Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Síða 4
30 V * FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 I tSnlist Safnplatan sækir í sig veðrið Mörgum þykir aðgengilegast að byggja plötusafnið sitt upp á safn- plötum. Þær eru að sjálfsögðu margs konar. Sumar bjóða upp á eintómt reggae, aðrar eru með rokki, rappi, bíólögum, söngleikjatónlist eða bara því vinsælasta hverju sinni. Og sennilega höíöa þær til flestra. Fyrir svo sem áratug nutu slíkar safnplötur talsverðra vinsælda. Plötur eins og Á rás, Tvær í takt, Sprengiefni, Flugur, Dúndur, Án vörugjalds og fleiri. Þær voru byggðar upp á formúlu sem ein vin- sælasta safnplötuútgáfa þess tíma, K- Tel, fann upp og fullkomnaði. Á plötunum var aðallega að finna vin- sælar erlendar dægurflugur, vin- sældapoppið þá stundina, og einstaka íslenskt lag inn á milli. Þessi útgáfa hvarf af sjónarsviðinu í nokkur ár en er nú að ryðja sér til rúms á ný. Hljómplötuútgáfan Spor er þessa dagana að senda frá sér eina af þessum dæmigerðu safnplötum með vinsælli»popptónlist, Algjört möst. Danspoppið er þar alláberandi enda á það greiða leið á innlenda og er- A-ha- Memorial Beach: ★ ★ ★ Memorial Beach hefur upp á að bjóða vandaða, metnaöarfulla og huggulega kertaljósatónlist sem óhætt er að mæla með. -SMS Soul Asylum - Grave Dancers Union: ★ ★ ★ Hljómsveitin loks aö ná vinsældum eftir 10 ára puð. Platan er afskaplega jöfn að gæðum. -SÞS Billy Joel - River of Dreams: ★ ★ ★ Góðar lagasmíðar Biilys Joel og það er léttara yflr honum en á tveimur síðustu plötum hans. -ÁT Van Morrison - Too Long in Exile: ★ ★ ★ Blanda af blús- og soultónlist með létt- um djasskeim. Sem heild er platan vel yfir meðallagi og eigulegur gripur. -SÞS Boo Radleys - Giant Steps: ★ ★ ★ ★ Hér er komin ein af betri plötum ársins 1993 og ómögulegt að gera upp á milli laganna 17 sem prýða Giant Steps. -SMS Ýmsir-Grensan ★ ★ ★ í Grensunni eru góð kaup fyrir blanka rokkunnendur sem viþa skanna blóm- legan akur kröftugrar rokktónlistar. - SMS 4 Mon Blondes - Bigger, Better, Faster, More: *★★ Frekar hrátt blúsrokk undir áhrifum frá bjóölagatónlist, misgóð lög eftir atvikum. Aðallag plötunnar þó hiö afar vinsæla What's Up. -SÞS A.J. Croce - A.J. Croce: ★ ★ ★ Þegar á heildina er litið er þessi frumsmíð Croce virkilega góð tónlist, heillandi í öllum sínum gamaldags flutningi. -HK Soul Asylum, flytjendur vinsælasta lags sumarsins hér á landi, Runaway Train. lenda vinsældalista um þessar mund- ir. Á plötunni eru sextán lög og þar af aðeins eitt íslenskt. Það er lagið Ævintýri sem hljómsveitirnar SSSól og Todmobile hljóðrituðu síðla sum- ars til að vekja athygli á hljómleikum sínum í íþróttahúsinu í Kaplakrika. Lagið Ævintýri er raunar að ýmsu leyti dæmigert fyrir stöðu poppsins um þessar mundir. Lagið kom fyrst út í lok sjöunda áratugarins og nefhd- >«*•<< , .. pltutugagnrýni ist þá Time is on my Side. Hljóm- sveitin Ævintýri tók það upp á sína arma og gaf út á plötu við íslenskan texta Omars Ragnarssonar og nú hefur rykið verið dustað af því. Sömu sögu er að segja um æði mörg lög sem njóta vinsælda um þessar mundir. Þau eru gamlir smeflir sem rifjaðir hafa verið upp að nýju. Á Algjört möst eru það lögin I don’t like Reggae (úr lOcc-laginu Dreadlock Holiday) og syrpa þekktustu laga bandarísku dans- og diskósveitarinnar KC and the Sunshine Band. Þá er að finna dúett með Debbie Gibson og Craig McLachlan, You’re the one that I want úr kvikmyndinni Grease. Mörg lög á plötunni Algjört möst voru á íslenska listanum síðastliðið sumar eða eru þar um þessar mundir. Má þar nefna Mr. Vain með Culture Beat og Slow Motion sem Leila K. syngur. Þar er lagið Voice of Freedom sem Freedom Williams gerði vinsælt í sumar, sömuleiðis More and More með Captain Hollywood Project og lagið ljúfa Delicate sem er að finna á nýjustu plötu Terence Trents D’Arbys. Og ekki má gleyma titillagi fyrstu plötu sænsku hljómsveitar- innar Ace of Base, Happy Nation og einu alvinsælasta lagi sumarsins. Það er með hljómsveitinni Soul Asylum og heitir Runaway Train. Þótt danspopp sé í aðalhlutverki á plötunni Algjört möst ræður það þó ekki algjörlega ríkjum. Runaway Train flokkast undir mjúkt rokk. Þar er einnig að finna lagið So Young með rokksveitinni Suede sem oftar en einu sinni hefur verið kölluð bjart- asta von Breta á rokksviðinu og síðan eiga gömlu kuldarokkararnir Depeche Mode lagið Condemnation á plötunni. Það er eitt auðmeltasta lag hljómsveitarinnar frá því að Vince Clark hætti í henni fyrir tæpum áratug. Algjört möst sver sig sem sagt í ætt gömlu safnplötunnar. Stór breyting hefur þó orðið á útgáfunni síðan Flugur, Dúndur og þær systur allar voru gefnar út. Nú er hljómurinn orðinn fullboðlegur hverjum sem er. Áður var jafnvel tuttugu lögum troðið á tvær plötusiður með þeim afleið- ingum að hljómurinn varð ærið grunnur. Á geislaplötum nýtur tónn- inn sín til fullnustu. íslensku hljóm- plötuútgáfurnar hafa boðað að á næstu vikum séu væntanlegar fjöl- margar safnplötur af ýmsum gerðum, samtals fimmtán til tuttugu. Þeir sem vilja byggja plötusafnið sitt upp á söfnum eiga góða tíð í vændum. -ÁT Beverly Craven - Love Scenes: ” ★ ★ ★ ★ Einfalt og fallegt Á undanfömum árum hafa mjög svo fjölhæfar ungar söngkonur látið til sín taka á tónlistarsviðinu og nægir að nefna Sinead O’Connor, Tanitu Tikaram, Tori Amos og Björk Guðmundsdóttur í því sam- bandi. Allar þessar konur eiga það sameiginlegt að vera bæði frábærar söngkonur og lagasmiðir en þær em aldeilis ekki einar um það. Beverly Craven er bresk tón- listarkona sem tvímælalaust á heima í hópi ofangreindra kvenna. Hún gaf út fyrstu plötu sína fyrir þremur árum og fengu platan og listakonan mjög góðar viðtökur. Craven var meðal annars valin nýliði ársins í Bretlandi 1992. Og nú er komin ný plata frá Craven, Love Scenes, og sú er ekki af lakara taginu. Hún er einfaldlega feiknasterk frá upphafi til enda hvort sem horft er til tónsmíða, söngs, hljóðfæraleiks eða útsetninga. Beverly Craven minnir örlítið á Kate Bush í byrjun ferilsins án þess að því sé haldiö fram að hún sé beinlínis að stæla Bush. Lög Craven eru eins og lög Bush vom á sínum tíma, afskaplega ljúf og melódísk, enda er ást og kærleikur aðalyrkis- efni söngkonunnar eins og nafn plötunnar gefur til kynna. Samt er þetta langt frá því að vera einhver væmin vella; lögin era þess eðlis að þau þurfa nokkra hlustun til að síast inn, þau era bæði einfold og flókin í fegurð sinni. Útsetningar og öfl umgjörð lag- anna er sömuleiðis sérstaklega falleg og vönduð. Útsetjari og BEVERLEY CRAVEN LOVE SCENES upptökustjóri er Paul Samwell Smith, sem eitt sinn lék á bassa í Yardbirds, og meðal hljóðfæra- leikara á plötunni má nefna fyrrum félaga hans, Jeff Beck. Þá leikur ennfremur á gítar Ian nokkur Baimson semfeikið hefur með Pflot, ALan Parsons Project og lOcc og einnig má geta trommuleikarans góðkunna, Russ Kunkel. í stuttu máli; úrvalslið á úrvals- plötu. Sigurður Þór Salvarsson David Knopfler-The Giver; ★ ★ ★ Sterkur ættarsvipur Skyldleiki Marks og Davids Knopflers leynir sér ekki. Bræð- umir og samstarfsmennimir fyrr- verandi era á svipuðu róli í tónlist- inni. Síðustu árin hefur Mark þó verið að færa sig ivið meira yfir á sveitasöngvalínuna en David. Að minnsta kosti ef The Giver sýnir fyllilega hvaða strauma hann aðhyllist. Söngrödd bræðranna er svipuð, sömuleiðis efiiistök í text- um. Stóri munurinn er hins vega sá að annar semur lög sem ná eyrum milljóna hlustenda um aflan heim. Hinn er ekki jafn sterkur á svellinu þegar að þvi kemur að búa til grípandi laglínur. Margt er þó áheyrilegt á The Giver og fyrst og fremst er heildin sterk - platan er afar jöfn frá upp- hafi tfl enda. Flest era lögin nýleg af nálinni. Eitt þeirra, Southside Tenements, er þó frá árinu 1977 og hefur sennilega verið á leikskránni hjá Dire Straits til að byrja með áður en Mark Knopfler tók afgerandi forystu í hljómsveitinni. The Giver minnir raunar að ýmsu leyti á aðra plötu Dire Straits, Communique. Yfirbragðið er af- slappað og lögin líða hjá hvert af öðra. Stöku sinnum er gefið svolítið í, aðra stundina bregður fyrir djassívafi, og blústónninn er ekki langt undan í nokkrum lögum. En umfram aflt er The Giver notaleg á að hlýða. Á David Knopfler er engan rembing að frnna og hann þarf ekki að semja smelli eftir pöntun. Ásgeir Tómasson Rokk í Reykjavík - Ýmsir: ★ ★ ★ ★ Skyldueign Upphaf siðasta áratugar var einhver skemmtilegasti tími ís- lenskrar rokksögu. Eftir Lummur og ládeyðu reis upp ný kynslóð tón- listarmanna, ferskari og agressivari en hinar fyrri. Pönkið í Bretlandi hleypti nýju blóði í tónlistarlífið og það að vera í hljómsveit varð smitsjúkdómur sem fór um Reykjavík og lagði ungling og annan. Friðrik Þór Friðriksson kvik- myndagerðarmaður gerði fræga mynd um þetta mikla gróskutíma- bil í íslenskri tónlist sem heitir Rokk í Reykjavík. Tónlistinni úr myndinni var þrykkt á plast og hefur sá merki gripur verið ófánleg- ur í sjö ár eða þar til nú að platan er endurútgefin á geisladisk. Á Rokk í Reykjavík má héyra og sjá nokkra af þekktustu tónlistar- mönnum dagsins í dag í hlutverki byrjandans. I því tilliti er Rokk í Reykjavík einstæð heimild. Þannig má með nokkrum sanni segja að meðlimir Sykurmolanna hafi aflir sprottið upp úr þessu tímabili. Þrátt fyrir ótrúlega nekt era lögin á plötunni mörg hverorðin sígild. Hver man ekki eftir Ó, Reykjavik með Vonbrigðum, Rúdolf og KUler Boogie með Þey, Egó- lögunum Breyttir tímar og Sat ég inni á Kleppi, Þursunum I spegl- inum, Dúkkulísum með Tappa Tíkarrassi og besta lagi plötunnar í nótt með hinum kynngimögnuðu Fræbbblum. Þetta er aðeins brot af því besta sem Rokk í Reykjavík hefur upp á að bjóða. Hér má heyra tónum skrýdda sögu af því þegar bílskúrsböndin kúventu íslensku tónlistarlífi og bjuggu til íslenska nýbylgju. Rokk í Reykjavík er einfaldlega möst. Snorri Már Skúlason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.