Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1993, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR1993
23
Bikarúrslit kvenna 1 körfuknattleik:
ÍBK meistari
í fjórða sinn
Keflavík er bikarmeistari
kvenna í körfuknattleik 1993, eftir
sigur á KR, 58-54, á laugardaginn.
Keflavík náði góðri byrjun og
komst í 5-0 í upphafi leiksins, en
KR náði að komast inn í leikinn og
jafna, 5-5. Jafnraeði var með liðun-
um í fyrri hálfleiknum en skömmu
fyrir leikhié náði ÍBK fimm stiga
forskoti á ný og var staðan 32-27 í
hálfleik. Keflavík jók forskotið í
upphafi seinni hálfleiks og náði KR
aldrei að jafna þann mun og urðu
þær að játa sig sigraðar, 58-54.
Leikurinn var ágætlega leikinn
hjá báðum liðum. Nokkurrar
taugaveiklunar gætti í upphafi
leiksins en bæði lið náðu að taka
sig saman í andlitinu um miðjan
háifleikinn. Sigur Keflavíkur var
sanngjam þegar upp var staðið og
þær sýndu það í þessum leik að þær
eru með besta kvennalið landsins
í dag.
Olga öflug
í sókninni
Guðlaug Sveinsdóttir, Elínborg
Herbertsdóttir og Olga Færseth
voru bestu leikmenn Keflavíkur-
liðsins. Guðlaug og Elinborg léku
sérstaklega vel í vöminni, Guðlaug
stai boltanum sjö sinnum og Elin-
borg hirti 12 fráköst. Olga var öflug
í sókninni og skoraði 18 stig.
Guðbjörg Norðfjörð og Anna
Gunnarsdóttir vom bestar í liði
KR. Anna skoraði 11 stig og var
mjög sterk í vamarleiknum. Guð-
björg var allt í öllu, skoraði 18 stig
og lék mjög vel í vöminni.
Leifur Garðarsson og Brynjar
Þór Þorsteinsson dæmdu leikhm
og komust vel frá sínu.
-ih
Iþróttir
„Stefndum að sigri“
„Ég hef tapað þremur síðustu bik-
arleikjum í röð í fótboltanum og
körfunni svo það kom ekkert annað
til greina en að vinna núna,“ sagði
Olga Færseth, stigahæsti leikmaður
Keflavíkur, í samtaii við DV.
„Þær stóðu í okkur í fyrri hálfleik
en í leikhléinu rifjuðum við upp
bikarleikinn frá í fyrra og vorum
staðráðnar í að láta hann ekki end-
urtaka sig,“ sagði Olga.
Sigurður Ingimundarson
„Þetta var skemmtilegur leikur
eins og bikarúrslitaleikir em oftast
nær. Bikarúrslit ráðast oft af
stemningunni. Okkur tókst að ná
góðu forskoti í seinni hálfleik og
héldum haus eftir það,“ sagði Sig-
urður Ingimundarson, þjálfari
ÍBK.
Guðbjörg Norðfjörð
„Við vorum loksins að spila eins
og við eigum að gera, þannig að við
náðum að hanga í þeim allan leik-
inn. Það reiknuðu allir með því að
þær myndu sigra svo við erum í
sjálfu sér ekkert óánægðar og ósk-
mn þeim til hamingju með sigur-
inn,“ sagði Guðbjörg Norðíjörð,
besti leikmaður KR.
Stefán Arnarson
„Ég er svekktur með að hafa tapað.
Við höfum stefnt markvisst að
þessum leik alveg frá því í 8-liða
úrslitunum. Ég ætlaði mér að kom-
ast alla leið. Ég notaði alla leik-
mennina í fyrri hálfleik og við lent-
um því ekki í villuvandræðum en
eftir slæman kafla undir lok fyrri
hálfleiks náöum við þeim ekki,“
sagöi Stefán Amarsson, þjálfari
KR. -ih
Björg Hafsteinsdóttir, fyrirliði Keflavíkur, hampaði bikarnum kampakát
eftir bikarúrslitaleik við fyrrum félaga sína i KR á laugardag.
DV-mynd GS
Kristín Arnþórsdóttir, fyrirliði Vals, með sigurlaunin eftir sigur Vals gegn
Stjörnunni í mögnuðum úrslitaleik. DV-mynd GS
Bikarúrslitaleikur kvenna:
Valur meistari
í háspennuleik
Valiu- og Sijaman áttust við í
úrslitiun bikarkeppni kvenna í
gærkvöldi og fór Valur með sigur
af hólmi, 25-23, í tvíframlengdum
leik. Jafnt var í leikslok, 19-19, og
21-21 eftir fyrri framlenginguna.
Leikurinn var jafn og spennandi,
einhver mesti spennuleikur í bik-
arúrslitum um árabil. Fyrri hálf-
leikur var jafn og hálfleikstölur
10-8 fyrir Val. í síðari hálfleik tóku
Sljömustúlkur Irenu Skorobogaty-
iktt úr umferð en þá losnaði um
Guðrúnu Kristjánsdóttur og
Hönnu Katrínu Frederiksen, sem
skomðu grimmt. Stjaman var yfir,
18-19, þegar ein mínúta var til
leiksloka en Guðrún jafnaði þegar
hálf mínúta var eftir. Á lokasek-
únduniun fékk Stjaman tækifæri á
að tryggja sér sigurinn en náðu
ekki skoti á markið. Jafnt var með
liðunum í fyrri framlengingunni
og framlengja þurfti því aftur til
að úrslit fengjust. Valur náði imdir-
tökunum með góðri vöm og
ákveðnum sóknarleik. Þær Guð-
rún og Hanna Katrín skomðu mik-
ilvæg mörk undir lok leiksins og
tryggði Val bikarmeistaratitilinn.
Liðsheildin var sterk hjá Val og
áttu þær Hanna Katrín og Guðrún
mjög góðan leik, Amheiður Hregg-
viðsdóttir, markvörður Vals, varði
alls 10/1 skot. í Uði Stjömunnar
áttu þær Ragnheiður Stephensem,
Una Steinsdóttir og Guðný Gunn-
steinsdóttir góðan leik. Nina
Getsko markvörður varði alls 13
skot.
Ágætir dómarar leiksins vom
Kristján Þór Sveinsson og Þorlákur
Kjartanssson.
Mörk Vals: Hanna Katrín 9/6, Guð-
rún 6, Sigurbjörg 3, Kristín 3, Írína
3 og Eivor 1. Mörk Stjömunnar:
Una 8/4, Ragnheiður 7/5, Guðný 4,
Sigrún 2, Ingibjörg A. 1 og Margrét
„StórkosUeg barátta"
„Leikir á móti Stjömunni hafa
alltaf verið erfiðir, við náðum að
stöðva hraðaupphlaup þeirra og
náðum upp frábærri vöm og stór-
kostlegri baráttu og sigurinn
vannst á grimmdinni," sagði Krist-
ín Amþórsdóttir, fyrirhði Vals,
sem lagði skóna á hilluna í bili eft-
ir leikinn vegna þungunar.
„Þetta var mjög erfiður leikur og
erfiðast fannst mér að spila fram-
lengingamar. Þetta var sigur liös-
heildarinnar, allir spiluðu vel,“
sagði Írína, þjálfari Vals.
„Urrrr... við brenndum af mik-
ilvægum dauðafærum undir lokin
og þetta var mínútuspursmál. Þær
vom sterkari í lokin,“ sagði Guðný
Gunnsteinsdóttir, fyrirliði Stjöm-
unnar. „Þetta var jafn leikur og við
nýttum ekki færin í lokin þegar
mest lá á,“ sagði Magnús Teitsson,
þjálfari Stjömunnar.
-HS