Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1992, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1992, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992. Fréttir Reykvískir unglingar sem þurfa félagslegan stuðning: t Sendir í 11 daga óbyggða ferð um Strandirnar „Við drógum ekki dul á að þessi ferð yrði erfið, bæði líkamlega og andlega. Á daginn gengum við en á kvöldin pældum við í lífinu og tilver- unni. Ég þekki þess dæmi að svona ferðir hafi markað þáttaskil í lífi unglinga," sagði Björn Vilhjálmsson, starfsmaður Iþrótta- og tómstunda- ráðs Reykjavíkurborgar. Á vegum ráðsins og félagsmið- stöðva Reykjavíkurborgar var efnt til ellefu daga gönguferðar með átta unglinga norður á Strandir. Ferðin hófst þann 7. ágúst og lauk á mánu- dagskvöld. Þetta var fyrsta ferðin á vegum félagsmiðstöðvanna enslíkar feröir hafa tíðkast um nokkurt skeið á vegum Unglingaheimilis ríkisins og ÍTR. Sumir unglinganna, sem hér um ræðir, hafa átt í félagslegum erfið- leikum. Þetta eru kraftmiklir krakk- ar sem fá í þessum ferðum ótrúlega mikla reynslu. Bjöm sagði að leið- angurinn hefði í upphafi farið norður á Hólmavík og þaðan í Trékyllisvík. Síðan var farið með trillu til Dranga- víkur. Þaðan var gengið á sjö dögum norður 1 Homvík. Gengnir voru rúmir 100 km yfir fiöll og vegleysur með vistir og alian útbúnað á bak- inu. - átta sig á staðreyndum lifsins, segir Bjöm Vilhjálmsson „Þetta voru krakkar á aldrinum 13 til 15 ára sem þurfa á stuðningi að halda og að átta sig á staðreyndum lífsins. Það er engin spuming að krakkamir hafa gott af svona ferð- um. Þama þurfa þeir að vera í nánu samstarfi við aðra og taka tillit til annarra - og leysa þau vandamál sem upp kunna að koma. Reynsla okkar af hálendishóp ÍTR og Ungl- ingaheimihs ríkisins er mjög góð en fyrst var farið í óbyggðir með ungl- inga á vegum þessara aðila árið 1983,“ sagði Bjöm. „í svona ferðum kynnast krakkamir nýjum hliðum á sjálfum sér og þama uppgötva þeir oft nýja og áður óþekkta hæfileika. Þama gefst svigrúm til að hugsa rnálin." Ferðin var undirbúin á þann hátt aö félagsmiðstöðvamar sendu nöfn hugsanlegra þátttakanda til umsjón- armanna hálendishópsins. Eftir aö búið var að velja hópinn fóra Bjöm og fleiri með hann í tvær stuttar ferð- ir. „Þetta eru unglingar sem yfirleitt em ekki í miklum tengslum við íþróttir eða skipulagt tómstunda- starf. En árangurinn er ótvíræður. Það höfum við séð í hálendishópnum og ég vona að hið sama gerist hér,“ sagði Björn. -ask Gönguferðin var bæði löng og ströng en krakkarnir lærðu lika heilmikið á henni. DV-mynd BJ Þorsteinn Pálsson um fíkniefnavandann: Draga þarf úr öðru til að bæta aðstöðuna „Lögreglustjóri hefur upplýst mig v :um að fiöldi lögreglumanna, sem starfa að rannsóknum í fíkniefna- málum, sé hlutfallslega jafnmikill hér og í höfuöborgum annarra Norð- urlanda. Það er svo alltaf spuming hvort nauðsynlegt sé að bæta aðra aðstöðu. Við núverandi fiárhagsað- stæður gerist það ekki með öðm móti en að draga úr öðrum verkefn- um,“ sagði Þorsteinn Pálsson dóms- málaráðherra í samtali við DV. Ummæh ýmissa yfirmanna í lög- reglunni vom borin undir ráðherra en eftir þeim hefur verið haft að til að mæta aukinni hörku og auknu fiármagni í kringum fíkniefnaneyslu þurfi aukið fiármagn til löggæslu. Þorsteinn segir þaö rétt aö miklir fiármunir séu í umferö hvað varðar söluandvirði fíkniefna. „Hitt er miklu óhugnanlegra að þessi fikni- efni geta eyðilagt líf nfiög margra. Það er miklu nær að horfa á við- fangsefnið út frá því sjónarmiði," sagði dómsmálaráðherra. „Síöustu atburðir sýna að lögregl- an býr yfir miklum styrk til að tak- ast á við svona erfitt verkefni. Það fer ekki á milli máia. Lögreglumenn- imir leystu þetta erfiða og vanda- sama verkefhi frábærlega vel af hendi. Þeir sýndu mikið öryggi og hugrekki," sagði Þorsteinn Pálsson ennfremur. -bjb I dag mælir Dagfari Gjaf ir eru yður færðar Það horfir ekki vænlega í atvinnu- málum íslendinga á næstunni. Áfram er spáð kreppu í efnahags- málum, niðurskurði í þorskveiðum og vaxandi atvinnuleysi. Ríkis- stjómin hefur ákveðið að verja auknu fé í rannsóknarsjóði til að stuðla aö nýjum atvinnutækifær- um og ætlar auk þess aö senda fá- tækum útgerðarmönnum styrki til að þeir geti haldið úti taprekstri í sjávarútvegi. Verður þá svo komið fyrir tveim aöalundirstöðuat- vinnugreinum íslendinga, land- búnaði og fiskveiðum, að báöar era þær komnar á ríkisjötuna og flokk- ast undir félagsleg velferðarmál. Þetta er auðvitaö ekki glæsileg staða þegar þjóðin þarf að borga með sér til að halda vinnunni. En íslendingum er ekki fisjað saman og meðan ríkissfiómin ætl- ar aö styrkja útgerðina, ætlar Reykjavíkurborg að styrkja listina og þá einkum hina alþjóðlegu hhð hennar. Frá því hefúr verið skýrt nýlega aö Reykjavíkurborg hyggist reisa alþjóðlegt hstasafn á rústum gömlu Korpúlfsstaðanna. Þess er skemmst að minnast að borgin reisti Perluna vegna hins hstræna útsýnis og borgin byggði ráðhúsið vegna hins hstræna úthts en bæði þessi hús þykja mikið augnayndi, eftir því hvort horft er á þau eða úr þeim. Næsta hstræna framlagiö er sem sagt ráðgert á Korpúlfsstööum og endurbygging bæjarhússins á að kosta einn og hálfan milijarð króna, sem borginni finnst ekki mikið eftir að hafa fiármagnað baeði ráöhús og Perlu fyrir helm- ingi meira fé. Ástæðan fyrir þessu myndarlega og rausnarlega framtaki Reykja- víkurborgar er gjöf hstamannsins Errós, sem fyrir nokkrum árum afhenti Reykjavikurborg ótöluleg- an fiölda af hstaverkum, sem hsta- maðurinn var í vandræðum með. Erró ku hafa þann háttinn á í list sinni að verksmiðjuframleiöa mál- verkin með þeim hætti að bafa ódýran vinnukraft á sínum snær- um til að khppa og líma og mála þaö sem listamaðurinn sjáifur nær ekki að afkasta. Þetta er nútíma færibandaaðferð í listgreininni og nýstárleg að því leyti að hstamað- urinn þarf þá ekki sjálfur að vinna að sínum hstaverkum. Það gefur augaleið að list, sem unnin er af slíkri hagræðingu og hagkvæmni, er afkastamikil og fyr- ir vikið hrannast hstaverkin upp og era í rauninni fyrir, ef þau selj- ast ekki. Þegar framboðið tfiá Erró var orðið meira en eftirspumin var ekki annaö ráð en að losa sig við framleiðsluna og þá var það þjóðr- áð að snúa sér til forráðamanna Reykjavíkurborgar, sem kunna að meta fabrikeraöa list og gjafinhdi Errós. Erró bjó við það vandamál að hafa ofiramleitt, eins og bændum- ir, sem sifia uppi meö óseljanlegar birgðir af kjöti og nfiólk en ifióta þess þó umfram listamanninn að fá offramleiðsluna bætta frá ríkinu. Erró verður hins vegar að bera kostnaöinn sjálfur af því fram- leiðslumagni sem ekki fást kaup- endur að og það getur verið dýrt spaug fyrir fátækan hstamann. Gjöfin frá Erró var ókeypis og slíkur rausnarskapur kemur sér vel, nema þegar svo iha stendur á að gjafimar era svo fyrirferðar- miklar að það verður að byggja utan um þær hús. Einhvers staðar verður að geyma þessa dýrgripi sem ekki ganga út og Reykavíkur- borg er svo heppin að eiga Korp- úlfsstaði, sem era kjörið safnhús þegar búið er að gera Korpúlfsstaði upp. Nú hefur sem sagt'borgarráö samþykkt mótatkvæðalaust að veija einum og hálfum mihjarði í viðhald á Korpúlfsstöðum og slær þannig margar flugur í einu höggi. I fyrsta lagi að hýsa ómetanleg og óseljanleg listaverk eftir Erró. í öðra lagi að reisa alþjóðlegt hsta- safn th aö hæna útlendinga upp í Mosfellssveit og svo í þriðja lagi að styrkja þá nýju atvinnugrein í borginni sem felst í því að byggja sýningarhús fyrir þá peninga sem borgin á afgangs. Þegar aht er í skralh í fram- leiðsluatvinnugreinunum er um aö gera að efla hstina og menninguna og byggja nógu stór og vegleg hús fyrir listaverkin, sem okkur hafa hlotnast frá hstamönnum sem hafa þá praktísku gjafmhdi th að bera að losa sig við þá framleiðslu sem ekki gengur út. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.