Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1993, Page 3
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1993
29
SIGURÐUR FLOSASON
- GENGIÐ Á LAGIÐ
„Það er skemmst frá því að segja
að GENGIÐ Á LAGIÐ er metnað-
arfyllsta og markvissasta jazzút-
gáfa hérlendis nokkru sinni." GG.,
MBL., 20.10 '93
onai mmmnm
ORRI HARÐARSON
- DRÖG AÐ HEIMKOMU
Tónlist sem leggur drög að bjartri
framtíð.
JAPISS
tónlistardeild
Brautarholti og Kringlunni
Símar 625290 og 625200
Dreifing: Sími 625088
Fimmtán árfrá stórtónleikunum Drögum að sjálfsmorði:
Megas og Nýdönsk
leggja drög að upprisu
- farið verður yfirferil Megasarfrá upphafi til þessa dags
RÚNAR ÞÓR - AÐ MESTU
III- og ófáanleg Iög má finna á
þessum grip.
Að auki eru nokkur ný.
HÖRÐUR TORFA - GULL
Enn á ný kemur plata frá Herði
sem er gulls ígildi.
ROKK I REYKJAVIK
Hreinlega skyldueign allra.
BUBBLEFLIES - THE WORLD
IS STILL ALIVE
Frumburður þessi sýnir að enn er
til lifandi tónlist á islandi
Um þetta leyti fyrir fimmtán árum
var Magnús Þór Jónsson - Megas -
hundrað sjötíu og átta sentímetrar
að hæð, fimmtíu kíló að þyngd,
stundaði fremur óhoilt lífemi - og
efndi til tvennra tónleika í hátlðarsal
Menntaskólans við Hamrahlíð. Tón-
leikamir vora haldnir sunnudaginn
þriðja nóvember. Þeir fyrri laust eft-
ir miðdegiskaffi og hinir um kvöld-
ið. Tónleikamir kölluðust Drög að
sjálfsmorði og þóttu takast vel. Fljót-
lega eftir tónleikana fóru að gjósa
upp kjaftasögur um að listamaður-
inn hefði tekið tónleikana á orðinu
og framið sjálfsmorð. Hann var jú
ansi grannur miðað við hæð og hætti
til að detta þegar minnst varði.
En Megas var á lífi og kjaftasagan
dó. Hann er sprelllifandi enn þann
dag í dag, ennþá hundrað sjötíu og
átta sentímetrar á hæð og kunnugir
giska á að hann sé um það bil sjötíu
kíló á þyngd. Hann ástundar álíka
hollt líferni og hver annar og er
hættur að detta i tíma og ótíma. Og
annað kvöld og á sunnudagskvöldið
ætlar hann að halda upp á að
fimmtán ár em liðin frá því.að hann
bauð upp á Drög að sjálfsmorði í MH
með því að efna til tónleikanna Drög
að upprisu á sama stað.
Blönduð dagskrá
Megas hefur fengið hljómsveitina
Nýdanska í lið með sér á hljóm-
leikunum að þessu sinni. Guðlaugur
Óttarsson gítarleikari, samstarfs-
maður hans til margra ára, kemur
fram í nokkrum lögum og einnig
syngja Margrét Sigurðardóttir og
Kristbjörg Sólmundardóttir, söng-
konur hljómsveitarinnar Yrju, í
fáeinum lögum.
Megas og samstarfsmenn hans á tónleikunum sem nefnast Drög að upprisu.
Verkið Drög að sjálfsmorði verður
ekki endurílutt heldur ætlar Megas
að bjóða upp á fjölbreytt úrval laga
frá ýmsum tímum, allt frá fyrstu plöt-
unni og til þessa dags. Öfl hafa þau
verið útsett sérstaklega fyrir þetta
tilefni. Á dagskránni verða meira að
segja nokkur ný lög sem ekki hafa enn
verið gefin út og tvö þeirra verða flutt
í fyrsta skipti opinberlega. Og víst er
að tónleikagestir fá talsvert fyrir
peningana sína þvi að á dagskránni
verða tuttugu og flögur eða tuttugu og
fimm lög. Að auki ætlar Yrja að hita
upp þannig að tónleikarnir standa
væntanlega yfir í hátt á þriðju
klukkustund með öllu. Af Drögum að
sjálfsmorði verða raunar aðeins tvö
lög. Annað þeirra er að sjálfsögðu Ef
þú smælar framan í heiminn.
Margt á döfinni
Samstarf Megasar og Nýdanskrar
á sér hátt í árs aðdraganda. Ekki
hefur getað orðið af þvi fyrr en nú
vegna anna. Jón Ólafsson hefur hins
vegar talsvert unnið með Megasi hin
síðari ár, meðal annars þegar platan
Þrír blóðdropar var hljóðrituð. Þá
unnu tveir liðsmenn Nýdanskrar,
DV-mynd ÞOK
Stefán Hjörleifsson og Björn Jr.
Friðbjömsson með Megasi að nýrri
útgáfu Ef þú smælar framan í heim-
inn á dögunum. Megas segist vera
ánægður með samstarfið og sömu
skoðun er að heyra úr herbúðum Ný-
danskrar. Hljóðrita á hljómleikana
og er meiningin að gefa þá út á
hljómplötu síðar rétt eins og gert var
við Drög að sjálfsmorði fyrir fimm-
tán árum. Þá tekur rás tvö þátt í
leiknum og ætlar að senda út sér-
stakan' þátt um tónleikana og heyrst
hefur að til standi að efna til sérstaks
Megasardags, síðar. Loks má geta
þess að á næstp vikum sendir Skífan
á markað safnplötu með nokkram
þekktustu lögum Megasar. Það er því
margt á döftnni hjá listamanninum
um þessar mundir. -ÁT-
vikunnar
Axl Rose
Réttur er settur
Axl Rose, söngvari Gun's N'Roses,
hefur í nógu að snúast þessa
dagana. Þaóerþóekkitónlistinsem W •
hann er að fást viö heldur lög- í ■■ -.
fræðingalið og dómarar. Nú standa J-
nefnilega yfir réttarhöld vegna .,v; 4||
fjölda ákæra á hendur Rose sem / yBp?"*
bárust eftir uppþot sem varð á '
tónleikum GN'R í Bandaríkjununi W r .
fyrirtveimurárum.ÞáhentiRosesér Æ.\.
úti áhorfendaskaranntil að klófesta
náunga sem hann uppástóð að X
hefði verið aó Ijósmynda án leyfis. JMBBbBWÍNí \
Gekk Rose harkalega í skrokk á * v
manninumogslösuðusthvorkifærri
né fleiri en 60 áhorfendur í hama-
ganginum. Stór hluti þeirra höfðaði mál á hendur Rose og fær
hann nú aó súpa seyðió af því. Manngarmurinn, sem Rose hélt
aó hefði verið að mynda, var það alls ekki og hefur Rose þegar
borgað honum stóra fúlgu í skaðabætur. -SÞS
Tónlistargetraun
DV og Spors
Tónlistargetraun DV og Spors er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotiö geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í hverr i
viku verða birtar þijár spumingar
um tónlist. Fimm vinningshafar
hljóta svo geisladisk í verðlaun frá
hljómplötufyrirtækinu Spori hf.
Að þessu sinni er það geisla-
diskurinn Ten með hljómsveitinni
Pearl Jam sem er í verðlaun.
Hér koma svo spurningamar:
1. Fyrsta smáskífa plötunnar
River of Dreams meö Bifly Joel
stefndi á topp bandaríska smá-
skifulistans fyrir nokkrum vik-
um en náði þó ekki nema 2. sæti
listans. Hvað heitir lagið?
2. Plötuumslag nýjustu plötu
Billys Joel hefur vakið mikla
athygli en konan hans málaði
myndina sem er framan á plötu-
umslaginu. Konan hans er fræg
fyrirsæta, hvað heitir hún?
3. Hljómsveitin Pearl Jam gaf út
plötu sína, Ten fyrir rúmlega
tveimur áram og í fyrra náði
hún toppi bandaríska breið-
skífulistans. Frá hvaða þekktu
Geisladiskurinn Ten með hljómsveitinni
Pearl Jam er í verðlaun að þessu sinni.
tónlistarborg í Bandaríkjunum
kemur hljómsveitin?
Rétt svör sendist DV fyrir 11.
nóvember, merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
11. nóvember og rétt svör verða birt
í tónlistarblaði DV 18. nóvember.
Hér eru svo birt rétt svör við
getrauninni sem birtist 14. október:
1. Greatest Hits 2.
2. Symphony Or Damn.
3. Svíþjóð.