Sá
sem þolgóður vakir og biður í trú og
kærleika þarf ekkert að óttast. Dag-
urinn ógurlegi verður eins og sumar-
dagurinn fyrsti hinum trúaða, gleði-
dagur í nýrri veröld Guðs.
Guðspjallið segir okkur að lyfta
höfðum því að lausn okkar sé í nánd
og sumar í vændum, að þeim degi
skuli hinn trúaði mæta sem fagnað-
ardegi. Hann þurfi ekkert að skelfast
hafi hann sýnt ábyrgð og haldið vöku
sinni.
Um þetta mun ég fjalla í prédikun
annars sunnudags í aðventu.
Bannað að hlæja
í Leikbrúðulandi
A sunnudaginn verður nýtt leikrit
frumsýnt í Leikbrúðulandi, Frí-
kirkjuvegi 11, þar sem Leikbrúðu-
land hefur haft fast aðsetur í 20 ár.
Hér er á ferðinni nútíma ævintýri
eða dæmisaga um hættulegustu ferð
sem farin hefur verið, ferðina sem
farin var til að leita að sólinni þegar
hún týndist. Leikritið heitir Bannað
að hlæja og er eftir Hallveigu Thorla-
cius. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son, tónlist er eftir Eyþór Arnalds
og leikendur eru Bára L. Magnús-
dóttir, Bryndís Gunnarsdóttir, Erna
Guðmarsdóttir, Hallveig Thorlacius
og Helga Arnalds. Tæknimaður er
Sigurður Guðmundsson. Bára L.
Magnúsdóttir, Anna S. Einarsdóttir,
Margrét Ólafsdóttir og Þórhallur Sig-
urðsson ljá brúðunum raddir.
Persónur í þessari háskalegu ferð
eru sóttar í ýmsar áttir: Askur,
Embla, Loki og völvurnar þrjár
koma úr Snorra Eddu og Völuspá en
svo eignast Búi, sonur Emblu og
Asks, perluvin úr allt annarri sögu,
sögunni um Fallega flughvalinn eftir
Ólaf Gunnarsson. Þessar sundur-
leitu persónur eiga þó allar brýnt
erindi inn í þessa sögu sem fjallar
ekki síst um Fenna greyið sem mátti
alls ekki hlæja.
Bannað að hlæja er fjölskyldusýn-
ing. Það verða aöeins þijár sýningar
fyrir jól, frumsýningin á sunnudag-
inn og sýningar 14. og 15. desember.
Hefjast sýningar kl. 15. Sýningar
munu svo hefjast að nýju í janúar.
Messur
Kristskirkja, Landakoti: Laugar-
dagur: Messa kl. 14. Ensk messa
kl. 20. Sunnudagar: Messa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Rúmhelga daga
er messa kl. 18.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
Langholtskirkja: Kirkia Guð-
brands biskups. Kl. 11. Óskastund
barnanna. Guðsþjónusta kl. 14. Kór
Langholtskirkju syngur. Prestur sr.
Ólöf Ólafsdóttir. Molasopi að
guðsþjónustu lokinni.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Barnastarf á sama tíma. Kór
Fjölbrautaskólans við Ármúla syng-
ur. Fermingarbörn aðstoða. Sr.
Helgi Hróbjartsson prédikar.
Kl. 20. Aðventusöngur Drengjakórs
Laugarneskirkju. Aðventusöngur-
inn tekur mið af breskri hefð.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Sr. Frank M.
Halldórsson. Messa kl. 14. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
Óháði söfnuðurinn: Aðventuhá-
tíð kl. 20.30. Dagskrá: Forspil. Jón-
as Þ. Dagbjartsson leikur á fiðlu
og Jónas Þórir leikur á orgel.
Kirkjukórinn syngur. Veitingar í
Kirkjubæ. Þórsteinn Ragnarsson
safnaðarprestur.
Ólafsvallakirkja: Aðventukvöld
kl. 21.
Safnkirkjan Árbæjarsafni:
Guðsþjónusta kl. 13.30. Prestur sr.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson.
Seljakirkja: Kirkjudagur Sel-
jakirkju. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Barnstarf Breiðholtskirkju kemur í
heimsókn. Guðsþjónusta kl. 14.
Molasopi eftir guðsþjónustuna.
Aðventukvöld kl. 20.30. Félagar úr
, Lúðrasveit Reykjavíkur leika að-
ventulög. Kaffisala Kvenfélags
Seljasóknar I lok aðventukvölds.
Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Fjölskyldu-
messa kl. 11. Ingólfur Guðmunds-
son messar. Organisti Þóra Guð-
mundsdóttir. Barnastarf á sama
tíma.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altar-
isganga.
Leikendur, leikstjóri og tæknimaður. Efst eru Þórhallur Sigurðsson og Sig-
urður Guðmundsson. í miðröðinni eru Bryndis Gunnarsdóttir, Hallveig
Thorlacius og Erna Guðmarsdóttir og neðst eru Bára L. Magnúsdóttir og
Helga Arnalds. DV-mynd GVA
Þjóðleikhúsið
Símí: 11200
Stóra sviðið:
M. Butterfly
Föstudag kl. 20, laugardag kl. 20.
Himneskt er að lifa
Sunnudag kl. 20.
Búkolla
Laugardag kl. 14, sunnudag kl.
14
Litla sviðið:
Kæra Jelena
Föstudag kl. 20, taugardag kl. 20,
sunnudag kl. 20.
Borgarleikhúsið
Sími: 680680
Stóra sviðið:
Ljón 1 síðbuxum
Föstudag kl. 20, laugardag kl, 20.
Ævintýrið
Sunnudag kl. 14.
Litia sviðið:
Þétting
Föstudag ki. 20, laugardag kl.
20 og sunnudag kl. 20.
íslenska óperan
Slmí: 11475
Töfraflautan
Föstudag kl. 20,
laugardag kl. 20.
Leikbrúðuland
Fríkírkjuvegi 11, Sími 622920.
Bannað að hlæja
Sunnudag kl. 15.