Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Blaðsíða 4
20
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1992.
Anima Nordica-hópurinn er að fást við mjög fjölþætt viðfangsefni í listinni. DV-mynd JAK
listahópurinn
Anima Nordica
Sýningar
Art-Hún'
Stangarhyl 7. sími 673577
i sýningarsal og vinnustofum eru til sýnis og sölu
olíumálverk, pastelmyndir, grafík og ýmsir leirmunir.
Opið alla daga frá kl. 12-18.
Arbæjarsafn
„Það er svo geggjað" nefnist sýning sem stendur
nú yfir í Árbæjarsafni. Opið alla daga nema mánu-
daga kl. 10-18. Sýningin verður í allt sumar.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74, sími 13644
Safn Ásgríms Jónssonar er opið á laugardögum og
sunnudögum kl. 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Sigtúni, simi 32155
Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina Bók-
menntirnar í list Ásmundar Sveinssonar. Jafnframt
hefur verið tekin í notkun ný viðbygging við Ásmund-
arsafn. Safnið er opið kl. 10-16 alla daga.
Ásmundarsalur
v/Freyjugötu
Opið alla virka daga frá kl. 10-16.
Gamla Álafosshúsið
Laugardaginn 25. júlí opnar Haukur Dór sýningu á
verkum sínum. Á sýningunni verða sýnd málverk og
teikningar. Sýningin er opin alla laugardaga frá kl.
12-18 og stendur í allt sumar.
Café Mílanó
Nú stendur yfir sýning á verkum Ríkeyjar Ingimund-
ardóttur. Á sýningunni eru olíumálverk, vatnslita-
myndir og skúlptúr.
Café Sautján
Laugardaginn 18. júli opnði Valgeir Sigurðsson
fyrstu Ijósmyndasýningu sína. Á sýningunni eru 17
myndir, allar teknar á þessu ári og flestar á eyjunni
Simi. Sýningin stendur í þrjár vikur og er opin á
verslunartíma.
FÍM-salurinn
Garöastræti 6
Laugardaginn 11. júlí sl. opnaði Guðrún Guðjóns-
dóttir sýningu á olíumálverkum. Þetta er fyrsta einka-
sýnig Guðrúnar og eru verkin á sýningunni unnin á
þessu og síðasta ári. Sýningin stendur til 27. júli og
er opin alla daga frá kl. 14-18.
Gaíleri II
Skólavöröustíg 4a
Laugardaginn 25. júlí opnar myndlistarmaðurinn
Nobuyasu Yamagata sýningu á verkum sínum. Sýn-
ingn verður opin alla daga frá kl. 13-18. Sýningin
stendur til 6. ágúst.
Gallerí Ingólfsstræti
Bankastræti 7
Nú stendur yfir sýning á myndum, máluðum á silki,
eftir Guðrúnu Arnalds. Einnig eru fjögur myndverk
unnin úr bývaxi og litadufti á striga eftir Jón Sæ-
mundsson. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18.
Gallerí List
Skiphoiti, sími 814020
Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn. Opið dag-
lega kl. 10.30-18.
Gallerí Port
Kolaportinu
Opið laugard. kL 11-17.
Gallerí Úmbra
Amtmannsstíg 1 (Torfan)
Núna stendur yfir sýning á olíukrítarmyndum eftir
Ingibjörgu Sigurðar- og Soffíudóttur. Myndirnar eru
allar unnar á þessu ári og eru eins konar óður til lífs-
ins þar sem tilfinningarnar einar ráða ferðinni. Sýn-
ingin er opin þriðjud.-laugard. frá kl. 12-18 og
sunnud. frá kl. 14-18. Sýningunni lýkur 29. júlí.
Aðgangur er ókeypis.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Laugardaginn 25. júlí kl. 14 mun hópur myndlistar-
manna, er kalla sig Anima Nordica, opna sýningu. Á
sýningunni eru sýnd málverk, teikningar, skúlptúrar,
videoverk o.fl. Sýningin stendur til 10. ágúst og verð-
ur opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18.
Hafnarhúsið
Tryggvagötu
14. júní var opnuð sögusýning í Hafnarhúsinu. Á
sýningunni er sýnd þróun og uppbygging Reykjavík-
urhafnar og þar er einnig mikil veggmynd sem Gylfi
Gíslason myndlistarmaður hefur gert af Reykjavíkur-
höfn eins og hún mun hugsanlega líta út árið 2017.
Sýningin verður opin daglega frá kl. 13-18 fram til
hausts.
Hótel Lind
Nú stendur yfir sýning á verkum Reynis Sigurðsson-
ar. Á sýningunni eru 24 olíumálverk og einnig akril-
myndir. Sýningin er opin á afgreiðslutíma veitinga-
hússins
Sýning á Hressó
Opnuð hefur verið í veitingahúsinu Hressó sýning á
Ijósmyndum eftir Kristján Logason. Myndirnar eru
ýmist svarthvítar, handmálaðar eða í lit.
Kjarvalsstaðir
Þar standur nú yfir sýning í tengslum við listahátíð
á verkum Kjarvals. Opið frá kl. 1Ö-19 alla daga nema
miðvikudaga. Þá er opið frá kl. 10-22. Safnaleiðsögn
fyrir almenning á sunnud. kl. 16 og miðvikud. kl. 20.
Sýningin stendur fram yfir verslunarmannahelgi.
Norræna húsið
Laugardaginn 11. júlí sl. var opnuð sumarsýning í
sýningarsölum Norræna hússins. Þrír listamenn sýna
verk sín, þeir Daði Guðbjörnsson, Helgi Þorgils Frið-
jónsson og Tumi Magnússon. Verk Helga og Tuma
eru máluð á þessu ári en verk Daða eru frá undanförn-
um árum. Sýningin verður opin daglega frá kl. 14-19
pg stendui til 16. ágúst. Aðgangur er ókeypis.
i bókasafni stendur yfir sýning á bókamerkjum og
böndum eftir þýsku listakonuna Marianne Krauss.
Þau eru ofin með spjaldvefnaðartækni sem er alda-
gömul hefð en rekja má sögu spjaldvefnaðarins þús-
undir ára aftur í tímann. Sýningin er opin mánud-
laugard. frá kl. 13-19 og á sunnud. frá kl. 14-17.
Sýningin stendur fram í miðjan ágúst. i anddyri
stendur yfir sýning á Ijósmyndum sem þýski Ijós-
myndarinn Franz-Karl Freiherr von Linden tók á is-
landi á árunum 1972-77. A sýningunni eru 36 mynd-
ir. Sýningin stendur út ágústmánuð.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3b
Laugardaginn 25. júlí verður opnuð sýning á verkum
eftir fjóra hollenska myndlistamenn, Peter Terhorst,
Evelyn van Dvil, Marcel Zalme og Willem Speeken-
Brink. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18. Sýn-
ingin stendur til 9. ágúst.
Katel
Laugavegi 20b, sími 18610
(Klapparstigsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda listamenn,
málverk, grafík og leirmunir.
Listasafn ASÍ
Grensásvegi 16A, sími 681770
Dagana 4.-26. júlí sýna níu listakonur frá Norður-
Noregi verk sín. Hér er um að ræða farandsýningu
á vegum Skinn, samtaka sem sjá um dreifingu á
norðurnorskri list. Á þessari sýningu eru listakonur á
öllum aldri með mismunandi reynslu.
Listasafn Einars Jónssonar
Njaröargötu. sími 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Högg-
myndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-16.
Listmunahúsið
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
simi 621360
Laugardaginn 4. júli opnuðu myndlistarmennirnir
Sigurður Orlygsson, Jón Axel Björnsson og Grétar
Reynisson sýninu á verkum sínum. Sýningin stendur
út júlímánuð. I minni sal á annarri hæð er ennfremur
sýndur og seldur fjöldi myndverka eftir íslenska sam-
tlmalistamenn.
Hópur myndlistarmanna, er kallar
sig Anima Nordica, opnar sýningu í
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, á morgun kl.
14. Hópinn skipa þau Steinunn
Helgadóttir, Anna Makela frá Finn-
landi, Lena Hopsch og Michael
Hopsch frá Svíþjóð.
Listamennirnir stunduðu alhr nám
Cafe Sautján:
Ljósmynda-
sýning
Nýlega opnaði ungur áhugaljós-
myndari, Valgeir Sigurðsson, sína
fyrstu ljósmyndasýningu í Cafe
Sautján, i versluninni Sautján á
Laugavegi.
Á sýningunni eru 17 myndir sem
allar eru teknar á þessu ári og flestar
á eyjunni Simi skammt undan
ströndum Tyrklands. Sýningin
stendur yfir til 8. ágúst og er opin á
verslunartíma.
Eitt af verkum Steingrims.
Eden í Hverageröi:
Steingrímur
sýnir
Listamaðurinn Steingrímur St.Th.
Sigurðsson opnaði nýlega sína 72.
málverkasýningu í Eden í Hvera-
gerði.
Sýningin er tileinkuð afabarni list-
málarans, Viktori Alexander, sem er
sjö mánaða gamall. Á sýningunni eru
72 myndir sem Steingrímur hefur
málað á undanfornum árum. Sýn-
ingin stendur til 23. ágúst.
við Valand-listaskólann í Gautaborg
í Svíþjóð og eru að fást við mjög fjöl-
þætt viðfangsefni í hstinni. Á sýning-
unni í Hafnarborg sýna þau málverk,
teikningar, skúlptúra, videoverk o.fl.
Við opnun sýningarinnar verður
flutt tónverkið Frá bleikri bauju sem
Sveinn Lúðvík Bjömsson samdi sér-
staklega fyrir sýninguna. Flytjandi
Um þessar mundir stendur yfir á
Mokka kaffi við Skólavörðustíg sýn-
ing á verkum Haraldar Jónssonar.
Þetta eru teikningar, unnar á pappír
á undanfömum mánuðum. Haraldur
stundaði nám í Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands á ámnum 1984-87.
Síðasthöinn vetur dvaldi hann í Par-
Opnuð verður sýning á verkum
eftir fjóra hollenska myndhstar-
menn í Nýlistasafninu á morgun kl.
16. Myndlistarmennirnir em: Peter
Terhorst, Evelyn van Dvh, Marcel
Zalme og Wihem Speeken-Brink.
Sýningin er fyrri hluti sýningarsam-
starfs sem nefnist First Floor. í hyij-
un september hefst svo síðari hluti
verksins er Daníel - Þorsteinsson
píanóleikari. Einnig verður flutt
verkið ímynd konu fyrir píanó og
upplestur, flytjendur eru Daníel og
Jón Símon Gunnarsson leikari.
Sýningin stendur th 10. ágúst og
verður opin aha daga nema þriðju-
daga frá kl. 12-18.
-KMH
ís sem styrkþegi við Institut des
Hautes Études en Art Plastiques.
Haraldur hefur haldið sýningar á
ýmsum stöðum í Evrópu og síðast
sýndi hann á sýningunni íslensk
höggmyndalist á Listahátíð í Kringl-
þessa samstarfs með sýningum ís-
Íenskra myndlistarmanna á þrem
stöðum í Hohandi. Þeir sem þar sýna
em: Daníel Magnússon, Hrafnkeh
Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson,
Ragna Sigurðardóttir og Haraldur
Jónsson. Sýningin í Nýhstasafninu
er opin daglega frá kl. 14-18, henni
lýkur sunnudaginn 9. ágúst.
Sýningar
Listinn
gallerí - innrömmun
Siöumúla 32, sími 679025
Uppsetningar eftir þekkta íslenska málara. Opið virka
daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga
kl. 14-18.
Listasafn Háskóla íslands
i Odda, simi 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum í
eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Aðgangur
að safninu er ókeypjs.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Sýningin 2000 ára litadýrð, mósaikmyndir og bún-
ingar frá Jórdaníu og Palestínu, stendur nú yfir. Sýn-
ingin stendur til 26. júli og er opin alla dag nema
mánudaga frá kl. 12-18.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70, s. 32906
Sýning stendur yfir á æskuverkum listamannsins Sig-
urjóns Ólafssonar. Sýningin stendur til 30. júlí. Opið
laugard. og sunnudaga frá kl. 14-18 og alla virka
daga, nema föstudaga, frá kl. 20-22. Tónleikar alla
þriðjudaga kl. 20.30.
Listhúsið Snegla
Grettisgötu 7, sími 620426
Sunnudaginn 26. júlí opnar Arnfríður Lára Guðna-
dóttir sýningu á myndverkum, vösum o.fl. Sýningin
stendur til 29. ágúst og er opin mánud. - föstud. kl.
12-18 og laugard. kl. 10-14. Einnig eru til sölu verk
eftir 14 aðra listamenn á sýningunni..
Lóuhreiðrið
Laugavegi 59
Jón Gunnarsson sýnir í kaffistofunni Lóuhreiðri, 2.
hæð, fyrir ofan Hagkaup. Á sýningunni eru eingöngu
vatnslitamyndir. Opið mánudaga-föstudaga frá kl.
9-18.
Mokka kaffi
Skólavöröustig
Um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum
Haralds Jónssonar. Á sýningunni eru teikningar,
unnar á pappír á undanförnum mánuðum. Sýningin
er opin alla daga kl. 9.30-23.30 nema sunnud. kl.
14-23.30 og stendur fram í ágúst.
Myndlistarsýning í
menntamálaráðuneyti
Elin Magnúsdóttir sýnir olíumálverk og vatnslita-
myndir, Tryggvi Hansen sýnir tölvugráfík og Elínborg
Guðmundsdóttir, Margrét Salome Gunnarsdóttir og
Sigrún Gunnarsdóttir sýna leirlistarverk. Sýningin er
opin á virkum dögum á starfstíma ráðuneytisins kl.
8-16.
Sjónminjasafn íslands
Nú stendur yfir sýning Skipaútgerðar rikisins. Opið
alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18.
Stofnun Árna
Magnússonar
Árnagarði, Suðurgötu
Nú stendur yfir handritasýning í Árnagarði. Á sýning-
unni eru m.a. handrit sem minna á ævistarf Árna
Magnússonar. Einnig eru galdrakver og eitt merkasta
rímnahandrit sem varðveist hefur. Sýningin verður
opin alla daga vikunnar, nema sunnudaga, frá kl.
14-16. Sýningin stendur til 1. september.
Sýning í SPRON
I útibúi SPRON að Álfabakka 14 í Mjódd eru til
sýnis verk eftir Björgu Þorsteinsdóttur. Á sýningunni
gefur að líta 10 listaverk, unnin með olíukrít, og eru
þau unnin á árunum 1990-1992. Sýningin stendur
til 14. ágúst og er opin kl. 9.15-16.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, simi 54321
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18.
Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu 59, sími 23218
Þar eru til sýnis og sölu postulínslágmyndir, málverk
og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðju-
daga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Sýning á Hressó
Opnuð hefur verið í veitingahúsinu Hressó sýning á
Ijósmyndum eftir Kristján Logason. Myndirnar eru
ýmist svarthvítar, handmálaðar_eða í lit.
Þjóðminjasafn íslands
Sýningin Húsvernd á Íslandi var opnuð í Bogasal
Þjóðminjasafns íslands laugardaginn 27. júní sl. Þar
er saga húsverndar á Íslandi rakin í stórum dráttum
og kynntar aðgerðir opinberra aðila sem markað
hafa stefnuna á hverjum tíma. Mikill hluti sýningar-
efnisins er Ijósmyndir, teikningar, vatnslitamyndir og
uppdrættir af gömlum húsum og húshlutum.
Minjasafnið á Akureyri
Aöalstræti 58, sími 24162
Opið daglega kl. 11-17.
Myndlistaskólinn
Akureyri
Laugardaginn 18. júlí var í þriðja sinn opnuð sumar-
sýning i Myndlistarskólanum á Akureyri. Þeir sem
sýna verk sín á sýningunni eru Guðmundur Ármann
Sigurjónsson, Helgi Vilberg, Kristinn G. Jóhannsson,
Sigurbjörn Jónsson, Jón Laxdal Halldórsson og
Rósa Kristín Júlíusdóttir. Á sýningunni verða sýnd
málverk, máluð vattteppi og klippimyndir. Sýningin
verður opnuð kl. 16 á laugardaginn og verður opin
daglega frá kl. 14-18 fram til 9. ágúst.
Gallerí Hulduhólar
Mosfellsbæ
27. júní sl. opnuðu listamennirnir Steinunn Marteins-
dóttir, Sveinn Björnsson, Hlíf Ásgrímsdóttirog Sverr-
ir Ólafsdóttir sýningu með verkum sínum. Sýningin
er opin laugard. - miðvikud. kl. 14-19 og fimmtud.
og föstud. kl. 17-22.
Vinnustofa Snorra
Álafossvegi 18a, Mosfellsbæ
Þann 16. júlí sl. opnaði Snorri Guðmundsson sýn-
ingu á Listaverki náttúrunnar, sem eru höggmyndir
úr hrauni og öðrum náttúrulegum efnum. Hraunið,
sem valið er í hvern grip, er allt út síðasta Heklu-
gosi. Sýningin verður opin frá kl. 14-20.
Eden
Hverageröi
Fimmtudaginn 3. ágúst opnar Steinarímur St.Th.
Sigurðsson 72. málverkasýningu sína. Á sýningunni
eru 72 málverk og eru 71 þeirra ný. Sýningin stend-
ur til 3. ágúst.
Tjarnarbíó, sími 19181
Sýningin Night Lights verður fimmtudaga-sunnu-
daga kl. 21-23 fram til 30. ágúst. Sýningin er gerð
til fræðslu um íslenska menningu, þjóðsögur og vík-
ingatímann. Sýningin fer fram á ensku.
Hótel Búðir
Núna stendur yfir sýning á verkum listamannanna
Arnar Karlssonar, Halldórs Ásgeirssonar og Magnús-
ar Sigurðssonar. Örn sýnir vatnslita- og klippimyndir
í þvottahúsinu, Halldór Ásgeirsson sýnir verk sín á
bryggjunni og Magnús Sigurðsson sýnir nokkur verk
inni á hótelinu. Allar sýningarnar standa yfir í sumar.
Ferstikla
Hvalfjarðarströnd
Nú stendur yfir sýning Bjarna Þórs Bjarnasonar. Á
sýningunni eru myndir unnar á pappír með olíulitum
og olíukrít. Sýningin stendur út júllmánuð. Myndirn-
ar eru til sölu.
Akranes
15. júlí var opnuó sýning í upplýsingamiðstöðinni
fyrir ferðamenn á olíumálverkum eftir Hjálmar Þor-
steinsson. Sýningin er opin alla virka daga frá kl.
10.30-17.00. Sýningunni lýkur 15. ágúst.
Frá sýningunni á Mokka. DV-mynd GVA
Mokkakaffí:
Teikningar á pappír
unm.
Nýlistasafnið:
Hollenskir
myndlistarmenn