Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1994, Page 5
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1994
Messur
Árbæjarkirkja: Barna- og fjölskylduguösþjón-
usta kl. 11. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 14. Sr.
Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Lilja K. Þor-
steinsdóttir guðfræðinemi predikar. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
Áskirkja: Barna- og fjölskylduguðsþjónusta
æskulýðsdagsins kl. 11.00. Veitingar í safnaðar-
heimili Áskirkju eftir guðsþjónustu. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Kaffisala kirkju-
kórsins á eftir. Samkoma Ungs fólks með hlut-
verk kl. 20.30. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaöakirkja: Barnamessa kl. 11.00. Hemmi
Gunn talar við börnin. Æskulýðs- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 14.00. Sigurður Grétar Sig-
urðsson prédikar. Sóknarpresturinn þjónar fyrir
altari. Kirkjukaffi.
Digranesprestakall: Guðsþjónusta æskulýðs-
dagsins verður í Kópavogskirkju kl. 11. Kirkju-
bíll fyrir sunnudagaskólabörn fer frá safnaðar-
heimilinu kl. 10.45. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Æskulýðsguðsþjónusta kl. 11.00.
Prestur sr. María Ágústsdóttir. Kl. 14.00. Föstu-
messa með altarisgöngu. Prestur sr. Jakob Á.
Hjálmarsson.
Eyrarbakkarkirkja: Messa kl. 14.
Fella- og Hólakirkja: Æskulýðsguðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Veit-
ingar í boði æskulýðsfélagsins eftir guðsþjón-
ustuna. Kl. 18. (íuðsþjónusta með altarisgöngu.
Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Prest-
arnir.
Frikirkjan i Hafnarfirði: Barnasamkoma kl. 11.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Sigriður Kristín
Helgadóttir guðfræðinemi predikar. Sr. Einar
Eyjólfsson.
Frikirkjusöfnuðurinn í Reykjavik: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 14. Cecil
Haraldsson.
Garöasókn: Æskulýðsdagurinn. Fjölskyldu-
guðsþjónusta í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl.
13. Elínborg Sturludóttir flytur hugvekju. Ungl-
ingar úr Æskulýðsfélagi Garðakirkju munu
standa fyrir kökubasar í safnaðarheimilinu frá
kl. 14-17. Æskulýðssamkoma með „poppívafi"
i umsjá Æskulýðsfélags Garðakirkju í Kirkju-
hvoli kl. 20.30. Andri Heide flytur hugvekju.
Veitingar að athöfn lokinni. Bragi Friðriksson.
Kálfatjarnarsókn: Kirkjuskóli laugardag i Stóru-
Vogaskóla kl. 11. Æskulýðsdagurinn. Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14. Bragi Friðriksson.
Grafarvogskirkja: Æskulýðsdagurinn: Barna-
messa kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Biskup ís-
lands, herra Ólafur Skúlason, visiterar Grafar-
vogssöfnuð og predikar í guðsþjónustunni.
Dómprófastur sr. Guðmundur Þorsteinsson
ávarpar söfnuðinn. Fundur með sóknarnefnd
og starfsfólki kirkjunnar eftir guðsþjónustuna.
Sr. Vigfús Þór Árnason.
Grensáskirkja: Fjölskyldumessa kl. 11.00. Anna
Pálsdóttir og sr. Gylfi Jónsson. Guðsþjónusta
kl. 14.00 sérstaklega ætluð fermingarbörnum
og foreldrum þeirra. Stutt prédikun sr. Gylfi
Jónsson. Bæn og blessun sr. Halldór S. Grönd-
al.
Grindavikurkirkja: Æskulýðsdagur þjóðkirkj-
unnar. Barnastarfið kl. 11. Fjölskyldusamkoma
í kirkjunni kl. 20.30. Samkomunni lýkur með
kaffiveitingum í safnaðarheimilinu sem eru fram-
reiddar af fermingarbörnum og foreldrum þeirra.
Jóna Kristin Þorvaldsdóttir.
Hallgrimskirkja: Fræðslustund kl. 10.00. Sr.
Karl Sigurbjörnsson: „Þau tvö skulu verða eitt".
Um 'fjölskylduna og hjónabandið. Kl. 11.00.
Fjölskyldumessa á æskulýðsdegi. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Kl. 20.30. Kvöldmessa á æsku-
lýðsdegi.
Háteigskirkja: Messa í þjóðlagastíl kl. 11.00 i
flutningi æskulýðsfélags og barnakórs kirkjunn-
ar og tónlistarfólks. Sr. Tómas Sveinsson og sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
Hjallakirkja: Æskulýðsguðsþjónusta kl. 11.
Barnastarf á sama tima. Sr. Kristján Einar Þor-
varðarson.
Kársnesprestakall: Barnastarf í safnaðarheimil-
inu Borgum kl. 11. Guðsþjónusta á Æskylýðs-
degi í Kópavogskirkju kl. 14. Kökusala æsku-
lýðsstarfsins i Borgum eftir messu. Sr. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
Keílavikurkirkja: Æskulýðsdagurinn: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Æskulýðs-
og fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Æskulýðs-
og fjölskyldusamkoma í Bókasafni Keflavíkur
kl. 20.30 með fermingarbörnum og nemum úr
Tónlistarskólanum í Keflavik. Prestarnir.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups.
Barnamessa kl. 13.00. Umsjón: Haukur Ingi
Jónasson. Æskulýðsmessa kl. 14.00. Prestur sr.
Flóki Kristinsson. Kaffisala fermingarbarna eftir
messu. Ágóðinn rennur í Liknarsjóð Langholts-
kirkju.
Laugarneskirkja: Æskulýðsdagurinn. Guðs-
þjónusta kl. 11.00. Gunnar Finnbogason prédik-
ar. Sr. Jón D. Hróbjartsson. Barnastarf á sama
tíma i umsjá Þórarins Björnssonar.
Mosfellsprestakall: Fjölskyldumessa í Lágafells-
kirkju kl. 13.30. Athugið breyttan messutima.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl. 11.00. Bíll frá
Mosfellsleið fer venjulegan hring. Jón Þor-
steinsson.
Neskirkja: Bdrnasamkoma kl. 11.00. Munið
kirkjubilinn. Guðmundur Óskar Ólafsson. Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Guðhiundur Karl Brynjarsson
guöfræðinemi prédikar. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
Seljakirkja: Laugardagur 5. mars. Guðsþjónusta
í Seljahlíð kl. 11. Biskup Islands, herra Ólafur
Skúlason, visiterar og prédikar i guðsþjón-
ustunni. Sunnudagur: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Sr. Ingileif
Malmberg predikar. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Æskulýðsmessa kl. 11.00.
Andri Heide æskulýðsleiðtogi prédikar. Prestur
sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
LRfmmsýnir Gleðigjafana:
Gamanleikur
með farsaívafi
„Þetta er gamanleikur meö farsaí-
vafi og þaö spilar á margs konar
nótur. Hvort þaö sé eitthvað líkt með
okkur Bessa og aðalleikurunum? Ég
v get ímyndað mér að það séu ein-
hverjir strengir í mér eins og í þess-
um karli. Ég vil nú láta Bessa svara
fyrir sig því sá sem hann leikur er
svohtið erfiður,1' segir Árni Tryggva-
son leikari í samtali við DV vegna
frumsýningar Gleðigjafanna.
Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi
Gleðigjafana eftir Neil Simon á stóra
sviði Borgarleikhússins í gær. í aðal-
hlutverkum eru tveir reyndustu
gamanleikarar landsins, Árni
Tryggvason og Bessi Bjarnason.
Önnur sýning verður í kvöld, föstu-
dagskvöld. Þýðingu og staðfærslu á
verkinu annaðist Gísh Rúnar Jóns-
son.
„Það hefur verið mjög gaman að
vinna þetta. Við höfum leikið í mörg-
um leikritum saman án þess að leika
mikið saman. Þetta er þaö verkefni
sem við höfum leikið mest saman í
og sem skiptir einhverju máli í sam-
andi við hlutverk," segir Árni.
Neil Simon skrifaði Gleðigjafana
árið 1972. Þar segir frá endurfundi
tveggja gamalla skemmtikrafta,
þeirra Alla og Villa, sem hafa ekki
unniö saman í nær tólf ár en eiga að
baki meira en fjörutíu ára samstarfs-
feril. Simon lýsir sambandi þeirra
semástar-oghaturssambandi. -em
„Pólís-tón-
leikar" í
Akureyrar-
kirkju
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri;
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
heldur „Pólís-tónleika“ í Akureyrar-
kirkju nk. sunnudag kl. 17. Nafn tón-
leikanna hefur ekkert með lögreglu
að gera, heldur skírskotar það til efn-
isskrárinnar sem hefur að geyma ís-
lensk og pólsk verk.
íslenski hluti tónleikanna nefnist
„Árhringur“ og er eftir Hauk Tómas-
son sem samdi það sérstaklega fyrir
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. í
pólska hluta tónleikanna verða flutt
„Colas Breugnon" eftir Tadcus/Baird
og Fiðlukonsert eftir Andrzej
Panufnik.
Kammer-
tónleikar
Kammersveit Hafnarfiarðar held-
ur tónleika í Hafnarborg á sunnudag
kl. 20.30. Alls taka 27 tónlistarmenn
þátt í tónleikunum og er efnisskráin
mjög fiölbreytt.
Söngdagar á
Kleppjáms-
reykjum
Olgeir Helgi Ragnaisson, DV, Boigamesi;
Söngdagar Tónhstarfélags Borgar-
fiarðar veröa haldnir 4.-6. mars í
Kleppjámsreykjaskóla í Reykholts-
dal. A söngdögum munu þátttakend-
ur læra að syngja saman í fiómm
röddum ættjarðarlög sem Jón Stef-
ánsson hefur gefið sérstaklega út.
Bessi og Árni leika skemmtikrafta sem eiga að baki 40 ára samstarfsferil.
DV-GVA
Með vifið í lúkunum verður frumsýnt
á laugardag.
Stykkishólmur:
Með vífið í
lúkunum
Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi
fmmsýnir leikritið Með vífið í lúkun-
um eftir breska rithöfundinn Ray
Cooney. Frumsýnt verður á laugar-
dagskvöld í Hótel Stykkishólmi. Ingi-
björg Bjömsdóttir leikstýrir.
Leikfélagið og Hótel Stykkishólm-
ur hafa tekið höndum saman og gist-
ingu, leiksýningu og kvöldverð fyrir
þá sem vilja koma í sveitina.
Norðlenskir
hestadagar
Norðlenskir hestadagar standa nú
yfir í Reiðhöllinni. Þar verður ís-
lenski hesturinn tengdur atburðum
úr íslandssögunni. Höfundur hand-
rits er Vigfús Björnsson rithöfundur,
Saga hests og manns frá fortíð til
nútíðar. Sýningarnar hefiast kl. 20.30
dag hvern og verða sýndir norð-
lenskir gæðingar og kynbótahross.
Tónlist í
Borgarfirði
Olgeir Helgi Ragnaisson, DV, Borgamesi;
Kveldúlfskórinn í Borgamesi er tiu
ára um þessar mundir. Af því tilefni
hefur kórinn æft upp metnaðarfulla
dagskrá. Kórinn leggur land undir
fót á sunnudag og syngur í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði kl. 17 sama dag.
Heim-
skautafari í
heimsókn
Grænlenski fyrirlesarinn og heim-
skautafarinn Jens Jergen Ono
Fleischer mun ferðast um landið og
segja frá grænlenskri menningu og
ferðamöguleikum á Grænland'.
Einnig segir hann frá ferðalagi sínu
og félaga síns um Kanada til Point
Barrow í Alaska, 4000 km ferö á
hundasleðum.
Fyrsti fyrirlesturinn verður í Nor-
ræna húsinu á laugardag kl. 13. Eftir
það fer hann til ísafiarðar og Norður-
lands.
Menntaskólinn við Sund:
Opið hús á
laugardag
Menntaskólinn við Sund, áður
Menntaskólinn við Tjörnina, stendur
fyrir afmælishátíð vegna 25 ára af-
mælis skólans. Af þessu tilefni verða
nemendur, kennarar og starfsfólk
með opiö hús í skólanum á laugardag
kl. 13-17. Þar verður saga skólans
rakin, gamlar myndir úr skólalífinu
sýndar, nám í skólanum kynnt ásamt
ýmsu ööru sem ætlað er að gleðja
augu gesta.
Menntaskólinn við Sund er 25 ára.
21
Borgarleikhúsið
Stóra svið:
Gleðigjafarnir
föstudag kl. 20.00
Eva Luna
laugardag kl. 20.00
sunnudag kl. 20.00
litla svið:
Elin Helena
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
Þjóðleikhúsið
Stóra svið:
Gauragangur
sunnudag kl. 20.00
Mávurlnn
laugardag kl. 20
Skilaboðaskjóðan
sunnudag kl. 14.00
Litla svið:
Seiður skugganna
laugardag kl. 20,00
Smíðaverkstæðið:
Blóðbrullaup
föstudag kl. 20.30
Bæjarleikhúsið Mosfellssveit
Þetta reddast
föstudag kl. 20 30
Tjarnarbíó:
Sweeney Todd- morðóði rakarinn
við Hafnargötuna
laugardag kl. 20.00
sunnudag kl. 20.00
íslenska leikhúsíð í Hinu húsinu:
Vörulyftan
laugardag kl. 20.00
sunnudag kl. 20.00
AÍida flutt í
Mosfellsbae
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar á 30
ára afmæli um þessar mundir. í til-
efni afmælisins ætlar hljómsveitin
ásamt öllum kórum bæjarins, barna-
kórnum, kirkjukórnum, Mosfells-
kórnum, Reykjalundarkórnum,
Karlakórnum Stefni og Álafosskórn-
um, að flytja Aidu í íþróttahúsinu á
sunnudag.
Fæstir eiga afturkvæmt frá rakara-
stofu Sweeney Todd.
Tjamarbíó:
Morðóöi
rakarinn
Leikfélagið Herranótt sýnir á laug-
ardag og sunnudag í Tjarnarbíói leik-
ritið Morðóði rakarinn við Hafnar-
götuna eftir Christopher Bond. Leik-
gerð Bonds er biksvartur gamanleik-
ur, prýddur blóðslettum og róman-
tík. Sweeney Todd, morðóði rakar-
inn, kemur til Lundúna eftir 15 ára
óréttmæta útlegð til að leita hefnda
fyrir kúgun og niðurlægingu spilltra
yfirvalda. Hann stofnar rakarastofu
og fæstir gestanna eiga þaðan aftur-
kvæmt.
Söngsmiðjan:
Opið hús
Á laugardag verður opið hús í nýju
húsnæði Söngsmiðjunnar, Skipholti
25. Kl. 13.30 munu um 200 nemendur
safnast saman fyrir utan skólann og
syngja nokkur lög. Þá verður sýni-
kennsla í sölum skólans þar sem
fólki gefst kostur á að fylgjast með
og taka þátt.
Kl. 17. verður nýr Grotrian-
Steinweg flygill vígður á tónleikum
til styrktar honum. Ýmsir hstamenn
koma fram, Hrönn Hafliðadóttir,
Hafliði Jónsson, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Guðríður Sigurðar-
dóttir og Jóhanna Linnet.