Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Blaðsíða 4
30 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993 Tónlist Plötugagnrýni Bubbi gerir sóló- samning yið Skífuna Bubbi Morthens, sem selt hefur fleiri plötur en nokkur annar popp- ari íslenskur, gerði á dögunum þriggja platna sólósamning við Skíf- una. Fyxr á árinu samdi Bubbi við sama fyrirtæki um útgáfu á efni hijómsveitarinnar GCD. Fyrsta plata GCD á merki Skífunnar kemur út í maí og hefur hún þegar hlotið heitið Svefnvana. í samtah við DV sagði Bubbi að tit- illinn væri lýsandi fyrir vinnsluferh plötunnar en hún var unnin með miklum látum á aðeins 150 tímum. Hann segir Svefnvana hráa og skemmtilega plötu þar sem leikgleð- in væri í fyrirrúmi. Rífleg greiðsla Eins og DV hefur þegar skýrt frá hafa hljómplötuútgáfan Steinar og Bubbi Morfliens átt í deilum vegna óhkrar túlkunar á samningi sem Bubbi gerði við fyrirtækið fyrir nokkrum árum. Steinar Berg heldur því fram að Bubbi hafi ekki staðið við samninginn og skuldi enn eina plötu en sá síöamefndi er á öðru máli. Eins og áður sagði er nýbúið að ganga frá þriggja plötu samningi Bubba og Skífunnar. Bub'bi var innt- ur svars við þvi af hverju hann hafi fært sig um set en á löngum ferli hefur hann aldrei fyrr verið á mála hjá Skífunni. „Ástæðan er einfóld," segir Bubbi. „Ég tel Skífuna mun stöndugra fyrir- tæki, þar eru greiðslur öruggar og innstæður fyrir tékkunum sem ég fæ. Það má því segja að ég sé að Bubbi með samning við Skífuna. tryggja mig með því að skipta um útgefanda því mér finnst óþæghegt að vinna hjá fyrirtæki sem ég veit ekki hvort verður tíl í næstu viku eða ekki. Með öðrum orðum eru það fjárhagsvandræði Steina sem valda því að ég færi mig um set.“ - Því hefur verið fleygt í íjölmiðlum og víðar að þú hafir fengið háar fjár- hæðir fyrir samninginn við Skífuna? „Ég neita því ekki að samningurinn er góður og hér væntanlega um að ræða ríflegustu fyrirframgreiðslu sem íslenskur poppari hefur fengið,“ segir Bubbi og bætir við. „Sú upphæð sem Steinar Berg nefndi einhvers staðar, 4 mihjónir, er þó fjarri raun- veruleikanum.“ Hugsanlegt samstarfviðKK Bubbi segir ólíklegt að hann geri sólóplötu á þessu ári. Það sé þó ekki loku fyrir það skotið að út komi kas- sagítarplata fyrir jólin sem yrði aft- urhvarf til fyrstu áranna, plata sem ætti sér einhverja samsvörun í ís- bjarnarblúsnum frá 1980. Hann segir hugmyndina í gerjun þessa dagana. Önnur hugmynd og ekki síður spennandi er á teikniborðinu. Hún varðar hugsanlegt samstarf Bubba og KK en þessir tveir seldu einmitt flestar plötur fyrir síðustu jól og verða því að teljast vinsælustu tón- hstarmenn landsins. Bubbi segir þá félaga eiga sameiginlegar rætur í tónhstinni og því freisti samstarf. Engin ákvörðun hafi þó verið tekin. Snorri Már Skúlason WSS&am ‘ámm Jan Hammer: - Beyond theMind'sEye: Tölvusnilld Hinir miklu möguleikar tölvu við gerð og flutning tónhstar hafa gert það að verkum að margir þekktir kompónistar eru nær eingöngu famir að nota þessa tækni og er einn þeirra tékkneski hljómborðsleikar- inn Jan Hammer, sem eitt sin gerði garðinn frægan með The Mahavis- hnu Orchestra, og Jeff Beck svo ein- hveijir séu nefndir. Hefur hann náð einna lengst á þessu sviði af þeim sem semja fyrir kvikmyndir, ásamt Vangehs. Á Beyond the Mind’s Eye er Hammer á kunnuglegum slóðum enda er tónhstin gerð við myndband sem hann ásamt leikstjóranum Mic- hael Boydstun hafa gert í samein- ingu og ber tónhstin þess greinileg merki, of mikið um endurtekningar. Er ég viss um að þessi seiðandi tónl- ist nýtur sín best þegar mynbandið er skoðað í leiðinni. Nokkur laganna eru samt einkar vel samin og láta mann ekki í frlði, laumast í hausinn á manni og verða þar um kyrrt, sér- staklega á þetta við um rólegri lögin eins og Magic Theater, Pyramid, Brave New World og Windows, seið- andi ogfaliegar bahöður. Það þarf ekki að koma á óvart að Hammer á einstaklega auðvelt með að semja melódísk lög. Hann hefur sýnt það alveg frá því hann sló í gegn með tónlist sinni við The Miami Vice sjónvarpsseríuna að kvikmyndatónhst hans er sérlega góð og stundum er það svo að hún tekur athyghna frá myndefninu. í hefld er Beyond the Mind’s Eye fullmikið tæknispfl á kostnað tón- hstarinnar enda nær tölvutónhst aldrei að framkalla þann lífsneista sem einkennir flutning hjá góðum flö PIOMEER The Art of Entertamment hljóðfæraleikurum, en inn á mflh eru lög sem gleðja hugann. Hilmar Karlsson ÁIFTTHTfW - YOUR TtARS Wendy James - Now Ain't the Time for Your Tears ★ ★ ★ Costello tryggir gæðin Wendy James er hér á ferðinni með fyrstu sólóplötu sína en hún gerði garðinn áður frægan með hljómsveitinni Transvision Wamp. Og Wendy velur sér ekki meðreiðar- svein af lakara taginu eða kannski meðreiðarsveinninn hafi vahð hana? Hvað um það þá semur Elvis Costeho aht efnið á plötunni, ýmist einn eða í samvinnu við spúsu sína Cathy O’Riordan og það út af fyrir sig er meðmæh með plötunni. Og það er engu líkara en að Cost- ello hafi notaö þetta tækifæri að skaffa lög fyrir Wendy James tfl að taka tfl á gamla lagalagemum sín- um því lögin em mjög í anda þess sem Costello samdi á fyrstu árum ferils síns. Þetta er sem sagt blanda af léttum og stuttum tiltölulega hröðum rokk- lögum og hæfilega hráum ballöðum. Einfaldleikinn er allsráðandi, bæði í hljóðfæraleik og útsetningum, eng- ar flækjur eöa krúsidúhur. Og einfaldleikinn hefur löngum gefist best og það verður ekki frá Elvis Costeho tekið að hann er meistari melódíunnar þegar þetta léttpönkaða rokk er annars vegar. Hér á þessari plötu era glimrandi dæmi um þetta eins og lögin, This Is a Test, London’s Brilliant, We Dispise You og FUl In the Blanks. Og ekki er hann síðri í ballöðunum; tvær guflfallegar er að finna hér, báðar með þeim betri sem Costello hefur gert. Þetta eru lögin Basement Kiss og Do You Know What I’m Saying? Meðferð Wendy James á þessum lögum Costellos er með ágætum; hún hefur vissulega ekki mikla rödd en gerir þetta vel og af tilfinningu og má því bara vera roggin með þessa fyrstu sólóplötu sína. Sigurður Þór Salvarsson Depeche Mode - Songs Of Faith and Devotion ★ ★ ★ Zi Á áhuga- verðri braut Breska hljómsveitin Depeche Mode hefur á síðustu árum vakið athygh fyrir metnaðrfulla og kraftmikla nýbylgjutónhst. Síöasta plata sveitarinnar, Violator, seldist í stærra upplagi en nokkur af fyrri plötum Depeche Mode og fór sann- kallaða sigurfór um heiminn. Það er eðlileg þróun þegar hfj ómsveit er komin í slíkan stærðarflokk að fPECHE = St . DF FAlI'H É&P'. . ]/ 01 X £ T •' tíminn milh platna lengist. Það tek- ur sífellt lengri tima að gera plötu sem ahir meðlimimir eru sáttir viö og það er einmitt megin ástæða þess að aðdáendur Depeche Mode hafa mátt bíða í þrjú ár eftir Songs Of Faith and Devotion. Nýja platan vigtar þyngra en fyrri verk hljómsveitarinnar. Útsetning- ar era margbrotnar og virka á stundum jafnvel ofhlaðnar. Laga- smíðum Martins Gore er þó fráleitt drekkt í hljómasúpunni og oftar en ekki kaha magnaðar útsetningar á gítörum, röddum og strengjum fram gæsahúð. Undiraldan er öh þyngri en á Viol- ator og er hlj ómsveitin komin inn á mjög áhugaverða braut krefjandi rokktónhstar þar sem átök og tfl- finningaþrangi gegnsýra lagasmíð- amar. í textum teflir hljómsveitin fram andstæðum sem hafa verið poppuram lengi hugstæð, nefnilega kynlífslosta og trúarbrögöum. Titfll plötunnar innsiglar yrkisefniö. Það er óhætt að mæla með þessari nýjustu afurð Depeche Mode. Hljómsveitin rær þyngri sjó en fyrr- um og ræður vel við. Songs Of Faith and Devotion er krefjandi gripur með flott sánd. Snorri Már Skúlason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.