Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1993, Page 2
20
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1993
Tónlist
Wendy J ames
breytir um stíl
Wendy James, sem til skamms
tíma söng með hljómsveitinnl
Transvision Vamp, hefur heldur
betur breytt um stíl. Nýkomin er
út með henni platan Now Ain’t the
Time for Your Tears með lögum
og textum eftir Elvis Costello.
Gagnrýnendur hafa hrósað útkom-
unni mjög og virðast almennt
hlessa á hve vel Wendy kemst frá
söngnum.
Hvernig skyldi standa á því að
Wendy James syngur eintóm lög
eftir Costello á fyrstu plötu sinni
og það eintóm áður óútgefm lög?
Þau tvö þekkjast ekki einu sinni
og hafa varla hist.
Þama koma tilviljanimar til sög-
unnar. Wendy er málkunnug Pete
Thomas, trommuieika hljómsveit-
arinnar The Attractions. Einhverju
sinni þegar Transvision Vamp var
að syngja sitt síðasta nefndi hún
við Pete að hún vildi óska þess að
hún ætti eftir að verða „alvöru"
söngkona. Heldurðu að hstamaður
á borð við Elvis Costello myndi
hjálpa mér að komast af stað?
spurði hún trommuleikarann.
Hann hélt að það gæti verið mögu-
legt og hvatti hana. til að skrifa
Costello bréf og biðja hann um
hjálp.
Þetta gerði Wendy. Hún baö EMs
Wendy James. Bréf til Elvis Costello gerði gæfumuninn.
ekki beinlínis að semja fyrir sig
tónhst en skrifaði að hún þyrfti að
verða betri söngkona en hingað til.
Hún sagði að hann væri fyrirmynd-
in að þvi sem hana langaði til að
verða og spurði hvort hann héldi
að eitthvað væri hægt að gera í
máhnu.
Ekkert gerðist í hálfan mánuð.
Þá hringdi Pete Thomas og sagði
að dáhtið hefði gerst. Hann vildi
ekki segja hvað en það væri stór-
merkilegt.
Og það sem gerst hafði var þaö
að Elvis Costeho hafði sest niður
eina hefgi og samið tónhst á heila
plötu fyrir söngkonuna. Hún segir
að greinifegt sé að hann hafi ekki
farið í gamaft safn óútgefinna laga
því að textar laganna, sem hún
fékk, eru að meira og minna leyti
thvísanir í bréf hennar. Chris
Kimsey, upptökumaður Rohing
Stones, var fenginn th að stýra gerð
plötunnar og útkoman er, svo að
vitnað sé í orð gagnrýnanda
sænska blaðsins Expressen, það
frísklegasta sem hefur komið frá
Elvis Costeho síðan hann.sendi frá
sér plötuna Armed Forces.
Og söngkonan Wendy James,
sem allir virtust hta niður á meðan
hún söng með Transvision Vamp,
byijar sólóferhinn með stæl.
Músíktilrannir 1993:
Sigurvegarar
fyrsta kvöldið
Rokkið
rýkur upp
London (lög)
é 1.(1) Oh Carolina Shaggy
♦ 2.(8) Informer Snow
é 3.(3) Mr. Loverman Shabba Ranks
0 4. (2) No Limit 2 Unlimited
♦ 5. (-) Young at Heart Bluebelles
♦ 6.(6) Are You Gonna Go My Way Lenny Kravitz
♦ 7.(13) Cats in the Cradle Ugly Kid Joe
♦ 8. (-) Peace in Our Time Cliff Richard
0 9.(5) Give in to Me Michael Jackson
♦10. (-) Jump They Say David Bowie
New York (lög)
♦ i.(D Informer Snow
♦ 2.(3) Nothing but a 'GThang Dr. Dre
♦ 3.(6) Freak Me Silk
0 4.(2) A Whole New World Peabo Bryson and Regina
♦ 5.(5) l'm Every Woman Whitney Houston
0 6.(4) Ordinary World Duran Duran
♦ 7.(9) Don't Walk away Jade
♦ 8.(8) Mr. Wendal Arrested Development
♦ 9. (-) I Have Nothing Whitney Houston
o ö •e- Bed of Roses Bon Jovi
Bandaríkin (LP/CD)
♦ 1 • (1) Unplugged
Eric Clapton
♦ 2. (2) The Bodyguard
Úr kvikmynd
♦ 3. (4) Breathless
Kenny G.
0 4.(3) 19 Naughty III
Naughty by Nature
♦ 5. (8) The Chronic
Dr. Dre
^ 6. (6) Some Gave All
Billy Ray Cyrus
♦ 7. (9) 3 Years, 5 Months & 2 Days
Arrested Development
♦ 8. (10) Pocket Full of Kryptonite
Spin Doctors
♦ 9. (-) Hard Workin' Man
Brooks & Dunn
♦10. (-) Lose Contol
Silk
Bretland LP/CD
^ 1. (1) Their Greatest Hits
Hot Chocolate
•f 2. (-) Amazing Things
Runrig
0 3. (1) Are You Gonna Go My Way
Lenny Kravitz
♦ 4. (-) The Dark Side of the Moon
Pink Floyd
ð 5. (2) Unplugged
Eric Clapton
0 6. (3) Ingenue
K.D. Lang
0 7- (5) Ten Summoner's Tales
Sting
0 8. (6) Diva
Annie Lennox
0 9(8) Automatic for the People
R.E.M.
♦10. (-) The Very Best of...
Randy Crawford
ísland (LP/CD)
♦ 1.(2) Rage against the Machine
Rage against the Machine
0 2. (1) Automatic for the People
R.E.M.
^ 3. (3) Unplugged
Eric Clapton
^ 4. (4) The Bodyguard
Úr kvikmynd
♦ 5. (6) Bein leið
K.K.
♦ 6. (14) A Pocket Full of Kryptonite
Spin Doctors
♦ 7. (13) Ten
Pearl Jam
0 8. (5) Ten Summoner's Tales
Sting
0 9. (8) Are You Conna Go My Way
Lenny Kravitz
♦10. (-) Coverdale & Page
Coverdale & Page
.♦11. (15) Dusk
The The
012.(9) Wandering Spirit
Mick Jagger
♦13. (11) ft's a Shame about Ray
Lemonheads
014. (12) Dirt
Alice in Chains
♦15. (-) Mindblowing Techno. 4
Ýmsir
♦16. (19) Live Right here, Right now
Van Halen
♦17. (Al) Megarave
Ýmsir
018. (16) Hits '93 vol I
Ýmsir
019. (17) Tommi & Jenni
Úr kvikmynd
♦10. (18) Jet Black Joe
Jet Black Joe
Tvær hljómsveitir úr Reykjavík
sigruðu á fyrsta tilraunakvöldi
Músíktilrauna ’93 á fimmtudaginn
var. Þær heita Opus Dei og Cra-
nium. Sú fyrri leikur þungarokk,
hin dauðarokk. Dómnefnd tilraun-
anna sá ekki ástæðu til að bjóða
þriðju hljómsveitinni þátttöku á
lokakvöldinu eins og hún hefur þó
heimild til.
Rokkað í
kvöld...
Níu hljómsveitir taka þátt í til-
raununum í kvöld. Steypa frá
Sandgerði leikur hrátt rokk. Nef-
brot úr Mosfellsbæ ætlar að bjóða
upp á þungarokk. Zorglúbb frá
Reykjavík leikur rokk, Yukatan frá
höfuðborginni býður upp á rokk
með afbrigðum, Múspell frá Sel-
fossi leikur dauðarokk, Pegasus frá
Akranesi heldur sig við nýbylgju-
rokk og Moskowitz frá Hafnarfirði,
sem eitt sinn hét Auschwitz, ætlar
að. leika rokk. Gestahljómsveit
Músíktilrauna í kvöld verður Org-
iU.
.. .og annað kvöld
Þriðja Músíktilraunakvöldið
verður haldið annað kvöld. Níu
hljómsveitir keppa þá, rétt eins og
í kvöld. Frá Garðabæ kemur rokk-
hljómsveitin Hróðmundur hippi.
Rokksveitin SvMrðing frá Reykja-
vík keppir einnig, svo og reykvíska
dauðarokksveitin Entearment sem
áður hét Extermination. Nýrokk-
sveitin Tjalz Gissur kemur frá
Kópavogi og rokkpönksveitin Sue-
sidal Dioria frá Reykjavík. Dis-
agreement er einnig frá Reykjavík
og spilar rokk, sem og Rack frá
Laugarvatni. Loks skal telja tvær
hljómsveitir sem koma frá heima-
vistinni á Laugum. Önnur leikur
rokk og heitir Joseph and Henry
Wilson og hin er dauðarokksveitin
Pain. Gestir á Músíktilraunum
annað kvöld verða sigurvegaramir
frá í fyrra, hljómsveitin Kolrassa
krókríðandi.
Svo fór að Rage against the Mac-
hine náði að véla efsta sæti íslenska
plötulistans af R.E.M. sem dvalið
hefur þar undanfarnar vikur. Ekki
er víst að RATM nái að halda efsta
sætinu lengi því líklegt má teljast að
vinsældir þeirra séu ekki eins við-
varandi og þeirra R.E.M.-manna.
Hvað þá tekur við veit enginn því
engin sú plata er í sjónmáh sem ger-
ir sig líklega til að gera tilkall til topp-
sætisins. Það gæti því allt eins farið
svo ef RATM láta undan síga að
R.E.M. taki aftur við efsta sætinu.
En það er samt engin spurning að
rokkið er í uppsveiflu þessar vikurn-
ar því á lista dagsins sést hvar tvær
rokksveitir, þótt ólíkar séu, taka gott
stökk upp á við. Þetta eru Spin Doct-
ors og Pearl Jam og í því sambandi
vekur sérstaka athygli að Pearl Jam
skuli nú aftur vera komin á topp tíu
en það eru ár og dagar síðan hún var
þar síðast. Og svo er meira rokk því
gömlu hipparokkararnir Coverdale
og Page snarast beint í tíunda sætið
með fyrstu plötu í nýju samstarfi.
-SÞS-
flö PIOIMEER
The Art of Entertainment
R.E.M.