Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1993, Page 8
28
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1993.
Iþróttir
Knattspyrna:
frá AC Milan?
Franski knattspymumaðurinn
Jean-Plerre Papin sagði í sjón-
varpsviötaii í Frakklandi í gær
að svo kynni að íara að hann
sneri aftur til Frakklands og
hætti að leika fyrir ítalska stór-
liðiö AC Milan.
Papin kom til Milan á síðasta
ári og hefur átt í erflðleikum með
að tryggja sér fast sæti í liði þess.
Papin sagði að eina franska liðið,
sera hefði haft samband við sig,
væri Paris Saint Germain. „Ef
staðan verður sú sama í lok
keppnistímabilsins og hún er nú
hjá Milan er best fyrir alla að ég
fari frá félaginu." Og hann bætti
því við að ef hann hefði grunað
að sex erlendir leikmenn myndu
keppa um stöður í liði Milan hefði
hann aldrei farið þangað.
*SR
Knattspyrna:
Platt braggast
David Platt, leikmaður Juvent-
us og enska landsliðsins, er á
góðum batavegi eftir aö hafa átt
við þrálát meiðsli að stríða síðan
i nóvember.
í gær gekkst Platt undir rann-
sókn og var útkoman það góð að
ætla má að hann verði kominn á
fuila ferð með Juventus eftir 10
daga. En það eru ekki einungis
forráðamenn Juventus sem kæt-
ast við þessi tíöindi heldur einnig
Graham Taylor, landshðsþjálfari
Englendinga.
-SK
Frjálsaríþróttir:
brenndist illa
Einn þekktasti íþróttamaður
Kúbu, fxjálsíþróttakonan Ana
Fidelia Quirot, er illa haldin
vegna brunasára sem hún hlaut
er kviknaði í heimili hennar um
helgina.
Quirot vann bronsverðlaun á
síðustu ólympíuieikum í 800
metra hlaupi kvenna og hafnaði
í öðru sæti á heimsrneistaramót-
inu í Tokyo 1991 í sömu grein.
Brunasár þekja 38% af líkama
hlaupakonunnar sem er ófrísk og
komin sjö mánuði á leið. Læknar
unnu höröum höndum viö aö
bjarga lifi Quirots og barnsins og
voru taldar góðar lí kur á því i gær
að það tækist.
-SK
Skautahlaup:
„Kossinn“á
nýju heimsmeti
Norski skautahlauparinn Jo-
hann-Olav Koss setti um helgina
nýtt heimsmet í 5000 metra
skautahlaupi á Evrópumótinu í
skautahlaupi sem frarn fór i Hol-
landi.
Norski „Kossinn" hljópá 6.38,77
mín. en hann átti sjálfur eldra
heimsmetið sem var 6.41,73 mín.
-SK
Knattspyrna:
Sammer heim
Þýski knattspymumaðurinn
Matthias Sammer er á heimleið
eftir stutta dvöl hjá italska liðinu
Inter Milan. Sammer mun leika
með Borussia Dortmund.
Sammer átti í basli með að
vinna sér fast sæti hjá Inter og
einnig með að læra ítölskuna.
Samkomulag félaganna liggur
fyrir ogbaraeftir að skrifa undir.
-SK
DV
Frjálsaríþróttir:
Krabbe léttist
Þýska ffjálsiþróttakonan Katr-
in Krabbe vonast eftir því að
verða leyst úr keppnisbanni í
næsta mánuði þegar áfrýjun
hennar verður tekin fyrir í
heimalandi hennar en þýska
frjálsíþróttasambandið dæmdi
liana sem kunnugt er í keppnis-
bann vegna lyfjanotkunar sem
aldrei hefur verið söimuð.
Krabbe æflr nú aðeins tvisvar
í viku og hefur lést um 5 kiló.
„Alltaf þegar ég minnka við mig
æfingar grennist ég og þá fyrst á
fótunum. Ég vonast til að losna
úr banninu 1 næsta mánuði en
er ekki bjartsýn á að ég verði
komin í fulla æflngu fyrir HM í
Stuttgart," sagöi Krabbe í gær,
-SK
Knattspyma:
Sameinastlið
á Austurlandi?
Forvitnileg grein birtist í síð-
asta tölublaði Snæfells sem Ung-
menna- og íþróttasamband Aust-
urlands, UÍA, gefur út. Þar ritar
Guðmundur Bjamason grein um
stöðu austfirskrar knattspyrnu.
Guömundur veltir því fyrir sér
hvernig standi á því að staða
Austfirðinga í mfL karla sé ekki
betri en raun ber vitni. Á einum
stað segir í grein Guðmundar:
„Aftur á móti teldi ég forvitnilegt
að kanna þann möguleika aö þrjú
áðurnefhd félög (Austri, Valur og
Þróttur) sameinuðust og þá væri
e.tv. raunhæfur möguleiki að
búa til lið sem gæti staðið sig í
1. deild."
-SK
Sund:
Nýttheimsmet
hjá Sievinen
ífjórsundi
Finnski sundmaðurinn Jani
Sievinen setti um helgina nýtt
heimsmet i 200 metra fjórsundi.
Metiö setti Sievinen á finnska
meistaramótinu en hann synti á
1.56,84 mín. Hann átti sjálfur
eldra heimsmetið í greininni en
það var 1.57,19 mín. Sievinen setti
metið í 25 metra langri laug.
-SK
Rallakstur:
Áhorfandi lést
Jean Meunier, 73 ára gamali
franskur áhugamaður um rall-
akstur, lét lifið um helgina er
hann var að fylgjast með Monte
Carlo rallinu.
Landi hans, rallökumaðurinn
Jean-Pierre Ballet, ók á Meunier,
sem var fluttur á sjúkrahús með
þyrlu. Þar lést hann hálftíma síð-
ar úr hjartaáfaili. Áhorfendur
eru oft ótrúlega nærri keppnisbíl-
um á alþjóðlegum rallkeppnum
og undarlegt að slys skuli ekki
vera algengari en raun ber vitni.
-SK
Knattspyma:
Dapurt afmæli
hjá Kanchelskis
Úkraínumaðurinn í liði Manch-
ester United, Andrei Kanchelsk-
is, lék ekki með United er liðið
sigraði Brighton f bikarkeppn-
inni á laugardag.
Kanchelskis eyddi laugardegin-
um, en þá varð hann 24 ára gam-
all, á sjúkrahúsi við hlið konu
sinnar sem var komin sjö mánuði
á leið er barn þeirra dó á fóstu-
daginn.
-SK
Broddi Kristjánsson stóð sig best af leikmönnum íslenska liðsins á Evrópumóti b-þjóða i Austurríki og tapaði ekki
leik á mótinu.
Evrópukeppni b-þjóða í badminton:
Broddi góður
og sigraði alla
Síslenska landsliöið í
badminton hafnaði í 11.
sæti á Evrópumóti b-þjóða
sem lauk í Austurríki um
helgina. íslenska liðið lék sex leiki á
mótinu, sigraði í tveimur þeirra en
fjórir leikir töpuðust.
íslenska Uðið sigraði Ungverja 5-2
og Belga 6-1. Leikimir gegn Frökk-
um og Búlgörum töpuðust báðir
naumlega, 3-4. Einnig töpuðust leik-
irnir gegn Svisslendingum og
Walesbúum, báðir 2-5.
Broddi stóð upp úr í íslenska liðinu
á mótinu og sigraði i öllum leikjum
sínum og er það mjög góður árangur.
„Áttum von á
betri árangri“
„Fyrir mótið gerðum við okkur vonir
um nokkuð betri árangur og við
eygðum möguleika á sigrum gegn
Frökkum og Búlgörum. Broddi stóð
sig frábærlega á mótinu en kvenna-
liöið var óheppið og lagðist allt
kvennaliðið í flensu. I slíku ástandi
á kvennaliðið ekki möguleika gegn
andstæðingum sínum," sagði Sigríð-
ur M. Jónsdóttir, formaður Badmin-
tonsambands íslands, í samtali við
DV í gær.
-SK
Afmælismót Júdósambands íslands:
Enginn ógnar Bjarna
Bjami Friöriksson vann tvöfaldan sigur að venju
Bjarni Friðriksson,
júdókappi í Ármanni, er
enn ósigrandi í júdóinu.
Það sýndi Bjami um
helgina en þá sigraði
hann á afmælismóti
Júdósambands íslands í
-95 kg flokki og opnum
flokki.
Ármenningar voru sig-
ursælir á mótinu en
keppt var í karlaflokki og
meðal karla 21 árs og
yngri. Hér koma úrslitin,
fyrst í karlaflokki:
Höskuldur Einarsson,
Armanni, sigraði í -60 kg
flokki og Baldur Stefáns-
son, KA, í -65 kg flokki.
ívar Þorsteinsson, Ár-
manni, vann sigur í -71
kg flokki og Freyr Gauti
Sigmundsson, KA, í -78
kg flokki. Rögnvaldur
Guðmundsson bar sigur
úr býtum í -86 kg flokki,
Bjami í -95 kg flokki og
opnum flokki og Sigurð-
ur Bergmann, UMFG, í
+95 kg flokki.
Hjá körlum undir 21 árs
sigraði Rúnar Snæland,
KA, í -60 kg flokki, Hauk-
ur Garðarsson, Þrótti, í
-65 kg flokki, Ari Sigfús-
son, Ármanni, í -78 kg
flokki og Jón Gunnar
Björgvinsson, Ármanni, í
-86 kg flokki.
Keppendur á mótinu
voru 50 og komu þeir frá
5 félögum.
-SK