Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1992, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1992, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992. 5 Fréttir Minni og hugsun sjö- tugra og eldri kannað „TUgangurinn með þessari rann- sókn er að kanna áhrif aldurs á taugakerfið. Við athugum minni og hugsun allra sem náð hafa sjötugs- aldri á tveim svæðum, í Skagafirði og á Snæfellsnesi," sagði Grétar Guð- mundsson, sem er sérfræðingur í taugalækningum á Landspítalan- um. Hópur sérfræðinga stendur fyrir rannsókn sem verið er að vinna á öldruðum á ofangreindum svæðum. Rannsóknin beinist að því að athuga minni og hugsun gamla fólksins. Hópurinn, sem stendur á bak við rannsóknina, hefur einnig unnið að svipuðum athugunum á öldruðum sem komið hafa á Landspítalann. „Rannsóknin fer þannig fram að stöðluð próf eru lögð fyrir fóikið heima hjá því eða á viðkomandi heil- brigðisstofnunum, eftir því sem við- komandi vill. Því er einnig í sjálfs- vald sett hvort það tekur þátt eða ekki. Við förum einungis fram á að gera þessa athugun hjá öllum sem hafa náð sjötíu ára aldri.“ Grétar sagði að undirbúningur að þessari rannsókn hefði farið af stað síðastliðið haust. í júlí hefðu prófan- imar svo hafist. Gert væri ráð fyrir að úrvinnsla gagna hæfist í haust. „Það þarf að vega og meta þessi próf og bera þau saman innbyrðis, þannig að það fer þó nokkur tími í að lesa úr lausnunum. Þessi svæði voru valin vegna þess að einhveijir í rannsóknarhópnum þekkja til á þeim. Prófunum er nú lokið á Snæ- fellsnesi og þar var þátttaka rúm 72 prósent. í Skagafirði er rannsóknin vel á veg komin.“ Grétar sagði að tilgangurinn með Lögreglan í Reykjavik lenti í eltinga- leik við hross á götum borgarinnar síðastliðið mánudagskvöld. Hrossið hafði sloppið frá eiganda sínum. Eltingaleikurinn hófst á Miklubraut og endaði við Grímsbæ á Bústaða- vegi. Hér eru lögreglumenn búnir að handsama hrossið. Ungir vegfar- endur fylgjast kappsfullir með. Hrossinu var síðan komið til réttra aðila. DV-mynd S Ófærttil Neskaup- staðarum tíma Hjörvar Siguijónssan, DV, Neskaupstað: Ekki var hægt að komast til eða frá Neskaupstað akandi í gær þar sem brúnni yfir Norðfjarðará var lokað vegna viðgerðar Vegagerðarinnar á Reyðarfirði. Vegagerðin lét leggja veg með fjór- um rörum á stokkum yfir ána en Vegagerðarmenn hafa greinilega ekki gert ráð fyrir því sem gerðist á þriðjudag og aðfaranótt miðviku- dagsins. Þá fór að rigna og flæddi áin yfir hluta vegarins - skörð komu í hann og varð hann ófær svo að bílar þurftu frá að hverfa. Þegar síðast fréttist var verið að koma þessum samgöngumálum í lag. athuguninni væri að sjá hvert and- legt ástand fólks á aldrinum sjötugt og upp úr væri. Hún ætti að gefa nokkra mynd af því hvemig ástandið væri í þjóðfélaginu í heild. Þá væri einnig hægt að finna út hvort ein- hveijir á þessum aldri þyrftu á ein- hvers konar aðstoð að halda, sem gæti verið af ýmiss konar tagi. Ef talin væri þörf á slíku yrði viðkom- andi einstakhngum boðið upp á slíka aðstoð. Niðurstöðurnar ættu einnig að geta komið að gagni þeim sem skipulegðu heilbrigðismálin í heild sinni. -JSS Orkuríkt ekta rjómasúkkulaði dásamlegar rúsínur Ijúffengar hnetur karamella stökkt kex ómótstæðilegt... • • • góður göngutúr, fallegt umhverfi, djúp laut, skemmtilegur ferðafélagi, Picnic með hnetum, rúsínum, hnausþykkum súkkulaðihjúp og stökku kexi. Heildsölubirgðir og dreifing Nói-Síríus, Barónsstíg 2, Reykjavík, pósthólf 5074

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.