Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Page 4
30 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993 Tónlist GCD sendir frá sér plötuna Svefnvana: Samkeppnin í sumar verður hörð GCD. Úthaldið verður frá miðjum maí og fram í september. Svefnvana er bara orð án merkingar að sögn Gunnlaugs Briem, trommu- leikara GCD. En Bubbi Morthens segir að hægt sé að skýra heiti nýrr- ar plötu hljómsveitarinnar betur. „Viö unnum þessa plötu á ótrúlega skömmum tíma. Það var því stund- um ekki mikiö um svefn meðan á upptökunum stóð. Ætli nafnið hafi ekki orðið til vegna þeirra að- stæðna," segir hann. Nýja GCD platan kemur út 14. maí. Sama dag hefst úthald hljóm- sveitarinnar og því lýkur ekki fyrr en í september. Búið er að fastnegla niður allar bókanir sumarsins nema hvað verslunarmannahelgin er enn óákveðin. „Við lofum því svo sem ekki að hætta stundvíslega ef það verður enn gaman í september. Það getur vel verið að við svindlum aðeins eins og ýmsir aðrir á undan okkur svo sem Stuðmenn eða Stones," segir Bubbi. „En það er á hreinu að við byrjum ekki fyrr en fjórtánda. Þá ætlum við að spiía á Tveimur vinum. Hjá Kára á Vogi!“ Sama liðsskipan verður hjá GCD og þegar hljómsveitin varð til fyrir tveimur árum. Gunnlaugur Briem leikur á trommur, Rúnar Júlíusson á bassa og bræðurnir Bubbi og Berg- þór Morthens á gítara. Bubbi og Rún- ar sjá um sönginn. Þeir sömdu á milli tuttugu og þijátíu lög áður en upptökur nýju plötunnar hófust. Fjórtán voru hljóðrituð, tólf notuð. Hinu hent. „Við þurftum ekkert á þeim að halda," segir Rúnar. „Við höfum úr nógu af efni að moða. Við spilum lög af báðum plötunum og bætum svo við efni frá Utangarðsmönnum og Egó og hinu og öðru sem ég hef flutt. Bæði af plötunni Rúnar og Otis sem kom út með mér fyrir jól og af eldri plötum." Hrattog hrátt Vinnan við Svefnvana tók um það bil hundrað og fimmtíu klukku- stundir 1 hljóðveri þegar allt er með tahð. Slíkt þykir lítið. „Þetta er betri plata en sú síðasta. Á því er enginn vafi,“ segir Bubbi. „Að vissu leyti er um beint framhald að ræða. En melódían má sín meira að þessu sinni. Og leikgleðin er meiri." Bergþór bætir við: „Við nostruðum ekkert yfir smá- atriðunum heldur reyndum að hafa allt sem mest lifandi. Ef tilfinningin var til staðar í því sem var tekið upp var það látið standa. Skítt meö það þótt það væri kannski ekki hundrað prósent fullkomið. Við vorum líka í miklu betra hljóðveri núna en síðast og það hafði sitt að segja með útkom- una.“ „Ahrifin eru þau sömu og fyrr,“ segir Bubbi. „Við erum undir áhrif- um frá Bítlunum, Stones og Creed- ence Clearwater Revival. En samt held ég að við séum núna komnir með okkar eigin hljóm. Fáum ekkert beinlínis að láni þótt við séum undir áhrifum.“ Ýmislegt er sambærilegt á Svefn- vana og á fyrri plötunni. Á henni fengu stjómvöld tóninn í laginu ís- landsgálgj. Sama er að segja um lag- ið Slæmt karma: „Þetta er slæmt karma, þetta er vont karma, og ég harma að þeir fá hlutverk niðr’á Al- þingi," er brotabrot úr textanum. Öll lögin eru rokkuð utan eitt órafmagn- að. Það heitir Flug-leiða-blús. „Við höfum engar jámbrautir og ef viö viljum syngja virkilegan trega- söng um stúlkuna sem er farin á brott þá verður hún að hafa farið með Flugleiðavél," segir Bubbi og glottir. „Þannig er þessi blús orðinn til. Erfitt sumar Láðsmenn GCD spá erfiðu sumri hjá íslenskum hljómsveitum. Mikilli samkeppni og hugsanlega litlum af- rakstri hjá sumum. „Við erum búnir að vera í þessari baráttu lengi en höfum aldrei séð fram á jafn harða samkeppni og núna,“ segir Gunnlaugur. „Hljóm- sveitimar, sem keppa á markaðin- um, hafa aldrei verið fleiri og sjálf- sagt verður ekkert auðvelt að fylla húsin eins og árferðið er núna. Það em allir búnir að bóka sig til hausts. Ef einhver hljómsveit kæmi fram á sjónarsviöið og ætlaði að halda dans- leiki fengi hún ekkert hús um helg- ar. Það er löngu búið að bóka þau öll Það er uppselt á markaðinum." Ráðið til að standa sig í keppni sem þessari er að tjalda til öllu því besta sem til er. - „Við ætlum að leggja miklu meira upp úr „sándi og showi“ en þegar viö vomm síðast á ferð fyrir tveimur árum,“ segir Bergþór Morthens. „Við erum með nýtt og öflugt hljóðkerfi og ljósakerfið verður einnig í góðu lagi. Það þýðir ekkert að slá af gæð- unum neins staðar þegar samkeppn- in er svona hörð.“ -ÁT Rage against the Machine. Þykir mjög lifleg á sviði. Rage against the Mac- hine á listahátíð í Hafnarfirði Ein þeirra hljómsveita, sem verið hafa á íslenska listanum undanfam- ar vikur svo og verið ofarlega á sölu- lista DV, er Rage against the Mac- hine. Þessi vinsæla hljómsveit er væntanleg á listahátíð í Hafnarfirði sem haldin verður innan skamms og mun hljómsveitin leika í Kaplakrika 12. júní. Er koma sveitarinnar mikfil fengur fyrir marga því hér er á ferð- inni hljómsveit sem vakið hefur mikla athygh að undanfomu og er á hraðri uppleið. Rage against the Machine, sem er frá Los Angeles, er skipuð fjórum liðsmönnum. Zack de la Rocha er söngvari hljómsveitarinnar, Timmy C bassaleUíari, Tim MoreUo gítar- keikari og Brad Wilk er trommuleik- ari hljómsveitarinnar. Ekki er langt síðan þeir félagar hófu að leika sam- an. Byrjuðu þeir á því að taka upp tólf lög sem þeir settu síðan á kass- ettu og seldu þar sem þeir vom að spUa hverju sinni. Tókst þeim að selja 5000 eintök af kassettimni sem segir nokkuð um þá hrifningu sem hljómsveitin vakti strax í upphafi. Rage against the Machine vakti fyrst athygU umheimsins þegar hún hitaöi upp fyrir þekktari hljómsveitir og söngvara. Má nefha Ice T, Pubhc Enemy og Pearl Jam en jafnt og þétt hefur hún verið að vinna sér nafn og nú er svo komið að sveitin þarf ekki á öðram að halda, stendur á eigin fótum með tónUst, sem margir eiga erfitt með að skipa í einhvem einn sérstakan flokk, en tónhst sem þykir áræðin og póUtísk um leiö og hún er áheyrileg. Rage against the Machine þykir góð og skemmtileg á sviði þannig að búast má viö miklu fjöri þegar hún stígur á svið í Kapla- krikal2.júní. -HK Plötugagnrýni Ýmsir - Reif í tætlur: ★ Léttvægt reif Reif í tætlur er önnur reif-safn- platan sem Steinar gefa út og inni- heldur mestanpart blöndu mis- þekktra erlendra reiflaga auk þriggja innlendra. Og það er með reifið eins og aðrar tónhstarstefnur að það greinist í þyngri og léttari deUdir og það er léttari deUdin sem ræður ríkjum á þessari plötu. Sumt sem hér er fram borið myndu hörð- ustu reifarar meira að segja varla kaUa reif einsogtilaömynda Abba- lagasyrpuna sem Def Syndicate býð- ur upp á. Og það verður að segjast að þessi samsuða er afspymu flöt og ómerkUeg og því miður er þeim Abbadrengjum, Bimi og Benny, greinUega ekki mjög annt um með- ferðina á tónsmiöum sínum. Þetta minnir mest á Stars on 45 hörm- ungina hér um árið. Fleiri gamlir smellir em hér komnir í reifbúning og má þar nefna hið vinsæla lag DoUýjar Parton, I WUl always Love You, gamla Clash lagið, Magnificent 7, og Jeff Wayne lagið, The Eve of the War. Fyrr- nefndu útgáfumar tvær era hvorag til bóta en flytjendur komast þó skammlaust frá sínu. Sú síðasta er hins vegar í stíl við Abbasúpuna sem áður var nefnd. Skásta með- ferðin á gömlu lagi er hins vegar útsetning Tonys Scott á gamla Doors-laginu, Riders on the Storm. Þekktasta lagið á plötunni fyrir utan þessa gömlu smeUi er tvímæla- laust lag 2 Unlimited, No Limit, sem er prýðisgott reifpopp og sama er aö segja um lag Def La Desh & The Fresh Witness, Tear It up. íslensku lögin þrjú standa þeim útlendu lítt eða ekkert að baki, til að mynda er lag Pís of keik, Two 0-0 One, í hópi þeirra betri á plöt- unni en lög Inner Core, IC God og Disco Invaders, Já! (Remix) bera nokkum vott um byijendabrag. Sigurður Þór Salvarsson Grimm dúndur - ýmsir: Tllþrifalít- ið dúndur Á dögunum sendu Steinar frá sér safnplötu þar sem kynntar era til sögunnar hljómsveitir sem munu láta að sér kveða í sumar. Að auki fylgja níu erlend lög með ýmsum flytjendum. Útlendu lögin eiga það sammerkt, utan Two Princes með Spin doctors, að vera óspennandi léttsiglt blöðrapopp. Verður frekari orðum ekki eytt að þeim hér. Hljómsveitin TodmobUe á tvö lög á Grimm dúndur, þar af er annaö gamalt en flutt með enskum texta. Nýja lagið sem heitir Ég vU brenna er ágæt smíð í sérlega huggulegum umbúðum eins og þeirra er von og vísa Eyþórs og Þorvalds. Lag Stjómarinnar, Ekki segja aldrei, er sama krakkapoppið og hljómsveitin hefur brasað ofan í landann á undanfómum árum. Gert með þeim ósköpum að manni finnst maður hafa heyrt það ótal sinnum þegar það lemur hlustir í fyrsta sinn. Meö öðrum orðum vel flutt en ófrumlegt popp sem líklegt er til vinsælda. Fyrsta lag Pláhnetunnar neglir mann ekki og er hætt við að hljóm- sveitin verði aö mála í sterkari Utum á væntanlegri plötu til að slá í gegn. í Span er er fitlað viö soul-tónhst en gaman hefði verið að sjá Pláhnet- una stiga skrefið til fuUs því enginn syngur soul betur hér á landi en StefánHUmarsson. Lag Guðmundar Jónssonar í víga- hug er hressUegt í flutningi Pelikan en viðlagið of khsjukennt til að hrífa gamlan aðdáanda hljómsveitarinn- ar. Hér er á ferðinni stuðlag sem góðglaðir syngja með steyttan hnefa í tjaldtúrum í sumar. Jet Black Joe á eitt bragömesta lag plötunnar, Down on My Knees. Ein- falt, kröftugt, melódískt rokk og ról þar sem grimmur gítar og seiöandi rödd orgelsins tónhöggvast. Þá er vert að geta flutnings Vesl- inga á PinpaU Wizard úr Tommy en hann er sérlega vel lukkaður og eykur vigt annars tilþrifaUtiUar plötu. Snorri Már Skúlason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.