Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1993, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1993, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 29 >WÍ«< tónliDt: Páll Oskar í ham - í tveimur danshljómsveitum og sendirfrá sér diskóplötu í desember Bogomil Font og Milljónamæring- amir eru án lítils vafa hljómsveit ársins á íslandi og plata þeirra, Ekki þessi leiðindi, selst platna best. Bogomil hefur nú lagt hatt og hljóð- nema á hilluna og flogið til heitari landa. Milljónamæringarnir munu þó halda áfram að gleðja landann og í stað snillingsinsfrá Júgóslavíuhafa þeir fengið söngvarann og útvarps- manninn Pál Oskar Hjálmtýsson. Það kemur í hans hlut að fylla það stóra skarð sem Bogomil Font skilur eftir sig sem söngvari og andlit hljómsveitarinnar. Það verður ekki auðvelt verk. „Ég tel mig ekki vera að feta í fótspor Bogomils, það gérir enginn," segir Páll Óskar Hjálmtýsson þegar hann er spurður út i verkefnið. „Hann er einstakur á sama hátt og ég. Ég fer ekki í fótin hans og hann ekki í mín. Við eigum það eitt sam- eiginlegt að dá þessa gömlu dans- tónlist og eftir nokkrar vikur að hafa sungið með sömu hljómsveit." - Verða áherslubreytingar á tón- listinni með komu þinni í Milljóna- mæringana? „Nei, en ég mun gera mitt til að hlaða meiri gleði í hljómsveitina og var þó nóg af henni fýrir. Til þess er- um við að þessu, að ylja fólki með gleðitónlist ogfá það táað hugsa með löppunum. Ég mun einnig reyna að taka sönginn af meiri alvöru en Bogomil gerði, með fullri virðingu fyrir honum.“ Páll Óskar segir það smartan leik hjá Milljónamæringunum að fá hann til að taka við af Bogomil því að samba, rúmba, mambó og djass hæfir rödd hans vel. „Það eru greinilega Qeiri á sama máli því þessa dagana berjast veit- ingamenn úti um allan bæ um að fá okkur bókaða þrátt fyrir að hafa aldrei heyrt mig syngja með band- inu. Mönnum list vel á uppskriftina,“ segir Páll Óskar. Elskar hjálpartæki og notar þau - Bogomil var þekktur fyrir að vera vel til hafður, í jakkafotum með hatt. Kemur til greina að brjóta upp þá ímynd, t.d. með dragsjóvi sem þú ert þekktur fyrir? „Dragið passar ekki á þessum vettvangi og það hefur ekki komið til tals að ég noti það með Milljónamær- ingunum. Hitt er rétt að ég er sjóví- týpa og elska öll hjálpartæki hvaða nöfhum sem þau kunna að nefhast. Búningar eru sterkt leikhúsmeðal og gott fyrir hljómsveit að eiga ímynd í gegnum búninga, sbr. Hljómsveit Svavars Gests, Grýlurnar, svo mað- ur tali nú ekki um Kiss. Ég hef því hug á að klæða hljómsveitina upp en sjálfur mun ég skipta ört um búninga á tónleikum," segir Páll Óskar. Hann eyddi lunganum úr sumrinu í New York þar sem hann vann með 25 manna draghópi sem heitir The Lunachicks. Páll Óskar segir það hafa verið holla viðkynningu að fýlgjast með baráthmni og streðinu sem fylgir því að koma sér áfram sem söngvari í milljónaborg. Hann var valinn úr hópi 50 umsækjenda til að syngja á næturklúbbnum og ste&ir á New York þó síðar verði. Þátttaka Páls Óskars í ævintýrum Milljónamæringanna er ekki eina verkefnið sem hann fæst við þessar vikurnar. Hann er með fleiri jám í eldinum. Ekki genginn til liðs við Ham „Ég er þessa dagana að vinna að minni fýrstu sólóplötu ásamt hljóm- sveitinni Funkstrasse en sú hljóm- sveit er hliðarfyrirtæki við Ham,“ segir Páll Óskar. „Ég er því starfandi í tveimur hljómsveitum um þessar vikunnar Rod Stewart Neitar að borga leppana Gamalt kínverskt spakmæli 1 ý segirad mennverði ekki ríkiraf '' , miklum tekjum heldur litlum 'Ær- ’ w1' 'ii útgjöldum. Kannski er þetta v’ leyndardómurinn bak vió ríki- W ->aU j# dæmi Rods Stewart's. í þaó P/i |v ? minnsta virðist hann skuld- í seigur í meira lagi blessaður og i slíkt minnkar jú útgjöldin eins 'iáPs jlJÍfrJ og íslenskt spakmæli segir: Js greidd skuld er glatatí fe. fféJE Vió sögdum frá þvi fyrr í sumar adjlSjM aó Rod neitaói lengi vel aó /' borga landslagsarkitekt nokkr- wHlg j um gardhönnun sem var þó /g umbedin. Nú er þaó fatahönn- HHHLHHIH^HH unarreikningur síóan 1988 sem enn hefur ekki fengist borgaóur. Um er aó ræóa fjórar forláta silkiskyrtur, jafnmargar silkibuxur auk jakka úr köflóttu efni og leggur reikningurinn sig á skitnar tvöhundruó þúsund krónur. Þessa stórupphæð sídan 1988hefurhönnuóunumsemsagtekki tekist ad innheimta hjá Rod og nú er svo komiö aó hann er komihn á lista yfirvarhugaveróa vióskiptaaóila hjá alþjóólegum samtökum skemmtikrafta. -SÞS DV-mynd GVA Það er mikið um að vera hjá Páii Óskari Hjálmtýssyni þessa dagana. mundir. Þær eru ólíkar að því leyti að með Funkstrasse er ég að fást við diskótónlist. Danstónlistin tengir því þessar hljómsveitir saman. Þó ég sé að spila með strákunum í Ham þá er ég ekki kominn í þá hljómsveit eins og margir halda enda langur vegur frá rokkinu sem Ham spilar yflr í diskóið. Það var einmitt ást okkar á diskóinu sem dró okkur saman. Hugmyndin varð til í New York í sumar þar sem ég hitti Jóhann Jóhannsson og Sigurjón Kjartansson úr Ham. Við þrír semjum tónlistina á nýju plötuna, efnið verður allt frumsamið utan hvað við hressum upp á tvo gamla diskóslagara. Þannig tökum við ofan fyrir þessu timabili sem íslenskir tónlistarmenn náðu aldrei að festa hönd á. Við erum að gera dansplötu sem byggist á þessu tímabili, því hreinræktuð diskóplata verður ekki búin til árið 1993,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem er hlað- inn störfum þessar vikurnar eða eins og hann segir sjálfur. „Ég sveiflast eins og pendúll milli tveggja yndis- legra verkefha.“ Sólóplatan, sem hefur vinnuheitið Páll Óskar í ham, kemur út fýrir jólin en hann mun troða upp með Milljónamæringunum í fýrsta sinn á Ömmu Lú þann fyrsta næsta mán- aðar. Sú uppákoma verður með stæl eins og annað sem þessi geðþekki söngvari tekur sér fýrir hendur. Tónlistargetraun DV og Spors er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku verða birtar þrjár spumingar xrm tónlist. Fimm vinningshafar hljóta svo geisladisk í verðlaun frá hljómplötufyrirtækinu Spori hf. Að þessu sinni er það geisla- diskurinn So I Married an Axe Murderer - úr kvikmynd - sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. Hvað heitir nýjasta plata hljóm- sveitarinnar Soul Asylum? 2. Toad the Wet Sprocket sitja í 27. sæti listans þessa vikuna. Lagið kemur úr kvikmynd. Spurt er: Úr hvaða mynd? 3. Frá hvaða landi er dúettinn Culture Beat? Rétt svör sendist DV fyrir 23. september, merkt: DV, Tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Tónlistin úr kvikmyndinni So I Married An Axe Murderer er verðlaunin að þessu sinni. Dregið verður úr réttum lausnum 23. september og rétt svör verða birt í tónlistarblaði DV 30. september. Hér eru svo birt rétt svör við getrauninni sem birtist 26. ágúst: 1. Fjórar. 2. No Limits. 3. So I Married An Axe JVlarderer. Tónlistargetraun DV og Spors

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.