Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1993, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1993, Síða 7
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993 23 Kvikmyndir BÍÓBORGIN Sími 11384 Sommersby ★★VI Richard Gere og Jodie Foster gera vandasöm- um hlutverkum góð skil í dramatískri kvikmynd þar sem tekist er á um mikil tilfinningamál. Helst til of hægur gangur í sögunni. - H K Ljótur leikur ★★★★ Tvímælalaust ein besta mynd sem hingað hef- ur borist í langan tíma. Óvæntar ástir og ævin- týri írsks hryöjuverkamanns á Norður-lrlandi ogíLondon. -GB BÍÓHÖLLIN Sími 78900 Náin kynni ★★'/!2 Afskaplega rómantísk mynd um tvær undir- málsmanneskjur sem finna hvor aðra. Marisa Tomei leikur vel skrifaða persónu en persónu- sköpun stráksins rænir myndina þeirri dýpt sem húnþarfnast. -GE Malcolm X ★★★'/2 Ævisaga blökkumannaleiðtogans sem var „settur af" í blóma lífsins er magnaður efnivið- ur og Spike Lee er réttur maður á réttum stað. Myndin missir að vísu flugið á sama tíma og Malcolm. -GE Skíðafrí í Aspen ★,/2 Tveir vinir læra um lífið og ástina í skíðabrekk- um Colorado. Húmor annars þeirra heldur uppi lapþunnum og langdregnum söguþræði. Sæmileg skíðaatriði bjarga ekki miklu. -GE Konuilmur ★★ Al Pacino gerir það sem hann getur til að bjarga þessari mynd um ævintýri blinds og geðstirðs ofursta í stórborginni með skólasveini í sálarkreppu. Óskarstilnefningarmynd sem veldurvonbrigðum. -GB HÁSKÓLABÍÓ Sími 22140 Stál í stál ★★'/2 Vísindaskáldsaga gerð við þröngan kost en af talsverðu hugviti. Myndin er bókstaflega að springa af hugmyndum og líður hjá allt of hratt. -GB Löggan, stúlkan og bófinn ★★ Gamanmynd sem nær aldrei almennilegu flugi, fjarar út í meðalmennsku þrátt fyrir góðan leik RobertsdeNiroog BillsMurray. -HK Mýs og menn ★★★ Vönduð og áhrifamikil mynd um raunir farand- verkamannanna Georgs og Lenna, gerð eftir samnefndri skáldsögu Johns Steinbecks. -G B Lifandi ★★★★ Mögnuð kvikmynd um andlega og líkamlega þrekraun sem er ótrúlegri en orð fá lýst. Kvik- myndagerð eins og hún gerist best gerir áhorf- andanum kleift að skynja að „sigur mannsand- ans" er ekki orðin tóm í þessu tilfelli. -G E Vinir Péturs ★★★ Góð „vinamynd" um nokkra skólafélaga sem hittast eftir tiu ára aðskilnað á heimili eins þeirra. Góður leikur, vel skrifað handrit og styrk leikstjórn Kenneths Brannaghs skapar fína stemningu alla myndina. -HK Howards End ★★★ Dramatísk saga um tvær fjölskyldur í byrjun aldarinnar. Góð kvikmynd eftir klassísku bók- menntaverki. Breskir leikarar gera hlutverkum sínummjöggóðskil. -HK LAUGARÁSBÍÓ Sími 32075 Feilspor ★★★ /2 Einstaklega vel gerð sakamálamynd þar sem tvær sögur fléttast í eina. Lítt þekktir leikarar ná góðum tökum á áhugaverðum persónum. -HK REGNBOGINN Sími19000 Gamanleikarinn ★★★ Mjög vel heppnuð kómísk/tragísk saga um sviðsgrínista sem getur ekki slökk á sjálfum sér, jafnvel þótt hann vildi. handritið og húmor- inn eru afbragð og sömuleiðis Billy Crystal. Goðsögnin ★★'/2 Það munar um söguna hans Barker og leikinn hjá aðalleikurunum. Hitt dregur bara úr. -GE Ólíkir heimar ★★★★ Besta ástarsaga síðustu ára. Einstök sagan er róttæk og hefðbundin í senn og ristir dýpra en virðist í fyrstu. Styrkur myndarinnar felst í nýjum sjónarmiðum á mannleg samskipti án þess að fórna hraðri og spennandi frásögn glæpasögu. -GE Loftskeytamaðurinn ★★★ Bráðskemmtileg, öðruvísi saga um kvensaman uppfinningamann I Norður-Noregi snemma á öldinni. Aðalleikarar eru frábærir. -G E Ferðin til Las Vegas ★★ 'A Nicholas Cage í góðu formi er það besta í gamanmynd sem reiðir sig jafnmikið á söguna oghúmorinn. -GE SAGA-BÍÓ Sími 78900 Leikföng ★★«JU Það úir og grúir af góðgæti inni á milli þröngvaðs húmors og boðskaps en á endanum gengur myndin of langt. Levinson hefur færst einum of mikið í fang. Leikararnir þurfa ekkert að skammast sín. Meistararnir ★★,/2 Ekta amerísk formúlumynd sem vegna smellins handrits og skemmtilegra leikara er yfir meðal- lagi. -GE Stuttur Frakki ★★'/2 Vel skrifað handrit með góðum húmor er aðal myndarinnar sem fjallar um óheppinn franskan umboðsmann hljómsveita sem kemur til lands- ins. Myndin ristir ekki djúpt en stendur við öll fyrirheit. -HK STJÖRNUBÍÓ Sími 16500 Öll sund lokuð ★★ Van Damme er heppinn að vera staddur í bestu mynd sinni til þessa. Sagan er rislítil en leik- stjórnin smart og hasarinn harður. -G E Hetja: ★★★ Vá Mynd sem tekst að vera bæði stórskemmtileg og umhugsunarverð. Frábært handrit einbeitir sér meira aö sniðugri sögufléttu en persónun- um en stjörnurnarstanda fyrirsínu. -GE Fylkir tekur á móti KR - í síðasta leik4. umferðar í Getraunadeildinni Síöasti leikur 4. umferðar Getrauna- deildarinnar í knattspyrnu verður háður í kvöld. Þá leika Fylkir og KR á Árbæjarvelli og hefst viðureignin klukkan 20. Þessi lið voru í ólíkum hlutverkum í síðustu umferð ís- landsmótsins. KR-ingar fóru hamför- um gegn Víkingum og sigruðu, 7-2, þar sem leikmenn vesturbæjarliðs- ins sýndu á sér hina bestu hliðar. Fylkismenn töpuðu aftur á móti gegn FH-ingum, 4-0, í leik sem Fylkis- menn léku mjög illa. Ef þessir leikir eru bornir saman virðist sem KR- liðið sé mun öfiugara en leikmenn Árbæjarliðsins eru þekktir baráttu- ménn og nái þeir að stilla saman strengi sína á ný eru þeir til alls vís- ir í kvöld. 2. deild Föstudagur: Kópavogsvöllur kl. 20 UBK-Stjaman Laugaradagur: Þróttarvöllur kl. 14 Þróttur R-Þróttur N Grindavíkurvöllur kl. 14 Grindavik-BÍ Akureyrarvöllur kl. 14 KA-Tindastóil ÓlafsQaröarvöllur kl. 14 Leiftur-ÍR 3. deild Föstudagur: Selfossvöllur kl. 20 Selfoss-Magni Ásvellir kl. 20 Haukar-HK Borgamesv. kl. 20 Skallagrímur-Reynir Húsavíkurvöllur kl. 20 Völsungur-Grótta Laugardagur: Garðsvöllur kl. 14 Víðir-Dalvík 4. deild Föstudagur: yarmárvöllur kl. 20 Afturelding-Léttir Ármannsvöllur kl. 20 Ármann-Njarðvík Siglufjarðarvöllur kl. 20 KS-Neisti Neskaupstaðarv. kl. 20 Austri-Höttur Fáskrúðsfiarðarv. kl. 20 KBS-Huginn Laugardagur: Grýluvöllur kl. 14 Hamar-Árvakur KR-ingarnir Þormóður Egilsson og markvörðurinn snjalli Ólafur Gottskálks- son verða í sviðsljósinu í kvöld en þá heimsækja þeir Fylkismenn í Árbæinn í 4. umferð Getraunadeildarinnar í knattspyrnu. Stykkishólmsvöllur kl. 14 Snæfell-HB Sauðárkróksvöllurkl. 14 Þrymur-HSÞ-b Valbjamarvöllurkl. 14 Fjölnir-Víkingur Dvergasteinn kl. 14 Dagsbrún-Hvöt Selfossvöllur kl. 14 Ernir-Leiknir Reyðarfjarðan'öllur kl. 14 Valur-Sindri Kópavogsvöllur kl. 14 Hvatberar-Ægir Útivist: Helgarferð á Botnssúlur Útivist stendur fyrir dagsferð að Korpúifsstöðum á morgun kl. 13. Þátttakendur mæti við Árbæjarsafn á eigin bílum og þaðan verður ekið að upphafsstað göngu. Gengið verður niður í Gorvík og síðan með ijörunni yfir í Blikastaðakró. Á sunnudaginn verður lagt af staö kl. 10.30 að Móskarðshnúkum. Geng- ið verður frá Skarðsá upp í Móskörð og á Móskarðshnúka. Á hæsta hnúknum verður farið yflr á Trönu og til baka um Svínaskarð og Svína- skarðsleið. í dag stendur Útivist fyrir helgar- ferð á Botnssúlur. Gengið verður úr Botnsdal að Hvalvatni og gist þar í tjöldum. Á laugardag verður gengið á Miðsúlu og gist í Bratta. Á sunnu- dag verður gengið á Syðstusúlu og haldið áfram á Þingvöll. Lagt verður af stað kl. 18. Um helgina verður einnig farið í Bása við Þórsmörk. Þaðan verður farið í fjölbreyttar gönguferðir um Goðalandið og Þórs- mörkina með fararstjóra. Lagt verð- ur af stað kl. 20. Útivist stendur fyrir dagsferð að Korpúlfsstöðum um helgina. golfmótið Opna Boss mótið í gotfi verð- ur haldið í Grafarholti á laug- ardag og sunnudag. Leikið verður í karla- og kvenna- flokki án forgjafar þar sem um er að ræða stigamót til vals á landsliði og i opnum forgjaf- arflokki. Leíknar verða 36 holur og verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætín í hverjum flokki og fyrir að vera næst holu á 2. braut. Bikarmót í hjólreiðum Fyrsta umferð bikarmeistara- móts Eimskips í klifri og bruni á fjallareiðhjólum verður haldin á Bláfjallarafleggjaran- um víð Sandskeið á sunnu- dag. Keppt verður í karla- og kvennaflokki 16 ára og eldri, Keppni í klifri hefst klukkan 13 og í bruni klukkan 14. íslandsmót í kvartmílu Áhugamenn um bílaíþróttir ættu að fá eitthvað við sitt hæfi á laugardaginn. Þá fer fram íslandsmót I kvartmílu- keppni og verður keppnin á braut Kvartmíluklúbbíns í hrauninu gegnt Álverinu í Straumsvík. Pæjumótið i Eyjum Það verður mikið um að vera í Vestmannaeyjum um helg- ina en þá fer fram Pæjumót Þórs í knattspyrnu. Mótið hófst í gær og því lýkur með úrslitaleikjum á sunnudag. Stelpurnar, sem keppa á mót- inu, eru 800 talsins og allir leikirnir fara fram á grasi. Ferðir Ferðafélagið Á morgun verður lagt af stað í hina árlegu ferð Ferða- félagsins um Njáluslóðir. Lagt er af stað kl. 9 frá Um- ferðarmíðstöðinni og Mörk- inni 6. Á sunnudaginn verður sjötti áfangi Borgargöngunn- ar. Fyrri ferðin verður farin kl. 10.30 en þá verður gengið frá Kaldárseli upp í Grindaskörð að Bollum og síðan að Þrí- hnúkum. Frá Kaldárseli verð- ur fyrst fylgt Selvogsgötu, sem var alfaraleið milli manna frá Innesjum. Klukkan eitt verður farin stytri ganga á þessu sama svæði, þ.e. frá Kristjánsdölum að Þríhnúkum. Ekið verður eftir Bláfjallavegi vestari og farið úr bílnum í Kristjánsdöl- um, sem eru kippkorn norðar en Grindaskörð. Gengið verður á Kristjánsdalahorn og þaðan til norðurs að Þríhnúk- um og litast um og skoðaðir þessir merkilegu eldgígar. Hóparnir sameinast við Þrí- hnúka og halda sem leið ligg- ur niður á Bláfjallaveg þar sem rútan bíður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.