Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Blaðsíða 4
30
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
t@nlist
DV
Sólin, Nýdönsk, GCD
og fleiri slá í púkk
stórtónleikar í Kaplakrika
„í húsinu er frábært sviö, stórt
ljósakerfi og aðstaða öll hin besta.
Okkur fannst því tilvahð að nota
tækifærið og efna til stórtónleika
áður en allur búnaðurinn verður
tekinn niður,“ segir Karl Pétur Jóns-
son, umboðsmaður hljómsveitarinn-
ar SSSól. Hún kemur fram í íþrótta-
húsinu í Kaplakrika annað kvöld
ásamt GCD og Nýdanskri. Einnig
leika hljómsveitirnar Bone China og
Lipstick Lovers. Hljómleikarnir eru
haldnir með fulltingi Ölgerðarinnar
og kallast Pepsírokk.
Karl Pétur segir að hugmyndin að
hljómleikunum sé orðin nokkuð
gömul. Upphaílega stóð til að halda
þá sextánda júní. Þá var hins vegar
reiknað með að bandaríska hljóm-
sveitin Rage against the Machine
myndi spila hér á landi þann dag svo
að ákveðið var að seinka atburðinum
um nokkra daga.
New Order- Republic
★ ★ ★
Eigulegur gripur sem svíkur
hvorki gamla aðdáendur né þá sem
eru að kynnast New Order í fyrsta
sinn. -SMS
Dwight Yoakam
- This Time
★ ★ ★
Tónlist Yoakams einkennist af af-
burðagóðum lögum, einfóld,
melódískoggrípandi. -SÞS
Suede - Suede:
★ ★ ★
Hrifandi gripur fyrir þá sem krefj-
ast einhvers af þeirri tónlist sem
þeirhlustaá. -SMS
Bruce Springsteen
- In Concert:
★ ★ ★
Sker sig litt úr öðru hijómleikaefhi
frá Springsteen... Þétt og örugg
spilamennska. -ÁT
Lipstick Lovers
- My Dingaling:
★ ★ ★
Heillandi og óvenjuþroskað byrj-
endaverk. Blússkotið rokk á amer-
fsku línunni sera fléttast utan um
myndrænatexta. -SMS
Pláhnetan - Speis
★ ★ 'A
Pláhnetan hefur alla burði til að
gera stóra hluti og má vel við þessa
plötuuna. -SÞS
GCD - Svefnvana:
★ ★ ★
Talsverð framfór frá fyrri pfötu...
Rokk í sinni einfóldustu mynd. -ÁT
Bogomil Font...
- Ekki þessi leiðindi:
★ ★ ★
Sannkallaöur gleöigjafi sem á eftir
að hressa lund landans, höfðar til
táningasemogellibelgja. -SMS
Rúnar Júlíusson, Bubbi Morthens og Helgi Björnsson kanna aðstæður
á hljómleikunum.
Kaplakrika, en þeir verða í sviðsljósinu
DV-mynd GVA
Við allra hæfi
„Við vonumst að sjálfsögðu til að
sjá sem flesta á fóstudagskvöldið og
ætlum þess vegna að stilla verði að-
göngumiða sem mest í hóf,“ segir
Karl Pétur. „Heimsókn í Kaplakrika
^btugagnrýni
►T •*
á ekki að þurfa að kosta meira en ein
bíóferð. Miðinn verður seldur á þús-
und krónur. Húsið verður opnað
klukkan hálfátta og hálftíma síðar á
fyrsta hljómsveitin að heíja leik sinn.
Síðan kemur hver af annarri og
hljómleikunum lýkur væntanlega
um kiukkan eitt eftir miðnætti.
Hugsanlega síðar.“
Boðið verður upp á sætaferðir frá
íþróttahúsinu að hljómleikunum
loknum. Einhver misbrestur varð á
sætaferðum að loknum tónleikum
Rage against the Machine og Jet
Black Joe um miðjan júní. Karl Pétur
segir að allt kapp verði lagt á að hafa
þær í lagi að þessu sinni og vonandi
hafi allir lært af mistökunum sem
þá voru gerð.
Mikiðfjör
Karl Pétur Jónsson lofar miklu
fjöri i Krikanum annað kvöld. Allar
hljómsveitirnar sem koma fram hafa
ýmislegt nýtt upp á aö bjóöa. Sólin,
GCD og Lipstick Lovers hafa nýlega
sent frá sér plötur. Nýdönsk er þessa
dagana aö hljóðrita plötu og Bone
China er ný hljómsveit sem þykir
lofa góðu. GCD og Sólinni hefur
gengið vel í harðri samkeppni á dans-
leikjamarkaði sumarsins en Ný-
dönsk haft hægt um sig vegna plötu-
upptökunnar. Sóhn notar tækifærið
til að frumsýna nýtt skyggnu„show“
ef það verður tilbúið fyrir kvöldið.
Unnið hefur verið að gerð þess und-
ahfamar vikur og er því ætlað að
skila mögnuðum áhrifum til að und-
irstrika tónhst hljómsveitarinnar.
„Hvort sem af þessari frumsýningu
verður eða ekki get ég fullyrt að
hljómleikamir verða einhverjir þeir
mögnuðustu sem völ er á á þessu
sumri,“ segir Karl Pétur. „Þetta eru
einu almennilegu stórtónleikamir
sem íslenskar rokkhljómsveitir
bjóða upp á og það eru allir ákveðnir
íaðgera sitt besta." -ÁT
Skriðjöklar-Búmm-
Tsjagga-Búmm:
★
Mislukkað grín
Góðlátlegt grín að því sem mönn-
um þykir yfirmáta hallærislegt er,
eins og annað, gott í hófi. Alkunna
er að til er aragrúi laga á íslandi sem
nú til dags þykja afspymu hallæris-
leg og mörg þeirra em ýmsar hljóm-
sveitir með á dansleikjaprógrammi
sínu og skjóta þeim inn endrum og
sinnum til að létta lundina. Shkt
má telja grín í hófi en þegar menn
taka sig til og gefa út heila plötu af
þessum lögum getur þaö gerst að
grínið snúist upp í andhverfu sína
og verði hallærislegt.
Þetta er það sem gerist á plötu
Skriðjöklanna, Búmm-Tsjagga-
Búmm þar sem samankomin era 10
lög sem öll em komin nokkuð til ára
sinna. Skriðjöklamir leggja ékkert
nýtt af mörkum við flutning þessara
laga og í flestum tilvikum em útgáf-
ur Skriðjöklanna mun lakari en
upprunalegu útgáfurnar. Égflokka
það til að mynda undir helgispjöll
að reyna að gera grín að stórgóðu
lagi Póló og Bjarka, Á heimleið, og
það er víst að söngur Skriðjökla-
manna kemst ekki í hálfkvisti við
söng Bjarka Tryggvasonar í þessu
lagi.
Svipað er að segja um lagið S.O.S.
sem Vilhjálmur heitinn Vilhjálms-
son söng á sínum tíma; flutningur
Skriðjöklanna er andlaus flatneskja
og hrein óvirðing við upprunalega
útgáfulagsins.
Hér hefur heldur betur verið skot-
ið yfir markið og ég tel að menn
ættu að halda sig við að hafa þessi
gömlu lög til skemmtunar á dans-
leikjum en sleppa því að hljóðrita
vitleysuna. Aðgát skal höfð í nær-
vem laga. Sigurður Þór Salvarsson
Kinks-Phobia:
★
Neistinn horfinn
Útkoma nýjustu plötu hljómsveit-
arinnar Kinks hefur vakið htla at-
hygh. Ástæðan er sú að hún er með-
almennskan uppmáluð - eins og
reyndar allt of margar plötur hljóm-
sveitarinnar síðustu ár. Þótt Ray
Davies kunni enn að setja saman
dægurlög og dágóða texta virðist
neistinn vera horfinn. Fátt er eftir
sem bendir til þess að höfundur lag-
anna á Phobiu sé sá sami og samdi
Waterloo Sunset, Sunny Afternoon,
You Really Got Me og fleiri stór-
smelli sjöunda áratugarins.
Senn em liðin þrjátíu ár frá því
að Kinks varð til í London. Enn era
nokkrar hljómsveitir til sem spmttu
upp í kjölfar sigurgöngu Bítlanna.
Flestar spila eingöngu lög sem þær
gerðu fræg á gullöldinni. Af þeim
sem fengist hafa við „nýsköpun" em
Rolling Stones og Kinks merkastar.
Því miður em þessir gömlu keppi-
nautar um vinsældir fjöldans á
árum og áratugum áöur vart sam-
anburðarhæflr lengur. Stones ber
titilinn mesta rokkhljómsveit
heimsins með miklum sóma en
vindurinn virðist gjörsamlega úr
seglunum hjá Kinks.
Ásgeir Tómasson
Donald Fagen - Kamakiriad:
★ ★★★
Hefur engu
gleymt
Það em margir búnir að bíða í
langan tíma eftir piötu frá Donald
Fagen. Þegar Steely Dan lagði upp
laupana 1980 leið ekki nema eitt ár
þar til Fagen sendi frá sér sólóplötu,
The Nightfly, sem híaut frábærar
viðtökur. Síðan em hðin tólf ár og
margir búnir að bíða með óþreyju
eftir nýju efni, en hingað til hefur
Fagen gengið erfiðlega að klára
dæmið. Margoft hefur hann viður-
kennt að tími sé kominn á nýja
plötu, en það var ekki fyrr en hann
fékk fyrrum félaga í Steely Dan,
Walter Becker, til að pródúsera að
hlutirnir fóm á hreyfingu.
Eins og oft vill verða þegar miklar
vonir eru bundnar við eitthvað geta
vonbrigðin orðið mikil, en sá kvíði
reyndist ástæðulaus. Kamakiriad er
í alla staði stórgóð, lögin, útsetning-
ar og hljóðfæraleikur, allt smellur
saman í spennandi heild og hin
heillandi rödd Fagens hefur ekkert
breyst. Kamakiriad gæti verið beint
framhald af The Nightfly, en þegar
grannt er skoðað er Kamakiriad
þyngri og þar eiga sér stað mun
meiri pælingar sem skila sér ekki
til hlustandans fyrr en eftir fyrstu
hlustun. Sjálfur segir Fagen að á
Kamakiriad séu átta samtengd lög
sem segja frá ferð sögumanns í
draumabílnum sínum og gerist sag-
an í nánustu framtíð. Þessar hug-
leiðingar Fagens gætu vel átt við
hann sjálfan þegar haft er í huga
síðasta lagiö, Teahouse On the
Tracks, þar sem sögumaðurinn er
aö gera það upp við sig hvort hann
eigi að hætta eða fara á vit hins
ókannaða.
Textar Fagens eru vel skrifaðir og
athyghsverðir en það er tónhstin
sem hrífur meira. Þetta sambland
af soul og djassi, sem einkenndi Ste-
ely Dan á sínum tíma, er hér til stað-
ar í heillandi og melódískum lögum
sem em frábærlega útsett af Fagen
og er erfitt að gera upp á milli þeirra,
en síðustu tvö lögin, On the Dunes
og Teahouse on the Tracks, eru sér-
lega athyghsverð því þar má
kannski greina það sem koma skal,
útvíkkun á tónhstinni.
Hilmar Karlsson