Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1992, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1992, Side 2
22 MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1992. Ferðir Spánn er þaö land sem mest veröur í sviðsljósinu þetta árið vegna ýmissa viðburða sem þar verða haldnir. Eins og kemur fram á síðunni hér að framan eru 500 ár liðin frá því Kól- umbus fann Ameríku og Spánn teng- ist þeim landafundum órjúfanlegum böndum þó svo Kólumbus sjálfur hafi verið ítalskur. Höfuðborg Spán- ar, Madrid, er menningarborg Evr- ópu í ár og í Barcelona verða ólymp- íuleikamir haldnir. Síðast en ekki síst verður heimssýningin EXPO ’92 í spænsku borginni Sevilla frá 20. apríl til 12. október (sama dag kom Kólumbus til Ameríku). Þó íslenskir ferðalangar velji ekki að fara beint til Sevilla á heimssýn- inguna geta þeir með góðu móti heimsótt borgina frá sólarstöðunum við Miðjarðarhafið. Sem dæmi má nefna er innan viö tveggja tíma akst- ur frá Costa del Sol til Sevilla og rétt rúmar tvær klukkustundir tekur að aka frá sólarströnd Portúgals, Al- garve, til Sevilla. Einnig eru hrað- brautir beinar frá París, Frankfurt og Róm. Meira en sandur og sól Okkur íslendingum hættir til að líta á Spán sem sólarlandið þar sem lítið annað þrífst en sjór og sandur. Sannleikurinn er nú sá að Spánn er og var eitt mesta menningarríki Evr- ópu og Sevilla var aðalborgin í aldir. Sevilla er í Andalúsíu í suðvestur- hluta Spánar. Borgin er í árdal og um hana rennur áin Guadalquivir sem átti það til að flæða yfir bakka sína og valda töluverðum skaða áður en tæknin kom til sögunnar. Sevilla er borg gleði og fjörs. í dymbilvikunni er mikil hátíð sem er fylgt eftir með annarri gleðihátíð, Feria, á annan í páskum sem nú er Gamli borgarhlutinn er völundarhús þröngra stræta sem hlykkjast eins og slöngur í átt aö torgunum. Santa Cruz sem áður var gyðinga- hverfi en síðar hverfi aðalsfólks. Öllu er vel viðhaldið í Santa Cruz og þar eru kaffihús, barir og veitingahús innan um sögufræga staði. Dómkirkjan í Sevilla er gífurlegt mannvirki og tahn þriðja stærsta dómkirkja heims á eftir Péturskirkj- unni í Róm og Pálskirkjunni í Lon- don. Kirkjan er reist á grunni mosku og hófst bygging hennar árið 1401. Það eina sem eftir er af moskunni er kallturninn, Giralda. Hann setur svip á umhverfi sitt þar sem hann gnæfir yfir því hann er nærri 100 metra hár og eftir þvi breiður. Til samanburðar má geta þess að Hall- grfmskirkjutum er 75 metra hár. Síbreytileg borg Þar sem márískum miðaldabrag sleppir taka við breiðstræti sem lögð voru fyrir Spænsk-Amerísku sýning- una 1929. Nú hefur borgin tekið á sig enn breyttari mynd sem fylgja óneit- aniega jafnmiklu fyrirtæki og heims- sýning er. Á eiði í ánni Guadalquivir hefur verið byggt sýningarsvæði sem tekur yfir 215 hektara og þar taka mannvirki um 500.000 fermetra. Yfir hundrað ríki munu kynna það helsta í menningu, sögu, vísindum, hönnun og húsagerðarlist. Undirbúningur hefur staðið yfir í fimm ár og er þetta mesta framkvæmd í Evrópu til þessa að undanskildum göngunum undir Ermarsund. Búist er viö að tuttugu milljónir manna leggi leið sína til Sevilla á þessum sex mánuöum sem sýningin stendur og þó íslendingar eigi ekki sýningarskála eins og til stóð er ekki úr vegi fyrir þá í heim- sókn á Spáni að gera sér ferð á þenn- an viðburð. íslenskar ferðaskrifstof- ur útvega allar nauðsynlegar upplýs- ingar um heimssýninguna. Til stuðnings fróðleiksfúsum ferða- löngum er bent á leiösöguritið Sevilla á Spáni og heimssýningin: Borg dansa, gleði og hátíða opnunardagur heimssýningarinnar. Feria stendur yfir í heila viku og er mikið um dýrðir. Þátttakendur klæð- ast litskrúðugum fötum, leika sí- gaunatónlist og dansa flamenco en Sevilla er heimaborg flamencodans- ins. Auk þess er haldið víðfrægt nautaat og borgin er yfirfull af gest- um og gangandi meðan þessar tvær annars gjörólíku hátíðir eru haldnar. Götukaffihúsin og barimir, bodegas, eru yfirfull af kátu og skemmtilegu fólki. Sögufræg borg Sevilla á sér langa sögu. Eftir landnám Kólumbusar í Nýja heimin- um reis vegur hennar hátt og þaðan lagði hann í nokkrar sínar ferðir. Aðrir sæfarar, listamenn og andans jöfrar hafa tengst þessari borg í gegn- um aldimar ' Elsti hlutí borgarinnar er ákaflega skipulagslaus, eiginlega völundar- hús þröngra gatna sem tengdar eru saman með litlum torgum. Márar réðu þar ríkjum í fimm hundmð ár og ber húsagerðin vitni um áhrif þeirra. Eitt frægasta mannvirki þess tíma er Alcazár höllin sem byrjað var að byggja árið 1181. Alcazár er ákaf- lega falleg bygging í líkingu við Al- hambra í Granada og þykir gefa henni lítið eftir í fegurð. Austur af Alcazár er Barrio de Madrid og merkisborgir Spánar eftir Jónas Kristjánsson. Þar er kafli um Sevilla og getið um helstu sögustaði, hvar best sé að gista og ekki síst hvar gott er að borða. í bókinni er líka fiallað um Madrid, Barcelona og ýmsar aðrar borgir á Spáni sem vert er að heimsækja. -JJ Það er gott aö boröa á Spáni og á heimssýningarsvæð- inu verða 200 veitingastaðir af öllum tegundum. Eins eru góðir veitingastaðir i miðborg Sevilla. Klaustrið Cartuja sem sýningarsvæðiö dregur nafn sitt af. Þar mun Spánarkonungur hafa móttöku fyrir gesti sina en auk þess er klaustrið opið almenningi. i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.