Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1993 43 ► ‘ tónli0t Alltaf langað að gera jólaplötu - segir Sigríður Beinteinsdóttir um plötuna Desember Þegar hafa selst meira en 6 þúsund eintök af jólaplötu Sigríðar Beinteinsdóttur. „Síðan ég byrjaði að syngja hefur mig langað að gera jólaplötu þannig að ]petta er gamall draumur sem ég ákvað að gera að veruleika fyrir þessi jól,“ segir söngkonan Sigríður Bein- teinsdóttir um jólaplötuna Desember sem hún sendi frá sér í lok nóvember. Sigríður gefur plötuna út sjálf og tók þar með alla fjárhagslega áhættu á sig en platan er vegleg og kostaði 4 milljónir króna í framleiðslu. Við- tökur hafa hins vegar verið góðar og þegar þetta er ritað hafa sex þúsupd eintök af henni selst og núllinu náð, að sögn Sigríðar. „Ég ákvað að kalla plötuna Desember því að þó uppistaðan á henni séu jólalög á það ekki við um öll lögin. Ave Maria er t.d. sálmur sem ekki endilega er bundinn jólunum og það á við um fleiri lög. Svo fannst mér Desember bara gott nafn með ákveðna vísbendingu. Lög- in eru bæði ný og gömul en það gefur plötunni ákveðna fjölbreytni." - Hverjir semja nýju lögin? „Það eru íjögur lög eftir tvo norska höfunda og eitt lag eftir Friðrik Karlsson. Annars er nokkur af eldri lögunum gömul uppáhaldsjóialög sem ég var löngu búin að ákveða að hafa með þegar ég myndi gera jólaplötu. Heims um ból og Ó helga nótt eru þar á meðal og þessi lög, eins og reyndar obbi laga plötunnar, eru í stórum útsetningum. Melódían heldur sér en útsetningamar í kring- um melódíuna eru mun stærr i en fólk á að venjast. Það eru síðan poppaðri lög þama inni á milli.“ - Nú ertu þekktust fyrir að syngja popplög. Er það jafngefandi að gera jólaplötu eins og aðra tónlist? „Já, hiklaust og kannski meira gefandi. Mörg af þessum lögum eru svo falleg og hlaðin tilfmningu og það snertir mann.“ Hátíðleikinn og tilfinningin skipta höfuðmáli - Hveijir unnu Desember me'ð þér? „Það eru menn sem ég hef starfað mikið með í gegnum tíðina. Svo er ég með Langholtskirkjukórinn í tveim- ur lögum og Egill Ólafsson syngur einnig með mér í tveimur lögum.“ - Hvaða töfrum telurðu að góð jólaplata þurfl að vera gædd? „Hún þarf fyrst og fremst að vera hátíðleg og þrimgin tilfinningu. Þá þarf flutningurinn að vera góður og útsetningar sömuleiðis. Ef þessir þættir fara saman tel ég að jólaplata þjóni hlutverki sínu til að skapa stemmningu á jólahátíðinni. Ég tel mig hafa náð að spinna þessa þræði saman á Desember," segir Sigríður Beinteinsdóttir. - Þannig að þú átt von á að þetta sé jólaplata sem komi til með að lifa? „Já, það ætla ég að vona og þær góðu viðtökur sem platan hefur fengið hafa styrkt mig í þeirri trú. Hún virðist höfða til fólksins og það var tilgangurinn með þessu öllu saman. Ég lagði mikla vinnu og íjármagn í þetta verkefni til þess að platan mætti verða eins góð og kostur væri og ég er ánægð með útkomuna." - Platan var tekin upp í haust. Ertu búin að vera í jólaskapi undanfarna þrjá mánuði? „Nei, ekki get ég nú sagt það,“ segir Sigríður og brosir. „Ég hef bara ekki mátt vera að því að hugsa mikið um jólin. Vinnan i kringum plötuna hef- ur tekið allan minn tima og svo hef ég eytt síðustu vikum í að fylgja henni eftir. Það kemur þó að því að ég komist í jólaskapið enda orðið stutt í jólin," segir Sigríður Beinteinsdóttir, glaðbeitt með góðan grip. SMS 011 fjölskyldan -Ómarfinnur Gáttaþef „Ég held að það séu um 20 ár síðan ég gaf síðast út plötu og hver veit nema ég sé kominn af stað aftur. Nýja platan er vel til þess fallin að koma allri flölskyldunni í hátíðaskapið en platan er sett upp sem jólaskemmt- un. Hún er ekki eingöngu fyrir böm, fyrstu 9 lögin henta vel fyrir böm en síðustu 6 lögin eru meira fyrir fullorðna með svona aðventu- stemningu,“ sgði Ómar Ragnarsson sem nýverið gaf út plötuna „Ómar finnur Gáttaþef‘. „Það eru margir sem standa að plötunni með Gáttaþef. Pálmi Gunn- arsson, Helga Möller, Guðrún Gunnarsdóttir, Eyjólfur Kristjáns- son og Siggi Johnny. Síðan eru tvær ungar stúlkur sem einnig syngja á plötunni. Önnur er aðeins þriggja ára og er yngsti sólóflytjandi á diski á íslandi og þó víðar væri leitað. Hún heitir Lilja Sóley Hauksdóttir. Síðan syngur dóttir Grétars Örvarssonar, Guðrún, madonnulag alveg eins og engill. Einnig kemur Grýla sjálf fram í fyrsta skiptið og syngur eitt lag. vikunnar í hátíðaskap Gáttaþefur sjálfur er ekki þátt- takandi nema í nokkrum lögum.“ Mestallt frumsamíö efni - Eru þetta allt saman ný lög? „Textamir em allir eftir mig og mörg laganna og mestallt efnið er frumsamið. Ekkert af lögunum á þessari plötu hefur verið á eldri Gáttaþefsplötu áður.“ - Hver em tildrög þess að þú gefur út plötu nú eftir um 20 ára hlé? „Ég fór eiginlega af stað með þessa plötu af því það er svo mikið af fólki sem hefur talað við mig og sagt mér að gamla Gáttaþefsplatan sé orðin svo rispuð og það þurfi að fá kallinn aftur til byggða. Það var eiginlega kveikjan að þessu. Ég hef engan rétt á gömlu Gáttaþefsplötunum og get því ekki endurútgefið þær. Því var það ákveðið að ef ég færi á annað borð aftur af stað með karlinn kæmi ég með nýtt efni. Plötunni hefur verið vel tekið, til dæmis fór eitt lag af henni strax inn Textarnir á plötunni „Ómar finnur Gáttaþef" eru allir eftir hann sjálfan og einnig mörg laganna. DV-mynd JAK á vinsældalista og er þar á uppleið. Ég get því ekki annaö en verið ánægður fyrir hönd Gáttaþefs," sagði Ómar. -IS Tónlistargetraun DV og Spors Tónlistargetraun DV og Spors er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk aö launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku verða birtar þrjár spumingar um tónlist. Fimm vinningshafar hljóta svo geisladisk í verðlaun frá hljómplötufyrirtækinu Spori hf. Að þessu sinni er það geisla- diskurinn You Ain’t There með Jet Black Joe sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingarnar: 1. Hvað em meðlimir Jet Black Joe margir? 2. Hvað heitir söngvari Jet Black Joe? 3. Hvað hefur hljómsveíffn Jet Black Joe gefið út margar plötur? Rétt svör sendist DV fyrir 30. desemþer, merkt: DV, Tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 30. desember og rétt svör verða birt í tónlistarblaði DV 6. janúar. Hér em svo svörin við getrauninni sem birtist 2. desember: 1. Spillt. 2. Páll Rósinkrans. 3. Fimm. Geisladiskurinn You Ain't There með Jet Black Joe sem er í verðlaun. BUBBLEFLIES THE WORLDIS STILL ALIVE ORRI HARÐARSON DRÖG AD HEIMkOMV YUKATAN SAFNAR GUÐUM RUNAR ÞOR AÐMESTU RABBI EF ÉG HEFÐIVÆNGI JAPIS3 tónlistardeild Brautarholti og Kringlunni Símar 625290 og 625200 Dreifing: Sími 625088

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.