Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1993, Page 4
30 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993. Tónlist Gestasveitir á Músíktil- raunum Óöum styttist í aö Músiktil- raunir Tónabæjar heQist. Fyrsta undanitrslitakvöldiö verður 18. mars og lokakeppnin fer tram fóstudagskvöldið 2. apríl. Ákveö- ið hefur verið hvaða gestahljóm- sveitir koma fram á Músíktil- raunum í ár. Á undanúrslita- kvöldunum spila KK-band, Org- ill. Kolrassa krókríðandi og Jet Black Joe. SSSól kemur síðan fram á lokakvöldinu. - Kolrassa krókríðandi sigraöi sem kunnugt er í Músíktilraununum í fyrra. Veglegverð- laun Hljómsvcitimar, sem standa sig best í Músiktilraununum, fá góð verðlaun. Sigurvegarinn fær 25 upptökutima í Stúdíó Sýrlandi. Hljómsveitin í öðru sæti fær 25 tíma í Grjótnánuinm. Sú sem hafnar í þriðja sæti fær tuttugu tima í Hljóðrita og íjórðasætis- ; sveitin fær tuttugu tíma í hljóð- verinu Hljóðhamri. Ýmis auka- verðlaun verða veitt, bæöi bún- aður frá hljóðfæraverslunum og geislaplötur, Þá mun vera áform- að; að velja besta gítarleikara; Músíktilrauna og fær tíann gítar að gjöf. Skráningu í Músðctil- raunir Tónabæjar 1993 lýkur 5. mars. Brautryðjandi ívalinn Bill Grundy, einn af þeim sem ruddu brautina fyrir pönkiö; á sínum tíma, er nú allur á sjötug- asta aldursári. Grundy lagði að visu aldrei stund á pönk en svo var honum fyrir að þakka að Sex Pistols fengu að koma fram í sjón- varpi í fyrsta sinn árið 1976. Þá var Grundy stjómandi sjón- varpsþáttarins Today og hann setti það ekki fyrir sig að hleypa bölvandi og ragnandi pönkurum á skjáinn um það ieyti dags sem flestir Bretar sátu andaktugir við kvöldmatarborðið. Afleiðlngin var þjóðarskandall og í kjölfarið var Grundy settur af. Síðan skein sól heitir nú SSSól o* - plata fyrir erlendan markað er tilbúin og vinna við aðra að hefjast Hljómsveitin Síðan skein sól hefur skipt um nafn. Héðan í frá heitir hún SSSól. Ástæðan fyrir nafnbreyting- unni er sú, að sögn liðsmanna hijóm- sveitarinnar, að nýja nafnið var farið að festast við sveitina eftir að hún sendi frá sér blað með því nafni fyrir síðustu jól. Þar að auki segja þeir að nýja nafnið sé þjálla en það gamla. SSSól er stödd á Norðurlandi þessa dagana við hljómleikahald. í kvöld kemur hún fram á hljómleikum á skemmtistaðnum 1929 á Akureyri og prufúkeyrir þá tónlistina sem aðal- áherslan verður lögð á næsta sumar. Hljómsveitn var með hljómleika á Akureyri í fyrrakvöld og Húsavík í gærkvöld. Hún spilar í Víkurröst á Dalvík annað kvöld og í Miðgarði í Skagafirði á laugardagskvöldið. Þá var hún á Vestfjörðum mn síðustu helgi og fékk þar mjög góðar viðtök- ur. Þá fékk SSSól jafnframt smjörþef- inn af því hversu erfitt er að fara um landið að vetri til og halda hljómleika því að iila gekk að komast heim aftm- eftir helgina. Ný plata SSSól hefur verið í hljóðveri upp á síðkastið við að leggja lokahönd á nýja plötu sem ætlunin er að gefa út í Bretlandi á vegum neðanjarðarút- gáfunnar Deva Records á þessu ári. Útkomu plötunnar fylgir hljómsveit- in eftir með spilamennsku ytra með hækkandi sól. En áður en að því kemur ætlar SSSól að taka upp plötu í fullri lengd fyrir íslenska markaðinn. Hún verð- ur með íslenskum textum og kemur út í vor. Viima við nýju plötuna hefst næstu daga. Erlendur upptökumað- ur kemur til landsins til að verða Sólarmönnum til halds og trausts í hljóðveri. Hann heitir Ian Morrow og er virtur maður í sinni iðn. Til dæmis tók hann upp þá plötu skosku hljómsveitarinnar Wet Wet Wet sem mestum vinsældum hefur náð. SSSól. Nýtt nafn, nýlokið er vinnu við plötu fyrir enskan markað og vinna að hefjast við nýja plötu fyrir aðdáend urna hér á landi. SSSól hefur ekki sent frá sér plötu, sem ætluð er fyrir heimamarkaðinn, í langan tíma þegar undan er skilin tveggja laga platan sem fylgdi blað- inu SSSól. Sú nýja, sem byijað verð- ur að taka upp á næstunni, verður í heiðbundnum stíl hljómsveitarinn- ar. Tónlistin á plötunni, sem unnin var fyrir erlendan markaö, er aftur á móti gjörólík þeirri sem hljómsveit- in hefur fengist við hingað til. Mun þyngri og rokkaðri auk þess sem hún er að sjálfsögðu með enskum textum. Sólarmenn spá því að þessi erlenda plata eigi eftir að koma aðdáendum hljómsveitarinnar verulega á óvart er hún kemur út. -ÁT Plötugagnrýiú Tasmin Archer - Great Expectations ★ ★ ★ Pent popp ogrokk Tasmin Archer og samverkamenn hennar til margra ára, John Hughes og John Beck, koma manni á óvart með allt öðruvísi tónlist en maður væntir af breskum nýliðum. Þama eru ekki rapp-arbarar á ferð, ekkert reif, hipphopp eða annars slags diskó tíunda áratugarins. Bara ósköp milt, hlutlaust og kurteislegt popp og rokk sem maður hélt að Bretinn væri búinn að afneita með öllu. Great Expectations ber þess öll merki að vandað hefúr verið til verka. Og kannski óvenjumikið miðað við að Archer, Beck og Hug- hes hafa ekki unnið til neinna af- reka áður. Sömu upptökustjórar eru við stjómvölinn og á Off the Ground, nýju plötunni með Paul McCartney, og fleiri kunnugleg nöfn úr heimspoppinu koma fyrir í upp- talningu um hljómlistarmenn, söngvara og tæknifóik á umslagi. Gamii Stuðmannatrommarinn Preston Heyman spilar meira að segja slagverkí einu lagi! Tasmin Archer er eðlilega í aðalhlutverki. Hún hefur þokkalega söngrödd. Minnir hér og þar eilítið á Phoebe Snow en er þó alls ekki að stæla neinar gamlar hetjur. Af Great Expectations hefúr lagið Sleeping Satellite slegið í gegn. Það er mest grípandi á plötunni sem reyndar er ákaflega jöfn frá upphafi til enda: þægilegt eymakonfekt en því miður ekkert afgerandi. Og svo- lítið leiðinlegt til lengdar. Ásgeir Tómasson The Bodyguard - Ýmsir: ★ Afspymu- þreyttar klisjur Miklar og viðvarandi vinsældir plötu þurfa eins og kunnugt er alls ekki aö vpra ávísun á gæði. Öðra nær, líkt og platan með tónlist úr kvikmyndinni The Bodyguard sannar. Plata þessi fer nú sigurfor um heimsbyggðina eins og myndin en það er likt á með þeim komið; myndin þykir afspymuslöpp og platan er ekki hótinu skárri. Vissulega skartar platan eins og myndin stjömufansi en það dugir ekki til frekai' en í myndinni, tón- hstin er mestan part máttlaust bank og væl og þessu annars ágæta fólki lítt til framdráttar. Þar fer fremst í flokki aðal„leik- kona“ myndarinnar, Whitney Hous- ton, en því verður þó ekki á móti mælt að sú ágæta kona hefur ein- staka söngrödd. Hún virðist aftur á móti hafa óhemjulélega tónlistar- ráðgjafa í sinni þjónustu og fer að verða kominn tími á að einhver taki sig til og bjargi söngferli þessarar manneskju áður en hann fer endan- lega í svaðið. Það er hreinlega glæp- samleg sóun að láta konu með þessa feiknafallegu rödd syngja jafn inn- antóm niðursuðulög og hún gerir á þessari plötu. En því miður er hún sjálf höfundur eins þeirra og ef lagið boðar það sem koma skal á næstu plötu söngkonunnar er illt í efni. Efni þessarar plötu einkennist annars vegar af dunkandi danstón- hst eins og hún gerist hvað þreytt- ust og hins vegar af sykursætum ballöðum sem gætu fengið harðsvír- uðustu hörkutól til að bogna með grátstafinn í kverkunum. Auk Whitney Houston koma hér við sögu þau Lisa Stansfield, The S.O.U.L. S.Y.S.T.E.M., Curtis Steig- ers, Joe Cocker og Kenny G og Aar- on Neville, en þeir síðastnefndu komast einna best frá þessum hild- arleik ölium. En það skelfilega við þetta allt saman er að flest bendir til þess að lög af þessari plötu eigi eftír að tröllríða vinsældalistum er- lendis og hérlendis næstu mánuð- ina. Sigurður Þór Salvarsson Kenny G - Breathless: ★ ★ Samur við sig Það hefur oftast verið talinn kost- ur við geisladiskinn að á honum rúmast mun meiri tónlist en á gömlu plastplötunni. Þessi kostur er þó ekki alltaf vel þeginn og er nýjasta plata sópransaxófónleikar- ans Kenny G, Breathless, gott dæmi um slíkt. Á henni ém lög sem gera samtals rúmar 70 mínútur í spilun og þar sem tónlist Kenny G er frem- ur einhæf er platan alltof löng og verður fyrir bragðið langdregin. Kenny G er ágætur saxófónleikari sem þræðir milliveginn milli djass og rómantískrar ballöðutóniistar og gerir það nokkuð vel. Til að krydda aðeins tónlistina em einstaka lög sungin og má nefna að Aaron Ne- ville syngur tvö lög með honum. Aðalhljóðfæri Kenny G er sópran- saxófónn sem undirritaður hefur ávallt fundist minnst til koma í saxófónfjölskyldunni. Kenny G hef- ur náö góðri tækni á hljóðfærið en hefur einbeitt sér að ballöðutónlist. Gaman væri að heyra hvað hann kann fyrir sér í harðari tónlist, en í fremur einhæfúm tónsmíöum Kenny G em sóló hans langt í frá að vera spennandi. Af og til tekur hann aðeins í aðra saxófóna, sem er tilbreyting, en breytir ekki því að tónlistin á Breathless er óspenn- andi þegar á heildina er litið og auk þess er ekkert eftirminnilegt lag þar aðfinna. Hilmar Karlsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.