Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Qupperneq 4
30 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993 Tónlist Kr aftm i ki 11 Kravitz „Tónlistin er líf mitt og mér nauð- synleg á sama hátt og súrefni. Það eru forréttindi að geta breytt tilfinn- ingum sínum í hljóð og miðlað þeim til annarra." Þannig komst Lenny Kravitz að orði í nýlegu viðtah en tilefnið var ný plata sem hann sendi frá sér á dögunum og kallast Are You Gonna Go My Way? (sjá plötudóm neðar á síðunni). . Á fyrri plötum Let Love Rule og Mama Said sá Lenny sjálfur um að spila á flest hljóðfærin og skipti þá ekki máh hvort um var að ræða git- ar, hljómborð eða trommur. Á nýju plötunni grípur hann í öll þessi hljóð- færi og fleiri til. Hann hefur hins vegar meiri reglu á hlutunum í þetta skiptið og hefur komið upp vísi að fastri hljómsveit í fyrsta sinn. Kra- vitz hefur nefnilega fengið til liðs við sig Craig Ross á gítar og Tony Breit á bassa en þá hirti hann upp af skít- ugri blúsbúllu á Sunset Blvd. í kjöltu Ellingtons Lenny Kravitz er af bahamískum ættum. Hann fékk gott tónhstarlegt Lenny Kravitz. Sækir í tónlist sjöunda og áttunda áratugarins. uppeldi enda foreldrar hans vel efn- aðir og með ýmis tengsl í tónhstar- heiminn. Faðir hans var útsendinga- stjóri hjá NBC sjónvarpsstöðinni en móðir hans hafði getið sér gott orð sem leikkona. Fjölskyldan bjó í finu hverfi á Manhattan en strákur dvaldi löngum hjá móðurfjölskyldu sinni í Brooklyn sem bjó við heldur þröngan kost. Áð eigin sögn voru þó báðir staðirnir honum jafn eðlilegir. í Bro- oklyn kynntist Lenny blústónlist á meðan Bobby Short, Cleo Laine, Co- unt Basie og Eha Fitzgerald ómuðu í eyrum hans í foreldrahúsum. Sjálf- ur minnist Lenny Kravitz þess að hafa setið í kjöltu Dukes Ellington á meðan gamh maðurinn fitlaði við slaghörpuna eitt sinn. Það kom snemma'í ljós að tónhst hafði mikil áhrif á Kravitz. Móðir hans hafði áhyggjur af honum í æsku þar sem hann átti það til að láta ófrið- lega í guðsþjónustum þar sem kraft- mikil gospeltónlist réð ríkjum. Hún hélt að hann væri veikur og létti því þegar strákur sagðist fila tónlistina best með því að skekja kroppinn lít- ilsháttar. Söng á Metropolitan Eftir aö fjölskyldan flutti til L.A. var Lenny í þrjú ár í drengjakór. Hann kunni th verka á þeim vett- vangi því hann hafði sungið í Metro- politan óperunni og var m.a. með í upptöku á þriðju sinfóníu Mahlers með Zubin Mehta. Sjálfur segir hann það góðan skóla sem hafi kennt sér aga sem nýttist viö upptökur á eigin plötum síðar. Að menntaskóla loknum, árið 1986, kynntist Kravitz manni sem var mik- ill aðdáandi klassískrar tónlistar, Henry Hirsch að nafni. Hann rak stúdíó í New Jersey og þeirra sam- vinna leiddi af sér fyrstu plötuna Lenny Kravitz, Let Love Rule árið 1989. Samvinna þeirra er náin en þeir leggja mikið upp úr hljóðvers- vinnu. Engu að síður notast félagarn- ir mikið til við hljóöfæri og upptöku- tæki frá 7. og 8. áratugnum en þann- ig telur Kravitz sig halda tengslum við þá tónhst sem er honum kærust og hann sækir mest í. Virðingarvert sjónarmið sem lýsir metnaði og örht- illi khkkun. qMq Dúndurí sumarbyrjun Ný hljómplata er væntanleg á næstu dögum frá Hljómplötuútgáf- unni Steinum hf. Nefnist hún Grimm dúndur og inniheldur sext- án lög, innlend og erlend. Flytjend- ur eru ýmsir. Innlendar hljóm- sveitir sem eiga ný lög á þessari plötu eru Todmobile, Stjórnin, Pel- ikan, Jet Black Joe og Pláhnetan, hin nýja hljómsveit Stefáns Hhm- arsson sem heyrist th í fyrsta sinn á Grimm dúndur. Auk þess er Pin- bah Wizard úr rokkóperunni Tommy í flutningi Björgvins Skúla Sigurðssonar og Kórs Verslunar- skóla íslans að fmna á Grimm dúndur. Erlendu lögin eru öll ný og eru sum þeirra á íslenska listanum. Má þar nefna Two princes meö Spin Doctors sem er í efsta sæti hst- ans og Ah that she Wants með Ace of Base sem er í þriðja sæti listans. Aðrir erlendir listamenn sem eiga lag á Grimm dúndur eru Roots Syndicate, Robin Beck, The 4 of Us, Ultravox, Sharba Ranks, Superfly og Sonia Davis sem syngur hið gamalkunna lag Bette Davis, Eyes. -HK Todmobile á tvö lög á Grimm dúndur. flö PIOIMEER The Art of Entertainment Plötugagnrýiú VaIT HaLEIT IIVE Van Halen Live - Right Here Right Now ★ ★ ★ ★ Skotheldur rokkveggur Stöku sinnum koma út hljóm- leikaplötur sem eru þeirri náttúru gæddar að maður hefur á tilfinn- ingunni að maður sé á staðnum þegar þær hljóma í hátölurunum. I nafni Right Here Right Now felst jiessi nánd og platan er því rétt- nefni. Maður fær kraftinn beint í æð og skynjar jafnframt titringinn í loftinu sem fylgir vel heppnuðum lokkkonsert. Það er enginn vafi á því hver er aðalmaðurinn í Van Halen (og liefur sjálfsagt aldrei verið neinn i'afi). Þótt Eddie Van Halen gítar- leikari hafi sjálfur valið efnið á plötuna hefur hann einfaldlega ekki getað sneitt hjá því að hann er potturinn og pannan í hljóm- sveitinni. Og ekki síst á hljómleik- um. Alex bróðir, Michael Anthony og Sammy Hagar eru í aukahfut- verkum. Ekki kannski uppfylling en aUmiklu smærri í sniðum en idrtúósinn. Eddie Van Halen sýnir á plöt- unni, sem reyndar er tvöfold, að hann er með öflugri rokkgítarlei- kurum í heiminum og gæti á góð- um degi veitt Steve Vai góða sam- keppni í sirkusbrögðum ýmiss konar með hljóðfærinu. Skiljan- legt er að DavidLee Roth hafi lát- ið sighverfa úr hljómsveitinni f r ekar en að veita Eddie sam- keppni um aðalhlutverkið. Það er erfitt að segja að eitt s;tandi öðru framar á Right Here Right Now. Maður fær massífa keyrslu í rúma tvo klukkutíma. Brot af því besta úr hljómleika- ferðum Van Halen síðustu ár. Kunnuglegu lögin höfða vitaskuld f 'yrst til manns: Jump, When It’s I xive, Ain’t Talking Ábout Love og fleiri. Þá hefur sérgrein Van Halen verið að bjóða upp á eigin útgáfu gamalla laga. Að þessu £inni fáum við You Really Got Me og Won’t Get Fooled Again. En lieildin er aðalsmerki platnanna: £.kotheldur rokkveggur þar sem enga glufu er aö finna. Ásgeir Tómasson. Big Country- The Buffalo Skinners ★ Litlaust Skoska rokksveitin Big Country kom fram á sjónarsviðið með miklum krafti fyrir tíu árum. Fyrstu tvær plötur sveitarinnar The Crossing og Steeltown voru f éikilega sterkar. Síðan fór aö lialla undan fæti, sveitin bjó við imdlegt harðlífi í nokkum tíma og £.íðustu ár hefur hún átt í útistöð- um við útgáfufyrirtækið Mercury og gengu þær erjur mjög nærri sköpunargáfu Big Country. The Buffalo Skinners er fyrsta plata Big Country á nýju merki. Illjómsveitarmeðlimirnir, sem nú eru þrír, segja hljómsveitina end- urfædda eftir erfiðleikana og segj- ast hafa fundið taktinn aftur. Því miður virðast þeir hafa rangt f ýrir sér. Platan er ákaflega óspennandi og á allan hátt ófrum- leg. Stuart Adamson nær engan læginn sömu tökum á skáldafákn- um og áður, lögin eru khsjukennd og framleiðsla miklu fremur en f.káldskapur. Falsettu gítarleikurinn, sem gerði hljómsveitina fræga fyrir tíu arum, er enn til staðar en með £;terkan metal-keim eins og reynd- arplatanöll. Hlutskipti Stuarts Adamson er dapurlegt. Gítarleikarinn frábæri, £;em hóf ferilinn með pönksveit- inni Skids, stofnaði síðan Big Co- untry sem gekk vel framan af er nú að daga uppi sem foringi í liljómsveit sem veit ekki hvað hún er né vill vera. The Buffalo Skinn- ors er htlaus gripur sem lýsir ráð- mlltri hljómsveit. Snorri Már Skúlason Lenny Kravitz - Are You Gonna Go MyWay? ★ ★ ★ !/2 í góðum gír Lenny Kravitz er líkt og Prince náttúrubam í rokkinu. Kravitz kynntist flestum tegundum tón- listar á unga aldri og söng meðal annars í drengjakór Metropohtan operunnar í New York. Líkt og Ihrince sphar hann á flest hljóð- færi sjálfur, hvað hann hefur gert á plötum sínum sem nú eru orðnar þrjár talsins og allar vel heppnað- <ir. Fyrsta platan kom út árið 1989 og hét Let Love Rule, hún vakti heimsathygh á Kravitz. Næsta plata Mama Said frá 1991 staðfesti {pmn manna um að fram væri komið nýtt séní og nýja platan Are You Gonna Go My Way? setur lænny Kravitz á stah sem frábær- anrokkara. Ástríða Lenny Kravitz á fomri upptökutækni gerir hann frá- bragðinn flestum kohegum hans. Á meðan tónhstarmenn leita fuh- komnunar í nýjustu tækni, tækj- mn og tólum leitar Kravitz fuh- komnunar í gömlum græjum. Sjálfur virðist hann tímafirrtur þar sem hann hamast á gítamum í mussu og útvíðum buxum og enginn fer í grafgötur um hvar rætur tónhstar hans hggja. Kra- vitz er trúr þessari fortíðarást £iinni og notast nær eingöngu við gömul hljóðfæri og upptökutæki. Innan um vel lukkað hipparokk- ið óma smekklegar strengjakviður sem gefa Are You Gonna Go My Way þægilega mýkt. Bestu lög á frábærri plötu Beheve, Just Be A Woman, Is There Any Love in Your Heart og Sister. Snorri Már Skúlason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.