Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 19. MARS 1994
37
Skák
Stórmótið í Unares:
Karpov hefur aldrei
staðið sig betur
Hefur Karpov farið svona mikið fram eða var sigur hans í Linares einung-
is tilviljun?
Einhvern veginn hefði mátt ætla
að Anatoly Karpov, sem óumdeilt
var sterkastur virkra skákmanna í
áratug, stigahæstur allra um árabil
og þar að auki einhver farsælasti
mótaskákmaður allra tíma, hefði fyr-
ir margt löngu náð tindinum. Þetta
afsannaði hann eftirminnilega á
mótinu í Linares, 42 ára gamall.
Kunnugir segja að frammistaða hans
jafngildi árangri upp á 2975 Elo-stig
og geri aðrir betur.
Karpov lét sér ekki nægja að láta
sigurinn falla að stöfum með dún-
mjúkum jafnteflum, eins og hann
gerði svo oft hér í eina tíð. Nú vildi
hann hafa forskotiö gott - tefldi til
sigurs gegn Beljavskí og afgreiddi
hann í 20 leikjum.
Með þessu gefur FIDE-heimsmeist-
arinn Karpov heimsmeistara PCA-
samtakanna - Garrí Kasparov - langt
nef og vekur skákunnendur enn til
umhugsunar. Hefur Karpov farið
svona mikið fram að fullkomin
óvissa ríki nú um það hvort K-anna
sé verðugri heimsmeistari? Eða var
sigur hans í Linares einungis tilvilj-
un? Líklega verður þessum spurn-
ingum ekki svarað nema Karpov og
Kasparov leiði saman hesta sína í
alvöru heimsmeistaraeinvígi í sjötta
sinn.
Karpov hlaut 11 vinninga af 13
mögulegum en Kasparov og Sírov
deildu 2. sæti með 8,5 v. Næstur kom
Bareev með 7,5 v., Lautier og Kramn-
ik fengu 7 v., Anand, Topalov og
Kamsky 6,5, Ivantsjúk 6, Gelfand 5,5,
Illescas 4,5, Judit Polgar 4 og
Beljavskí rak lestina með 2 v.
Greinilegt var að Kasparov var
ekki sáttur við aö horfa á „gamla
fórnarlambið" hlaupast á brott með
sigurinn. Hann lagði allt undir í síð-
ustu skákunum en fór of geyst - tap-
aði fyrir Kramnik og svo Lautier í
lokaumferðinni.
Kasparov fær stóran plús í sára-
bætur fyrir áræði og dirfsku og raun-
ar má slíkt hið sama segja um ungu
mennina Kramnik (Rússlandi) og
Sírov (Lettlandi) sem láta sér ekki
allt fyrir brjósti brenna. Þegar þeir
tefldu saman í næstsíðustu umferð
varð úr hreint ævintýri.
Hvítt: Vladimir Kramnik
Svart: Alexei Sírov
Drottningarpeðsbyrjun.
1. Rf3 d5 2. d4 Bf5 3. c4 e6 4. Rc3 c6
5. Db3 Db6 6. c5 Dc7 7. Bf4
Örlítil glenna. Ef 7. - Dxf4 8. Dxb7
og Ha8 fellur.
7. - Dc8 8. e3 Rf6 9. Da4 Rbd7 10. b4
a6 11. h3 Be7 12. Db3 0-0 13. Be2 Be4
14. 0-0 Bxf3 15. Bxf3 Bd8
Skynsamleg áætlun. Svartur
stefnir að því að losa um taflið með
framrás e-peðsins.
16. a4 Bc7 17. Bg5 h6 18. Bxf6 RxfB 19.
b5 e5 20. b6 Bb8 21. a5 exd4 22. exd4
Bf4 23. Dc2 Dd7!? 24. g3
Þeir eru ákveðnir í því að hleypa
taflinu upp; Sírov með síðasta leik
sínum og nú Kramnik, því að varla
leikur svartur nú 24. - Bb8 og lokar
drottningarhrókinn inni.
24. - Dxh3 25. Bg2 Dh5 26. gxf4 Rg4
27. Hfdl
Betra en 27. Hfel Dh2+ 28. Kfl
Dxf4 og d4 er einnig í uppnámi. Nú
er aftur meira álitamál hvort fórn
svarts stenst.
27. - Hae8 28. Hd3 Dh2+ 29. Kfl f5!?
Á hinn bóginn myndi svarta sóknin
fljótlega fjara út eftir 29. - Dxf4 30.
Dd2.
30. Dd2 HfB 31. f3
Hótar 32. fxg4 fxg4? 33. Bxd5+ og
vinna drottninguna. Hógvær leikur
sem 31. - Kh8 er Sírov ekki að skapi.
31. - He4!?
1 A & A á 1 á
A á A A
A I
A
tgr it
g <á?
ABCDEFGH
Ef nú 32. fxe4 fxe4 hefur svartur
afar hættulega sókn. Einnig gefur 32.
Rxe4 fxe4 33. Hc3 Hxf4 svörtum við-
unandi færi því aö hvítur er bundinn
í báða skó. En Kramnik hefur ekki
hugsað sér að leggjast í vörn...
32. Rxd5! cxd5 33. c6
Hvítu peðin ryðjast fram. Ef 33. -
Hxc6 34. fxe4 fxe4 35. Hh3 og vinnur.
33. - Hxf4 34. cxb7 He4!?
Hvítur svarar 34. - Hf8 á sama hátt.
35. Hcl! Kh7 36. b8=D
Önnur vinningsleið er 36. Hc8! Dg3
37. b8 = D Rh2+ 38. Kgl Hel+ 39.
Dxel Rxf3 + 40. Hxf3 Dxel + 41. Kh2.
36. - Dxb8 37. fxg4 Dh2
Annars sleppur kóngurinn til gl
og öllu er lokið.
38. Hf3 Hxg4 39. b7??
Svona er skákin - afraksturinn
hverfur á augabragði. Á hinn bóginn
gefur 39. H£2 Hfg6 40. Bxd5 hvítum
vinningsstöðu.
39. - Hfg6 40. Hc2 Hxg2! 41. Dxg2 Hxg2
42. Hxg2 Dhl+ 43. Kf2 Dbl
- Og hvítur gafst upp.
Umsjón
Jón L. Árnason
Áskorenda- og opinn
flokkur að hefjast
Nk. laugardag, 26. mars, kl. 14 hefst
keppni í áskorenda- og opnum flokki
á Skákþingi íslands og lýkur 4. apríl.
Tefldar veröa 9 umferðir, 2 klst. á 40
leiki og síðan 1 klst. til að ljúka skák-
inni.
í áskorendaflokki eiga þátttökurétt
tveir efstu menn úr opnum flokki
1993, unglingameistari íslands og
skákmeistari kvenna sama ár, sex
efstu menn svæðismóta og loks skák-
menn með 1800 Elo-stig eða meira.
í opnum flokki gefst öllum kostur
á að taka þátt. Teflt er í Faxafeni 12
og skráning er á mótsstað klukku-
stundu áður en tafl hefst.
Alþjóðlegt mót
í Kópavogi
Laugardaginn eftir páska hefst al-
þjóðlegt skákmót í Digranesskóla í
Kópavogi og stendur í níu daga. Þátt-
takendur verða um tuttugu, þar af
a.m.k. átta erlendir keppendur. Mót-
ið er öðrum þræði hugsað til þess aö
gefa íslenskum skákmönnum tæki-
færi til að krækja í áfanga að alþjóð-
legum meistaratitlum. Taflfélag
Kópavogs hefur veg og vanda af
mótshaldinu. Það verður með svip-
uðu sniði og alþjóðlegt mót Taflfé-
lagsins Hellis í haust sem þþtti sér-
lega skemmtilegt á að horfa.
Stigahæstur keppenda verður ung-
verjinn Zoltan Almasi, heimsmeist-
ari undir 18 ára en hann hefur 2610
stig. Þá er von á enska stórmeistar-
anum Mark Hebden, grísku stór-
meisturunum Grivas og Skembris
(sem vann Timman eftirminnilega í
einvígi í fyrra) og alþjóðlegu meistur-
unum Bjarke Kristensen, Dan-
mörku, og Emms, Wells og Kumaran
frá Englandi. íslensku stórmeistar-
arnir Jón L. Árnason og Hannes Hlíf-
ar Stefánsson eru skráðir til leiks svo
og Þröstur Þórhallsson, Guðmundur
Gíslason og Tómas Björnsson en aðr-
ir hafa ekki gefið endanleg svör um
þátttöku.
Öðlingamót
Miðvikudaginn 23. mars kl. 19.30
hefst svonefnt „öölingamót'1 Taflfé-
lags Reykjavíkur í Faxafeni sem ætl-
að er fertugum skákmönnum og það-
an af eldri. Tefldar verða 7 umferöir
eftir Monrad-kerfi, umhugsunartími
90 mín. á 30 leiki og síðan 30 mín. til
að ljúka taflinu. Teflt á miðvikudags-
kvöldum og öllum öðlingum heimil
þátttaka.
Bridge
Undankeppni íslandsbankamótsins 1994:
Sveit Glitnis sat eftir
Undankeppni íslandsbankamóts-
ins 1994 var spiluð á Hótel Loftleiðum
um sl. helgi og urðu úrslit nokkuð
hefðbundin. Eina undantekningin
var sú að sveit Glitnis náði ekki inn
í úrslitakeppnina en hún hefir sem
kunnugt er fyrrverandi heimsmeist-
ara innanborðs auk annarra þraut-
reyndra bridgemeistara.
Þær sveitir sem náðu að komast í
úrslitakeppnina, sem spiluð verður
um bænadagana að hefðbundnum
hætti, eru þessar:
Sveit VÍB, sveit DV, sveit Magnús-
ar Magnússonar, sveit Hjólbarða-
hallarinnar, sveit Bíóbarsins, sveit
Tryggingamiðstöðvarinnar, sveit
Metró, sveit Landsbréfa, sveit S. Ár-
manns Magnússonar og sveit Spari-
sjóðs Siglufjarðar, núverandi ís-
landsmeistara.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Sveit Landsbréfa vann sinn riðil á
sannfærandi hátt, meðan mikil
spenna ríkti milli sveita í öðrum riðl-
um. íslandsmeistararnir frá Siglu-
firði urðu í öðru sæti eftir harða bar-
áttu við sveit Icemac, sem skipuð er
ungum og upprennandi spilurum.
Icemac vann Siglfirðingana naum-
lega en tapaði illa fyrir sveit Lands-
bréfa. Það tap gerði vonir þeirra um
úrslitasæti aö engu. Viö skulum
skoða eitt spil frá þeirri viðureign.
V/0
* K10763
V G6
♦ Á
+ KD874
* -
¥ ÁD109853
♦ D984
+ G2
* ÁD8542
¥ K
♦ KG63
+ 105
* U9
* 742
* 10752
-I. Á nco
Með Hlyn Garðarsson og Gunnlaug
Karlsson í n-s en fyrrverandi heims-
meistara, Jón Baldursson og Guð-
mund Pál Arnarson, í a-v gengu
sagnir á þessa leið :
Vestur Norður Austur Suður
4 hjörtu dobl 5hjörtu! 6spaðar
pass pass
Ég býst viö að á flestum borðum
heföi vestur opnað á fjórum hjörtum
og síðan hefði norður doblað eða sagt
fjóra spaða. Hins vegar býst ég ekki
við að margir hefðu fundið fimm
hjarta sögnina á spil austurs eins og
Jón Baldursson gerði við doblinu.
Hann setur suður gersamlega upp
að vegg og hver getur láð honum að
stökkva í hina vonlausu slemmu.
Við hitt borðið spiluðu Sævar Þor-
björnsson og Sverrir Ármannsson
fjóra spaða og unnu fimm. Það voru
11 impar og stór áfangi í 25-2 vinn-
ingi Landsbréfa.
Einn sagnhafi fékk að vinna sex
spaða en erfitt er að geta sér til um
hvemig það tókst.
lag Horaa-
fjarðar
Aðalsveitakeppni félagsins er
nú lokið eftir jafna og spennanöi
keppni og sveit Borgeyjar hafði
sigur á endasprettinum. Lokast-
aða efstu sveita varð þannig:
1. Borgey 146
2. Hótel Höfn 138
3. Gunnar P. Halldórsson 131
4. Skrapsveitin 129
Sveit Borgeyjar skipuðu Ágúst
Sigurðsson, Baldur Kristjánsson,
Helgi H. Ásgrímsson, Ólafur
Magnússon og Sigurpáll Ingi-
bergsson. Jafnramt var reiknaö-
ur Butler og stóðu Ágúst Sigurðs-
son og Baldur Kristjánsson í Bor-
geyjarsveitinni sig best, fengu 263
impa í hagnað, Gunnar P. Hall-
dórsson og Jón Níelsson fengu
159 impa og Árni Stefansson og
Jón Sveinsson fengu 139 impa.