Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1993, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ1993
DV
Vinir Dóra senda frá sér nýja plötu, Mér Ifður vel:
lyktinni um allan helming
ef ske kynni að það örvaói
sölu á herlegheitunum. -----------------------------------
Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem söluvarningur tengdur Michael Jackson fer í hundana
því fyrir nokkrum árum fóru líkamsræktartæki með hans nafni
sömuleið. ' -SþS
Halldór Bragason úr Vinum Dóra. Hljómsvertinni hefur verið boðið á fljótandi
blúshátíð í karabíska hafinu á næsta ári.
Hljómleikaferð um
ísland
Hins vegar stendur hljómleikaferð
um ísland fyrir dyrum hjá hljóm-
sveitinni í næsta mánuði. Þá ætla
Vinir Dóra að efha til hljómleika á
Austurlandi, fyrir norðan og jafnvel
víðar. Hljómsveitin hefur haldið
nokkra hljómleika að undanfómu og
fengið ágætis undirtektir blúsáhuga-
manna, að sögn Halldórs. Meðal
annars spilaði hún fyrir fullu húsi í
Hreðavatnsskála á dögunum. -ÁT
Yfirlit yfir starfið
„Þessi diskur er settur saman sem
heimild um ákveðinn tíma í íslensku
blússögunni. Tíma þegar erlendír
gestir komu hver á fætur öðrum og
miðluðu okkur af tónlist sinni. Fyrir
mig er ákaflega gaman að hafa sett
þennan disk saman því að þama em
þeir listamenn saman komnir sem
hafa gefið mér og okkur í hljóm-
sveitinni vítamínsprautu. Hvatt
okkur til dáða og gert okkur að betri
blúsmönnum en við værum ef þeirra
hefði ekki notið við,“ segir Halldór
Bragason. Hann er að lýsa nýút-
kominni geislaplötu Vina Dóra sem
heitir Mér líður vel.
Margir flytjendur
Vinir Dóra eru fjölmargir á nýju
plötunni. Þar syngja Pinetop Perk-
ins, Chicago Beau, Jimmy Dawkins,
Billy Boy Arnold, Deitra Farr,
Shirley King og Tommy McCracken
á síðustu tyeimur til þremur árum.
Halldór, Ásgeir Óskarsson, Guð-
mundur Pétursson, Haraldur Þor-
steinsson og fleiri gegna síðan veiga-
miklu hlutverki á plötunni.
Það er Straight Ahead Records
sem gefur plötuna út. Það fyrirtæki
eiga þeir saman Halldór og Chicago
Beau. Ætlunin er að platan verði
gefm út víðar en á íslandi en enn
hefur ekki orðið af því.
Ekkert liggur á
„Okkur liggur ekkert á,“ segir
Halldór. „Við höfum meðal annars
fengið tilboð frá Alligator Records í
Bandaríkjunum um dreiflngu þar.
Það fyrirtæki hefur meðal annars
Albert Collins og Johnny Winter á
sínum snærum. Við höfum hins
vegar verið í viðræðum við annað
fyrirtæki, Evidence, og ég býst við að
við göngum til samstaifs við það. Þá
hefur sú hugmynd skotið upp koll-
inum að við setjum plötunaá markað
í samvinnu við Japis og nokkra
Japana sem eru mjög áhugasamir.
Japanir hafa geysilega gaman af
blústónlist. FijMs tjáningin er í fullu
ósamræmi við hegðunarmynstur
þeirra og einhver hefur sagt að
blúsinn fái þá til að sleppa fram af
sér beislinu."
Erlendar heimsóknir
Vinum Dóra var boðið á blúshátíð
í Chicago um hvítasunnuna. Halldór
Bragason segir að sú ferð hafi í alla
staði gengið mjög vel. í kjölfar
hennar var Vinum Dóra boðið að
taka þátt í allsérstæðri blúshátíð í
mars á næsta ári. Hún kallast Blues
Cruise og fer fram á skemmtiferða-
skipi. Látið verður úr höfn í Galve-
ston í Texas og siglt um Karíbahafið
í átta daga.
„Þetta er mjög spennandi hug-
mynd og ég ætia að reyna hvað ég
get til að komast á þessa hátíð," segir
Halldór. „Aðrir sem hefur verið
boðið í ferðina eru Chicago Beau,
Pinetop Perkins, Billy Kent sem er
ný stjama vestanhafs, Deitra Farr,
Sidney Wingfield og Fanroudou Don
Moye trommuleikari Art Ensemble
Of Chicago. Það er mikill heiöur að
vra boðið að spila með hópi sem
þessum."
Vinum Dóra hefur einnig verið
boðið að koma í heimsókn til Kanada
og blúsa þar. Þá hefur hann áhuga á
að fara í hljómleikaferð um Banda-
ríkin en slíkt er dýrt fyrirtæki og
mikil hætta á að slík ferð verði farin
með tapi.
Tónlistargetraun
DV og Spors
Tónlistargetraun DV og Spors er
laufléttur leikur sem allir geta tekið
þátt í og unnið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í hverri
viku verða birtar nokkrar auðveldar
spumingar um tónlist og það sem er
að gerast í tónlistarlífinu. Fimm
vinningshafar hljóta svo geisladisk í
verðlaun frá hljómplötufyrirtækinu
Spori hf.
Að þessu sinni er það geisla-
diskurinn Rigg frá Stióminni sem er
í verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Pláhnetan á nú tvö lög á topp 20
íslenska listans. Hvað heita
þessi lög?
2. Nýverið kom út safnplatan
Bandalög 6. Hvað eru margir
flytjendur á plötunni?
3. Hvað hefur hljómsveitin Stjóm-
in gefið út margar plötur og hvað
heita þær?
Rétt svör sendist DV fyrir 5. ágúst
merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík.
Dregið verður úr réttum lausnum
5. ágúst og rétt svör verða birt í
tónlistarblaði DV 12. ágúst.
Hér em svo rétt svör við fyrstu
getrauninni:
1. Eitthvað meiriháttar, æðislegt.
2. Lost in Music.
3. 77 mínútur.
- »v4<;
tónligt:
Sting.
Sting til
r
Islands?
Miklar líkur em á því að hinn
heimsþekkti breski tónlistar-
maður, Sting, komi hingað til
lands í september. Ekki þó til að
spila fyrir landann heldur ætiar
hann að reyna íslenska gæðinga
á heimavelli ásamt fjölskyldu
sinni.
Aðdragandi málsins er sá að
umslag Ten Summoners Tales,
sem er nýjasta plata listamanns-
ins, prýðir tíu vetra íslenskur
gæðingur, Hrímnir að nafni.
Sting keypti Hrímni sérstaklega
af þessu tilefni en auk þess að
prýða umslagið kemur fákurinn
fyrir á myndbandi með öllum
lögum plötunnar. Eftir að hafa
hleypt Hrímni lýsti Sting yfir
áhuga á að sækja ísland heim og
fara í útreiðartúr á heimaslóð is-
lenska hestsins. Þessi ósk tón-
listarmannsins barst íslend-
ingum til eyrna og nú hafa
fyrirtækin íshestar og Flugleiðir
boðið honum og fjölskyldu -
hingað til lands í haust. Ekki er
endanlega ljóst hvort Sting mun
þekkjast boðið en hann hefur sett
ýmis skilyrði, m.a. vill hann að
fjölskylda sín fái algeran frið
fyrir íjölmiðlamönnum á meðan
á ferðalaginu stendur.
-SMS
Tina Turner.
Hljómleikaferð DV og SL:
Rokk-
veisla
DV og Samvinnuferðir-Land-
sýn bjóða 130 lesendum DV á
tónleika sem haldnir verða í
Lúneburg í Þýskalandi 3.-6. sept-
ember. Á hljómleikunum koma
fram margar af helstu stór-
stjömum tónlistarheimsins og *
má þar nefna Tinu Tumer, Rod
Stewart, Prince, Joe Cocker,
Chris De Burgh og hinar vinsælu
hljómsveitir Foreigner, O.M.C.
og Duran Duran.
Lagt verður af stað 3. sept-
ember frá Keflavíkurflugvelli og
þaðan flogið til Hamborgar. Gist
verður á Trefíhótelinu en þaðan
er um einnar klukkustundar
akstur á hljómleikasvæðið sem
er við flugvöllinn í Lúneburg.
Tónleikamir hefjast klukkan
18 sama kvöld og standa til kl.
22.30. Daginn eftir era tónleikar -
ff á kl. 12 á hádegi til kl. 23. Einnig
verða tónleikar 5. september.
Þann 6. september verður síðan
flogið aftur heim.
Ferðin kostar 39.600 krónur á
mann í tvíbýli. Innifalið í verð-
inu er flug, akstur til og frá
flugvelli og á tónleikana alla dag-
ana, gisting með hlaðborðsmorg-
unverði, íslensk fararstjóm og '*
flugvallarskattur.