Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1993, Side 3
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
- v'-4-';
tónliSt:
Gamall draumur að verða að veruleika:
Ellen og KK vinna
saman að plötu
Ellen Kristjánsdóttir er upptekin þessa dagana ásamt Kristjáni Kristjánssyni, betur
þekktum sem KK, við að hljóðrita lög á nýju plötuna. DV-mynd Hanna
Tónlistargetraun DV og Spors
Ellen Kristjánsdóttir söngkona og
Kristján bróöir hennar, best þekktur
sem KK, hafa undanfama daga veriö
önnum kafin við að hljóðrita lög á
nýja plötu sem er ætlað að koma út
á þessu ári. Vinnan hófst í síðustu
viku og síðan var þráðurinn tekinn
upp að nýju eftir frí um verslunar-
mannahelgina.
„Þessi plata verður með rólegu
yfirbragði en þó með hröðum lögum
inn á milli," segir Ellen. „Annars er
erfitt að segja til um heildaryfir-
bragðið strax. Við eigum eftir að gera
svo mikið ennþá. Kristján er sífellt
að fá nýjar og nýjar hugmyndir
þannig að það er eiginlega ómögulegt
að segja á þessari stundu hvemig
endanlega útkoman verður.“
Svarið vefst líka fyrir Ellen þegar
hún er spurð um stílinn.
„Ætli þetta sé bara ekki minn eigin
stiíl,“ segir hún loks. „Ég reyni að
hafa yfirbragðið eftir mínu höfði. Það
em engir stælar í tónlistinni, bara
við að gera það sem við höfum gaman
að.“
Meðal þeirra hljóðfæraleikara,
sem hafa lagt Ellen og Kristjáni liö,
era Sigtryggur Baldursson, Kormák-
ur Geirharðsson og Jóhann Ás-
mundsson. Ellen reiknar með að
Eyþór Gunnarsson og fleiri bætist í
hópinn síðar. Kristján hefur yfir-
umsjón með gerð plötunnar og sem-
ur nokkur lög. Ellen er höfundur
annarra og einnig verða á plötunni
fáein erlend.
„Við verðum þama með eitt Tom
Waits-lag og síðan einn eða tvo
þekkta djassstandarda," segir Ellen
og bætir við: „Textamir verða allir
á ensku. Þeir hafa orðið til þannig og
ég er hrædd um að þeir kæmu kjána-
lega út ef þeir yrðu þýddir á íslensku.
Þar að auki myndi það stinga í stúf
að vera með erlendu lögin með sínum
upphaflegu textum og síðan aðra á
íslensku. Við ákváðum því að hafa
þá alla enska.“
Það era liðin sextán ár síðan Ellen
Kristjánsdóttir byrjaði að syngja op-
inberlega. Það var með hljómsveit-
inni Tívolí. Eftir það gekk hún til liðs
. við Ljósin í bænum sem sendu frá
sér tvær plötur ogáriðl979 vakti hún
verðskuldaða athygli fyrir þátt sinn
í plötu Mannakoms, Brottför klukk-
an átta. Siðustu ár hefur Ellen verið
að hasla sér völl sem djasssöngkona
og síðastliðinn vetur kom hún fram
ásamt Berglindi Björk Jónasdóttur
og Andreu Gylfadóttur undir nafn-
inu Borgardætur.
„Við Borgardætur erum að vona
að við getum haldið áfram að koma
fram,“ segir Ellen. „Við höfum haft
hægt um okkur undanfama mánuði
vegna þess hve Andrea hefur haft
mikið að gera með hljómsveitinni
Todmobile en síðar á árinu gefst
okkur væntanlega tími til að koma
Tónlistargetraun DV og Spors er
laufléttur leikur sem allir geta tekið
þátt í og unnið geisladisk að laun-
um.
Leikurinn fer þannig fram að í
hverri viku verða birtar nokkrar
auðveldar spurningar um tónlist.
Fimm vinningshafar hljóta svo
geisladisk í verðlaun frá hljómplötu-
fyrirtækinu Spor hf.
Að þessu sinni er það geisladisk-
urinn Á rás um landiö sem er í verð-
laun.
Hér koma svo spumingarnar:
1. Hvaða lög af Bandalög 6 era á
íslenska listanum sem gildir
vikuna 5.-11. ágúst?
2. Hvað hefur hljómsveitin Tod-
mobile gefið út margar plötur?
3. Nefnið tvær hljómsveitir sem
Stefán Hilmarsson hefur starfað
með.
Rétt svör sendist DV fyrir 12. ágúst
merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
12. ágúst og rétt svör verða birt í
tónlistarblaði DV 19. ágúst.
Hér eru svo rétt svör við getraun
nr. 2:
1. Todmobile.
2. Speis.
3. Rigg.
fram. Þegar við skemmtum á Hótel
Borg síðastliðinn vetur höfðum við
með okkur sex manna hljómsveit,
Setuliðið. Nú stendur til að við
syngjum saman þrjár með undirleik
píanóleikara en vonandi gefst okkur
tækifæri til að koma fram með stóru
hljómsveitinni á árshátíðum næáta
vetur.“
En áður en að því kemur þarf að
ljúka nýju plötunni og Ellen er
bjartsýn á árangurinn.
„Við reynum að hafa sem mesta
ánægju af vinnunni sjálf. Allt hefur
gengiö vel hingað til og ég er
sannfærð um að framhaldið verður
ekki síðra." Á.T.
Átali
hjá
Bono
Bono hefur mikið verið í frétt-
um að undanförnu enda uppá-
tækjasamur. Hann hefur hringt í
ýmsa menn beint af sviðinu undir
nafninu MacPhisto á undanfomu
tónleikaferðalagi U2. Þannig
hringdi hann í Bill Clinton,
George Bush og Helmut Kohl og
síðast hringdi hann í Jean-Marie
LePen, forystumann öfgasinn-
aðra franskra hægrimanna, og
þakkaði honum sérstaklega fyrir
að hafa hleypt sér inn í landið en
LePen hefur mikinn ímugust á
útlendingum.
-SþS
►i
►I
►!
t!
►I
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
iAskriftarsíminn er 632700.
T."'
m AAAAÁÁAAAAAAAAÁAAÁAAAAAÁAAáAÁAiAÁAiiii