Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1992, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1992, Side 1
' ' ' ; Vinur Errós í 35 ár - segir Jean-Jaques Lebel sem sýnir að Kjarvalsstöðum Jean-Jaques Lebel, sem opnar sýn- ingu í austursal Kjarvalsstaöa á morgun, gekk í myndlistarskóla með Erró á sínum tíma í Frakklandi. „Erró hefur verið mér sem bróðir í 35 ár og við framkvæmdum nokkra gjörninga saman á sínum tíma. Þetta er fyrsta sýning mín á íslandi en ég hef oft verið hér. Til þess að skilja vin minn Erró varð ég að reyna að skiija menningu íslendinga," segir Lebel Verkin á þessari sýningu eru frá árunum 1958-1963 og frá árunum 1982-1990. Á sýningunni eru um 30 verk, öll nema tvö frá sjöunda ára- tugnum. „Mesta breytingin í list minni eru fleiri þrívíddarverk í stað t.d khppimynda og gerninga." Lebel hefur verið talinn bæði fnnnlegur og djarfur listamaður og hann var . einn af upphafsmönnum geminga og uppákoma í Evrópu á sjöunda ára- tugnum og starfaði mikið með Flux- ushreyfingunni. Hann er róttækur í skoðunum og um 1968 sneri hann sér svo til eingöngu að stjórnmálum og var í fararbroddi myndlistarmanna sem studdu 68 hreyfinguna í Frakk- landi. Á síðustu árum hefur hann aftur snúið sér að nýju að myndlist- inni. List var sem hver önnur matvara „Mikið af mínum listaverkum miða að því að fólk geti tekið þátt í því að upplifa hana í stað þess að láta mata sig á henni eins og hveiju öðm sjón- varpsefni. Fólkið verður að vera hluti af því sem er að gerast í list- inni. Á sjöunda áratugnum vom gerningar mjög vinsælir og fólk mót- mælti því harðlega að listin væri lok- uð inni á söfnum. Gemingarnir breiddust hratt út um allan heim. Fólki fannst listin hafa staðnað og orðin eins og hver önnur vara sem seld er í matvömbúð. í raun og veru þurftu listamenn að framleiða ná- kvæmlega það sem sölumönnum og safnafólki líkaði. Þeir voru sviptir sköpunarfrelsinu. í þessari heim- sókn til íslands ætlum við ekki að framkvæma geminga en hver veit nema það gerist síðar,“ segir Jean Jaques Lebel að lokum. Sýningin er opin daglega frá kl. 10- 28 og stendur fram til 13. desember. Myndir fyrir böm í Hafnarborg: Úr fimm ís- lenskum bamabókum Á morgun verður opnuð sýning í Hafnarborg, menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar. Þar verða sýndar myndir úr nýjum íslenskum barnabókum eftir listamennina Gylfa Gíslason, Sigrúnu Eldjám og Tryggva Ólafsson. Myndimar eru unnar úr fimm bókum og er efni þeirra fjölbreytt: þjóðsögm:, gaman- ljóð, saga af íslenskum krökkum, sem fara til Afríku, og ljóð rnn litina. Sigrún Eldjárn hefur myndskreytt Heimskringlu og einnig Sól skín á krakka. Gylfi Gíslason teiknaði Sál- ina hans Jóns míns og Sögima af Gýpu. Litrím er árangurinn af sam- vinnu Tryggva Ólafssonar og Þórar- ins Eldjáms. Á sýningunni er að finna myndir úr þessum bókum. Sýningin er sérstaklega sniðin fyrir bömin og gefst þeim kostur á að kynnast myndunum og textanum, sem þær tengjast, á ýmsan hátt. Sýn- ingin er opin aila daga nema þriðju- daga og stendur fram til mánaða- móta. Jean-Jaques Lebel ásamt tveimur mjög frumlegum listaverkum sínum. DV-mynd Brynjar Gauti Spænsk ljóð í Norræna húsinu Gylfi Gíslason og Sigrún Eldjárn eiga teikningar á sýningunni. Um þessar mundir kemur út á ís- lensku úrval spænskra ljóða 1900- 1992 í þýðingu Guðbergs Bergssonar. Bókin nefnist Hið eilífa þroskar djúp- in sín og er gefm út af Forlaginu. Að því tilefni munu leikaramir Hjalti Rögnvaldsson og Geirlaug Þorválds- dóttir, ásamt Guðbergi Bergssyni, lesa upp ljóð úr bókinni á síðdegis- samkomu í Norræna húsinu laugar- daginn 21. nóvember nk. Símon ívarsson mim jafnframt leika á gítar tónlist eftir spænskt tónskáld. Dag- skráin hefst kl. 15.00. Það eru mikil tíðindi þegar úrval spænskra nútímaljóða kemur loks fyir sjónir íslenskra ljóðaunnenda í þýðingu þess manns sem unnið hefur manna mest að þvi að kynna spænskar bókmenntir á íslandi. Úr- valið hefur að geyma um 170 ljóð eft- ir 52 ljóðskáld. Því er skipt í fjóra meginkafla sem markast af tíma- skeiðum og ritar Guðbergm- Bergs- son formála að hveijum kafla þar sem hann gerir grein fyrir þvi tíma- Spænsk Ijóð verða leikin og lesin í Norræna húsinu kl. 15 á laugardag. bili sem um ræðir. Hveiju skáldi fylgir auk þess æviágrip og lýsing á helstu einkennum þess eða viðhorf- um á sviði ljóölistar. Kráa- r • á Hressó -sjábls. 18 Ljos- mynda- verká Sóloni íslandus -sjábls. 20 Kórstarf í Hamra- hlíð 25 ára -sjábls. 21 íþrótta- viðburöirl helgar- innar -sjábls. 23 Hvemig verður helgar- veðrið? - sjá bls. 24 Lifandi tengdur -sjábls. 22 Lucia di Lammer- moor -sjábls. 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.