Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1993, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 21. OKTOBER 1993
29
>' _ ▼
tónli0t
Vinnuslys var upphaf
tónl istarferi Isins
- Haraldur Reynisson trúbadúr með sína fyrstu plötu
Haraldur Reynisson er búinn aö
fást við tónlist í allnokkur ár. Þótt
hann sé ekki í hópi þekktustu tónlist
armannanna hér á landi hefur hann
nóg að gera og segist lifa ágætis lífi
af tónlistinni. Hann er nýbúinn að
senda frá sér sina fyrstu plötu og
segist raunar eiga efhi á tvær til þrjár
í viðbót. Platan heitir Undir hömrun-
um háu og hún verður kynnt ræki-
lega á útgáfutónleikum á Tveimur
vinum í kvöld.
„Ég var fyrst í stað að hugleiða að
vera einn með gítarinn í öllum lögum
plötunnar en féll svo frá því og fékk
nokkra góða menn til að spila með
mér á henni,“ segir Haraldur. „Upp-
haflega ætluðu Björgvin Gíslason og
Jón Olafsson að leika með mér á
henni en þá þurftu þeir að sinna
skyldum sínum með hljómsveitinni
Pelican. Ég fékk því Hallberg Svav-
arsson bassaleikara til liðs við mig.
Hjá honum var Ríkarður F. Jensen
að læra tannsmíði og hann sér um
trommurnar. Mér var bent á að
Tryggvi H”bner gítarleikari myndi
hæfa vel lögunum mínum og hann
var til í að vera með. Þegar mig vant-
aði banjóleikara var mér bent á að
Magnús Einarsson réði við öll hljóð-
færi sem hefðu strengi og hann var
til. Arnþór Jónsson hafði leikið á
selló hjá Bubba og hann var boðinn
og búinn að hjálpa til. Geir Gunnars
son er einn af eigendum stúdiósins
sem ég vann i og hann leikur á orgel
og loks er að geta Harðar Torfason-
ar, góðs kunningja míns, sem lagði
mér til nýtt lag og söng jafnframt í
því og öðru til viðbótar."
Haraldur var upphaflega að velta
vikunnar
Vinylplatan
í útrýmingarhættu
Enginn veit hvaó átt hefur fyrr eu misst hefur, segir máltækið.
Þannig var til að mynria ekki fyrr buiö að finna upp víðótninn
(stereóið) aó siofnuð voru samtökin „Aftur til mónó'' Þeim
hefur ekki orðið verulega ágengteinsog kunnugter. Nu þegar
gamla vinyiplatan er að syngja sitt síðasta og geislaplöturnar
aðytirtaka markaðmn erusprottin uppsamtöksemvilja bjarga
vinylplötunni frá glötun. Safe Vinyi heitir seiskapurinn og
frumkvöðlar að honum eru ýmsii smáútgefendur sem þjona
riiskótekaramarkaðnum eri sá markaður þrífst á vinylpiötum,
enria er ekki hægt að „skratsa" gejslaplöturnar. Baráttan
gengur aóaliega út a það að halda verðinu á vinylplötunni
niðri, því eftir að stóru útgáfufyrirtækin hættu að mestu að
gefa út vinylplotur hækkaöi framleiöslukostnaðurinn við þær
stórlega. Það er þessi kostnaður sem er aó ganga endanlega
af vinylplötunni dauðri.
-SÞS
fýrir sér að verða með lag Harðar við
texta Þórarins Eldjáms um Guðjón
bak við tjöldin á plötu sinni og hafa
það í svingútsetningu. Þegar hann
fékk að heyra lagið Frystihúsabrag
eftir Hörð fékk hann leyfi til að nota
það, breytti dálítið útsetningunni og
hljóðritaði það með höfundinum.
Óvart í tónlist
Haraldur Reynisson varð óvart
tónlistarmaður. Hann lenti i vinnu-
slysi fyrir nokkrum árum og frekar
en að gera ekki neitt fór hann að spila
á gítar. Hann kunni nokkur grip en
móðir hans bætti við kunnáttuna og
áður en langt um leið var hann farinn
að koma fram opinberlega.
„Ég spila nær eingöngu á pöbb-
iun,“ segir hann. „Á þeim vettvangi
er meira en nóg að gera. Það má
reyndar segja að ég sé orðinn mubla
á Fógetanum en einnig leik ég víðar.
Fer stundum til Vestmannaeyja,
Borgamess, Stykkishólms og fleiri
staða. Raunar á ég Norður- og Aust-
urland eftir en þar sem ég er núna
búinn að gefa út plötu verð ég að fara
þangað líka.“
Haraldur segir að ekki gefist alltaf
tækifæri til að spila mikið af sinni
eigin tónlist á ölkrám. Ef hópurinn
er góður - það er lítil ölvun - er hægt
að spila frumsamið. En það þarf ekki
nema svo sem fimm þéttkennda
áheyrendur til að allt slíkt sé
eyðilagt. Þá verður að grípa til
landsþekktra stuðlaga til að hafa
menn góða. Haraldur segir að ekkert
þýði að mæta á krá með fyrirfram
úthugsað prógramm. Það fari eftir
aðstæðum hverju sinni hvað best sé
að leika.
í kvöld er lagalistinn hins vegar
alveg á hreinu. Þá ætlar Haraldur að
kynna lög af nýju plötunni og bæta
nokkrum óútgeftium við.
„Ég er að hugsa um að byxja einn
á átta til níu lögum og bæta síðan
álíka mörgum við með hljómsveit-
inni. Þeir verða með mér í kvöld
Hallberg, Tryggvi og Trausti Ingólfs
son trommuleikari. Eg er reyndar lítt
vanur að koma fram með hljóm-
sveitum. Hef aðeins gert það fimni
sinnum áður en kann því samt ágæt-
lega. Ég er að minnsta kosti sann-
færður um að allt á eftir að ganga að
óskum í kvöld,“ segir Haraldur
Reynisson trúbadúr.
Haraldur Reynisson. Hann segist geta haft meira en nóg að gera við að leika á ölkrám
landsins. Ljósm. Einar Óli Einarsson
Tónlistargetraun DV og Spors
Tónlistargetraun DV og Spors
er léttur leikur sem allir geta tekið
þátt í og hlotið geisladisk að
launum. Leikurinn fer þannig
fram að í hverri viku verða birtar
þrjár spurningar um tónlist.
Fimm vinningshafar hljóta svo
geisladisk í verðlaun frá
hljómplötufyrirtækinu Spori hf.
Að þessu sinni er það
geisladiskurinn Algjört möst,
safnplata með 15 vinsælum lögum
sem er i verðlaun.
Hér koma svo spurning-
arnar:
1. Frá hvaða landi kemur
dúettinn Culture Beat sem
hafa verið mjög vinsæl
síðustu vikur með lagið Vain
og er á safnplötunni Algjört
Möst?
2. Hvað heitir lagið með
Terence Trent D’arby sem
hefur notið mikilla vinsælda
Terence Trent D'arby á lag á saf nplötunni Algjört
Möst.
og er að finna á safnplötunni
Algjört möst?
3. Á safnplötunni Algjört möst
er aö finna lagið Ævintýri
með SSSól og Todmobile.
Eftir hvern er textinn í
laginu?
Rétt svör sendist DV fyrir 28.
október, merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum
lausnum 28. október og rétt svör
verða birt í tónlistarblaði DV 4.
nóvember.
Hér eru svo birt rétt svör við
getrauninni sem birtist 30.
september:
1. All That She Wants og Wheel
of Fortune.
2. Bigger, Better, Faster, More.
3. Cat Stevens.