Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1993, Blaðsíða 1
Stúlkurnar 18 sem taka þátt í keppninni munu allar koma fram á sundbolum
DV-mynd GVA
„í þættinum veröa stúlkurnar 18
kynntar á sundbolum og hugmynd-
in er aö þaö veröi gert á listrænan
hátt. Þannig er skírskotað til
mjúkra lína kvenna í gegnum tíð-
ina eins og listamaðurinn Ásmund-
ur Sveinsson hefur séð þær fyrir
sér. Hann hefur líka öðrum fremur
einbeitt sér að sambandi konu og
bams í sínum verkum," segir Sig-
ursteinn Másson dagskrárgerðar-
maöur sem verður kynnir á Feg-
urðarsamkeppni íslands sem hald-
in verður á Hótel íslandi á fóstu-
dagskvöld.
Þátturinn hefst kl. 22 með kynn-
ingu á stúlkunum 18. Um klukkan
hálfellefu hefst beina útsendingin
með tilheyrandi litríkri dagskrá og
henni lýkur með krýningunni.
„Meðal skemmtiatriða verður
dansinn Tilbrigði - Fegurð, sam-
kvæmisdansar og sýning tólf
vaskra drengja úr fimleikasveit
Armanns. Þeir verða meira og
minna inni á sviðinu allan tímann.
Sviðiö er í grískum anda og er held-
ur litríkara en það hefur verið áð-
ur. Sigrún Hjálmtýsdóttir treður
upp og syngur og síðast en ekki
síst verður tískusýning sem allar
fegurðardrottningar frá 1982-1992
taka þátt í.“ Egiii Eðvarðsson hefur
umsjón meö gerð þáttarins og
stjórnar beinu útsendingunni.
-em