Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1993, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1993, Síða 4
30 FIMMTUDAGUR 11. MARS 1993 Tóiílist i > i- Ungir og efnilegir blúsarar á ferð: J ökulsveitin vekur athygli Rage againsttheMachine: ★ ★ Jökulsveitin hefur vakið athygli sem ung og efnileg blúshljómsveit. Reyndar hefur farið fremur lítið fyr- ir henni í vetur en til stendur að fara á kreik af auknum krafti þegar sumr- ar. „Þessi rólegheit í vetur eiga sér sín- ar eðlilegu skýringar," segir Margrét Sigurðardóttir, söngkona hljóm- sveitarinnar. „Til dæmis eru tvö okkar að fara í stúdentspróf á næst- unni og tónlistariðkunin hefur tals- vert orðið að sitja á hakanum þeirra vegna.“ Auk Margrétar eru í Jökulsveitinni þeir Georg Bjamason bassaleikari, Finnur Júlíusson sem leikur á píanó, Baldvin Baldvinsson á trommur og Ásgeir Ásgeirsson sér um gítarleik- inn. Hópurinn þekktist ekkert þegar hann byijaði að spila blús í fyrra. „Ég hafði ekki einu sinni sungið blús áður og hafði satt að segja engan áhuga á honum,“ segir Margrét. „En síðan hefur það breyst heldur betur. Nú hlustar maður varla á annað." Þótt liðsmenn Jökulsveitarinnar séu ekki aldnir að árum þykja þeir hafa náð allgóðum tökum á tregan- um og fengiö hrós frá mörgum stærri spámanninum. Hljómsveitin spilaði aðallega á Púlsinum í fyrra og hitaði upp fyrir bæði Vini Dóra og Trega- sveitina. Margrét Sigurðardóttir seg- ir að á efnisskránni séu aðallega gamlir standardar, klassíkin í stefn- unni. Þau hafa ekkert fengist við að semja blúslög, enn sem komið er að minnsta kosti, en leggja metnað sinn í að hafa túlkunina persónulega. Og næsta sumar á að blúsa á fullu eftir að námsstússi lýkur. „Á döfinni? Það er náttúrlega hljómleikaferð um Ameríku," segir Margrét og hlær. „Nei, annars, ætli við verðum ekki aðallega í Reykja- vik. Hins vegar væri auðvitað gaman að geta farið og spilað úti á landi. Áhuginn á blús fyrirfmnst náttúr- lega þar ekki síður en á höfuðborgar- svæðinu. Ein kona frá Vestmanna- eyjum er til dæmis búin að heimta að við fórum þangað að spila. Kannski förum við þangað." Pelican Liðsmenn hljómsveitarinnar Pelican stefna að því að ljúka gerð plötu sinnar á næsta hálfa mánuðinum. Hún á að koma út um miðjan maí. Forsmekkinn fá hlustendur þá mánuði fyrr þegar eitt lag með Pelican kemur út á safnplötu - lagið í vígahug. Fjórt- án lög verða á nýju plötunni. Átta eru eftir Guðmund Jónsson, fjög- ur eftir Björgvin Gíslason og síð- an eiga Ásgeir Óskarsson og Jón Ólafsson bassaleikari sitt lagið hvor. Jökulsveitin á tónleikum á Hressó í síðustu viku. Gamli blúsinn er í mestum metum. DV-mynd Rasi Heill hópur tónlistarmanna læt- ur til sin taka á nýrri plötu sem er væntanleg á næstu dögum. Lögin á plötunni eiga það öli sameiginlegt að vera í kvikmyndinni Stuttum frakka sem veröur frumsýnd í næsta mánaöar. Meðal flytjenda a _________..... .. Móeiður Júníusdóttir. Hún syngur nýja útgáfu lagsins Án þín sem jaíhframt hefur skipt um nafn og heitir nú Komdu tii mín (Án þín). Hljómsveitm Jet Black Jœ hljóð- ritaði tvö ný lög fyrir myndina og ya ei viiasiiuiu ao nnna a plðtunni hljóðritanir frá Biórokkshljómleik- unum í Laugardalshöll 16. júní síð- astíiðinn. Þar heyrist í Sálinni hans Jóns míns og Todmobile. Þá er Bogomil Font með eitt lag á plöt- unni, sömuleiðis Ný dönsk og fleiri. fiö PIOIMEER The Art of Entertainment Dansað við Reif í tætlur Átján laga dansplata með svo- kallaðri reiftónhst kemur út á næstimni. Hún heitir Reif í tætlur og er framhald Reif í fótinn sem kom út fyrir síðustu jól og seldist vel að sögn útgefan.dans. Á Reif í tætlur verða fjögur ís- lensk lög. Þau eru Two Ö- 0 One með Pís of Keik, Krunk krunk með Human Body Percussion En- semble, Inner Core flytur lagið IC God og loks bjóða Disco Invaders upp á lagið Já! Einna þekktast af erlendu lögunum er No Limit með 2 Unlimited sem hefur að undan- fömu verið í efsta sæti breska vin- sældalistns og komist hátt víða annars staðár. Laginu brá fyrir á íslenska hstanum á dögunum en það er nú fallið út. Hér á árum áður var vinsælt að tala um unga, reiða menn og þ%átt við ungmenni sem risu upp gegn ríkjandi gildum og formæltu þjóðskipulaginu upphátt og í hfjóði. Þessi uppreisnarandi hef- ur gegnum tiöina ekki fengið hvaö síst útrás í tórdist þótt minna hafi kannski farið fyrir þessu nú síðustu ár enda uppa- menningin blómstrað og ungir tónlistarmenn keppst við að apa eftir tónlist feðra sinna og mæðra frekar en að finna upp á ein- hverju nýju sjálfir. Á þessu hafa þó verið einhverjar undantekn- ingar eins og til að mynda rappið sem lúngað til hefur fyrst og fremst verið tónhst ungra, reiðra blökkumanna i Bandaríkjunum. En rétt eins og soultónlistin sem upphaflega var „svört“ tón- list er varð alþjóðleg, hefur rapp- ið verið að breiðast út og bland- ast öðrum tónlistarstraumum. Og þaö er einmitt slíka blöndu sem Los Angeles hljómsveitin Rage against the Machine leikur og það fer ekkert á mihi mála að hér eru ungir, reiðir menn á ferð og það hvítir. Aht yíirbragð þess- arar plötu ber þess merki að þess- um mönnum liggur mikið á hjarta. Tónlistin er aggressív og stuöandi og textarnir eru margir hverjir alls ekki prenthæfir. Söngurinn er ekki fagur ef svo má segja, orðunum er nánast hrækt út af heift og engu líkara en maður sitji undir samfelldum reiðilestri plötuna út i gegn, Rage against the Machine hefur verið lýst sem fyrirbæri sem brúi bhið milli Red Hot Chili Peppers og Nirvana og má það sosum til sanns vegar færa. Það kann hins vegar ekki góðri lukku að stýra fyrir unga reiða menn á uppleið að þeim sé sífeht hkt við sér meiri menn. SigurðurÞórSalvarsson k.d. lang- ★ ★ ★ Ljúfur söngur Eric Clapton Wrti flest Grammyverðlaumn fyrir stuttu en ekki gat hann af skhjanlegum ástæðum verið valinn besta söng- . konan, sá heiður féh í skaut k.d. lang fyrir söng hennar á Ingénue og hún er svo sannarlega vel að verðlaununum komin. Platan, sem hefur rólegt yflrbragð, er heillandi og er þaö ekki síst að þakka góðum söng lang sem nær að gera einfaldar og ljúfsárar bal- löður að heillandi Wustun. Ingénue er fjórða plata k.d. lang og markar tímamót í ferli henn- ar. Á fyrstu þremur, sem komu út á árunum 1987-1992, var hún undir sterkum áhrifum frá kán- trítónhst. Sömu áhrif eru enn . greinileg á Ingénue þremur árum semnaentónlistarsviðíðerbreiö- | ara. Allt undirspil er mjög fágaö og góð umgjörð um frábæran flutnmg k.d. lang. Hilmar Karlsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.