Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1992, Qupperneq 1
„Opið hús" Háskóla íslands: Ungt fólk hvatt til dáða „Inni í Þjóðarbókhlöðunni skipu- leggjum við nokkurs konar torg- menningu, þar sem eru breiðgötur og hliðargötur. Þar fer fram kynn- ing á sérskólum og námsleiðum innan Háskólans. Við enda breið- götunnar verður komið upp stóru sviði. Á því munu koma fram Há- skólakórinn, fulltrúar frá Leiklist- arskóla íslands, Tónlistarskólan- um og fleiri listaskólum og skemmta gestum. Myndlista- og handíðaskólinn setur upp högg- myndasýningu og verða verk nem- enda til sýnis vítt og breitt í Þjóðar- bókhlöðunni," segir Ásta Ragnars- dóttir, námsráögjafi við Háskóla íslands. „Auk þessa munu Ólafur G. Ein- arsson menntamálaráðherra og Sveinbjörn Bjömsson háskólarekt- or flytja ávörp í upphafi kynning- arinnar. Bömin gleymast heldur ekki því Háskólabíó mun bjóða upp á kvikmyndasýningu á milli klukk- an 13.00 og 15.00 og loks má geta þess að Félagsstofnun stúdenta verður með veitingasölu." Hið árlega „opna hús“ Háskóla íslands verður haldið öðru sinni í Þjóðarbókhlööunni sunnudaginn 29. mars og hefst það klukkan 13.00 og stendur til klukkan 19.00. Kynnt verður starfsemi Háskóla íslands og námsleiðir sem í boði eru eftir eða upp úr miðjum framhalds- Háskóli Islands og sérskólarnir í landinu standa fyrir „opnu húsi“ í Þjóð- arbókhlöðunni á sunnudag. Meginmarkmiö „opins húss“ er að drga úr vonleysi og hvetja ungt fólk til dáða undir yfirskriftinni „Nýir tímar, nýjar lausnir". DV-mynd GVA skóla. Um er að ræða kynningu á öllum námsleiðum Háskólans auk þess sem 20 sérskólar munu kynna starfsemi sína. Verður leitast við að gefa heildarmynd af námsfram- boði hér á landi og erlendis. „Þetta verður hvort tveggja í senn, náms- og starfskynning. Launþegasamtökin ASÍ, BSRB, BHMR og KÍ munu kynna samtök sín og Menningar- og fræðslusam- tök alþýðu verða með kynningu á fullorðinsfræðslu. Þátttaka at- vinnulífsins í „opnu húsi“ er mjög ánægjuleg. Við höíðum samband við fjölda fyrirtækja og báðum þau um fjárhagsstuðning. Mörg þeirra tóku vel í þessa beiðni. Básarnir eru því að hluta til eymamerktir fyrirtækjunum, til að mynda verð- ur fjölmiðlabásinn merktur DV en Frjáls fjölmiðlun lagði til fé til að koma honum upp. Það verður því ekki annað sagt en hin ýmsu fyrir- tæki og stofnanir hafi gerst velunn- arar íslensks námsfólks og ís- lenskrar menntunar með fjárfram- lögum,“ segir Ásta. Fulltrúar atvinnuveganna munu sitja fyrir svörum. Auk þess verða ýmsar stofnanir námsmanna kynntar, eins og Lánasjóðurinn, Námsráðgjöf, Samband íslenskra námsmanna erlendis og Háskóla- bókasafn. Nýhöfn: Sigurbjöm Jónsson sýn- ir olíuverk Sigurbjöm Jónsson opnar mál- verkasýningu í Listasalnum Ný- höfn, Hafnarstræti 18, laugardag- innn 28. mars kL 14-16. Á sýning- unni eru málverk unnin með olíu á striga á síðastliðnum tveimur árum, Sigurbjöm er fæddur 1958 á Ak- ureyri. Hann lauk námi frá grafík- deild Myndlista- og handíðaskóla íslands 1982. Framhaldsnám stund- aði liann við Parsons School of Design f New York 1983-1985 og síð- an eitt ár við New York Studio SchooL Þetta er þriðja einkasýning Sigurbjöms á íslandi. Sýning Sigurbjöms er sölusýning og er opin virka daga frá kl. 12-18 og frá 14-18 um helgar. Lokað á mánudögum. Henni lýkur 15. apríl. Kolaportiö: Kolaportið mun eöia til sérs- taks safnaradags í Kolaportinu næstkomandi sunnudag. Koma þá safnarar víða að á landinu saman í Kolaportinu og sýna, selja og skipta á safngripum sín- um. Sérstakt svæði verður ætlað söfnurunum þar sem þeir verða allir saman í hóp en auk þess verður einnig venjulegt markaös- torg í Kolaportinu þennan dag i öðrum hlutum hússins. Leikfélag Akureyrar: Frumsýning íslands- klukkunnar í kvöld Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri: íslandsklukkan eftir Halldór Lax- ness verður frumsýnd hjá Leikfélagi Akureyrar í kvöld. Sunna Borg er leikstjóri og hefur samið nýja leik- gerð sem hún byggir á eldri leikgerð- um og skáldsögunni. Leikmynda- og búningateiknari er Sigurjón Jó- hannsson, búningameistari Frey- gerður Magnúsdóttir, Jón Hlöðver Áskelsson hefur samið tónlist við verkið og ljósahönnuður er Ingvar Björnsson. Tvær meginforsendur liggja að baki vali Leikfélags Akureyrar á að sýna íslandsklukkuna nú. í fyrsta lagi er um afmæhsverkefni L.A. að ræða en félagiö verður 75 ára í næsta mánuði, og í öðru lagi verður Halldór Laxness, höfundur íslandsklukk- unnar, níræður í næsta mánuði. Hin ástsæla skáldsaga íslands- klukkan, sem leikritið byggist á, hef- ur átt greiðan aðgang aö hjörtum íslendinga síðan hún kom út lýðveld- isárið. Sagan styðst við sögulega at- burði á 17. og 18. öld og endurspeglar aldarfarið á íslandi í svartasta mið- aldamyrkrinu eftir siðaskiptin. Efnið er annars vegar píslarsaga hins ódrepandi karls Jóns Hregg- viðssonar sem leitar réttlætis en sú leit verður bæði löng og erfið. Hins vegar er ástarsaga þeirrar ójarð- Elva Ósk Ólafsdóttir fer meö hlut- verk Snæfríðar íslandssólar og Hallmar Sigurðsson sem leikur Arn- as Arnæus. mynd PÁP nesku og stoltu Snæfríðar íslandssól- ar og hugsjónamannsins Arnasar Arnæusar, en fyrirmynd hans er Ámi Magnússon, prófessor í Kaup- mannahöfn. Leikstjórinn leggur með leikgerð sinni höfuðáherslu á ástar- sögu þeirra síðamefndu. Aðalleikarar íslandsklukku Leik- félags Akureyrar eru Elva Ósk Ólafs- dóttir sem leikur Snæfríði íslands- sól, Hallmar Sigurðsson sem leikur Arnas Amæus og Þráinn Karlsson sem leikur Jón Hreggviðsson. For- eldrar Hallmars, sem leikur Arnas Arnæus, koma einnig við sögu, en Sigurður Hallmarsson, faðir hans, leikur Eydalin lögmann föður Snæ- fríðar og Jón Þeófílusson, og Herdís Birgisdóttir, móöir Hallmars, leikur móður Jóns Hreggviðssonar. í helstu hlutverkum öðrum eru Felix Bergsson (Magnús í Bræðra- tungu og böðullinn), Valgeir Skag- fiörð (Sigurður dómkirkjuprestur), Jón Stefán Kristjánsson (Jón Grinvicensis og séra Þorsteinn), Gestur Einar Jónasson (Jón Mar- teinsson), Sigurveig Jónsdóttir (Metta, kona Amæusar), Guðlaug Hermannsdóttir, Aðalsteinn Berg- dal, Marinó Þorsteinsson, Ami Valur Viggósson, Þórdís Amljótsdóttir, Eggert Kaaber, Ingrid Jónsdóttir og Agnes Þorleifsdóttir (8 ára). Alls em 26 hlutverk í leikgerð Sunnu Borg af skáldsögunni auk „statista" svo mannmargt verður á hinu litla sviði leikhússins á Akur- eyri, og leikmynd, búningar, lýsing og tónlist veröa tilkomumikil. Kvikmyndir: Frankie og Johnnie - sjábls. 22 Myndlist: Jón Bene- diktsson í FÍM- salnum - sjábls. 20 Veitingahús: Grillið áSögu - sjá bls. 18 Skemmtanir: Tyrk- neskur djass - sjábls. 19 Leiklist: Sonur skóarans og dóttir bakarans - sjábls. 21 Tónleikar: Söng- hátíð i Mos- fellsbæ - sjabls. 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.