Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993 >A ‘ tónli0t Oðurtil hamingjunnar - Bubbi Morthens hampar fjölskyldulífinu á nýrri plötu Lífið er ljúft er heiti nýjustu plötu Bubba Morthens og er sá titill lýsandi fyrir stemninguna sem platan býður upp á. Bubbi veltir upp björtu hliðunum á tilverunni og hvílir að mestu spjótin sem hann hefur beint að ráðandi öflum í þessu landi í gegnum árin. Bubbi segist hafa gengið með hugmynd að nýju plötunni í þrjú ár en ekki framkvæmt hana fyrr en nú þegar hún var fulhnótuð. „Fyrsta hugmynd er bara skissa," segir Bubbi og bætir við. „Það er alltaf nauðsynlegt að gefa hugmynd tíma til að þroskast hversu góð sem hún er. Ef hugmynd er gefin tími hleður hún smám saman utan á sig þannig að á endanum er hægt að fara að vinna hana. Þannig varð þessi plata til. Hugmyndimar eru allt að því þriggja ára gamlar en lögin öll samin á sex vikna tímabili í vor. - Hvernig varð hugmyndin aö plötunni til? „Menn hafa sífellt verið að koma til mín og kvabba um Konu-plötuna. Viðkomandi segja hana mína bestu plötu sem gleður mig að heyra en ég get alls ekki verið sammála. Mér hefur einnig fundist það leiðinlegt fyrir konuna mína að hafa þurft að sitja undir því að plata um fyrr- verandi konu væri min besta. Kona var gerð þegar ég stóð í skilnaði og hún er hlaðin sjálfsvorkunn. Lífið er ljúft gerði ég hins vegar tO heiðurs hjónabandinu og konu minni sem hefur kennt mér að meta fjölskyldu- lífið. Það hjálpaði mér við gerð nýju plötunnar að geta leitað í smiðjur listamanna sem hafa tileinkað plötur eiginkonum sínum og ástinni. John Lennon samdi ófá lögin til Yoko Ono og Bob Dylan gerði tvær plötur þar sem hann syngur til konu sinnar. Desire sem er ástarjátning og Blood on the Tracks sem er skilnaðarplata. Eftir að hafa hlustað á þessa kappa vissi ég hvaða leið ég vildi fara án þess að falla í þá gryfju að apa eftir.“ Börnin losa menn undan helsi egósins - Þú ert þá búin að gera nýja konu- vikunnar Frank Sinatra Fyrsta platan í 10 ár! Frank Sinatra er lanqt frá þvi aö vera dauðui úr öliurn æðum þo har.n sé kominn vei a áttræðisa’dur. Nú um komsndí mánaðamót kemur út enn ein p!s.an með t-rankie Boy op inniheldur sú dúetta ymiss Kor.ar þar sem Frank fær úmsa osfntogaða songva>a cg songkon urtii aðtaka með séi n&mi? slagara. v'íðsvnir ,nenn ein< og FranK iáto sia ekk' muna um að bjóöa nápópp uðum söngvara e'ns og Bono að syng'e reö srr oq þe:r tpiagar lOKci s.i|,,ari larpö . gam'o i.r/e Porter lac iiiu. l’ve GotYou Under My Ski.n. Meóal annarra iaga i plöuinni má nefna What Now My Love,: ve Goithe Woeid on a Stri.ng ogThe! ady ís aT. amp. Medai heimsþekktra songlistamanna sem koma fram á piötu Frank Sinatra eru Liza Mirmelli, Aretna Frankiin og Luther Vandross. -SÞS plötu en um aðra konu? „Menn geta orðað þetta hvemig sem þeir vilja en ég vil halda allri samlíkingu við Konu-plötuna í lámarki þvi að mér finnst plötumar það ólíkar. Lífið er ljúft er miklu þroskaðra verk enda hef ég breyst mikið á þeim sjö árum sem liðin eru frá því Kona kom út.“ - Fjölskyldulífið er líklega það sem hefur breytt þér mest? „ Já, á því er ekki nokkur vafi. Bara það að glftast án þess að eignast böm breytir manni, setur skoröur og lokar kannsku einhverjum dyrum. Ég segi hins vegar að hjónabandið sé frelsi en ekki helsi eins og margir vilja vera láta. Það er misjafnt hvar menn leita hamingjunnar, sumir finna hana í trúnni, aðrir í eitur- lyfjum og svo mætti lengi telja. Ég segi að hamingja sé hugarástand sem byrjar með brosi. Að eiga konu og böm gefur mér ástæðu til aö brosa og ég finn fyrir frelsinu inni í mér. Ég haföi hamskipti innra með mér þegar ég varð pabbi, ég sá lífið út frá nýjum forsendum og gildismatið breyttist. Bömin losa menn undan helsi egósins. Tilfinningin sem við köllum ást víkkar út í hiö óendanlega við að eignast bam og það veitir frelsi því athafnasvæði ástarinnar ein- skorðast þá ekki lengur við eigin nafla. Þetta em þær tilfinningar sem ég hef verið að upplifa fyrst á allra síðustu árum og þeim reyni ég að skila á þessari nýju plötu,“ segir Bubbi um leið og hann hallar sér ánægður aftur í stólinn. - Tónlistarlega býður Lífið er ljúft upp á ýmislegt sem þú hefur ekki fengist við áður, kántrí og kreóla- tónlist til dæmis. Kom það af sjálfu sér að þú fórst inn á þessar brautir eða hefur þetta legið í loftinu? „Áhrif frá Bandaríkjunum og bandarískri tónlist hafa verið mjög áberandi á mínum plötum. Ég hef gaman af kántrítónlist sem heldur sig innan marka þess sem menn á borð við Hank Williams voru að gera. Mikið af þeirri kántrítónlist sem heyrist í dag er hroðaleg og er í raun að eyðileggja orðstír þessarar tón- listarstefnu enda hafa menn verið óragir við að hella miklum glassúr í vinsældakántríinu. Kántrí er merkileg tónlist í eðli sínu en vandmeðfarin. Bubbi segist hafa gengið með hugmynd að nýju plötunni í þrjú ár. DV-mynd Sigurður Sverrisson Hillbilliesband, sem brilleraði í Kananum þegar ég var polli, kveikti áhuga minn á kreólatónlist. Ég man að sveitin var svo framandi fyrir mig þá að hún hefði getað verið frá annarri reikistjörnu. Fyrir utan banjó og fiðlu spilaöi sveitin á þvottabretti, blés í kúta og lék á spýtu með streng. Þetta líktist ekki neinu sem ég hafði heyrt eða séð. Síðan hefur mig langað að sinna þessari tónlist og hver veit nema að ég geri það betur síðar.“ - Þú notar píanó mikið á Lífið er ljúft. „Ég hef aldrei notað píanó áður á mínum plötum en á þessari gengur þaö sem rauður þráður. Það var í og með gert til að milda kántríáhrifin og einnig til að gefa plötunni þann ljúfa blæ sem efninu sæmirsegir Bubbi Morthens ánægður með sína nýjustu afurð. -SMS Tónlistargetraun DV og mm Tónlistargetraun DV og Spors er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku verða birtar þrjár spumingar um tónlist. Fimm vinningshafar hljóta svo geisladisk í verölaun frá hljómplötufyrirtækinu Spori hf. Að þessu sinni er það geisladiskurinn Algjört Möst, safnplata með 15 vinsælum lögum sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. Tónlistin úr gamanmyndinni Sleepless In Seattle fór nýlega á topp bandaríska breiðskífulistans. Hvað heita aðaileíkaramir í myndinni? 2. Söngkonan Mariah Carey er þessa dagana á toppi bandaríska smáskífulistans meö lagið Dream Lover. Hvaö er Mariah Carey gömul? 3. Nýjasta plata Billy Joel fór á topp bandaríska breiðskífulistans fyrir skömmu. Hvað heitir platan? Rétt svör sendist DV fyrir 4. nóvember, merkt: DV, Tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 4. nóvember og rétt svör veröa birt í tónlistarblaði DV11. nóvember. Hér em svo birt rétt svör við getrauninni sem birtist 7. október: 1. Dos Pilas og Bone China. 2. SSSól og Todmobile. 3. Rage against the Machine. Hljómsveitin Rage against the Machine hefur komið hingað til lands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.