Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Qupperneq 2
20
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
Tíska
Vetrarlitimir í förðun:
Rauðar varir og
sterklituð augu
Vetrarlitimir í snyrtivörum vekja
alltaf forvitni og flestum finnst
gaman að bæta við sig nýjum litum
eftir árstíðum. í haust og vetur ber
mikið á dökkum varalitum í rauðu
og bleiku. DV fékk Ingibjörgu Dal-
berg á snyrtistofunni Mæju til að
farða tvær konur í nýju litunum.
Ingibjörg notar nær eingöngu
Estée Laufler snyrtivörur á sinni
stofu og eru báðar fyrirsætumar
farðaðar með þeim litum. Ingibjörg
hefur unnið til íslandsmeistaratitla
í förðun og Norðurlandameistara-
titil í hugarflugsfórðun (Fantasy
Make Up)
Fyrst settist í stólinn hjá Ingi-
björgu Hjördís Benjamínsdóttir.
Hjördís er 41 árs verslunarmaður
og fjögurra bama móðir.
Ingibjörg notar sérstakan farða
til að bera kringum augun. Farðinn
er fljótandi og settar eru þijár
doppur umhverfis augun, ein við
nefrót, önnur undir augað fyrir
miðju og sú þriðja við enda aug-
ans. Dregið er létt úr farðanum og
hann látinn hylja bauga og línur.
Ingibjörg leggur áherslu á aö
meikið sé valið með tilliti til húðlit-
ar, ekki of dökkt eða of ljóst. Best
sé að bera hann við kjálkann því
þar sést hann best með tilliti til
húðhts á hálsi og andliti. Ekki er
nóg að prófa litinn á handarbakinu
því það er oft öðmvísi á htinn.
Farðinn á andlitinu á að deyfast
út niður eftir hálsi. Munið eftir að
bera farðann undir kjálkana. Ingi-
björg segir að sá staður vilji oft
gleymast. Hjördís er ljós yfirlitum
og farðinn því ljós af gerðinni
Demi-Matt.
Augun skipta máli
Eftir að farðinn hefur verið bor-
inn á er tekið til við að mála aug-
un. Hjördís er máluð með grábláu
og gylltu sem eru nýju vetrarlitim-
ir frá Estée Lauder. Fyrst er gyhti
liturinn settur yfir allt augnlokið
og að augabrúnum. Grái liturinn
er í tveimur og tónum og sá dekkri
er notaður til að móta svokallaða
glóbuslínu sem er við augntóftim-
ar. Ingibjörg segir að nú sé málun
glóbuslínunnar í tísku. „Glóbus-
línan kemur og fer í tískunni og
nú er hún vinsæl," segir Ingibjörg.
Hjördís hefur mógrá augu og fil
að draga fram gráa litinn notar
Ingibjörg dökkgráan eyhner th að
undirstrika lögun augnanna og
gráan blýant neðan á augnlok og
fyrir neðan augað. Að lokum er
sett næring á augnhárin og eftir
smábið eru þau máluð með dökk-
brúnum maskara.
Háar auga-
brúnir í tísku
Augabrúnimar er formaðar með
blýanti. Til þess að ná háum auga-
brúnum eins og nú em í tísku er
liturinn settur efst á brúnina og
hún ýkt aðeins ofan frá. Ekki er
htað með einu striki heldur með
mörgum litlum og léttum strikum.
Á kinnar er settur kinnalitur en
mjög htið svo hann verði ekki áber-
andi. Til að deyfa áhrif hans á kinn-
ar enn frekar er sett aðeins sitt
hvorum megin á nefið, á ennið og
hökuna. Ingibjörg segir að kinna-
liturinn sé til þess að konan hti
hraustlega út, eins og eftir létta
göngu.
Varimar mótaðar
Flestar konur vilja ekki vera
Hjördis Benjamínsdóttir áður. Edda Björg Sigmarsdóttir áður.
áberandi málaðar á daginn. Um
leið og maður hikar aðeins og hugs-
ar að nú sé komið nóg á að hætta.
„Yfirleitt sér maður sjálfur hvenær
farið er yfir strikið í fórðuninni,“
segir Ingibjörg.
Til þess að móta varimar er not-
aður blýantur. Ingibjörg gerir fyrst
fimm punkta og dregur hnuna svo
á milh þeirra. Punktarnir em efst
á bogunum 'báðum megin, fyrir
miðju á neðri vör og á munnvik.
Dragið línuna eins utarlega með
vömnum og mögulegt er án þess
að fara út fyrir. Línan er dregin
með Deep Red blýanti og hturinn
er AU Day Taffeta frá Estée Laud-
er. Varaliturinn er penslaður á og
alveg upp að hnunni en ekki yfir
hana.
Engar varir em eins báðum meg-
in frekar en augu og augabrúnir.
Ingibjörg ráðleggur konum að
reyna ekki að laga skekkjuna með
blýanti og varaht. „Enginn sér
muninn og það fyrsta sem fólki
dettur í hug er að konan hafi málað
út fyrir,“ segir hún.
Dag- og kvöldförðun
Hjördís er máluð dagíörðun og
það eina sem hún þarf að gera th
að breyta henni í kvöldfórðun er
að nota meiri augnskugga og sterk-
an varaht. Ingibjörg segir að konur
með bláleita húð verði að forðast
varaliti með rauðbláum blæ.
Næst tók Ingibjörg th við að farða
Eddu Björg Sigmarsdóttur. Edda
Ingibjörg setur sérstakan farða í
kringum augun. Fyrst eru gerðar
þrjár doppur og siðan er dregið
úr farðanum.
er 20 ára gömul og við forðun á
henni gilda önnur lögmál. „Ungar
konur geta leyft sér að faröa sig
meira og í sterkari htum en þær
eldri,“ segir Ingibjörg. Hún hreins-
ar húðina fyrst og ber fitulaust
dagkrem á andhtið en minnst á
höku, enni og nef. Eddu hentar
önnur tegund af farða frá Esteé
Lauder eða Lucidity. Um tíma var
mikið um að yngri stúlkur notuðu
mjög ljósa hti og jafnvel ljósari en
þeirra eigin húðht. „Það gengur
ahs ekki fyrir konur sem eru eldri
en 25 ára. Þær verða einfaldlega
of draugalegar með mjög ljóst
meik,“ segir Ingibjörg.
Allar línur upp á við
Förðun Eddu er að mestu leyti
eins og fórðun Hjördísar. Ingibjörg
notar aldrei svamp því hún segir
að hann dragi jafnmikið af farðan-
um til sín og fari á andlitið. Meikið
er mjög dýrt og gott að svampur
erónauðsynlegur. „íleikhúsförðun
myndi ég helst nota svamp," segir
hún.
Edda fær aðra hti í nýju haustht-
unum frá Estée Lauder, það er
brúnt og bleikt. Það á aldrei að
nota bleika liti nálægt augunum
sjálfum því þá virka hvarmarnir
rauðir, segir Ingibjörg og setur
hann fyrir ofan augnlok. Hún notar
tvö afbrigði af brúna htnum á
augnlokið og þann dekkri th að
draga fram glóbuslínuna. Næring
er líka sett á augnahár Eddu en þá
virka augnhárin þéttari eftir að
þau hafa verið máluð. Edda þolir
vel svart og fær þvi svartan eyliner
á augnlokin. Ingibjörg dregur lit-
inn upp þvi þá sýnist Edda glað-
legri. „Ahar línur, sem eru dregnar
niður, gera mann þungbúinn," seg-
ir Ingibjörg.
Edda er máluð með svörtum
maskara og síðan er augabrúnun-
um lyft með því að hta þær aðeins
að ofan. Að lokum er varirnar
málaðar. Fyrst er dregin lína og
síðan er htnum, Ah Day Circus
Pink, penslað á varirnar að hnun-
um.
„Konur eldri en þrítugt verða að
huga vel að fórðuninni. Þegar öhu
er á botninn hvolft er mottóið að
minna gerir meira,“ segir Ingibjörg
Dalberg.
-JJ