Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Blaðsíða 1
Tónlistarhópurinn Capella Media heldur ferna tónleika úti á landi um helgina en þeir eru á vegum Sumartónleika á Norðurlandi. DV-mynd JAK. Tónleikar Capella Media Tónlistarhópurinn Capella Media, sem sérhæfir sig í flutningi tónlistar frá upphafi endurreisnar tii fyrri hluta barokk-tímabhsins, heldur tónleika á fjórum stööum um helg- ina. Hópurinn var stofnaður fyrir þremur árum í Þýskalandi af þeim Stefan Klar, lútu- og blokkflautideik- ara, Klaus Hölzle lútuleikara og Rannveigu Sif Sigurðardóttur sópr- an. Síðan þá hafa tveir tónhstarmenn bæst í hópinn, þau Christine Heinrich, sem leikur á violu da gambra, og Sverrir Guðjónsson kontratenór. Tónlistin er leikin á upprunaleg hljóðfæri. Tónleikarnir eru á vegum Sumar- tónleika á Norðurlandi og verða haldnir á eftirtöldum stöðum: Húsa- víkurkirkja í kvöld kl. 20.30, Reykja- hhðarkirkja á morgun kl. 20.30, Lundarbrekka í Bárðardal á sunnu- daginn kl. 14 og í Akureyrarkirkju kl. 17, einnig á sunnudaginn. Grundvaharhugmynd Sumartón- leika á Norðurlandi, sem nú hafa verið haldnir sex sumur í röð, var að skapa skhyrði th þess að jafnt heimamenn sem ferðamenn mættu njóta vandaðrar tónhstar á sumar- dögum norðlenskrar fegurðar og veðursældar. Tónleikatímabihð hef- ur yfirleitt verið frá fyrstu helgi í júh th hinnar fyrstu í ágúst og svo er einnig í ár. Þess má geta að Capeha Media verður einnig með tónleika í Eghs- staðakirkju þriðjudaginn 28. júlí kl. 20.30 og í Landakotskirkju 30. júlí kl. 20.30. -KMH Borgarhlaup á morgun Borgarhlaup Nike verður haldið í annað sinn á morgun og geta alhr sem vhja tekið þátt í hlaupinu. Hlaupið, sem er undirbún- ingshlaup fyrir Reykjavíkur- maraþon, hefst kl. 12 við verslunina Frísport á Lauga- veginum og endar við Kringlusport í Kringlunni. Að þessu sinni verður boðið upp á tvær vegalengdir, 5 og 10 km. Skráning og ahar upplýs- ingar um hlaupaleiðir og fleira er í verslununum Frí- sporti, Laugavegi 6, og Kringlusporti í Borgarkringl- unni. Skráning hefst kl. 10 á morgun en mikhvægt er að forskrá sig th að koma í veg fyrir örtröð þegar hlaupiö ' hefst. Þátttökugjald er kr. 500. Tímataka verður á öhum þátttakendum og veitt verða verðíaim fyrir 1.-3. saeti í hverjum flokki og fimm út- dráttarverölaun. Drykkir verða við endamarkið fyrir aha þátttakendur. Þátttaka í borgarhlaupinu er öllum opin en hlaupið hefst á morgun kl. 12 á Lauga- -KMH veginum. Hestamennskan: Tvömótum helgina Alls verða tvö hestamannamót haldin um helgina. Fyrra mótið er stórmót eyfirsku hestamanna- félaganna, Funa, Þráins ogLéttis, á Melgerðismelum sem hefst á morgun og stendur fram á sunnu- dag. Seinna mótið er hið árlega iþróttamót Ljúfs i Hveragerði sem sem fram fer að Reykjakoti á morgun. Á mótinu á Melgerðismelum fara fram kappreiðar, gæðinga- keppni og töltkeppni. Haldin verður kvöldvaka á laugardags- kvöldið en úrshtin fara svo fram á sunnudag. Akureyri: Maraþon Akureyringar halda sitt fyrsta maraþonhlaup á morgun en það er Ungmennafélag Akureyrar og klúbburinn Þríþraut sem standa fyrir hlaupinu. Halldór Jónsson bæjarstjóri ræsir keppendur frá íþróttavehinum við Hólabraut kl. 13.30. Um er að ræða tvær vega- Iengdir, 21,1 km og 7 km skemm- tiskokk. Ætlunin er að gera hlaupið að árlegum viðburði. Verölaunaafhending fer fram í Dynheimum þar sem alhr þátt- takendur fá viðurkenningu. Akranes: Títanþrí- keppni í tilefni af afmæli Akranes- kaupstaðar í ár verður haldin svokölluð Titan þríkeppni og hefst hún i dag kl. 14 við Reykja- víkurhöfh. Þaðan munu um 25 skútur sigla inn á Krossvík við Skaga þar sem haldið verður í land. Um borð í hverri skútu verður hjólreiðamaður sem mun keppa við bræöur sína af hinum skútunum og hjóla 7,4 km um Akranes þvert og endilangt. Á morgun kl. 13 taka golfiöfrar við af fyrmefndum skútum og spila níu holur á golfvehi Leynis- manna. Besti samanlagður ár- angur í þessari þríkeppni leiðir svo til glæstra verðlauna. Isafjaröardjúp: Grasaferð Náttúrulækningafélagið ásamt Heilsuhringnum og Líffræöifé- lagi íslands gengst fyrir grasaferð í ísafiörð og Mjóafiörð dagana 24.-26. júlí undir leiðsögn Haf- steins Hafhðasonar frá Vigur. Markmið ferðarinnar er að skoða flóru og náttúrulíf fyrir botni ísa- fiarðardjúps. Þar er gróður eink- ar fiölskrúðugur og dýralif marg- breythegt. Áhersla verður lögð á að leita uppi lækningagrös og drykkjarjurtir til að kenna þeim sem vilja að þekkja þessar ger- semar landsins sér til gamans og gagns. Lagt verður í ferðina i dag kl, 13 frá Reykjavík. Þátttöku- gjald er kr. 9.500 og í verðinu er innitáhð: rúta, Ieíðsögn, tjald- stæði og máltíð fyrsta kvöldiö. Nánari upplýsingar fást hjá Nátt- úrulækningafélagi Roykjavíkur í síma 16371 og 28191. Bíóbarinn: Vinsæl krá -sjábls. 18 Myndlist: Anima Nordica -sjábls. 20 Skemmtanir: Af- sláttur fyrir ljós- hærðar konur -sjábls. 19 Menning: Söng- konan Tori Amos -sjábls. 21 Kvikmyndir: Omen IV - sjá bls. 22 Ferðir: Göngur fyrir alla - sjá bls. 22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.