Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1993, Qupperneq 2
20
FIMMTUDAGUR 4. MARS1993
Tónlist
McCartney rokkar
fyrir umhverfið
Paul McCartney kom ásamt fylgdarliöi
til borgarinnar Perth í Ástraiíu á mánudag
en á morgun hefst heimstónleikaferð
þessa ástsæla tónhstarmanns og er Perth
byijunarreiturinn. Á næstu mánuðum
mun McCartney heimsækja Evrópu,
Bandaríkin og Kanada. Hann lætur vera
að sækja land hinnar rísandi sólar heim
þó hann njóti þar fádæma hyUi enda lenti
hann í tukthúsi eftir að hass fannst á hon-
um við komuna til Japans árið 1980.
Á tónleikaferðinni, sem McCartney fer
til að fylgja plötunni Off the Ground eftir,
mun hann leika lög sem The Beatles gerðu
ódauðleg, frá Wings-tímabilinu og af sóló-
plötum. McCartney hefur aðeins tvisvar
áður leikið á tónleikum í Ástrahu, með
The Beatles árið 1966 í síðustu hljómleika-
ferð hljómsveitarinnar og árið 1975 með
Wings.
Paul McCartney ætlar að tileinka tón-
leikaferðalagið umhverfismálum í heim-
inum með áherslu á vemdun ósonlagsins.
Hann leggur áherslu á að umhverfismál
nái yfir öh landamæri og því þurfi stjóm-
málamenn í heiminum öhum að vinna að
framgangi þeirra.
Tónleikaferðin, sem hefst á morgun, er
sú önnur sem McCartney fer í síðan John
Lennon var myrtur í desember árið 1980.
Skömmu eftir dauða Lennons tilkynnti
MacCartney að hann væri hættur að spila
opinberlega af ótta við að hljóta sömu ör-
lög og samstarfsfélaginn gamh. Varö
ákvörðun hans þess valdandi að hljóm-
sveitin Wings leystist upp. Árið 1990
sprakk hann á tónleikabindindinu og á
morgun heldur hann af stað í annað sinn.
-SMS
Paul McCartney ásamt konu sinni, Lindu
Bisnessmaður-
innPrince
Prince Roger Nelson er maður
sem vill hafa mörg jám 1 eldinum.
Hann er afkastanúkih tónhstar-
maður eins og menn þekkja og
ku ekki vera síöri bisnessmaður.
Hann hefur í það minnsta fest
kaup á tveimur næturklúbbum,
öðmm í Minneapolis, The Glam
Slam, og nýverið bætti hann
Vertigo klúbbnum í Los Angeles
í safnið.
Meira Simpson
rokk
Plata Simpsoti-fjölskyldunnar,
sem kom út í fyrra, gerði mikla
lukku, svo mikla aö nú stendur
til að gera aöra. Og til að ekki
takist síður til en þá hefur nú
verið gengið frá samningum viö
ýmsa valinkunna menn og má
meðal þeirra. nefna Tom Jones,
Sting, Prince og rokksveitina
Aéfösmith. Titihagið verður ný
útgáfa af gamla Princelaginu My
Name Is Prince sem í nýrri út-
gáfu heitir My Name Is Bart.
framimdan
Karl Walhnger, sem eitt sinn
var hluti ef The Waterboys, er
með nýja plötu í vinnslu ásamt
hijómsveit sinni, World Party.
Gripurinn, sem hefur hlotið naíh-
ið Bang, kemur út í apríl næst-
komandi og hefur Karl látið hafa
það eftir sér að á þessari plötu
hafi hann i fvrsta sinn á ferli sín-
um sem tónhstarmaöur leyft sér
þann munað að semja lög eftir
eigin höfði og tilfinningum en
ekki kröfum markaðarins.
Bandaríkin (LP/CD)
é 1. (1) The Bodyguard
Úr kvikmynd
^ 2. (2) Breathless
Kenny G
^ 3. (3) The Chronic
Dr. Dre
♦ 4. (5) Unplugged
Eric Clapton
0 5. (4) Some Gave All
Billy Ray Cyrus
♦ 6.(9) Aladdin
Úr kvikmynd
^ 7. (7) Pocket Full of Kryptonite
Spin Doctors
♦ 8. (10) Timeless
Michael Bolton
O 9. (6) If I ever Fall in Love
Shai
♦10. (-) It's Your Call
Reba McEntire
Bretland LP/CD
♦ 1. (3) Diva
Annie Lennox
^ 2. (2) Automatic for the People
R.E.M.
♦ 3. (-) Rod Stewart, Led Vocalist
Rod Stewart
♦ 4. (23) Unplugged
Eric Clapton
♦ 5. (9) Dangerous
Michael Jackson
^ 6. (6) Words of Love
Buddy Holly & The Crickets
♦ 7. (-) So Tough
Saint Etienne
0 8. (5) Take That & Party
Take That
O 9. (1 ) Walthamstow
East 17
♦10. (14) So Close
Dina Carroll
Gullið gefur byr
Enn eina ferðina skipta fjórar efstu
plötur íslenska plötulistans um inn-
byröis sæti með þeirri undantekn-
ingu þó að REM heldur efsta sætinu.
í annað sætið er ekki óvænt kominn
Eric Clapton með Unplugged og á
sigurför hans á Grammy-verðlauna-
hátíðina án efa stóran þátt í upp-
sveiflu hans þessa vikuna. Það er
annars gaman að geta þess að ís-
lenskir hljómplötugagnrýnendur
voru á undan þeim Grammy-mönn-
um að heiðra Clapton fyrir þessa
plötu því hún var valin plata ársins
1992 hér í DV um síðasthðin áramót.
Clapton getur því með sanni sagt að
upphefðin komi að utan því landar
hans í Englandi hafa ekki sýnt honum
viðlíka sóma og íslendingar og
Bandaríkjamenn. Nú þessa vikuna er
ein ný plata á topp tíu þar sem Duran
Duran er á ferðinni í kjölfar lagsins
vinsæla, Ordinary World. Og neðar á
hstanum er svo ný plata með Living
Colour. Á íslenska hstanum hér á
hinni síðunni vekur athygh uppgang-
ur Blue Swede með Hooked on a Feel-
ing en þetta lag komst á toppinn í
Bandaríkjunum 1974. Hljómsveitin
var sænsk undir forystu Bjöms nokk-
urs Skivs og liíði stutt en Bjöm hefur
hins vegar ahar götur síðan verið í
hópi virtari dægurlagasöngvara og
skemmtikrafta Svía. -SþS- Eric Clapton - gulldrengurinn glaðbeitti.
London (lög)
^ 1.(1) No Limit
2 Unlimited
♦ 2. (6) Give in to Me
Michael Jackson
^ 3. (3) Little Bird/Love Song for a Vamp-
ire
Annie Lennox
♦ 4.(13) Oh Carolina
Shaggy
^ 5. (5) Are You Gonna Go My Way
Lenny Kravitz
0 6. (4) l'm Every Woman
Whitney Houston
♦ 7. (-) Animal Nitrade
Suede
^ 8. (2) Why Can't I Wake up with You
Take That
O 9- (8) I Feel You
Depeche Mode
010.(7) Deep
East 17
New York (lög)
♦ 1.(1) 1 Will always Love You Whitney Houston
ð 2.(2) A Whole New World Peabo Bryson and Regina
ð 3.(3) Ordinary World Duran Duran
♦ 4.(4) l'm Every Woman Whitney Houston
♦ 5.(-) Nothing But a G*Thang Dr. Dre
♦ 6.(6) Mr. Wendal Arrest Development
♦ 7.(8) 7 Prince 81 The New Power Gener- ation
<3 00 cn Saving forever for You Shanice
♦ 9.(10) Hip Hop Hurray Naughty but Nice
♦10. (-) Informer Snow
$ i.d) ♦ 2.(4) £ 3.(2) £4.(3) ♦ 5.(6) £ 6.(5) ♦ 7.(9) ♦ 8. (-) AutomaticforthePeople Unplugged The Bodyguard Bein leið Rageagainstthe Machine Wandering Spirit Tommi&Jenni Duran Duran R.E.M. £11.(10) ♦12. (18) ♦13. (16) ♦14. (20) ♦15. (-) ♦16. (Al) £17. (12) ♦18. (19) £19. (11) £20. (14) JetBlackJoe The Madmans Return Rave'92 Ten Stain Von The Future Megarave
£ 9 (8) £10.(7) OfftheGround Dusk Dirt PureCult
* Listinn er reiknaður út frá sölu í öllum helstu hljómplötuverslunum í Reykjavík auk verslana víða um landið.