Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1993, Blaðsíða 2
20 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993 Tónlist h íland (LP/CD) ❖ 1(1) Svefnvana GCD ♦ 2.(5) Rage against the Machine Rage against the Machine ♦ 3. (4) Are You Gonna Go My Way Lenny Kravitz 0 4. (3) Automatic for the People R.E.M. 0 5.(2) Grimm dúndur Ýmsir ♦ 6. (6) Now 24 Ýmsir ♦ 7(8) No Limits 2 Unlimited ♦ 8. (14) Unplugged Eric Clapton é 9. (9) Pochette Surprise Jordy ^10. (10) Suede Suede én. (11) Happy Nation Ace of Base ♦12. (20) Þetta stóra svarta Sniglabandið ♦13. (16) Bein leið KK-Band ♦14. (-) Saga rokksins 1988-1993 Ham ♦15. (-) Hits '93 vol. 2 Ýmsir 016. (12) Ronja ræningjadóttir Úr leikriti *17. (Al) Ten Pearl Jam 018. (15) Pelican Pelican 019. (7) A Pocket Full of Kryptonite Spin Doctors ♦20. (Al) Pure Cult Cult London (lög) ♦ 1(1) All that She Wants Ace of Base ❖ 2.(2) (I Can't Help) Falling in Love with You UB40 ♦ 3.(3) Sweat (A La La La La Long) Inner Circle ♦ 4.(12) Two Princes Spin Doctors ♦ 5. (-) Three Little Pigs Green Jelly 0 6.(4) Five Live George Michael and Queen ♦ 7.(16) Shout Louchie Lou & Michie One 0 8.(5) Tribal Dance 2 Unlimited 0 9.(7) I Don't Wanna Fight Tina Turner 010.(6) That's the Way Love Goes Janet Jackson l\ lew York (lög) ♦ 1.(1) That's the Way Love Goes Janet Jackson ♦ 2.(2) Freak Me Silk é 3.(3) Knockin' Da Boots H-Town ♦ 4.(8) Weak SWV 0 5.(4) Love Is Wanessa Williams ♦ 6.(7) Looking through Patient Eyes PM Dawn 0 7.(6) l'm so into You SWV 0 8.(5) Nothing but a 'G' Thang Dr. Dre é 9.(9) I Have Nothing Whitney Houston ♦10. ( ) Don't Walk away Jade Ban daríkin (LP/CD) ❖ i(i) The Bodyguard Úr kvikmynd ♦ 2.(3) Get a Grip Aerosmith 0 3. (2) Breathless Kenny G. ♦ 4.(4) Pocket Full of Kryptonite Spin Doctors ♦ 5. (-) Tell Me Why Wynonna 0 6.(5) The Chronic Dr. Dre ♦ 7. (6) Unplugged Eric Clapton ♦ 8. (8) It's about Time SWV ♦ 9. (9) Love Deluxe Sade ♦10. (-) Ten Summoner's Tales Sting B retlaríd LP/CD ❖ i.(i) Janet Janet Jackson ♦ 2. (2) Automatic for the People R.E.M. ♦ 3. (-) Kamakiriad Donald Fagen 0 4. (3) No Limits 2 Unlimited ♦ 5. (-) Dream Harder Waterboys ♦ 6. (-) Fate of Nations Robert Plant ♦ 7. (-) Unplugged.. .and Seated flod Stewart 0 8. (4) Breathless Kenny G. ♦ 9. (18) Pocket Full of Kryptonite Spin Doctors ♦10. (-) Utah Saints Utah Saints • Listinn er reiknaður út frá sölu I ölium helstu hljóm- plötuveislunum I Reykjavik, auk verelana vlða um landið. Rage against the Machine á listahátíðarhljómleikum í Hafnarfirði: Bræðingshljómsveit rokks og rapps Þeir sem leggja leið sína á listahá- tíðarrokkið í Hafnarfirði á laugar- daginn eftir viku fá að heyra í athygl- isverðri hljómsveit fyrir margra hluta sakir. Rage against the Mac- hine býður upp á öðruvísi tórdist en aðrar hljómsveitir. Þó ekki væri nema vegna þess væri ærin ástæða að skreppa í Kaplakrika og leggja við hlustimar. Rage against the Machine hefur náð merkilega miklum vinsældum hér á landi upp á síðkastið. Fyrsta plata hljómsveitarinnar hefur selst vel og var um skeið í efsta sæti DV- listans yfir stórar plötur. Á henni er aö< heyra sannkahaðan bræðing pönkkenndrar rokktónhstar, fönks og rapps. Textar eru oft á tíðum ber- orðir og kannski er það þeim að þakka hve hljómsveitinni hefur gengið vel að ná tíl íslenskra ungl- inga. Hljómsveitin er ekki aldin aö ámm. Hún kom fyrst fram opinberlega haustið 1991. Áður hafði hún tekið upp tólf lög á kassettu sem var síðar seld á hljómleikum. Einnig gátu fé- lagar í aðdáendaklúbbi hljómsveitar- innar keypt eintak. Þannig seldi Rage against the Machine fimm þúsund kassettur. Þær era nú orðnar verð- mætir safngripir. Aðahag kassett- unnar, Buhet in the Head (þar sem skotið er á stríð Bandamanna og ír- aka), er að finna í óbreyttum búningi á plötunni. Madonna vildi þá Útsendarar hljómplötufyrirtækj- anna vestanhafs em sífellt á höttun- um eftir nýjum söngvurum og hljóm- sveitum. Þeir sem starfa í Los Angel- es, heimaborg Rage against the Mac- hine, voru fijótir að taka við sér þeg- ar hljómsveitin byrjaði að spha opin- berlega. Rapp- og þungarokksbland- an hehlaði þá sem og feikhega lífleg sviðsframkoma. Maverick Records, plötufyrirtæki Madonnu, bauð fjór- menningunum guh og græna skóga. Þeir mátu máhð þannig að það gæti skaðað ímynd þeirra að vera á mála hjá Madonnu og höfnuðu því öhum thboðum. Epic, undirfyrirtæki Sony Records, náði hins vegar samning- um. Á merki þess kom fyrsta platan út seint í fyrra. Hún heitir eftir hljómsveitinni. Liðsmenn Rage against the Mac- hine vom reyndar lengi vel mjög ef- ins um að þeim hentaði að vera samningsbundnir stórri útgáfu. Þeir slógu hins vegar th þegar þeir voru fullvissaðir um að þeir fengju alveg að ráða ferðinni með tónhst sína. Að Rage against the Machine gagnrýnir þjóðfélagið harðlega í textum sínum og styður baráttuhópa með því að halda hljómleika til styrktar þeim. því leyti náðu þeir sambærilegum samningum og hljómsveitimar Clash og Pubhc Enemy sem Sony gefur einnig út. Gagnrýnir í textum sínum gagnrýna liðsmenn Rage against the Machine flest það sem þeim finnst fara aflaga í þjóðlíf- inu. Og í textunum eru þeir ekki að skafa utan af hlutunum. Aðahagiö á plötunni er Khling in the Name. Þar er svo fast að orði kveðið að vissara þótti að láta textann ekki fylgja meö á textablaði plötunnar. íjórmenn- ingamir láta sér hins vegar ekki nægja að gagnrýna kerfið. Þess vegna hafa þeir haldið hljómleika th styrktar ýmsum samtökum sem þeir hafa samkennd með. Þeirra á meðal er hópur sem berst gegn ofbeldi lög- reglumanna, annar sem berst gegn því að dýr séu notuð á thraunastof- um og samtök sem eru á móti rit- skoðun af hvaða tagi sem er, svo sem Parents for Rock and Rap. Erlendar hljómsveitir sem hafa komið hingað th hljómleikahalds eru af ýmsum toga. Einna helst má bera heimsókn Rage against the Machine saman við það þegar The Clash kom hingað th lands og lék á Listahátíð í Reykjavfk. Það verður hljómsveitin Jet Black Joe sem hitar upp á hljóm- leikunum í íþróttahúsinu í Kapla- krika. Ný dönsk og Todmobile á með- al sjö hljómsveita í Tívolí Tívofi hefur ekki hingað th verið vettvangur fyrir popptónleika en breyting verður á um helgina því hljómsveitimar Todmobhe og Ný dönsk munu standa fyrir stórtón- leikum í Tívoh á laugardagskvöld. En það eru ekki aðeins þessar þekktu hljómsveihr sem munu koma fram í Tívolí. Lipstick Lov- ers, Silfurtónar, Pirana, Poppins flýgur, Yukatan og Steinn Armann og Davíð Þór (Radíus) veröa einnig í Tívoh á stórtónleikum þessum. Ný dönsk og Todmobhe verða einn- ig í samstarfi á laugardagskvöld en þá munu þær leika í Tunglinu. Útgáfutónleikar hjá SSSól og Skriðjöklum í kvöld Útgáfa á hljómplötum stendur dagsins ljós tvær plötur, önnur er Tsjaka-búmm.Báðarþessarhljóm- með miklum blóma um þessar meðSSSólsembereinfaldleganafn sveitir verða með útgáfutónleika í mundir eins og ávaht á þessum hljómsveitarinnar og hin er með kvöld, SSSól f Tunghnu og Skrið- árstíma. Hjá Skífunni eru að hta Skriðjöklum og heitir hún Búmm- jöklar í Ömmu Lú. Stradlin til liðs viö Guns N'Roses Við sögðum frá því fyrir skemmstu að Gilby Clarke, gitar- leikari Guns NRoses, hefði hand- leggsbrotnað eftir smáóhapp á mótorhjóh og að Ifljómsveitin heföi í kjölfarið þurft að fresta fyrirhugaðri tónleikaferð um Bandarfkin. Nú hafa mál hins vegar æxlast svo að Izzy Stradlin, einn af frumherjum Guns ISPRo- ses og forveri Clarkes á gítarnum, hefur þekkst boð um að hlaupa í skarðið fyrir Clarke og tróð hann upp með lhjómsveitinni um síð- ustu helgi og komur alls fimm sinnum fram með fyrrum félög- um sínum. Adams til Cult Craig Adams, fyrrum bassa- leikari bresku rokksveitarinnar The Mission, hefur gengið th hðs við The Cult og kom þessi ráðning bresku poppressunni mjög á óvart. Adams, sem eitt sinn lék théð Sisters of Mercy, var rekinn úr The Mission á síðasta ári eftir að platan Masque fékk fahein- kunn og olli miklum vonbrigðum. Donington- rokkí ár Donington-rokkhátíðin mikla, sem undanfarin ár hefur verið ein stærsta þungarokksveisla ársins í Evrópu, verður ekki haldin á þessu ári eins og fyrir- hugað var. Skýringin er einfald- lega sú aö forráðamönnum hátíð- arinnar tókst ekki að lokka neitt af stóru nöfnunum í þungarokk- inu á hátíðina. Hljómsveitir eins og Guns N’Roses, Bon Jovi, Met- ahica og Iron Maiden, svo ein- hverjar séu nefndar, voru allar búnar að bóka sig annars staðar á þeim tima sem hátíöin áttí að fara fram og þvi var alráðið að hætta við aht saman. Morrissey r x r x. • Eitt af bresku slúðurblöðunum hélt því fram fyrir nokkm að Morrissey hefði greitt banda- rískri stúlku 5,7 milljónir króna í skaðabætur vegna meiðsla sem hún áttí að hafa hlotíð á tónleik- um með kappanum. I blaðinu var stúlkan nafngreind og því haldið fram að Morrissey heíði kastað lítilh trommu i andlitiö á henni á tónleikum í Texas. Og th að losna við málshöfðun hefði hann sam- þykkt að borga fyrrgreinda upp- hæð til stúlkunnar, Það eina sem eyðhagði fréttina var að Morriss- ey kom alveg af fjöllum og kann- aðist ekki við neitt af því sem þar stóð. ir'ir ■ ji • og kunnugt er af bandarískum uppmna en sló i gegn í Bretlandi og starfaði þar lengst af. Nú hafa Hendrix-viiúr í heimabæ hans vestra, Seattie, hafist haitda við undirbúning að safni sem þeir vilja reisa honum th heiðurs þar sem sýndar yrðu ýmsir gripir úr eigu Hendrix ásamt ööra sem tengist stuttum frægðarferli hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.