Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1993, Qupperneq 4
I l@nlist
FIMMTUDAGDH 9. SEPTEMBER 1993 -
4 Non Blondes:
Jarðskjálfti stöðvaði
&
fyrstu æfinguna
Þú vissir það kannski ekki en 4 Non
Blondes, hljómsveitin sem á eitt
vinsaelasta lag sumarsms hérlendis,
What’s Up, er skipuð þremur stúlkum
og einum karlmanni. Náttúröflin
gerðu sitt til að hindra að hún kæmist
á legg. Hljómsveitin ber nafn með
rentu, það er ekki ljóst hár að finna
á liösmönnum hennar. Hljómsveitin
er bandarísk en ekki bresk, hún hefur
fengið miklu betri viötökur í Bret-
landi en heima hjá sér enn sem komið
er.
Reyndar er nokkuö síðan 4 Non
Blondes vakti athygli á heimaslóðum
sínum í San Fransisco, blaðið The
San Fransisco Bay Guardian valdi
sveitina bestu nýliða ársins í fyrra og
platan Bigger, Better, Faster, More!
var líka valin besta byrjendaverk
ársins. Platan er nefnilega meira en
ársgömul. Svona eru vegir vinsaeld-
anna órannsakanlegir og þyrnum
stráðir oft á tíðum.
með brotið viðbein.
Á spítalanum tekst henni að yfir-
vinna eiturlyfjafíknina og hugsa sinn
gang. Hún ákveður að halda til San
Fransisco og byrja nýtt líf. Þar upp-
götvar hún að við slysið hefur rödd
hennar heldur betur breyst og í
framhaldi af þvi fer Perry að troða
upp með gítarinn sinn. Þjóðlaga-
tónlist, blús og annað í þeim dúr höfð-
aði fljótt til hennar og hefur veriö
grunnurinn í því sem hún hefur gert
á sviði tónlistar síðan.
sitja á bekk í almenningsgarði í San
Fransisco og fram hjá þeim gengur
vísitölufjölskylda, sem samanstend-
ur af ljóðshærðum dreng á að giska
sex ára og foreldrum hans báðum
ljóshærðum. Drengurinn sér pitsu-
sneið liggja á nærliggjandi bekk og
ætlar að taka hana upp. Móðir hans
bannar honum það höstuglega og
segir pitsuna ábyggilega skituga og
lítur um leið á stúlkumar fjórar, ekki
alltof vel til hafðar og allar dökk-
hærðar. Þar með var nafnið komið.
Vísitölufjölskylda
gaf nafnið
Öflug byrjun
Það gekk ekki andskotalaust fyrir sig að koma saman hljómsveitinni 4 IMon Blondes.
Frostbite - The Second Coming:
★ ★ ★
Beinbrotið breytti
öllu
Eftir nokkra yfirlegu kom í ljós að
platan er stútfidl af göldrum Hilmars
Amar sem heilabúið ánetjast hægt en
örugglega. -SMS
Deep Purple -The Battle Rages On:
Prímusmótor hljómsveitarinnar
er söngvarinn og gitarleikarinn
Linda Perry. Hún þykir hafa ein-
staklega kraftmikla og sérstæða rödd
og hefur margsinnis verið líkt við
Janis Joplin. Hún ólst upp í Massa-
chusetts, átti stormasama æsku, var
á kafi í eiturlyfjum og sukki og
framtíðin hreint ekki björt. Tónlistin
var þó alltaf einhvers staðar nærri og
Perry bæði samdi og flutti lög við
ýmis tækifæri þó alvaran á bak við
það væri engin.
Svo gerðist það eitt sinn í vímunni
og villunni að hún dettur niður stiga.
Fallið er níu metrar en fyrir ein-
hverja slembilukku sleppur Perry
Smám saman fæðist hugmyndin að
stofnun hljómsveitar og þær Christa
Hillhouse bassaleikari og Dawn
Richardson trommuleikari koma inn
í myndina. Þær eru líkt og Perry
hvorugar upprunnar í San Fransisco,
Hillhouse er frá Oklahoma en Ric-
hardson frá Pasadena. Fjórða stúlkan
var líka með í spilinu til að byrja með
og reyndar kemur núverandi gítar-
leikari, Roger Rocha, ekki til sögunn-
ar fyrr en eftir að platan Bigger,
Better, Faster, More! kom út.
Áður en stúlkumar byrja að æfa
fyrir alvöru dettur nafn hljómsveit-
arinar upp í hendumar á þeim. Þær
Þegar hljómsveitin er komin með
nafn er ekki eftir neinu að bíða og
ákveðið að taka til óspilltra málanna
við æfingar. En það ætlar ekki að
ganga andskotalaust fyrir sig. Fyrsta
æfingin er tímasett 17. október 1989
klukkan sex síðdegis. Klukkan fimm
mínútur yfir fimm ríður einhver
öflugasti jarðskjálfti siðari ára í
Kalifomíu yfir, hús og umferðarbrýr
hrynja og allt fer á annan endann.
Æfingunni er frestað.
Síðan stöðvar ekkert framgöngu 4
Non Blondes; hljómsveitin verður
brátt ein vinsælasta hljómsveit San
Fransisco, gerir hljómplötusamning
við Interscope records, tekur upp
plötu og framhaldið veit enginn
ennþá. -SÞ
Besta plata Deep Purple í mörg ár.
Jafnvel sú besta síöan veldi hljóm-
sveitarinnar reis sem hæst á árunum
1970-73. -ÁT
Jamiroquai
Ipl^tugagnrýni
► ▼ 4
- Emergency On Planet Earth:
Allt afskaplega vel gert og kannski er
það liðin tíð að menn geti fitjað upp á
einhverjum nýjungum í þessari tónlist.
-SþS
Josefin Nilsson - Shapes:
★ ★ ★
GuilfaUegar melódíur í anda hljóm-
sveitarinnar Abha, enda eru höfundar
laganna engir aðrir en Bjöm Ulvaus og
Benny Anderson. -SÞS
UB 40 - Promises and Lies:
★ ★★
Frægasta reggýsveit veraldar með
afskaplega áheyrilega tónlist en text-
amir era ekki eins beittir og áður.
-SMS
Billy Joel - River Of Dreams:
★ ★ ★
U2- Z00R0PA
★ ★ ★ ★
í safni frábærra platna U2 verður
ZOOROPA vafalaust talin með hinum
athyglisverðari. -SMS
Virkiíega
góður
lagasmiður
Rokkabillýband Reykjavíkur- Læf:
★ ★★
Bandið er í heild vel spilandi og tekur
sig greinilega ekki of hátíðlega enda fer
það langt á leikgleðinni. -SMS
JamesTaylor- Live:
★ ★ ★ ★
Fyrsta tónleikapiata gamla snillings-
ins og jafnframt ein albesta tónleika-
plata síöari ára. -SÞS
Það er léttara yfir Billy Joel á
River Of Dreams en á að minnsta
kosti tveimur síðustu plötimum
hans. Hann er þó reiður hér og þar
en í heildina er hann bara nokkuð
brattur. Sennilega eru að baki erfið-
ir tímar með endurskoðendum og
lögfræðingum. Billy sendir fyrr-
verandi fjármálaráðgjafa sínum
tóninn í laginu Great Wall Of
China. Sá var næstum búinn að
gera hann gjaldþrota.
Great Wall Of China er raunar
eitt af betri lögum plötunnar.
Minnir raunar eilítið á gamla
Kinksflugu, sennilega All Day And
All Of The Night. Úr því að maöur
er kominn út í samanburðar-
fræðina fer ekki hjá því að Paul
Simon komi upp i hugann við að
heyra besta lag plötunnar (og besta
lag Joels í langan tima) The River
Of Dreams. Það viröist vera undir
talsverðum áhrifum frá Paul Simon
um þaö leyti sem hann var á Suður-
Afríkuflippinu og sendi frá sér
plötuna Graceland.
Önnur lög af River Of Dreams,
sem vel má mæla með, eru No
Man’s Land og Shades Of Gray.
Þegar Billy Joel vandar sig er hann
virkilega góður lagasmiður og í
þessum fjórum lögum sýnir hann
sínar bestu hliðar. En síðan hættir
honum einnig til að detta niður í
meðalmennsku og jafnvel að
endurtaka sig. Lagið Lullabye
(Goodnight My Angel) finnst mér ég
hafa heyrt á nokkrum eldri plötum
hans og töluvert betri.
Ásgeir Tómasson
Ýmsir flytjendur
- Suðurlandsskjálftinn:
★ ★
Hverakippir
Plötur eins og þessi eru bráð-
naúðsynlegar í fámenninu hér á
landi. Þær eru vettvangur tón-
listarmanna sem vilja sýna getu
sína en fá ekki tækifæri til þess á
annan hátt án mikils tilkostnaðar.
Sumir eiga erindi við almenning,
aðrir ekki. Eigi þeir það ekki eru
þeir þó að minnsta kosti ekki búnir
að gera sjálfan sig og sína nánustu
gjaldþrota með misheppnuðu
plötuævintýri.
Sunnlenskir rokkarar láta ljós
sitt skína á Suðurlandsskjálftanum.
Platan er ósköp meðalmennskuleg.
Helst að maður leggi eyrun við
lögunum Eyes Of A Stranger og
Dönsum við nóttina. Þá virðist
einnig vera neisti i lögum hljóm-
sveitarinnar Piranha. Það sem helst
dregur plötuna hins vegar niður er
dauðarokk Forgarðs helvítis, dauð-
leiðinlegt og dauðans óírumlegt.
Þessi stefna náði fótfestu meðal
nokkurra hundruða unglinga fyrir
tveimur árum eða svo og ég hélt
satt bést að segja að hún væri með
öllu komin undir græna torfu.
Ef Suðurlandsskjálftinn er þver-
skurður þess sem um er að vera hjá
ungum rokktónlistarmönnum á
Suðurlandsundirlendinu um þessar
mundir held ég að menn geti
bærilega við unað. Þeir valda svo
sem engum skjálftum - í mesta lagi
hverakippum. Þeir þurfa að taka
sér tak í lagasmíðum og útsetn-
ingum. Já, og umslagagerð.
Umbúðimar um Suðurlandsskjálft-
ann eru með því slappara sem
hefur sést lengi.
Ásgeir Tómasson
4 Non Blondes
Bigger, Better, Faster, More:
★ ★ ★
Herslumun
inn vantar
Fá lög hafa notið jafn gífurlegra
vinsælda í Evrópu í sumar en lag 4
Non Blondes, What’s Up. Lagið
hefur farið sigurfór um vinsælda-
lista álfurmar hvern á fætur öðrum
og þar er ísland ekki undanskiliö.
Flytjendumir em fjórar
bandarískar stúlkur sem kalla sig 4
Non Blondes en þær breytingar
hafa orðið á högum þeirra síðan
lagið var hljóðritað að ein stúlkan
er hætt og karlmaður kominn í
hennar stað.
Lagið What’s Up getur ekki með
nokkurri sanngimi talist dæmigert
fyrir 4 Non Blondes, þvert á móti.
Htjómsveitin leikur mestanpart
frekar hrátt blúsrokk undir áhrif-
um frá þjóðlagatónlist og pínulitlu
fonki.
What’s Up er því nokkuð sér á
báti á plötunni þó það stingi ekki
beint í stúf við annað efni. Það er
hins vegar bjargvættur plötunnar;
ekkert annað lag kemst með tæmar
þar sem þetta stórgóða lag hefur
hælana. Þar er einmitt kominn
Akkilesarhæll plötunnar; mjög svo
misgóðar lagasmíðar. Sveiflumar
em alltof miklar og slöku lögin of
mörg til að platan fái ágætiseink-
unn.
En vissulega er þetta athyglis-
verð hljómsveit og þá ekki síst
prímusmótorinn, sönkonan og
gítarleikarinn Linda Perry. Hún er
ein kraftmesta söngkona sem
komið hefur fram á sjónarsviðið á
síðust árum og það er ég viss um að
margur karlamðurinn væri
fullsæmdur af rödd sem þessari.
Það er því ekki undarlegt að Perry
hefur verið líkt við Janis heitna
Joplin. Við skulum þó vona að
Perry famist betur en Joplin og
þessi fyrsta plata 4 Non Blondes
bendir ekki til annars en að
framhaldið lofi góðu.
Sigurður Þór Salvarsson