Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1993, Síða 3
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
>A ‘
tónli0t
Oðurtil
hamingjunnar
- Bubbi Morthens hampar fjölskyldulífinu á nýrri plötu
Lífið er ljúft er heiti nýjustu plötu
Bubba Morthens og er sá titill
lýsandi fyrir stemninguna sem
platan býður upp á. Bubbi veltir upp
björtu hliðunum á tilverunni og
hvílir að mestu spjótin sem hann
hefur beint að ráðandi öflum í þessu
landi í gegnum árin.
Bubbi segist hafa gengið með
hugmynd að nýju plötunni í þrjú ár
en ekki framkvæmt hana fyrr en nú
þegar hún var fulhnótuð.
„Fyrsta hugmynd er bara skissa,"
segir Bubbi og bætir við. „Það er
alltaf nauðsynlegt að gefa hugmynd
tíma til að þroskast hversu góð sem
hún er. Ef hugmynd er gefin tími
hleður hún smám saman utan á sig
þannig að á endanum er hægt að fara
að vinna hana. Þannig varð þessi
plata til. Hugmyndimar eru allt að
því þriggja ára gamlar en lögin öll
samin á sex vikna tímabili í vor.
- Hvernig varð hugmyndin aö
plötunni til?
„Menn hafa sífellt verið að koma
til mín og kvabba um Konu-plötuna.
Viðkomandi segja hana mína bestu
plötu sem gleður mig að heyra en ég
get alls ekki verið sammála. Mér
hefur einnig fundist það leiðinlegt
fyrir konuna mína að hafa þurft að
sitja undir því að plata um fyrr-
verandi konu væri min besta. Kona
var gerð þegar ég stóð í skilnaði og
hún er hlaðin sjálfsvorkunn. Lífið er
ljúft gerði ég hins vegar tO heiðurs
hjónabandinu og konu minni sem
hefur kennt mér að meta fjölskyldu-
lífið.
Það hjálpaði mér við gerð nýju
plötunnar að geta leitað í smiðjur
listamanna sem hafa tileinkað plötur
eiginkonum sínum og ástinni. John
Lennon samdi ófá lögin til Yoko Ono
og Bob Dylan gerði tvær plötur þar
sem hann syngur til konu sinnar.
Desire sem er ástarjátning og Blood
on the Tracks sem er skilnaðarplata.
Eftir að hafa hlustað á þessa kappa
vissi ég hvaða leið ég vildi fara án
þess að falla í þá gryfju að apa eftir.“
Börnin losa menn
undan helsi egósins
- Þú ert þá búin að gera nýja konu-
vikunnar
Frank Sinatra
Fyrsta platan í 10 ár!
Frank Sinatra er lanqt frá þvi aö vera dauðui úr öliurn æðum
þo har.n sé kominn vei a áttræðisa’dur. Nú um komsndí
mánaðamót kemur út enn ein p!s.an með t-rankie Boy op
inniheldur sú dúetta ymiss Kor.ar þar sem Frank fær úmsa
osfntogaða songva>a cg songkon urtii aðtaka með séi n&mi?
slagara. v'íðsvnir ,nenn ein< og FranK iáto sia ekk' muna um
að bjóöa nápópp uðum söngvara e'ns og Bono að syng'e reö
srr oq þe:r tpiagar lOKci s.i|,,ari larpö . gam'o i.r/e Porter lac
iiiu. l’ve GotYou Under My Ski.n. Meóal annarra iaga i plöuinni
má nefna What Now My Love,: ve Goithe Woeid on a Stri.ng
ogThe! ady ís aT. amp. Medai heimsþekktra songlistamanna
sem koma fram á piötu Frank Sinatra eru Liza Mirmelli, Aretna
Frankiin og Luther Vandross.
-SÞS
plötu en um aðra konu?
„Menn geta orðað þetta hvemig
sem þeir vilja en ég vil halda allri
samlíkingu við Konu-plötuna í
lámarki þvi að mér finnst plötumar
það ólíkar. Lífið er ljúft er miklu
þroskaðra verk enda hef ég breyst
mikið á þeim sjö árum sem liðin eru
frá því Kona kom út.“
- Fjölskyldulífið er líklega það sem
hefur breytt þér mest?
„ Já, á því er ekki nokkur vafi. Bara
það að glftast án þess að eignast böm
breytir manni, setur skoröur og
lokar kannsku einhverjum dyrum.
Ég segi hins vegar að hjónabandið sé
frelsi en ekki helsi eins og margir
vilja vera láta. Það er misjafnt hvar
menn leita hamingjunnar, sumir
finna hana í trúnni, aðrir í eitur-
lyfjum og svo mætti lengi telja. Ég
segi að hamingja sé hugarástand sem
byrjar með brosi. Að eiga konu og
böm gefur mér ástæðu til aö brosa
og ég finn fyrir frelsinu inni í mér.
Ég haföi hamskipti innra með mér
þegar ég varð pabbi, ég sá lífið út frá
nýjum forsendum og gildismatið
breyttist. Bömin losa menn undan
helsi egósins. Tilfinningin sem við
köllum ást víkkar út í hiö óendanlega
við að eignast bam og það veitir frelsi
því athafnasvæði ástarinnar ein-
skorðast þá ekki lengur við eigin
nafla. Þetta em þær tilfinningar sem
ég hef verið að upplifa fyrst á allra
síðustu árum og þeim reyni ég að
skila á þessari nýju plötu,“ segir
Bubbi um leið og hann hallar sér
ánægður aftur í stólinn.
- Tónlistarlega býður Lífið er ljúft
upp á ýmislegt sem þú hefur ekki
fengist við áður, kántrí og kreóla-
tónlist til dæmis. Kom það af sjálfu
sér að þú fórst inn á þessar brautir
eða hefur þetta legið í loftinu?
„Áhrif frá Bandaríkjunum og
bandarískri tónlist hafa verið mjög
áberandi á mínum plötum. Ég hef
gaman af kántrítónlist sem heldur
sig innan marka þess sem menn á
borð við Hank Williams voru að gera.
Mikið af þeirri kántrítónlist sem
heyrist í dag er hroðaleg og er í raun
að eyðileggja orðstír þessarar tón-
listarstefnu enda hafa menn verið
óragir við að hella miklum glassúr í
vinsældakántríinu. Kántrí er
merkileg tónlist í eðli sínu en
vandmeðfarin.
Bubbi segist hafa gengið með hugmynd að nýju plötunni í þrjú ár.
DV-mynd Sigurður Sverrisson
Hillbilliesband, sem brilleraði í
Kananum þegar ég var polli, kveikti
áhuga minn á kreólatónlist. Ég man
að sveitin var svo framandi fyrir mig
þá að hún hefði getað verið frá
annarri reikistjörnu. Fyrir utan
banjó og fiðlu spilaöi sveitin á
þvottabretti, blés í kúta og lék á spýtu
með streng. Þetta líktist ekki neinu
sem ég hafði heyrt eða séð. Síðan
hefur mig langað að sinna þessari
tónlist og hver veit nema að ég geri
það betur síðar.“
- Þú notar píanó mikið á Lífið er
ljúft.
„Ég hef aldrei notað píanó áður á
mínum plötum en á þessari gengur
þaö sem rauður þráður. Það var í og
með gert til að milda kántríáhrifin
og einnig til að gefa plötunni þann
ljúfa blæ sem efninu sæmirsegir
Bubbi Morthens ánægður með sína
nýjustu afurð.
-SMS
Tónlistargetraun DV og
mm
Tónlistargetraun DV og Spors er léttur leikur sem allir
geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn
fer þannig fram að í hverri viku verða birtar þrjár
spumingar um tónlist. Fimm vinningshafar hljóta svo
geisladisk í verölaun frá hljómplötufyrirtækinu Spori hf.
Að þessu sinni er það geisladiskurinn Algjört Möst,
safnplata með 15 vinsælum lögum sem er í verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Tónlistin úr gamanmyndinni Sleepless In Seattle fór
nýlega á topp bandaríska breiðskífulistans. Hvað
heita aðaileíkaramir í myndinni?
2. Söngkonan Mariah Carey er þessa dagana á toppi
bandaríska smáskífulistans meö lagið Dream Lover.
Hvaö er Mariah Carey gömul?
3. Nýjasta plata Billy Joel fór á topp bandaríska
breiðskífulistans fyrir skömmu. Hvað heitir platan?
Rétt svör sendist DV fyrir 4. nóvember, merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum 4. nóvember og rétt
svör veröa birt í tónlistarblaði DV11. nóvember.
Hér em svo birt rétt svör við getrauninni sem birtist
7. október:
1. Dos Pilas og Bone China.
2. SSSól og Todmobile.
3. Rage against the Machine.
Hljómsveitin Rage against the Machine hefur komið hingað
til lands.